Morgunblaðið - 23.10.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER1994 13
FRÉTTIR
Alit umboðsmanns Alþingis
Dómsmálaráðu-
neytið fór út fyrir
lagaheimildir
UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur að
dóms- og kirkjumálaráðuneytið hafi
farið út fyrir lagaheimiidir með' af-
skiptum þess af forsjár og umgengn-
isréttarmáli sem kært var til umboðs-
manns. Jafnframt telur umboðsmað-
ur að lögreglan í Reykjavík hafi brot-
ið gegn starfsskyldum sínum með
því að hlýða ekki fyrirmælum- fógeta
þegar taka átti barnið, sem um var
deilt, af móður þess. Þorsteinn Páls-
son dómsmálaráðherra segir að
vinnubrögð sem viðhöfð hefðu verið
í þessu máli væru ekki viðhöfð í for-
sjár- og umgengnisréttarmálum í
dag.
Forsaga málsins er að með lög-
skilnaði hjóna í febrúar 1987 var
eiginmanninum falin forsjá þriggja
barna þeirra. Hann flutti úr.landi
með börnin, en móðirin var áfram á
íslandi. Á árunum 1987 og 1989
óskaði móðirin tvisvar eftir að ráðu-
neytið endurskoðaði úrskurð sinn og
úrskurðaði sér forsjá eins barnanna.
Ráðuneytið hafnaði fyrri beiðninni.
Móðirin dró síðari beiðnina til baka,
en óskaði eftir breytingum á um-
gengnisrétti. Vegna afskipta dóms-
málaráðuneytisins náðist samkomu-
lag um að barnið kæmi til íslands
sumarið 1990 og dveldist hjá móður
sinni til 4. ágúst. Ráðuneytið lofaði
að beita sér fyrir að barninu yrði
skilað og jafnframt að það myndi
ekki taka til greina kröfu um endur-
skoðun forsjár meðan barnið dveldi
á íslandi hjá móður sinni.
Lögreglan neitaði að hlýða
fógeta
Tveimur dögum áður en móðirin
átti að láta barnið frá sér óskaði
móðirin eftir því við dómsmálaráðu-
neytið að ákvörðun um forsjá barns-
ins yrði endurskoðuð. Ráðuneytið
hafnaði beiðninni 9. ágúst þar sem
ekkert hefði komið fram um breyttar
forsendur frá fyrri ákvörðun. Móðirin
fór enn fram á endurskoðun forsjár
22. ágúst. Deginum áður hafði fóg-
eti úrskurðað að taka skyldi barnið
af móðurinni. Sú aðgerð átti að fara
fram 8. september en náði ekki fram
að ganga vegna aðstæðna á staðn-
um, en bæði móðirin og barnið börð-
ust hart gegn lögreglunni. Lögreglan
hvarf af heimilinu og bar m.a. fyrir
sig að hafa ekki fengið fyrirmæli frá
lögreglustjóra um að taka barnið.
Lögreglan sagði að lögreglustjóri
væri sinn yfirmaður, ekki fógeti.
I lok september fól þáverandi
dómsmálaráðherra þremur sérfræð-
ingum að kanna aðstæður og hag
bamsins. Stóð sú rannsókn til vors
1992. í ágúst það ár var fyrri forsjár-
úrskurður staðfestur og fór barnið
til föður síns um haustið.
Afskipti ráðherra óvenjuleg
Umboðsmaður Alþingis telur að
frumkvæði dómsmálaráðuneytisins
af því að fá barnið til íslands og vil-
yrði í tengslum við þá ákvörðun hafi
vart verið samrýmanleg stöðu ráðu-
neytisins eða þeim heimildum sem
það á að vinna eftir. Jafnframt telur
umboðsmaður að meðferð þessa
máls af hálfu ráðuneytisins hafi ekki
verið hagað eins og venja er í um-
gengnismálum m.a. vegna beinna og
óvenjulegra afskipta þáverandi
dómsmálaráðherra af málinu. í bréfí
dómsmálaráðuneytisins til umboðs-
manns frá því í janúar í ár segir að
ráðherra hafi haft óvenjulega mikil
afskipti af þessu sérstaka máli. Skoð-
anir hans á því hafi ekki verið í sam-
ræmi við mat löglærðra starfsmanna
ráðuneytisins. Hann hafi hafnað til-
lögum þeirra um málsmeðferð og
mælt fyrir um niðurstöðu sem þeir
töldu ekki samrýmast hag barnsins.
Umboðsmaður segir um þá
ákvörðun dómsmálaráðherra að end-
urskoða fyrri ákvörðun um forsjá
barnsins, að ekki verði séð að lög
hafi heimilað þá ákvörðun þar sem
ósk um endurupptöku hafi verið lögð
fram 13 dögum eftir að fyrri ósk
sama efnis hafi verið hafnað. Lög
heimili ekki endurupptök nema
vegna breyttra aðstæðna og vegna
hagsmuna barnsins. Umboðsmaður
bendir á að ráðuneytinu hafi borið
að taka tillit til þess að frekari rann-
sókn á högum barnsins gat orðið
langvinn og ennfremur til að raska
enn högum þess.
Svona vinnubrögð þekkjast
ekkií dag
Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráð-
herra, sagði að þetta álit breytti engu
um vinnubrögð dómsmálaráðuneytis-
ins í forsjár- og umgengnisréttarmál-
um. Þau vinnubrögð sem viðhöfð
hefðu verið í þessu máli væru ein-
stök. Þau væru ekki viðhöfð í for-
sjár- og umgengnisréttarmálum í
dag. Umboðsmaður Alþingis hefði
einmitt tekið fram í fyrri umsögnum
að vinnubrögð ráðuneytisins væru til
fyrirmyndar. Þorsteinn sagðist líta
svo á að þau mistök sem hefðu verið
gerð í þessu máli væru á ábyrgð
fyrrverandi dómsmálaráðherra.
