Morgunblaðið - 08.12.1994, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994
ERLEINIT
MORGUNBLAÐIÐ
Neitaði að
skilja og sat
inni í 32 ár
Jerúsalem. The Daily Telegraph.
YIHYE Avraham, hálfátt-
ræður ísraeli, er látinn eft-
ir að hafa setið í fangelsi í
32 ár fyrir að neita að skilja
við eiginkonu sína.
Avraham var dæmdur í
fangelsi árið 1962 og sat
við sinn keip þrátt fyrir ít-
rekaðar tilraunir rabbína
til að fá hann til að fallast
á skilnað. Eiginkona hans,
Ora, sem er 66 ára, segir
að hann hafi aldrei elskað
hana eða kært sig um tvær
dætur þeirra.
Aðeins trúarlegir dóm-
stólar hafa úrskurðarvald
í hjúskapar- og erfðamál-
um í Israel og konur geta
ekki gifst að nýju nema
eiginmaðurinn fallist á
skilnað. Litið er á afkom-
endur kvenna, sem eignast
börn með öðrum manni án
skilnaðar, sem óskilgetna í
10 kynslóðir og þeir geta
ekki gengið í hjónaband.
Kvennréttindahreyfingar
segja að þúsundir kvenna
geti ekki staðfest ráð sitt
af þessum sökum.
Fjórir lét-
ust í gas-
sprengingu
í S-Kóreu
Seoul. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti fjórir létust
og 48 særðust í gífurlegri gas-
sprengingu, sem varð undir Ahyon
viðskipta- og íbúðahverfinu í Seoul
í Suður-Kóreu í gær. Breytti
sprengingin hverfinu á svipstundu
í logandi eldhaf og urðu hundruð
manna að yfirgefa heimili sín.
Sprengingin varð eftir að gas
lak úr geymslutanki nærri járn-
brautarstöð sem er í byggingu
neðanjarðar, og eldur kviknaði í
gasinu. Varð gífurleg sprenging
og eldtungurnar teygðu sig upp í
allt að 30 metra hæð.
Gífurlegur hiti
Minni sprengingar fylgdu í kjöl-
farið og var hitinn svo mikill að
erfitt reyndist fyrir slökkviliðið að
komast að eldinum. Að klukku-
stund liðinni hafði þó tekist að
ráða að mestu að niðurlögum elds-
ins.
Fjögur lík hafa nú þegar fund-
ist en búist er við að enn fleiri lík
eigi eftir að finnast í rústunum
þar sem að minnsta kosti fjögurra
er saknað.
Reuter
ELDTUNGURNAR teygja sig til himins í kjölfar gífurlegrar
gassprengingar í Seoul í gær.
írska stj órnarandstaðan
ræðir stj órnarmyndiin
Dyflinni. Reuter.
Enn nokkrar líkur á þingkosningum,
nái flokkarnir ekki samkomulagi
LEIÐTOGAR írsku stjórnarandstöð-
unnar áttu í gær viðræður um hvort
flokkarnir gætu myndað starfhæfa
ríkisstjórn, eftir að Verkamanna-
flokkurinn sleit á þriðjudag viðræð-
um um myndun nýrrar stjórnar með
Fianna Fail. Enn eru þó nokkrar iík-
ur á því að boðað verði til nýrra
kosninga. Það voru nýjar upplýs-
ingar um svonefnt Whelehan-
hneykslismál, er olli stjómarslitun-
um upphaflega, sem urðu til þess,
að upp úr slitnaði.
Dick Spring, leiðtogi Verka-
mannaflokksins stýrði viðræðum við
Fine Gael, Framfarasinnaða demó-
krata og Vinstri-demókrata í gær.
Hafa líkurnar aukist á að það takist
að mynda stjóm en helst er deilt um
hvort þrír eða fjórir flokkar eigi að
standa að stjórnarmyndun auk þess
sem ágreiningur er um stefnumál
væntanlegrar stjórnar.
