Morgunblaðið - 08.12.1994, Side 33

Morgunblaðið - 08.12.1994, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 33 AÐSENDAR GREINAR Hvað er það sem fjármálaráðherra telur óframkvæmanlegt, spyr Þorgeir Ibsen, í skattastefnu Sjálf- stæðisflokksins? rv Þrátt fyrir værugirni og áhuga- leysi of margra þingmanna á mál- efnum aldraðra og réttlætiskröfum þeirra um að afnema tví- og þrí- •sköttun á ellilífeyri, hefur nokkrum góðum þingmönnum runnið seina- gangurinn til rifja og vilja afnema ranglætið og sýnt það í verki með tillöguflutningi. Á fyrstu dögum þingsins í haust báru þau Guðmund- ur Hallvarðsson, Sólveig Péturs- dóttir og Vilhjálmur Egilsson fram þingsályktunartillögu um að leggja fram frumvarp um að afnema tvís- köttun á lífeyrisgreiðslur og um jafnræði í skattalegri meðferð vaxtahluta lífeyris. Og nú síðast er að koma fram frumyarp_ frá Finni Ingólfssyni, Guðna Á. Ágústssyni o.fl. að afnema þessa illræmdu tví- og margsköttun á iðgjaldagreiðslur lífejrissjóða. I góðri grein í DV. 10. nóv. sl., „Aldraðir féflettir“, reifar og ræðir Haukur Helgason, Úrvalsritstjóri, mál þessi af mikilli sanngimi og lýk- ur grein sinni með þessum orðum: „Nú er því tækifæri lífeyrisþega að fylgja þessari hreyfingu eftir.“ Undir þetta skal tekið heilshugar með Hauki um leið og honum er þakkaður góður stuðningur við að mikið réttlætismál nái fram að ganga. V Það var ekki til að hrópa húrra fyrir, þegar lagst var á úrbótatillögu Guðmundur H. Garðarssonar (1990), þáverandi þingmanns Sjálf- stæðisflokksins, um að koma á réttlátri skipan á skattalegri með- ferð lífeyristekna. Tillaga Guð- mundar hefur legið í salti í rösk 5 ár. Það er langur tími í Iífi aldraðs manns, karls eða konu, sem hefur verið beittur tví- og þrísköttunar- ranglætinu á fátæklegan lífeyri sinn. Launþegar, sem komnir eru á lífeyr- isaldur, telja sig hafa fyllilega unnið fyrir sínum lífeyri í þjónustu sinni við ríki og bæ og aðra. Greitt keisaranum — hinu opinbera — það sem keisarans var — og yfir höfuð að tala — með litlum undantekning- um eða engum — hvorki reynt að stela né fela fyrir skattheimtunni það, sem sameiginlegum sjóði landsmanna, ríkissjóði, bar hveiju sinni. Enda, sem betur fer, ekki þarna hægt um vik, þar sem launa- maðurinn er með allt sitt á þurru og laun hans opinber, liggjandi pall- flöt fyrir þeim, sem fremja álögurn- ar. Fátíð hafa því skattsvik verið af hálfu þessa hluta þegnanna, þ.e. launþeganna. Kannski er það fyrir skilvirkni og góða skilasemi þessara skattþegna, sem þeim er refsað af hinu opinbera með fáheyrðri og fram úr hófi ranglátri og frekjulegri skattheimtu. VI Þingsályktunartillaga þeirra Guðmundar Hallvarðssonar, Sól- veigar Pétursdóttur og Vilhjálms Egilssonar var raunar ekki annað en það, að staðið væri við þau fyrir- heit síðasta Landsfundar Sjálfstæð- isflokksins, að skattamisréttið, sem aldraðir bjuggu við, yrði leiðrétt, mál þeirra færð til betri vegar. Nú er kjörtímabilið senn á enda, en lítt bólar á úrbótum í þessu efni og ekki á hreinu að við fyrirheitin verði staðið. Ef svo illa tækist til að enn yrði þetta réttlætismál hundsað og því stungið undir stól, yrði það mjög miður, því að fátt er verra í ríki, sem vill láta telja sig meo rétt- arríkjum, en skattaleg mismunun þegnanna. I apríl 1993 átti tímaritið Vikan viðtal við íjármálaráðherra, Friðrik Sophusson. Það er harla umhugsun- arvert og hið athyglisverðasta. Þar, á bls. 27. 