Morgunblaðið - 23.10.1994, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/Regnboginn sýnir nú nýjustu mynd Quentins Tarantinos, Pulp Ficti-
on, reyfara. Myndin hlaut Gullpálmann í Cannes í ár og frábæra gagnrýni hvarvetna
þrátt fyrir ofbeldisfullt umQöllunarefni. I aðalhlutverkum eru m.a. John Travolta,
Samuel L. Jackson, Harvey Keitel, Uma Thurman og Bruce Willis.
færið og að búa til nýtt tilbrigði
við endi Deer Hunter.
The Wolf (Harvey Keitel) er
víðfrægur reddari í undirheimun-
um. Þegar vinnuslys verður í bíl
Vincents og Jules á framandi slóð-
um er Wolf kallaður til að heimili
manns, sem Tarantino leikur sjálf-
ur. Ráðsnilld reddarans er sú að
láta Vincent og Jules taka til eftir
sig sjálfa.
Pumpkin (Tim Roth) og Honey
Bunny (Amanda Plummer) eru
smákrimmar sem hafa sérhæft sig
í að ræna áfengissöiur og lyfjabúð-
ir. Þennan dag sitja þau á kaffiter-
íu og velta því fyrir sér hvort það
geti verið arðvænlegra að ræna
veitingastaði. Þau ákveða að láta
slag standa.
Eins og leikaralistinn ber með
sér er Quentin Tarantino um þess-
ar mundir sá leikstjóri sem leikar-
ar í Bandaríkjunum vilja helst
vinna með og ekki er allt talið því
einnig eru í stórum hlutverkum í
Pulp Fiction þau Eric Stolz og
Rosanna Arquette.
Hver leikarinn af öðrum hefur
undanfarna mánuði vitnað um það
á síðum kvikmyndablaða að lestur
handrita Tarantinos sé engu líkur
og í þeim og undir leikstjórn Tar-
antinos eygi leikarar sjaldséða
möguleika á bita-
stæðum og eftir-
minnilegum hlutverk-
um. Þessi saga fór af
stað eftir Reservoir
Dogs, frumraun Tar-
antinos sem leik-
stjóra, og dalaði síður
en svo við True Rom-
ance, mynd Tony
Scotts eftir handriti
Tarantinos.
En John Travolta,
sem almennt var tal-
inn útbrunninn 1.
flokks dansari og 2.
flokks leikari, og
Bruce Willis, sem
flestir hafa haldið að
væri nokkurs konar vasaútgáfa
af Schwartzenegger, teljast vænt-
anlega hafa endanlega afsannað
þessa kenningu með leik sínum í
Pulp Fiction, svo ekki sé minnst
á ógleymanlegan Jules í túlkun
gæðaleikarans Samuels L. Jac-
sons, sem hér slær við eigin verð-
launaframmistöðu í hlutverki
krakkneytandans í Jungle Fever
eftir Spike Lee.
Ævisögiir úr
undirheimi
Pulp Fiction er í raun þrjár
kvikmyndir í einni. Hún gerist
á rúmum sólarhring í Los Angeles
og söguhetjurnar eru tveir leigu-
morðingjar, tveir smákrimmar,
eiturlyfjasali og frú, glæpaforingi
og eiginkona hans, að ógleymdum
boxaranum sem ákveður að kalla
yfir sig reiði glæpaforingjans sem
borgaði honum fyrir að tapa. Sög-
ur þessa fólks skarast og eru ekki
sagðar í réttri tímaröð, þannig að
persóna sem er drepin eins og
hver annar aukaleikari um miðja
mynd leikur stórt hlutverk í loka-
atriðinu. Pulp Fiction er ofbeldis-
full mynd en engin venjuleg
glæpamynd. Réttvísin á engan
fulltrúa í sögunum. Þær gerast í
heimi ofbeldismannanna og eru
sagðar á þeirra forsendum. Morðin
lO.sem framin eru þær 150 mínút-
ur sem sýningin stendur og allur
óhugnaðurinn sem umvefur dag-
legt líf persóna myndarinnar
hverfur stundum eins í bakgrunn-
inn. Þá standa upp úr hin löngu
og kraftmiklu samtöl um allt og
ekkert sem handritshöfundurinn
og leikstjórinn leggur persónum í
munn og ekki síður hæfileikar
Tarantinos til þess að láta frá-
sögnina kúvenda frá þeirri braut
sem hann hefur varið miklum tíma
í að búa áhorfandann undir til
þess eins að koma honum síðan í
opna skjöldu þannig að hann
stenst ekki mátið og hlær að hryll-
ingnum.
