Morgunblaðið - 23.10.1994, Page 48
Það tekur aðeins
einn
r aðeins A.
virkan W
aó koma póstinum 1
þínum tU skita
PÓSTUR
OG SÍMI
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGIAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 23. OKTOBER 1994
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Háskólarektor vill fleiri gerðir háskóla
Settir verði á
stofn fag- og
héraðsháskólar
NEMENDUM í Háskóla íslands hefur fjölgað um 50% á sjö árum miðað
við fjölda þeirra sem þreyta próf í HÍ, umreiknaðan í ársverk í námi. Fjár-
veiting til skólans hefur á sama tíma lækkað um 1,5% að raungildi og eru
„fjárveitingar eftir duttlungum ríkisstjórna í litlu samræmi við þarfir Háskól-
ans,“ sagði Sveinbjörn Björnsson háskólarektor í ræðu sinni við við braut-
skráningu nema í gær, og að staða mála í mörgum kennsludeildum sé nú
„orðin óbærileg" vegna niðurskurðar til HÍ.
Rektor lagði til í ræðu sinni að til við Dani eða Norðmenn þyrfti að
mótvægis við rannsóknaháskólanám
það sem nú er í boði innan Háskóla
Islands yrði komið upp öflugum fag-
háskóla með fjölbreyttri fagmenntun
og að „bestu framhaldsskólum“ yrði
heimilað að gera tilraunir með rekst-
ur héraðsháskóla, sem byðu styttri
starfsmenntun og byijun almenns
háskólanáms. Hann sagði um rót-
tæka breytingu að ræða innan há-
skólastigs sem þyrfti góðan undir-
búning og gæti Háskóli Islands hæg-
lega stutt slíka þróun með samvinnu
en þar mættu stærstu sveitarfélögin
einnig láta til sín taka.
Sex milljarða þyrfti til
menntamála
Sveinbjörn sagði í ræðu sinni að
menntakerfi Islendinga væri að
minnsta kosti áratug á eftir sam-
keppnislöndum í þróun. Ekki væri
varið nægu fé til menntakerfisins.
Samanburður á opinberu fé til
menntamála í Danmörku, Noregi og
á íslandi sýndi að til að jafna muninn
Hafnarstjóri um
erindi Irving Oil
Nógrúm
fyrir nýja
birgðastöð
FULLTRÚI Irving Oil Ltd.,
kanadíska olíufélagsins sem
hefur áhuga á að hefja starf-
semi hér, hefur óskað eftir
viðræðum við Reykjavíkur-
höfn um hugsanlega hafnar-
aðstöðu fyrirtækisins. Hannes
Valdimarsson hafnarstjóri
mun hitta umboðsmann fyrir-
tækisins á mánudag. Hann
segir ekkert því til fyrirstöðu
að nýtt olíufélag geti fengið
aðstöðu við Reykjavíkurhöfn.
Bætt aðstaða til olíu-
viðskipta næsta verkefni
„Það er í undirbúningi og
verður tekið á því í fjárhags-
áætlun, að bæta aðstöðu til
olíuviðskipta í Reykjavík,
bæði við núverandi stöðvar
og vegna hugsanlegra nýrra
umsvifa. Þetta yrði því viðbót
við það verkefni,“ sagði
Hannes. „Þetta er það verk-
efni, sem blasir við næst hjá
höfninni.“
Aðspurður hvort rými væri
fyrir nýja olíubirgðastöð sagði
Hannes, að olíubirgðastöðvar
væru nú tvær, önnur í Orfiris-
ey og hin í Laugarnesi. „Á
báðum stöðum er rúm og
hægt að útvega meira rými.“
■ Irving-fjölskyldan/8
auka framlög til menntamála um
rúma sex milljarða króna. „Þessi
samanburður byggist á vergri lands-
framleiðslu. Munurinn yrði enn meiri,
ef tekið væri tillit til þess að laun
eru mun lægri hér og að mun stærri
hluti íslensku þjóðarinnar en hinna
þjóðanna er undir þrítugu," sagði
Sveinbjörn.