8.tbl., varpar blaðamaður þessum orðum m.a. til fjármálaráð- herra: „Sjálfstæðisflokkurinn lofaði í samþykkt landsfundar 1991 að lækka skattahlutfallið í 35 prósent. Nú er það komið í rúmlega 41 pró- sent. Hvað gerðist? Hér birtist aðeins upphafið og Iít- ill hluti af svari ráðherrans, sem sagði m.a.: „Tilþess að ræða skatta- stefnu Sjálfstæðisflokksins þarf að skoða það plagg í heild sinni. Þar kennir nú ýmissa grasa og ég er býsna hræddur um að sumt af því sem þar segir hafi verið nánast óframkvæmanlegt... “ Um þessi upphafsorð að lengra svari fjármálaráðherra við spurn- ingu blaðamannsins er rétt að fara nokkrum orðum, þar sem allt svarið er ekki birt hér, heldur sá hluti þess, upphafshluturinn, sem snertir það, sem grein þessi fjallar um. Ekki skal það dregið í efa og reyndar má taka undir það með ráðherra að „sumt“ í skattastefnu Sjálfstæðisflokksins, sem samþykkt var á landsfundinum 1991, „hafi nánast verið óframkvæmanlegt", en þetta „sumt“ sem hann á við, er samt óljóst og þokukennt. Hvað er það, sem nánast hefur verið ófram- kvæmanlegt af því, sem lagt er til í skattastefnunni? Það væri fróðlegt að fá að vita það. Varla getur það átt við þau atriði, þar sem lagt er til að þegnarnir sitji við sama borð, þegar um álögur og skatta er að ræða, að komið sé í veg fyrir það af fremsta megni, að á því sviði sé fólki mismunað. En það er einmitt hið sorglega, sem gerst hefur í tíð núverandi fjármálaráðherra, þótt margt sé annars vel um hann, að honum hefur ekki tekist, fremur en fyrirrennurum hans, enn sem komið er, og kjörtímabilinu senn að ljúka, að eyða því himinhrópandi ranglæti að tví- og þrískattleggja lífeyri gamla fólksins. Þessi tví- og þrí- sköttunarhringavitleysa sýnist því ófrávíkjanlega tilheyra því „suma“ sem ráðherra telur „hafa nánast verið óframkvæmanlegt" í skatta- stefnu Sjálfstæðisflokksins. Að láta undir höfuð leggjast, þegar tæki- færi er til, að eyða óréttlætinu og standa með réttlætinu, er ekki ein- asta siðlaust, heldur líka stórhættu- legt lýðfrelsinu og lýðveldinu sem réttarríki. Það hlýtur að vera keppi- kefli góðra valdsmanna, sem vilja þjóð sinni vel, að „gera rétt“ og „þola ekki órétt“. Höfundur er fyrrverandi skólastjóri. eykur orku og úthald Fæst í apótekum Apple prentarar við allra hæfi StyleWriter II Þetta er vinsælasti prentarinn frá Apple. Hann prentar allt að tvær síður á mínútu í miklum gæðum, eða 360 x 360 punkta á tommu. 39 leturgerðir íylgja. 34.105,- l Color StyleWriter 2400 Mjög góður litaprentari á fínu verði. Hægt er að nettengja hann svo margir notendur geti prentað á hann. Prentar litasíðu á u.þ.b. þremur mínútum, en þrjár síður á mínútu, sé einungis prentað með svörtu. Prentlitir eru fjórir. Ath. 360 punkta upplausn. LaserWriter Select 360 Mjög sprækur leysiprentari með 600 punkta upplausn. Styður Adobe PostScript og PCL 5. Hefur 7 Mb minni og er tengjanlegur við Macintosh- og PC-samhæfðar tölvur. 1 48.000,- kr LaserWriter Pro 16/600 PS Geysilega öflugur og hraðvirkur leysiprentari með Ethernet-tengi. Prentar allt að 16 síður á mín. í 600 pkt. uppl. Hefur 8 Mb minni og er hægt að tengja við margar mismunandi tölvu- tegundir samtímis. Þar sem gerðar eru miklar kröfur til prenthraða og gæða, er þetta lausnin. 305.900," kr. TIL ALLT AÐ 18 MÁIUAÐA .. .já, þú finnur örugglega einn við þitt hæfi ! Apple-umboðið hf. Skipholti 21, sími: (91) 62 48 00

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.