Morgunblaðið - 08.12.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.12.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAIMDIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 17 Morgunblaðið/Silli FRÁ afmælisfagnaðinum, f.v.: Sigtryggur Albertsson, Hjálmar Teódórsson, Sören Einarsson, Marteinn Steingrímsson, Valdi- mar Vigfússon og Helgi Kristjánsson. Þrír stofnendur Völsunga áttræðir Húsavík - I tilefni af því að þrír af stofnendum íþróttafélagsins Völs- ungs á Húsavík áttu á þessu ári átt- ræðisafmæli bauð stjóm félagsins þeim til fagnaðar ásamt núverandi og fyrrverandi stjómarmönnum fé- iagsins, sem nú eru 67 ára. Af stofn- endum, sem vom 23, voru sex mætt- ir. Formaður félagsins, Ingólfur Freysson, ávarpaði hina áttræðu frumheija, sem eru Helgi Kristjáns- son, Sören Einarsson og Valdimar Vigfússon, og færði þeim gjafír í til- efni tímamótanna. Það voru ungir drengir sem stofn- uðu félagið og í fyrstu lögum þess er tekið fram að félagar megi ekki vera yngri en 10 ára og ekki eldri en 16 ára. Líklega hefur þetta ákvæði verið með tilliti til þess að á þeim tíma var hér öflugt ungmenna- félag, Ófeigur í Skörðum, sem átti sitt knattspyrnulið, en knattspyrnan sofnaði litlu síðar en Völsungum óx fískur um hrygg og eftir nokkur átök innan félagsins nokkru síðar var kvenfólki heimilt að ganga í félagið. Fyrstu stjóm Völsunga skipuðu: Jak- ob Hafstein, formaður, Ásbjöm Bene- diktsson, ritari, og Jóhann Hafstein, gjaldkeri, en þeir em allir látnir. Dana Sif o g Sigga Lilja í hæfileikakeppni Ný háspennulína verður reist milli Flúða og Hellu TIL að anna aukinni raforkuþörf á Suðvesturlandi m.a. vegna sölu á ótryggðri orku til Bæjarveitna Vestmannaeyja hefur reynst nauð- synlegt að auka flutningsgetu á rafmagni til Hvolsvallar. Hag- kvæmasta leiðin er að reisa 66 kV línu frá Flúðum að Hellu. Með því móti fæst ný tenging, Búrfell-Flúð- ir-Hella-Hvolsvöllur, auk núverandi tengingar, Búrfell-Hvolsvöllur. Flúðir komast þannig í hringteng- inguna á 66 kV spennu og einnig mun línugerðin auka mjög rekstra- röryggi á öllu stofnlínukerfinu á Suðurlandi. Þetta kemur fram í nýju fréttabréfi Rafmagnsveitna ríkisins. Búið er að bjóða út reisingu lín- unnar, sem er um 33 km að lengd, og var samið við verktakann Línu- lagnir á Selfossi. Verkið hófst 1. nóvember sl. og er áætlað að því verði lokið í mars á næsta ári. Hönnuðir verksins eru Vekrfræði- stofan Línuhönnun hf. og Almenna verkfræðistofan hf., auk línudeildar RARIK. Kostnaður áætlaður 110 milljónir Línan verður strengd sumarið 1995 og er reiknað með að starfs- menn RARIK á Suðurlandi vinni það verk. Áætlað er að setja spennu á línuna 30. september 1995 en kostnaður við verkið í heild er áætl- aður 110 milljónir. Við val á línustæði var leitast við að fara að óskum Náttúruverndar- ráðs og velja leiðina þannig að sem minnst bæri á línunni. Til að ná því markmiði varð víða að fara yfir votlendi. Mjög dýrt er að reisa línur á slíku landi með hefðbundnum grundunaraðferðum og því var gerð tilraun með að ýta niður staurum og lofar hún góðu. Það er reynt að byggja sem mest af línunni á frera til að takmarka slóðagerð og skemma landið sem minnst. Heildarfjöldi staurastæða í lín- unni milli Flúða og Hellu verður um 240. Þar af er gert ráð fyrir að ýta niður röskum helmingi