Viðræðum slitið
Spring tilkynnti á þriðjudag að
hann hefði hætt viðræðum við
Fianna Fail en á mánudag virtist
ný stjórn vera komin á laggirnar og
daginn eftir stóð til að kjósa nýjan
forsætisráðherra í stað A.iberts
Reynolds, sem sagði af sér fyrir
þremur vikum.
Verkamannaflokkurinn hætti
stjórnarsamstarfinu við Fianna Fail
í mótmælaskyni við, að Reynolds
skipaði Harry Whelehan, fyrrum rík-
issaksóknara, sem forseta hæsta-
réttar írlands. Sem ríkissaksóknari
hafði Whelehan hins vegar dregið í
sjö mánuði að framselja til Norður-
írlands kaþólskan prest, sem sakað-
ur er um að hafa misnotað ung börn
árum saman. Reynolds fékk síðan
Whelehan til að segja af sér en und-
anskildi hann um leið allri sök í þessu
máli.
Dagblaðið The Irish Times gaf í
skyn á mánudag, að Reynolds og
flokkur hans hefðu reynt að villa
um fyrir þinginu varðandi mál
Whelehans. Ríkissaksóknarinn fyrr-
verandi hélt því fram, að framsal
prestsins hefði dregist svona lengi
vegna þess, að málið ætti sér ekkert
fordæmi og afbrotin hefðu verið
framin fyrir mörgum árum. Blaðið
sagði hins vegar, að Reynolds og
aðrir ráðherrar Fianna Fail hefðu
vitað, að málið væri ekki fordæmis-
laust og útskýringar Whelehans því
rangar. Þeir hefðu því tekið þátt í
yfírhylmingu.
Breytingar á vörnum Noregs
Hersveit afturkölluð
STJÓRNVÖLD í Kanada hafa
ákveðið að víkja sér undan skuld-
bindingum þeim sem þau höfðu á
sig tekið vegna vama Noregs á
óvissu- eða hættutímum. Að sögn
norska dagblaðsins Aftenposten
hafa kanadísk stjórnvöld afturkail-
að herdeild eina sem eyrnamerkt
hafði verið til að koma Norðmönn-
um til aðstoðar á óvissutímum.
Jafnframt hefur verið ákveðið að
flytja yfir hafíð búnað sem komið
hafði verið fyrir í birgðastöðvum í
Norggi vegna hugsanlegrar komu
kanadísku hermannanna.
Norðmenn heimiia ekki erlendar
herstöðvar á norsku landi en þess
í stað hefur verið komið upp gríðar-
miklum birgðastöðvum í Noregi til
að flýta fyrir hugsanlegum flutningi
liðsafla í nafni Atlansthafsbanda-
lagsins (NATO) til landsins. I fyrir-
liggjandi áætlunum hefur m.a. ver-
ið gert ráð fyrir að 500 til 800
manna kanadísk herdeild yrði köll-
uð til landsins ef þörf krefði. Búnað-
ur af ýmsum toga fyrir sveit þessa
hefur verið geymdur í birgðastöðv-
um í Noregi.
Þótt kanadískir ráðamenn hafi
brugðið á þetta ráð í sparnaðar-
skyni munu kanadískir hermenn
eftir sem áður heyra til hraðsveita
þeirra sem unnt yrði að senda til
Noregs á örfáum dögum yrði ör-
yggi landsins ógnað.
Bjorn Tore Godal, utanríkisráð-
herra Noregs, sagði í samtali við
Aftenposten að norsk stjórnvöld
hörmuðu þessa ákvörðun
Kanadabúa. Godal taldi það einnig
áhyggjuefni að stjórnvöld í Kanada
hygðust skera niður fjárveitingar
til sameiginlegra verkefna á vegum
NATO.