Aðilar vinnumarkaðarins í EFTA
Aherzla lögð á áfram-
haldandi
FUNDUR samráðsnefndar aðila
vinnumarkaðarins í EFTA-ríkjun-
um var haldinn í Genf síðastliðinn
fimmtudag. í fréttatilkynningu frá
EFTA, Fríverzlunarsamtökum Evr-
ópu, segir að fulltrúar frá þeim
EFTA-ríkjum, sem samið hafa um
aðild að Evrópusambandinu, hafi
fullvissað samstarfsmenn sína frá
ríkjum, sem verði áfram í EFTA,
um að þeir muni þrýsta á um það
innan ESB að samstarfi við þá verði
samstarf
haldið áfram.
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra, núverandi formaður
ráðherraráðs EFTA, flutti aðilum
vinnumarkaðarins skýrslu á fund-
inum. Á fundinum var ákveðið að
samráðsnefndin myndi hittast að
nýju 14. desember, en þá liggur
fyrir hvaða EFTA-ríki ganga í ESB.
Aður munu fulltrúar samráðsnefnd-
arinnar hitta ráðherra allra EFTA-
ríkjanna.
Vilt þú breyta áfengisvenjum þínum
og draga úr áfengisneyslu?
Námskeið í stjórn áfengisneyslu er að hefjast.
Upplýsingar og skráning í síma 675583 kl. 19-20.
Auður R. Gunnarsdóttir, sálfræðingur.
Y Tilkynning V
um prófkjör sjálfstæðismanna f Reykjaneskjördæmi
Prófkjör um skipan framboðslista Sjálfstæðisflokksins við næstu
alþingiskosningar ferfram 5. nóvember nk.
Utankjörstaðakosning hefst mánudaginn 24. október.
Atkvæðisrétt eiga allir félagsbundnir sjálfstæðismenn í Reykjaneskjördæmi, sem þar
eiga lögheimili og hafa náð 16 ára aldri prófkjörsdaginn. Einnig þeir stuðningsmenn
Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosningarétt í kjördæminu við næstu alþingiskosn-
ingar og undirrita stuðningsyfirlýsingu samhliða þátttöku í prófkjöri. Fresturtil að ganga
í félag ungra sjálfstæðismanna rennur út föstudaginn 4. nóvemþer.
Eftirtaldir frambjóðendur eru í kjöri:
Viktor B. Kjartansson, tölvunarfræðingur, Keflavík.
Kristján Pálsson, fyrrv. bæjarstjóri, Njarðvík.
Árni M. Mathiesen, alþingismaður, Hafnarfirði.
Sigurrós Þorgrímsdóttir, stjórnmálafræðingur, Kópavogi.
Stefán Þ. Tómasson, útgerðarstjóri, Grindavík.
Árni R. Árnason, alþingismaður, Keflavík.
Salome Þorkelsdóttir, alþingismaður, Mosfelisbæ.
Sigríður Anna Þórðardóttir, alþingismaður, Mosfellsbæ.
Ólafur G. Einarsson, menntamálaráðherra, Garðabæ.
Kjósa skal 6 frambjóðendur, hvorki fleiri né færri. Kosið skal með því að
setja tölustaf frá einum upp í sex fyrir framan nöfn frambjóðenda í þeirri röð,
sem óskað er að þeir skipi endanlega á framboðslista.
Utankjörstaðakosning er kl. 18-19.00 alla virka daga og kl. 13-14.00 laug-
ard. og sunnud. á eftirtöldum stöðum:
Sjálfstæðisheimili Kópavogs, Hamraborg 1, 3. hæð.
Sjálfstæðishúsi Hafnarfjarðar, Strandgötu 29.
Sjálfstæðishúsi Njarðvíkur, Hólagötu 15.
Sjálfstæðishúsi Grindavíkur, sími 92-68496 og 92-67069.
Valhöll, Hágleitisbraut 1, alla virka daga frá kl. 09.00-17.00.
T
HÁGftÐA$JÓNVARP$TÆKI
NY SENMNG • *95 UNAN
ÞÝSK GÆÐAFRAMLEIÐSLA - HLAÐIN TÆKNINÝJUNGUM I
Telefunken F-531 C STEREO NIC er 28" sjónvarpstæki:
Black Matrix-flatur glampalaus skjár • Surround-umnverfis-
hljómur • PSI (Picture Signal Jmprovement) • ICE (Intelligent
Contrast Electronic) • Pal, Secam oa NTSC-video • 59 stöðva
minni • Sjálfvirk stöðvaleit • Möguleiki á 16:9 móttöku • Islenskt
textavarp • Tímarofi • 40W magnari • A2-Stereo Nicam • 4
hátalarar • Tenai fyrir heyrnartól og sjónvarpsmyndavél •
Aðskilinn styrkstillir fyrir heyrnartól • 2 Scart-tengi • Upplýst
fjarstýring o.m.fl. VerS aðeins 99.800,- kr. eða
89*900,-
Surround-hljómmögnun:
Þetta er sérstök hljóðblöndun, sem
eykur hljóminn og gefur möguleika á
hljóöáhrifum líkt og í kvikmyndahúsum.
Mono útsending fær blæ af stereo-
útsendingu og stereo-útsending gefur
aukin áhrif, þannig aö áhorfandinn
færist eins og inn í kvikmyndina.
Aðeins þarf að stinga bakhátölurum i sam-
band við sjónvarpið til að heyra muninn !