Morgunblaðið - 08.12.1994, Page 10

Morgunblaðið - 08.12.1994, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ÞJÓÐARBÓKH LAÐAN Morgunblaðið/Sverrir HARALDUR Sigurðsson fyrrum bókavörður á Landsbókasafni og eiginkona hans, Sigrún A. Sigurðardóttir. Sameinuðu safni berast glæsilegar gjafir Afrakstur ævilangrar söfnunar einstaklinga LANDSBÓKASAFNI íslands - Háskólabókasafni hafa borist margar gjafir fyrir og eftir að það tók til starfa í Þjóðarbókhlöðu. Margar þeirra eru stórar í sniðum. Um er að ræða bækur, bréf, skjöl, kort, listgripir, fjármunir og eignir og margt annað sem tengist oft á tíðum ævilöngu starfi einstaklinga að söfnun. Auk þeirra gjafa sem um getur hér á síðunni, má nefna að börn Lárusar Sigurbjörnssonar, fyrrver- andi skjala- og minjavarðar, sem lést árið 1974, færðu safninu að gjöf leikbókmenntasafn hans, hand- rit og fleira. Einnig hefur Þjóðskjalasafn Is- lands afhent skjöl Hins íslenska bókmenntafélags, þar á meðal bréf frá Kaupmannahafnardeild Bók- menntafélagsins og bréf til Reykja- víkurdeildar frá einstaklingum. Auk þess má geta um gjöf Norræna hússins, sem færði safninu „Hallwylska Samlingen. Beskrif- vande förteckning", en verkið er í 79 bindum, prentað á handgerðan pappír, gefið út í Stokkhólmi árið 1939 í 110 eintökum. Geymt í sérsafnarými Menntamálaráðuneyti Austurrík- is hefur fyrir forgöngu Austurrísk- íslenska félagsins í Vínarborg ákveðið að veita safninu upphæð að jafnvirði rúmlega 600 þúsund íslenskra króna. Blackwell-forlagið í Oxford í Englandi hefur fært safn- inu útgáfurit fyrirtækisins, alls um 3.000 bindi. Dr. Jón Steffensen prófessor, sem lést 1991, ánafnaði Háskólasafni húseign og bókasafn sitt, en í því eru um 5.500 bindi bóka, smárita og tímarita er lúta mörg hver að sögu heilbrigðismála. Árið 1987 afhenti Haraldur Hannesson hagfræðingur Lands- bókasafni, fyrir sína hönd og Jesú- ítareglunnar, handrit, skjöl og bæk- ur Jóns Sveinssonar, Nonna. Har- aldur hafði þá varðveitt safnið í 40 ár, aukið það og bætt. Sigurður Helgason, stærðfræðiprófessor í Boston,_ hratt af stað fjársöfnun meðal íslendinga ytra og ísland- svina til styrktar ritakaupum og nemur nú söfnunarféð hálfri milljón króna. Flestum áðurnefndra einkasafna verður komið fyrir í sérsafnarými í Þjóðarbókhlöðu sem sérstaklega en hugsað fyrir slíkar gjafir. Gripinn söfnun- arást 11 ára HARALDUR Sigurðsson fyrrum bókavörður á Landsbókasafni og eig- inkona hans, Sigrún Á. Sigurðardótt- ir, færðu Landsbókasafni íslands til eignar og umráða safn af landakort- um og bókum sem ijalla um sögu þeirra og hugmyndir sem þau hafa að undirstöðu, á opnunardegi safns- ins, 1. desember síðastliðinn. Alls eru þetta um 500 bindi, þar á meðal ljós- prentanir flestra hinna eldri og merk- ari kortasafna og allmargra ein- stakra kort frá lokum miðalda fram á 17. öld. Auk þess eru fáein íslands- kort í frumprentun og ljósmyndir margra þeirra frá ýmsum tímum. Frumútgáfur torfengnar Haraldur er talinn þekkja sögu íslandskorta best allra núlifandi Is- lendinga. Hann segir sjálfur að rekja megi áhuga sinn á landakortum og landabréfabókum allt til æskuára. Hann hafi lengi borið vissa ást til landakorta. „Þegar ég var strákur, kannski 10 eða 11 ára gamall, lán- aði kona af næsta bæ í Borgarfirði mér fyrsta hefti af Landfræðisögu íslands eftir Þorvald Thoroddsen, og það_ hefur sennilega verið upphafið. Eg hóf síðan söfnun um 1950 og eignaðist meðal annars þessa bók, og þá alia. En af hveiju