Vincent Vega (John Travolta)
er leigumorðingi og á víst að vera
bróðir Mr. Blonde, sem þeir sem
sáu frumraun Quentins Tarantin-
os, Reservoir Dogs, gleyma seint.
Vincent er kominn heim til LA
eftir langa dvöl og ánægjulega í
Amsterdam og farinn að vinna
fyrir glæpaforingjann Marcellus
(Ving Rhames). Vincent gengur
með bók um Modesty Blaise á sér
(bókmenntir af þeirri tegund sem
myndin dregur heiti sitt af) og les
nokkrar síður þegar tækifæri
gefst.
Vincent Vega (Travolta) og Mia (Uma
Thurman) taka þátt í tvistkeppni í
einhverju eftirminnilegasta dansat-
riði Travoltas á hvíta tjaldinu.
Jules (Samuel L. Jackson) er
leigumorðingi og félagi Vincents
Vega. Jules fer fyrir þeim félög-
um. Hann er yfirþyrmandi per-
sónuleiki sem vinnur starf sitt af
fumlausri fagmennsku en áður en
hann útdeilir blýfnu hefur hann
yfir ritningargrein sem hann hefur
lært utanbókar. Þennan vinnudag
verður Jules fyrir ótrúlegri reynslu
sem hann lítur á sem kraftaverk.
Fyrir vikið leitar ritningargreinin
góða á hann með öðrum hætti en
áður.
Mia (Uma Thurman) er hin
unga eiginkona glæpaforingjans.
Hún er partídýr og Marcellus fær
Vincent Vega til að fara með henni
út á lífið þetta kvöld. Orðrómur
er á kreiki um að
Marcellus hafi hent
manni, sem Mia bað
um fótanudd, fram
af svölum á fjórðu
hæð þannig að þetta
er ekki hættulaust
verkefni fyrir Vinc-
ent. Honum er því
efst í huga að gera
og segja ekkert sem
skilja mætti sem dað-
ur. Leikstjórinn Tar-
antino stenst ekki
mátið að láta Tra-
volta dansa í myndinni sinni og
uppskeran er dansatriði sem að
margra mati er eftirminnilegasti
dans Travolta á hvíta tjaldinu til
þessa. Mia notar kókaín og leggur
persónulega merkingu í hugtakið
að púðra á sér nefið en hún veit
ekki að Vincent er hins vegar
meira gefinn fyrir heróín.
Butch (Bruce Wiilis) er boxari
á niðurleið. Marcellus greiðir hon-
um væna fúlgu fyrir að tapa slag
þar sem Butch er álitinn sigur-
stranglegri. Foringinn ætlar svo
að græða á veðmálum af bardag-
anum. En það spyrst út að búið
sé að ákveða úrslitin og Butch
ákveður að nota tækifærið til að
veðja á sjálfan sig, ávaxta sitt
pund og setjast svo í helgan stein
John Tra-
volta og
Quentin
Tarantino
Bruce
Willis er
er boxar-
inn Butch.
í suðurlöndum með frönsku kær-
ustunni Fabienne (Maria de Ma-
deiros). En eitt er að vinna bardag-
ann en annað að komast undan
reiði Marcellusar. Tryggð boxar-
ans við armbandsúr, sem karl-
menn í fjölskyldu hans hafa geng-
ið með mann fram af manni, setur
áætlanir í uppnám.
Hermaðurinn Koons (Chri-
stopher Walken) færði Butch úrið
góða frá Víetnam þaðan sem fað-
ir boxarans átti ekki afturkvæmt
og á eftirminnilegt eintal í
draumaatriði þar sem þýðingu og
mikilvægi armbandsúrsins fyrir
Butch er komið til skila. Tarantino
er frægur fyrir tilvísanir — sem
hann sjálfur játar sem þjófnað —
í gamlar myndir og hér hefur læðst
sá grunur að einstaka manni að
Tarantino hafi viljað nota tæki-
Ofvirka undrabamið
Quentin Tarantino er nú á
hvers manns vörum í banda-
rískum kvikmyndaiðnaði. Eftir
Reservoir Dogs vildu margir líkja
honum við Orson Welles og kalla
þá mynd athyglisverðustu frum-
raun kvikmyndahöfundar frá því
að Citizen Kane var gerð. En með
Pulp Fiction hefur Tarantino tek-
ist það sem fæstum efnilegum
nýliðum hefur tekist undanfarna
áratugi að sögn fróðra manna og
það er að láta næstu mynd taka
frumrauninni fram.
