Morgunblaðið - 08.12.1994, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
|
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 21
Velgengni IFPL í Grimsby
Salanþre-
földuð á fjór-
umárum
VERÐMÆTI fram-
leiðslunnar í verk-
smiðju Icelandic Freez-
ing Plants Ltd (IFPL) ■
í Grimsby, dótturfyrir-
tækis Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna,
hefur nær þrefaldast
frá áramótum 1989-
1990. Vegna aukinna
umsvifa hefur verið
ákveðið að skipta sölu-
stjórn fyrirtækisins
upp og stofna sérstaka
deild, sem sjái einungis
um endursölu sjávar-
afurða. Helgi Anton
Eiríksson, markaðs-
stjóri hjá SH í Reykja-
Helgi Anton
Eiríksson
vík, hefur verið ráðinn til að veita
nýju deildinni í Grimsby forstöðu
þegar hún tekur til starfa snemma
á næsta ári, en Roger Preston, sem
hefur haft yfirumsjón með allri sölu
IFPL, mun framvegis stjórna sölu
á framleiðsluvörum verksmiðjunn-
ar.
Aukning verðmæta verksmiðju-
framleiðslu IFPL fyrstu 10 mánuði
þessa árs nemur um 9% miðað við
sama tímabil í fyrra. Aukningin
allt árið 1993 miðað við 1992 var
19%. Framleiðsla verk-
smiðjunnar fer að
langmestu leyti á Bret-
landsmarkað, bæði til
smásöluyerslana og
veitingahúsa, en 10%
eru seld til útflutnings,
einkum til Frakklands
í samvinnu við dóttur-
fyrirtæki SH í París.
Aukin velta vegna
endursölu
Velta IFPL vegna
endursölu á sjávaraf-
urðum hefur einnig
aukist mikið undanfar-
in ár eða sem nemur
15% fyrstu tíu mánuði
þessa árs miðað við sama tímabil
1993. Hér er einkum um að ræða
rækju, sjófrystan þorsk og ýmsar
tegundir flatfisks.
Helgi Anton Eiríksson, sem tekur
við forstöðu nýju söludeildarinnar,
er 27 ára gamall Reykvíkingur.
Hann lauk prófi í viðskiptafræði frá
Háskóla íslands 1992 og hóf þá
fljótlega störf hjá Sölumiðstöðinni,
þar sem hann hefur annast fram-
leiðsluráðgjöf og samskipti við dótt-
urfyrirtæki SH erlendis.
ÚRVERINU
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Skipt yfír í rafmagn
NÝLEGA var tekin í notkun nýr rafskautsketill
í loðnubræðslu Síldarvinnslunnar á Neskaupstað
og þar með skipt úr olíu sem orkugjafa yfir í
rafmagn sem kaypt er af Rafmagnsveitu ríkisins
en þar er um að ræða afgangsorku. Verð á hverri
kílówattstund eru 82 aurar. Samningur Rarik og
SVN hljóðar upp á að keypt séu 10 megawött en
áætlað er að ketillinn noti um 8 megawött. Fleiri
loðnuverksmiðjur á landinu íhuga nú að skipta
úr olíu yfir í rafmagn sem aðal orkugjafa. Á
myndinni má sjá loðnubræðslu Síldarvinnslunnar.
Stefnir í 50% söluaukn-
ingu Póls rafeindavara
FYRIRTÆKIÐ Póls, sem m.a.
framleiðir Póls vogir, flokkara og
samvalsvélar, hefur nýlega gert
samninga við tvo aðila í Evrópu um
dreifingu á vörum sínum. Að sögn
Harðar Ingólfssonar markaðsstjóra
útflutningsdeildar Póls er enn of
snemmt að segja til um hverju
samningarnir skili fyrirtækinu en
þeir lofi góðu. Mikil söluaukning
hefur orðið á þessu ári hjá Póls og
fyrstu 9 mánuði ársins var salan
25% meiri en á sama tímabili 1993
og stefni í 45-50% á öllu árinu.
Hörður segir að um 65% af fram-
leiðslu fýrirtækisins, vogum, flokk-
urum og samvalsvélum, fari á
markað erlendis og hefði þetta hlut-
fall farið vaxandi á árinu. í fyrra
var velta Póls 70 milljónir króna
en Hörður segir að það stefni í að
hún verði vel yfir 100 milljónir á
þessu ári. Hörður segir ennfremur
að haldi fram sem horfi verði sölu-
aukningin á þessu ári 45-50% miðað
við síðasta ár.
Fyrirtækið er að vinna að mark-
aðssetningu á sínum vörum í
Bandaríkjunum en Hörður segir
þau mál skemmra á veg komin en
í Evrópu. Þó séu þar miklir mögu-
leikar á sölu á öllum framleiðsluvör-
um fyrirtækisins en það helsta sem
hái fyrirtækinu á þeim markaði er
afkastagetan. Stefnt sé markvisst
að því að auka hana jafnt og þétt.
»hummel^iP
Opið iaugarttag fré kl. 10-18
Opið sunnuéag tró kl. 13-17
SPORTBUÐI H
Ármúla 40 • Sími 813555 og 813655