Morgunblaðið - 08.12.1994, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 08.12.1994, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Ismeygileg kímni BOKMENNTIR Ljóðabók GUÐ OG MAMMA HANS eftir Jóhönnu Sveinsdóttur. Mál og menning 1994. Prentun G. Ben-Edda. - 58 síður. KÁTT ER frelsi ímyndunarafls- ins í fyrstu ljóðabók Jóhönnu Sveinsdóttur sem hún nefnir Guð og mamma hans. Fjöl- skrúðugar og frumleg- ar hugmyndir og óvenjuleg viðfangsefni setja mark sitt á hann. En umfram allt er hún persónuleg og skemmtileg. Nærvera höfundar er ákaflega áberandi í þessari bók. Að sumu leyti minnir hún á dag- bók. Við förum með höfundi í ferðalag til Ítalíu og Frakklands. Þetta er þó ekki eigin- leg ferðasaga heldur greinir Jóhanna frá hughrifum sem hún hefur orðið fyrir þarna suðurfrá en þar hefur hún dvalið undanfarin þtjú ár. Athyglin beinist fyrst og fremst að fólki, máli þess og menningu. En einnig og kannski ekki síður að hennar eigin upplifun; þrám og hugsunum. Jóhanna leitar viðfangsefna á ólíklegustu stöðum og sjónarhom hennar er gjarnan dálítið óvænt, kvenlegt, á stundum málfræðilegt og jafnvel gastrónómískt. Ég minn- ist þess t.a.m. ekki að hafa áður lesið ljóð um heimþrá á borð við kvæðið Kjölfestu, þar sem aðallega er íjallað um mismunandi þýðingar á orðinu naglalakkseyðir. Á öðmm stað fjallar Jóhanna um italskan karlmann og leikur sér að fram- burði hinnar ítölsku orðmyndar orðsins un uomo og/eða fleirtölu með ákveðnum greini gli uomini og kemst á sinn tvíræða hátt að þeirri gagnmerku niðurstöðu um þessa tungubrjóta að „beri maður / þá fram, til dæmis/ í tunglsljósi / verð- ur beinlínis / reimt“. Kaldhæðni sem þessi setur oft mark sitt á kvæði Jóhönnu hvort sem hún fjallar um uppáhalds yrkis- efni sitt, karlmennina, eða þá ástir, þrár og samskipti karla og kvenna. I titilljóði bókarinnar segir þannig: Eftir þrumuveðrið er hijótt og svalt í þröngu og blautu strætinu, hvorki gól í barni né sífur í söngv- ara þegar á bresta háttbundin vein himmneskra elskenda: Dio! Dio! Mamma mia! Dio! Dio! Mamma mia! Svo dettur í hljótt og svalt á ný. Texti er alltaf meira en augað sér og eyrað nemur. Ekki á þetta síst við um texta ljóðs. Vísun eða grunnkveikja getur opnað heila veröld. Sama gildir um mynd- mál og tákn ef vel er með farið. Kvæði Jó- hönnu eru þannig ver- aldir. Mörg þeirra eru ijóð í lausu máli og segja örsögu sem skír- skotar á einhvem hátt út fyrir svið textans. Þannig kallast skáld- konan á við ýmis skáld, íslensk og suðræn; sofnar yfir Höndum og orðum í Luxemburgar- garðinum og tekur kattarsonnettu Baudelaires áprent- aða á bol út úr þurrkaranum. En á bak við vísanirnar, orðaleikina og grrunkveikjurnar er svo lífsins al- vara, þrár og kenndir; einsemd, framandleiki og firring. Ljóðheimur Jóhönnu sækir margt til súrrealismans, ekki síst mynd- málið. Fallegt finnst mér til dæmis ljóðið Hvítt og kalt þar sem mjall- hvítur ljóðmælandi bíður eftir að prinsinn kreisti eplið og smjúgi milli varanna sem roðna og lyfta sér léttskýjaðar upp á desember himininn þetta síðasta síðdegi Þessi frumraun Jóhönnu Sveins- dóttur er í senn persónuleg og ísmeygilega kímin. Þrátt fyrir kald- hæðnina einkennist hún umfram allt af ást á máli og ást á fólki. Og er hægt að fara fram á meira? Skafti Þ. Halldórsson í KVÖLD kl. 20.00 verða haldnir tónleikar á Kjarvalsstöðum með bresku hljómsveitinni „The Hafl- er trio“ og íslensku hljómsveitinni Reptilicus. I hljómsveitinni „The Hafler trio“ er aðeins einn maður, hljóð- listamaðurinn Ándrew McKenzie. Andrew McKenzie hefur staðið fyrir fjölda tónleika út um allan heim auk þess sem hann hefur gefið út tugi geisladiska. Um þess- ar mundir tekur hann einnig þátt í samsýningu í Gerðubergi, þar sem hann flytur frumsamda LEIKÞÁTTURINN „Og þá mun enginn skuggi vera til“ hefur verið sýndur víða um land síðustu vikum- ar á vinnustöðum og hjá félagasam- tökum. í fréttatilkynningu segir: „Vegna mikillar eftirspurnar hafa aðstand- endur leikþáttarins ákveðið að standa fyrir tveimur opnum sýning- um og verða þær í Kaffíleikhúsinu í Hlaðvarpanum fimmtudagana 8. og 15. desember. Sýningarnar hefj- ast kl. 21 en húsið verður opnað kl. 19 og er boðið upp á kvöldverð fyrir