Morgunblaðið - 08.12.1994, Page 34

Morgunblaðið - 08.12.1994, Page 34
34 FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDl: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MISMUNUN, SEM TORVELDAR SAMKEPPNI SAMKEPPNISRÁÐ hefur bent samgönguráðherra á að ákvæði hafnalagá um ríkisstyrki til upptökumannvirkja í höfnum á vegum opinberra aðila stangist á við markmið samkeppnislaga. Einkafyrirtæki í skipasmíðaiðnaði séu ekki styrkhæf samkvæmt hafnalögum og eigi því ekki kost á ríkis- styrkjum á sama hátt og þegar hafnasjóðir eigi upptökumann- virkin. í þessu sé fólgin mismunun, sem sé til þess fallin að torvelda fijálsa samkeppni. Samkeppnisráð bendir á að dæmi séu um að skipasmíða- stöðvar leiti til sveitarfélaga og hafnasjóða um að sveitarfélög kaupi upptökumannvirki en leigi þau svo aftur til viðkomandi stöðvar. „Með þessu móti verður upptökumannvirkið styrkhæft og að auki virðist almenna reglan vera sú að leigutekjur hafna- sjóða af mannvirkjum sem þessum séu langt frá því að standa undir kostnaði við framkvæmdina. Hér því um að ræða að- stoð hlutaðeigandi sveitarfélags við atvinnuuppbyggingu á viðkomandi stað,“ segir ráðið. Það bendir á að þetta raski samkeppnisstöðu einkarekinna skipasmíðastöðva. Hafnarstjórn Reykjavíkur samþykkti fyrir nokkru viljayfir- lýsingu um að höfnin myndi kaupa slippa Stálsmiðjunnar og leigja fyrirtækinu þá aftur. Þessi ákvörðun var gagnrýnd í forystugrein hér í Morgunblaðinu á þeim forsendum að hér væri um að ræða opinbera fyrirgreiðslu við fyrirtæki, sem ætti í samkeppni við önnur einkafyrirtæki, sem ekki nytu sömu fyrirgreiðslu. Á sömu forsendum hefur Morgunblaðið gagnrýnt fyrirhug- aðan ríkisstyrk til kaupa á flotkví fyrir Akureyrarhöfn. Þær fyrirætlanir eru tilefni álits samkeppnisráðs. Normi hf. í Garðabæ kærði ríkisstyrkinn til Samkeppnisstofnunar, þar sem fyrirtækið telur hann brjóta í bága við samkeppnislög. Normi er einkafyrirtæki, sem nýtur ekki ríkisstyrkja, og hugð- ist smíða stærstu dráttarbraut á landinu, en telur að ríkisstyrk- ur til keppinautarins á Akureyri myndi kippa grundvellinum undan þeirri starfsemi. Normi hefur jafnframt kært fyrirhugaðan ríkisstyrk til Eftirlitsstofnunar EFTA, þar sem fyrirtækið telur hann brjóta i bága við samninginn um Evrópskt efnahagssvæði. Eftirlits- stofnunin mun taka afstöðu til málsins fljótlega. Hver svo sem úrskurðurinn kann að verða, er ljóst að ríkisstyrkir, sem mis- muna fyrirtækjum, ganga gegn þeim meginreglum, sem hafa náð æ meiri fótfestu í evrópskum samkeppnisrétti á undanförn- um árum. Morgunblaðið hefur áður bent á að ekki verði lengur staðið í vegi fyrir kröfum frá fjölmörgum atvinnugreinum um að opinber fyrirgreiðsla verði ekki til þess að raska möguleikum fyrirtækja i samkeppni við önnur. Þessar kröfur eru eðlilegar í alla staði, í skipasmíðaiðnaði jafnt sem í öðrum atvinnugrein- um. Það kann að mega færa rök fyrir því að skipasmíðar séu nú í svo miklum erfiðleikum, að styrkja beri fyrirtæki í greininni til endurskipulagningar eða þróunarstarfs. En eitt verður þá yfir alla að ganga. Það eru úrelt vinnubrögð að stjórnmála- menn hygli einu fyrirtæki á kostnað annars. Það er þess vegna sjálfsagt mál að samgönguráðherra bregðist vel við ábendingu samkeppnisráðs um að endurskoða hafnalög, þannig að mismunun einkafyrirtækja og þeirra, sem eru í opinberri eigu eða njóta opinbers stuðnings, verði afnum- in. Það er og í samræmi við grundvallarstefnu Sjálfstæðis- flokksins. SKRÖK FYRIR HÁDEGI, SANNSÖGLISÍÐEGIS GUÐRÚN Helgadóttir, þingmaður Aiþýðubandalagsins, sagði á blaðamannafundi á þriðjudag að hún hefði „skrökvað svolítið“ þegar hún sagðist í samtali við blaðamann á DV þá um morguninn ekki ætla að færa sig úr 2. sæti fram- boðslista flokksins í Reykjavík. „Ég ætlaði satt að segja ekkert að segja sannleikann í morgun. Ég ákvað það ekki fyrr en um hádegi þegar ég vissi endanlega að þessir tveir