stæð- anna en grafa afganginn niður og fylla að með möl. Nýr sóknarprestur í Hvanneyrarprestakalli Skorradal - Við messu fyrir skömmu setti prófastur Borgar- fjarðarprófastsdæmis, sr. Jón Ein- arsson í Saurbæ, nýjan prest, sr. Sigríði Guðmundsdóttur, í emb- ætti. Sr. Árni Pálsson á Borg var einnig viðstaddur innsetninguna og aðstoðaði við messuna. Kirkjan var þétt setin og góður rómur gerður að stólræðu nýja prestsins. Sr. Sigríður Guðmunds- dóttir er fjórði presturinn sem víg- ist til Hvanneyrarprestakalls en auk hennar voru það þeir sr. Eirík- ur Albertsson, sr. Guðmundur Sveinsson og sr. Guðmundur Þor- steinsson. Allir aðrir prestar Hvan- neyrarprestakalls höfður áður hlot- ið vígslu og starfað hjá öðrum söfn- uðum áður en þeir komu til Hvan- neyrar, þar á meðal sr. Agnes Sig- urðardóttir, sem sr. Sigríður tekur við af. Sr. Agnes hefur verið kölluð til þjónustu í Bolungarvík. Að lokinni guðsþjónustu var öll- um kirkjugestum boðið til kaffi- drykkju í borðsal Bændaskólans á Hvanneyri. Morgunblaðið/Davíð Pétursson GOÐUR rómur var gerður að stólræðu sr. Sigríðar. Hvolsvelli - Þær stöllur Dana Sif, 9 ára, og Siggja Lilja, 10 ára, skutu eldri keppendum ref fyrir rass í hæfileikakeppni sem félagsmiðstöð- in Tvisturinn á Hvolsvelli hélt ný- verið á árlegri fjölskylduhátíð sinni. Þær sungu lagið Ég kölluð er Lilla úr myndinni Bugsy Malone. Keppendur voru alls átta á aldrinum 9-15 ára. Ýmislegt var til skemmt- unar á hátíðinni, bingóspil, dans, tískusýning og félagar í Leikfélagi Rangæinga sýndu brot úr leikritinu Þú ert í blóma lífsins, fíflið þitt. STÖLLURNAR Dana Sif og Sigga Lilja sigruðu. Morgunblaöið/Árni Heigason BJÖLLUKÓR Stykkishólms tók þátt í aðventuhátíðinni. Aðventuhátíð Hólmara Stykkishólmi - Það ríkti jóla- stemmning í Stykkishólmi sunnu- daginn 4. desember. Aðventuhátíð- in var haldin í Stykkishólmskirkju kl. 14. Þar flutti Hanna María Siggeirs- dóttir ræðu og mikið var um tónlist- arflutning hjá kirkjukór Stykkis- hólmskirkju og eins tóku nemendur í Tónlistarskóla Stykkishólms þátt í athöfninni. Að lokinni athöfn í kirkjunni tók við jólabasar kvenfélagsins Hrings- ins sem haldinn var í félagsheimil- inu. Þar var boðið upp á margt fallegra og nytsamra muna sem koma til með að gleðja marga á jólunum. Boðið var upp á kakó og pönnukökur. Það voru margir Hólmarar sem gáfu sér tíma frá amstri dagsins til að vera saman þennan sunnudag og kveikja á jólaskapinu. Timbur til sölu Til sölu er timbur af ýmsum gerðum. Timbrið selst í núverandi ástandi og á staðnum. Tollur er ógreiddur. Tilboð miðað við rúmmetra óskast sent skrifstofu okkar fyrir 15. desember nk. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar. Jöklar hf., Aðalstræti 8, s. 5616200 og myndrit 5625499. Tilboðin gilda aðeins ( viku,eða ámeðan birgðir endast. Grænt númer póstverslunar er 996680. Eins árs ábvrfíð TEAC fiæða fieisiaspilari frá Japan. 18 bifa með fiarsfýrinfiu Verð aðeins kr. 9.995 Opnunartimar verslnnn Hngkoups dagono 8.-14. des. Skelfunní/Hólagarðí/Crafarvogl/ Seltjarnarnesi/Akureyrl Krlnglunnl lflrklr dogar 9-21 10-18:30 9-18:30 10-18:30 Föstudagur 9-21 10-19:30 9-18:30 10-19:30 Laugardagur 10-18 10-18 10-18 10-18 Sunnudagur 12-18 13-17 12-18 12-18 HAGKAUP fyrir fjölskylduna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.