Hann fullyrti að í samanburði við
skólamál í nágrannalöndum okkar
væri mest verk óunnið á háskóla-
stigi, en háskólakerfið væri aðeins
byggt upp að hluta. „Við þurfum að
geta boðið allt að 60% ungmenna á
20-24 ára aldri fjölbreytta háskóla-
menntun. Til þess þurfum við fleiri
gerðir háskóla en nú er. Þá mætti
greina í rannsóknaháskóla, faghá-
skóla og héraðsháskóla hliðstætt
heitunum „university", „polytechn-
ics“ og „community college" í ensku
máli. Þessi greining á við eðli og
markmið náms en ekkert er því til
fyrirstöðu að innan sömu skólastofn-
unar séu allar gerðir í boði.“
Á hálum ís
SKAUTAS VELLIU í Laugardal
var opnað að nýju í vikunni. I
vetur verður hægt að fá sértíma
fyrir yngstu kynslóðina. Barna-
heimili og skólar geta pantað
tíma og fengið leiðbeinendur
ef þess er óskað. Ungviðið er
þegar tekið að nýta sér svellið
og skemmti sér konunglega
þegar ljósmyndari Morg-
unblaðsins var þar á ferð.
Yngsta stúlkan á svellinu var
að sjálfsögðu búin hjálmi og
naut dyggrar aðstoðar við að
fóta sig á hálum ís.
Morgunblaðið/Kristinn
Loðnuverksmiðjur verkefnalausar í tvo mánuði
Pilts leitað
í nágrenni
Nesjavalla
UMFANGSMIKIL leit að 17
ára pilti úr Reykjavík hófst í
nágrenni Nesjavalla í fyrri-
nótt. Leitin hafði ekki borið
árangur um miðjan dag í gær.
Lögregla og björgunar-
sveitir voru kvaddar til um
klukkan fjögur í fyrrinótt.
Pilturinn hafði verið í 40-50
manna samkvæmi í Nesbúð
og hafði farið þaðan gangandi
einsamall. Síðan hafði ekki til
hans spurst.
Björgunarsveitir í Árnes-
sýslu voru kallaðar á staðinn
og einnig var fenginn spor-
hundur hjálparsveitarinnar í
Hafnarfirði. Leitarsvæðið var
nágrenni Nesjavalla og fór
þyrla Landhelgisgæslunnar til
leitar úr lofti um klukkan 13
í gær.
Fjárfestingiii þimg-
bær í loðnuleysinu
STJÓRNENDUR loðnuverk-
smiðja á Austfjörðum eru orðnir
áhyggjufullir vegna dræmrar
loðnuveiði, en ráðist var í kostnað-
arsamar endurbætur á mörgum
verksmiðjanna í sumar. Gunn-
laugur Jónsson, verksmiðjustjóri
hjá Lóni hf. á Vopnafirði, sagði
að menn byndu miklar vonir við
loðnuleit Hafrannsóknastofnunar
sem hefst á þriðjudag. Engin veiði
hefur verið í yfír tvo mánuði.
Hjálmar Vilhjálmsson, fiski-
fræðingur, sagði að þetta þyrfti í
sjálfu sér ekki að koma á óvart.
Það hefði lítið veiðst af loðnu síð-
ustu þijú haust. Hann sagði að
rannsóknir Hafrannsóknastofnun-
ar bentu til þess að mikið væri
af loðnu í hafinu þannig að menn
hefðu verið að vonast eftir veiði í
haust.