ég hélt út í þessa söfnun en ekki aðra, eða í raun hvers vegna ég hóf söfnun, kann ég ekki að skýra. Af hverju gerir maður svo sem þetta en ekki hitt? Af hverju kvænist maður þess- ari konu en ekki hinni? Þetta veit enginn,“ segir Haraldur. Hann vill ekki gera mikið úr stærð safnsins og mikilvægi, og kallar það „hrafl af bókum“. „Þetta er ekki mikið safn á yfir fjörutíu árum en auðvitað hefur ein- hver tími og peningur farið í þessa iðju. Eg á því miður ekki mikið af torfengnum hlutum, mikið af þessu eru ljósprentanir af hefðbundnum ritum í faginu, því að frumútgáfurn- ar eru yfirhöfuð ekki uppgrípanleg- ar, en þó á ég svolítið af slíku.“ Elsta verkið og sjaldgæfasta í safni þeirra hjóna er útgáfa af Ptola- emeusi sem gerð var einhvern tímann frá 1594 til 1597, er sýnir meðal annars ísland. Haraldur segir að hægt sé að fá fom og fagurlega skrejdt íslandskort víða erlendis, en þau séu gjaman dýrari en hans fjár- ráð hafi leyft. „Peningamennimir taka þessa gömlu atlasa og rífa þá sundur og selja hvert kort sér, sem er afskaplega hryggileg meðferð því þeir eyðileggja bækurnar. En fyrir vikið eru þessi rifrildi á flækingi hér og þar hjá útlendum kortbókasölum sem sérhæfa sig í þessari eyðilegg- ingu og sölu.“ Hann kveður safn sitt alfarið feng- ið að utan, meðal annars frá Hol- landi, Þýskalandi, Ítalíu, Englandi og hinum Norðurlandaríkjunum. Mestallt hafi borist í gegnum póstinn. * Ottaðist að persónuleg skjöl skemmdust ERFINGJAR Jóhannesar skálds úr Kötlum afhentu Landsbóka- safni íslands - Háskólabóka- safni nýlega bækur og skjala- safn Jóhannesar frá barnsaldri til eignar og ráðgera að gefa fleira, þar á meðal handrit og nótur ýmissa tónskálda við kvæði hans. Jóhannes hefði orð- ið 95 ára á þessu ári. Hróðný Einarsdóttir, ekkja Jóhannesar, kveðst hafa verið orðin hrædd um að geyma per- sónulegar sendingar frá honum öllu lengur, enda hafi þorri þeirra verið í kassa í allt að sex áratugi og hætta hafi verið á að þær lægju undir skemmdum. „Við bjuggum ekki alltaf í höllum ‘ og vorum á stöðugum þvælingi fram og til baka, út og suður, en ég passaði þennan kassa eins og sjáaldur auga míns. Hann er það eina sem ég hefði tekið mér, hefði ég lent í eldsvoða eða einhveiju þess háttar á heimili mínu,“ segir Hróðný. Persónuleg skrif Meðai þess sem erfingjamir af- hentu voru bréf og ljóð Jóhannesar til Hróðnýjar frá tilhugalífi þeirra og fyrstu samvistum, á seinni hluta HRÓÐNÝ Einarsdóttir, ekkja Jó- hannesar úr Kötlum, ásamt Svani, syni þeirra hjóna. 3. áratugar aldarinnar, en þau ólust upp í sömu sveit. Hróðný kveðst vona að ekki verði farið gáeysilega með þessi persónulegu skrif. „Eg átti mjög bágt með að láta þessa pappíra því að þeir eru með því fyrsta sem Jóhannes skrifaði, af- skaplega fallegt allt saman og litlar teikningar fylgja jafnvel með. Hann dauðlangaði að verða mál- ari á yngri árum, en gaf síðan þann draum alveg upp á bátinn og skipti sér ekki meira af því. Efnaleysið var svo mikið á þessum tíma að draumar fárra rættust. Viss leynd skilyrði Jóhannes ólst upp frammi á reginfjöllum hjá bláfátæku fólki og samband hans við umheiminn var lítið í fyrstu, og ég hef aldr- ei skilið til fulls hvernig hann gat lesið jafn mikið og hann gerði og öðlast nauðsynlegan grunn fyrir skáldskapinn. Hann varð að beijast með hörku til þess að komast í unglingaskóla og síðar í kennaraskólann. En honum tókst þetta.