Quentin Tarantino fæddist árið
1963 í Knoxville í Tennessee en
yfírgaf ungur ásamt móður sinni,
sem er Cherokee-indjáni í aðra
ætt, óreglusama fjölskyldu og
fluttist til Los Angeles. Mamma
tók hann með sér hvert sem hún
fór og hún fór oft í bíó t.d. á
evrópskar myndir og einnig hina
frægu Camal Knowledge, sem
hún tók Quentin með sér á sjö
ára gamlan. Tarantino var ungur
talinn ofvirkur og vildu sérfræð-
ingar setja hann á lyf. Mamma
neitaði og taldi ekkert að strákn-
um. Þótt hann væri lélegur í staf-
setningu, skrópaði í skólanum við
hvert tækifæri væru gáfurnar í
góðu lagi eins og greindarvísitalan
staðfesti en hún er víst 150 sem
þykir gott. Quentin kláraði því
aldrei framhaldsskóla þrátt fyrir
að mömmu hans og stjúpföður
hefði gengið vel að koma sér fyr-
ir og búa honum góð lífsskilyrði
en fór að vinna íhlaupastörf 17
ára ásamt því að sækja námskeið
í leiklist.
Dag nokkurn gekk hann inn á
vídeóleigu í sínum heimabæ og
eftir langar og ítarlegar samræð-
ur við eigandann um kvikmyndir,
sem verið höfðu líf og yndi stráks-
ins frá unga aldri, réð hann sig í
vinnu. Þar vann hann næstu ár,
ásamt m.a. Roger Avery, sem á
hluta sögunnar í Pulp Fiction og
leikstýrði Killing Zoe, sem nú er
verið að sýna erlendis. Quentin
vissi allt um kvikmyndir og elsk-
aði allt sem þeim viðkom, nema
helst afurðir Merchants og Ivorys.
Quentin Tarantino
Hann lagði alla sína ástríðu í vinn-
una á vídeóleigunni og beitti mál-
gleði sinni til að sannfæra við-
skiptavinina hvern af öðrum um
ágæti þeirra mynda sem hann
vildi koma á framfæri. Eigandi
leigunnar segist sérstaklega hafa
merkt aukna eftirspurn eftir
myndum um konur í fangelsi þau
fimm ár sem samstarfið stóð.
Þá var Quentin farinn að getá
haft í sig og á með handritaskrif-
um því frítíma sinn og hverja
lausa stund hafði hann notað til
að skrifa handrit að kvikmyndum
sem hann ætlaði að leikstýra sjálf-
ur.
Þannig varð til handritið að
True Romance og Natural Born
Killers, sem Oliver Stone eignað-
ist síðan fyrir skiptimynt á Holly-
wood-mælikvarða, endurskrifaði
og kvikmyndaði við litla hrifningu
Quentins, sem er ósáttur við af-
raksturinn, að ógleymdu handrit-
inu að Reservoir Dogs, sem óháð-
ir kvikmyndaframleiðendur féllust
á að leyfa stráknum að leikstýra
eftir mikla píslargöngu.
Það réð úrslitum um að Reserv-
oir Dogs komst á filmu, að Harv-
ey Keitel, sem alltaf hefur verið
áfjáður í að gefa nýjum mönnum
tækifæri, tók að sér hlutverk í
myndinni. Reservoir Dogs var
umdeild og þótti blóðug, sem von
var, en eftir stóð að með henni
þótti Quentin hafa sannað ræki-
lega að hann hefði mikið fram að
færa og það var fyrst eftir vel-
gengni myndarinnar að dustað
var rykið af hinum handritunum
tveimur sem fyrr var getið og
þeim komið á filmu.
Minnugir þess að mörg undra-
börn hafa litið dagsins ljós í Holly-
wood og fæst þeirra náð að gera
fleiri en eina góða mynd höfðu
menn hins vegar fyrirvara á því
að þessi ómenntaði strákur gæti
nokkru sinni risið undir vænting-
unum.
Því svaraði Tarantino með Pulp
Fiction, gullpálmanum í Cannes
og nánast undantekningarlaust^
hæstu stjörnugjöf kvikmyndá^7
gagnrýnenda. Þótt myndum þar
sem jafnmikið er um ofbeldi og
raun er á í Pulp Fiction hafi jafn-
an vegnað illa við óskarsverð-
launaveitingu er þegar komin í
gang umræða um tilnefningar
myndarinnar, leikstjórans og
handritshöfundarins og ekki síst
einstakra leikara.
í réttu hlutfalli við umræðuna
gerast líkingarnar sem tengdar
eru Tarantino sífellt hástemmdari
og framvegis virðist til þess ætl-
ast að verk hans verði metin á
mælikvarða manna á borð við
Oliver Stone og Martin Scorsese,
ef marka má umfjöllun kvik-
myndarita.