og eftir sýningu. „Og þá mun enginn skuggj vera til“ er einleikur og fjallar um konu, sem gerir upp fortíð sína við óvenju- legar aðstæður, rifjar upp atburði úr æsku og lýsir áhrifum þeirrar HLJOMSVEITIN Reptilicus Tónleikar á Kjarvals- stöðum hljóðlist við verk Erlu Þórarins- dóttur. Andrew McKenzie vinnur algjörlega með hljóð sem hann tengir saman á ýmsan máta, til dæmis með hjálp tölvutækni. reynslu sem hún varð fyrir. Áhorf- endum gefst tækifæri til að auka skilning sinn á þessu viðkvæma máiefni, en sifjaspell er eitt best varðveitta leyndarmál í samfélagi okkar og svartur blettur á siðmennt- uðu þjóðfélagi. Nauðsynlegt er að auka umræðuna um sifjaspell og afleiðingar þess, því fræðsla og upp- lýst umræða er grundvöllur þess að forða megi börnum og unglingum frá lífsreynslu sem getur valdið þeim óbætanlegu tjóni. Möguleiki er á umræðum eftir sýningu. Rétt er að geta þess að sýningin er ekki við hæfí barna.“ Leikkona er Kolbrún Ema Pét- ursdóttir, leikstjóri Hlín Agnarsdótt- ir og sýningarstjóri Björg Gísladótt- ir. Nýlega kom út geisladiskur með verkum sem Andrew samdi við smásögur Peters Greenaway kvikmyndaleikstjóra og verða meðal annars leikin verk af þess- um diski á tónleikunum. Hljómsveitina Reptilicus skipa Jóhann Eiríksson og Guðmundur Markússon. í ágúst síðastliðnum vann Andrew McKenzie með þeim að geisladiski sem gefinn verður út af hollensk/bandarísku fyrir- tæki eftir áramótin. Þeir munu ieika verk af honum ásamt ýmsu nýju efni. Bókakynn- ingar í Bókasafni Kópavogs í BÓKASAFNI Kópavogs lesa, eins og undanfarin ár, höfundar úr nýútkomnum bókum sínum. Einnig verður boðið upp á tónlistaratriði. Fimmtudaginn 8. desember kl. 19.30 syngur Samkór Kópavogs í safninu og byijað verður að lesa úr nýjum bókum fyrir fullorðna kl. 20. Laugardaginn 10. desember kl. 13.40 syngur svo kór Snælands- skóla og byijað verður að lesa úr nýjum barna- og unglingabókum kl. 14. I fréttatilkynningu segir að Kópavogsbúar séu hvattir til að koma á þessar samkomur, njóta góðrar tónlistar og kynna sér nýj- ustu bækurnar. Ekki eru teknar pantanir á jólabækur fyrr en 1. febrúar 1995. Jóhanna Sveinsdóttir „Þá mun enginn skuggi vera til“ Leikþáttur um sifjaspell og afleiðingar þess SOS BARNAÞORPIN AISLANDI -§c---------------------------------------- I Vinsamlegast sendið mér bækling um SOS BARNAÞORPIN, mér ab kostnaöarlausu Ég vil styrkja barn í: Asíu meb 1.000,- kr. á mánubi Afríku " S.-Ameríku Ég vil styrkja uppbyggingu þorpa hjá SOS með 1.000,- kr. ársfjórbungslega " mánaðarlega Nafn___________________________________ Heimilisfang_____________________________ Bæjarfélag ______________________________ Kennitala_______________ -3"C- □ □ □ □ □ □ Greiðslufyrirkomulag: Gíró Q VISA Q Kort nr.______________________ _______________________________________ SOS BARNAÞORPIN • HAMRABORG 1 200 KÓPAVOGUR • SÍMI: 64 29 10 Jólatónleikar í Askirkju KAMMERSVEIT Reykjavíkur mun halda sína árlegu jólatónleika í Ás- kirkju sunnudaginn 11. desember. Jólatónleikar þessir eru orðnir fastur liður í starfi Kamersveitarinnar og verður boðið upp á barokkverk á aðventunni eftir H. Purcell, A. Cicaldi og J.S. Bach. Að þessu sinni hefur hljómsveitin fengið til liðs við sig fjóra unga og hljóðfæraleikara; Einar Kristján Einarsson og Kristinn H. Árnason munu ílytja Konsert í G-dúr fyrir tvo gftara eftir A. Vivaldi, Gerður Gunnarsdóttir fiðluleikari flytur Konsert í a-moll eftir J.S. Bach og Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari flytur svítu nr. 2 í h-moll, einnig eftir J.S. Bach. Tónleikarnir verða sem fyrr seg- ir í Áskirkju og hefjast þeir kl. 17. Miðar verða seldir við innganginn 3VO og áskriftarkort á alla tónleika vetrarins. Geisladiskur Kammer- sveitarinnar með upptöku frá jóla- tónleikum 1992 verður til sölu við innganginn á afsláttarverði. Góð bók í Geysishúsinu Rithöfundar lesa úr verk- um sínum ÚTGÁFUSÝNINGIN Góð bók stendur nú yfir í Geysishúsinu. í tengslum við sýninguna lesa rithöf- undar úr verkum sínum. í kvöld ki. 20.30. munu verða kynnt verk eftir Einar Kárason, Fríðu Á. Sigurðardóttur, Jónas Þor- bjarnarson, Thor Vilhjálmsson og Vigdísi Grímsdóttur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.