“ Hróðný segist í raun ekki vita hvort Jóhannes hefði lagt blessun sína yfir afhendingu skjalanna, en sumt hafi hann þó birt sjálfur í bókum sínum, þar á meðal kvæði til hennar. „Ég vil hins vegar að önnur ljóð sem hann kaus að birta ekki, verði fyrst sýnd almenn- ingi eftir minn dag, og við settum ákveðna leynd sem skilyrði með gjöfinni. Sumt þarf safnið að lag- færa áður en aðrir beija það aug- um,“ segir Hróðný. Biblíum safnað vegna tungumálanna RAGNAR Þorsteinsson, kennari, færði Landsbókasafni Islands - Háskólabókasafni biblíusafn sitt að gjöf, en í því eru biblíur eða einstakir hlutar biblíunnar á 1.228 tungumálum. Söfnun þessara rita hefur staðið yfir óslitið í 50 ár eða síðan 1944. Safnið er að umfangi um 21 hillumetri og því fylgdi spjaldskrá, flokkuð eftir tungu- málum. Ragnar kveðst hafa ákveðið að gefa safnið þar sem hann á átta börn og alls ekki viljað að safnið sundraðist að honum gengnum og ekki talið að eitt barna sinna öðr- um fremur hefði á því áhuga. Hann hóf söfnunina um svipað leyti og hann tók upp bréfaskrift- ir við pennavini erlendis, sem flestir söfnuðu einhverju. „Ég hafði ekki mikinn áhuga á trúmál- um, svo að Bibiían varð ekki fyrir valinu þess vegna, heldur beindist áhugi minn að tungumálum. Mig langaði til að fá sýnishorn af tungumálum heimsins og datt fyrst í hug að fá dagblöð frá pennavinum mínum í staðinn fyrir íslensku frímerkin sem ég sendi þeim. En ég sá að það var tóm vitleysa, því að ekki væri hægt að bera saman tungumál nema textinn væri sá sami. Engin bók í heiminum hefur komið út á fleiri tungumálum en Biblían og hún varð því fyrir valinu.“ 140 tala málið Hann komst fljótt í bréfasam- band við biblíuféiög um allan heim og jafnvel afskekktar trúboðs- stöðvar, og falaðist eftir biblíum víða að gegn greiðslu. „Yfirleitt er biblían gefin út til að útbreiða guðsorð og útgáfan því styrkt og seld á lægra verði en kostar að framleiða hana, þannig að kostn- aður var ekki gífurlegur." Ragnar hefur meðal annars fengið biblíu frá Norður-Alaska, þar sem hann frétti að væru töluð sjö tungumál, bæði af indíánum og eskimóum. „Ég skrifaði trúboða þar og bað hann að senda mér þær útgáfur sem hann hefði og reikning með. Hann gerði það en sendi mér líka nokkrar 45 snúninga grammafón- plötur með, sem mér leist ekki á því ég vildi ekki borga fyrir eitt- hvað sem ég hafði ekki pantað. Ég fann síðan í botninum á kassanum orðsendingu frá þess- um ágæta trúboða, þar sem hann kvaðst gefa mér plöturnar. Þær séu á eskimóamáli og á annarri hlið þeirra sé sálmasöngur en hinni hliðinni upplestur úr völdum köflurn í Nýja testamentinu, og bað hann mig aðeins í staðinn að spila plöturnar fyrir kristna esk- imóa á íslandi. Mér hefur ekki tekist að finna neinn ennþá.“ Ragnar segir að til séu um 1.700-1.800 bibliuþýðingar í heim- inum, en talið sé að tungumál séu á milli 6.000 og 7.000 í heiminum. Menn komi sér þó ekki saman um hvað teljist vera tungumál og hvað mállýska. Frá eyjunni Nýju- Gíneu hafi hann fengið biblíur eða biblíubrot á yfir 200 tungumálum, en talið sé að þar megi finna um 700 tungumál. Málfræðingar að- stoði íbúana við að læra að lesa á eigin máli og gefi út kafla úr biblíunni. „Ég fékk sendan sextán síðna kafla á tungumáli sem 140 manns töluðu í þorpi í frumskógin- um, en kaflinn var gefinn út í 50 eintökum," segir Ragnar. „Mér hefur nú dottið í hug að þetta sé eina eintakið sem til er í heimin- um, því pappír eyðileggst fljótt í hita og raka frumskógarins."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.