Talsmenn Hægriflokksins og
Framfaraflokksins lýstu báðir yfir
áhyggjum sínum sökum þessa. Kaci
Kulman Five, fyrrum leiðtogi
Hægriflokksins, sem situr í utanrík-
ismálanefnd norska Stórþingsins,
sagði niðurstöðu þessa til marks
um réttmæti ábendinga hennar og
fleiri í þá veru að aðlaga þyrfti
framlög Norðmanna til varnarmála
að þeirri staðreynd að Evrópuríkin
innan NATO kæmu til með að taka
aukna ábyrgð á eigin vörnum. Carl
I. Hagen, formaður Framfara-
flokksins lýstí yfir þungum áhyggj-
um sökuin þessa en talsmaður Sós-
íalíska vinstriflokksins sagði þessa
ákvörðun Kanadastjórnar ekki
koma á óvart. Hún væri eðlileg
afleiðing þeirrar slökunar á spennu
sem orðið hefði í Evrópu á undan-
förnum árum.
Reuter
Barbie í gulli
ÞESSI Barbie-dúkka, klædd kjól
úr gulli og demöntum, er metin
á 1,3 milljónir ísl. kr. Er hún á
þýskri tískusýningu, þar sem all-
ar „fyrirsæturnar" eru brúður.
NýVan
Gogh
mynd
VAN Gogh-safnið í Amsterdam
tilkynnti í gær að það hygðist
sýna mynd eftir Van Gogh sem
var nýlega uppgötvuð en eig-
andinn keypti á flóamarkaði í
Reims fyrir hálfri öld og geymdi
hana uppi á háalofti þar sem
hann taldi hana verðlausa. Um
er að ræða kyrralífsmynd af
vasa með haustblómum og
stjörnufíflum, málaða á árunum
1886-1888 í París.
Gorbatsjov
íhugar for-
setaframboð
MÍKHAÍL Gorbatsjov, fyrrum
leiðtogi Sovétríkjanna, gaf í
gær sterklega
í skyn að
hann íhugaði
að bjóða sig
fram í rússn-
esku forseta-
kosningunum
árið 1996.
Gorbatsjov
hefur gagn-
rýnt Borís
Jeltsín Rúss-
landsforseta
harðlega og segir hann ekki
hafa haldið umbótum áfram.
Farþegaskip
í hættu
BRESKA farþegaskipið Can-
berra lenti í erfiðleikum í fár-
viðri og storsjó við suðurströnd
Englands í fyrrinótt, rak vélar-
vana í rúma klukkustund með
2.400 manns innanborðs. Skip-
veijum tókst þó að gera við
vélina og sigla skipinu til hafn-
ar í Southampton.
Beljajev
særður
ÓÞEKKTIR byssumenn særðu
á þriðjudag þjóðernissinnann
Júrí Beljajev, leiðtoga Repúblik-
anaflokks Rússlands, í einu af
úthverfum Pétursborgar. Tveir
lífverðir hans biðu bana í árá-
sinni en ekki var vitað hvort
Beljajev væri í lífshættu.
Beljajev rak öryggisfyrirtæki
og talið er að árásin tengist
viðskiptum.
Delors liggur
á ákvörðun
JACQUES Delors, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins (ESB), sagðist á
þriðjudag hafa tekið ákvörðun
um það hvort hann byði sig
fram við frönsku forsetakosn-
ingamar á næsta ári. Hann
neitaði hins vegar að skýra frá
því hver ákvörðunin væri.
Bardagar í
Sómalíu
NÍU hundruð manna friðar-
gæslusveit Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ) varð að beita skrið-
drekum og árásarþyrlum gegn
sómölskum skæruliðasveitum
til þess að komast frá borginni
Afgoye á þriðjudag. Gæsluliðið
lét af störfum í borginni og
hélt til Mogadishu en vopnaðar
sveitir sem látið hafa til sín
taka á þessum slóðum kröfðu
það um leigugjald.
Gorbatsjov