Hjálmar var spurður hvort
ástæða væri til að ætla að minna
væri af loðnu í hafinu en fiskifræð-
ingar hefðu talið. „Ég vil nú helst
ekki gera því skóna fyrr en ég er
búinn að sjá það. Auðvitað getur
það verið, en ég vil bíða með svo-
leiðis vangaveltur þar til búið er
að skoða þetta.“
Á síðasta ári var ráðist í miklar
endurbætur á loðnuverksmiðjum á
Austfjörðum. Um er að ræða fjár-
festingar upp á hundruð milljóna
króna. Miklar endurbætur voru
gerðar á verksmiðjunum á Þórs-
höfn, Vopnafirði og Eskifirði. End-
urbótum á verksmiðjunum á Þórs-
höfn og Vopnafirði var ekki lokið
fyrr en síðsumars þannig að þær
misstu af fyrri hluta vertíðarinnar
þegar vel veiddist.
Fjárfestu fyrir 250 milljónir
Endurbæturnar á verksmiðj-
unni á Eskifirði kostuðu 250-260
milljónir. Magnús Bjarnason,
framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Eskifjarðar hf., sagði að það væri
mikið áfall fyrir fyrirtækið að ekk-
ert skuli veiðast af loðnu. Hann
sagði að vissulega væru loðnuveið-
arnar happdrætti, en það væri
óvenjulegt að ekkert veiddist í
nærri þijá mánuði. Hann sagðist
hafa verið frekar bjartsýnn í upp-
hafi vertíðar,-ekki síst vegna góðr-
ar veiði í fyrrasumar og fullyrð-
inga fiskifræðinga um öflugan
loðnustofn.
Á Vopnafirði er byrjað að bræða
síld hjá Lóni hf., en verksmiðjan
fjárfesti fyrir yfir 20 milljónir í
sumar. Gunnlaugur segist ekki
gera ráð fyrir að brætt verði mik-
ið af síld. Menn horfi til loðnunn-
ar. Hann sagði að erfið staða
loðnuskipanna geri það að verkum
að þau hefðu ekki bolmagn til að
leita að loðnu eins og þyrfti. Skip-
in væru farin á rækju eða síld.
Sum hefðu reyndar verið meira
og minna verkefnalaus í haust.
RJUPNASKYTTAN sem björgun-
arsveitir á Suðurlandi og úr Borg-
arfirði leituðu í grennd við Skjald-
breið á föstudagskvöld fannst heil
á húfi í fyrrinótt.
Að sögn lögreglu á Selfossi og
í Borgarnesi var leit hafin eftir að
skyttan skilaði sér ekki í bíl veiðifé-
laga sinna við Skjaldbreið um
klukkan 22 í fyrrakvöld. Björgun-
arsveitir voru kallaðar út úr
neyðarskýli. á Kaldadal.
Um klukkan tvö kom skyttan
svo fram heil á húfi.
Tveir menn rænd-
ir í miðborginni
TVÖ rán voru kærð í og við mið-
borg Reykjavíkur í fyrrinótt. Maður
var fluttur á slysadeild eftir að tveir
menn drógu hann inn í húsasund
við Grettisgötu, börðu hann og hirtu
veski hans og úr. Annar maður
kærði 12-15 leðurklædda menn
fyrir að hafa rænt sig úri og veski
í Tryggvagötu.
Sá sem rændur var á Grettisgötu
komst í hús klukkan tæplega þtjú
um nóttina ög bað húsráðendur að
hringja á lögreglu. Hann var að
sögn lögreglu illa á sig kominn eft-
ir árásina og var fluttur á sjúkra-
hús. Að sögn lögreglu mun hann
hafa mætt árásarmönnunum á götu
og þeir ráðist á hann og dregið
hann afsíðis.
Klukkan rúmlega fjögur um
morguninn kærði maður rán til lög-
reglunnar. Sá kvaðst hafa verið á
gangi á Tryggvagötu, skammt frá
Hafnarkránni, og gengið þá fram-
hjá hópi 12-15 leðurklæddra
manna. Maðurinn sagði að meðan
hann hefði gengið í gegnum hópinn
hefði verið veist að honum með
hrindingum og pústrum og hirt af
honum veski og úr. Ekki sá á mann-
inum að heitið gæti, að sögn lög-
reglu.
I hvorugu málinu hafði hafst
uppi á ræningjunum í gær.