frambjóðsendur myndu taka sætið. Svo ég skrökvaði svolítið að þér í morgunsárið,“ sagði Guðrún þegar hún hafði lýst því yfir að hún myndi taka 4. sæti listans. Það er tvennt ólíkt að láta ekki uppi afstöðu sína og að skrökva í blaðaviðtölum. Hvaða traust geta kjósendur borið til stjórnmálamanns, sem skrökvar fyrir hádegi en segir satt síðdegis? Hefur Guðrún Helgadóttir sömu afstöðu til sannleik- ans í öðrum þeim málum, sem hún fjallar um? VARNIR GEGN SKEMMDARVERKUM í BÍLAGEYIIi HLUTI bílageymslunnar í Hamraborg hefur verið endumýjaður, gerður bjartari og vistlegri. Lokið verðu unnar árið 1996. Bæjarsjóður Kópavogs og húsfélagið skipta með sér kostnaði við enc Samstaða íbúa og umgengnisreglur skipta mestu Lýsing á því hvemig ráðist var á konu í bíla- geymslu við heimili hennar í Reylqavík í fyrra- dag og hún rænd minnir á atriði úr kvik- mynd. Óhug slær að fólki þegar fréttist um slíkt ódæðisverk. Gréta Ingþórsdóttir ræddi við nokkra menn sem hafa þekkingu á öryggis- málum og reynslu af umbótum í bílageymslu sem áður var vettvangur tíðra skemmdarverka. fbúar í Hamraborg geta fylgst með umferð í bílageymslunni gegnum eftirlitsmyndavélac, BÍLAGEYMSLUR hafa ekki verið algengur vettvangur líkamsárása hériendis hing- að til, samkvæmt upplýs- ingum lögreglu. Árásin á Margréti Guðnadóttur í bílageymslu við Skelja- granda í fyrradag virðist því sem bet- ur fer vera einsdæmi. Hins vegar hefur talsvert verið um innbrot í bíla og skemmdarverk í bílageymslum undanfarin ár. Að sögn Ómars Smára Ármannssonar, aðstoðaryfirlögreglu- þjóns hjá lögreglunni í Reykjavík, skiptir mestu í þeirri viðleitni að koma í veg fyrir skemmdarverk í bíla- geymslum að íbúar og húsfélög setji umgengnisreglur. Þar sem óeining meðal íbúa og slæm umgengni við- gangist virðist innbrot og skemmdar- verk einnig vera tíðust. Miklar endurbætur hafa verið gerð- ar á bílageymslunni í Hamraborg í Kópavogi og í rúmt ár hafa allir íbúar hússins getað fylgst með bílageymsl- unni úr íbúðum sínum í gegnum kapal- kerfi. Að sögn Þóris Steingrímssonar, formanns Hamraborgarráðsins, húsfé- lagsins í Hamraborg, var mikið um skemmdarverk á húsnæðinu sjálfu, skemmdarverk á bílum og innbrot í þá. Ekki hafi liðið sú vika að ekki hafí verið skemmd Ijós og bflar eða kveikt í póstkössum. Hann telur að tjón fyrir á þriðju milljón króna hafi verið unnið í geymslunni árlega þar til húsfélagið réðst í myndavélavæð- inguna. Kerfið að borga sig upp Þórir segir að kostnaður við mynda- vélakerfið hafi verið talsverður, eða um 2,5 milljónir króna. Það verði hins vegar búið að borga sig upp strax í byrjun næsta árs. Hann segir að það sé augiýst við alla innganga og inn- keyrslur að fylgst sé með svæðinu á þennan hátt og raunin sé sú að skemmdarverk heyri nánast sögunni til. Uppákomur í bílageymslunni megi telja á fingrum annarrar handar frá því kerfið var sett upp. Geymslan gerð bjartari og vistlegri Á síðasta ári var einnig byijað að endurbyggja bílageymsluna og gera hana bjartari og vistlegri en áður. Þórir segir að gömlu fólki hafí þótt óhugnanlegt að fara í gegnum hana en þannig háttar til að aðalgönguleið- in úr Hamraborginni og yfir á bæjar- skrifstofur Kópavogs liggur í gegnum geymsluna. Bæjarsjóður Kópavogs annast rekstur bílageymslunnar í samráði við húseigendur. Kostnaður við endur- byggingu geymslnanna nemur um 72 milljónum króna og skiptist hann þann- ig að bærinn borgar 55% og húseigend- ur 45%. Endurbyggingu allra geymsln- anna á að ljúka á árinu 1996. Tvö kerfi samtengd Bílageymslan í Hamraborg tekur 270 bíla, úr henni er gengið inn í 13 stigaganga og 9 fyrirtæki. Þar að auki er akstursleið í gegnum hana þannig að þar er alltaf einhver um- ferð. Þórir segir fyrirhugað að koma upp myndavélum í bílageymslum í Fannborg og samtengja kerfin. Þá yrðu tæplega 330 íbúðir tengdar kerf- inu og úr þeim yrði hægt að fylgjast með allri umferð í bílageymslum Hamraborgar og Fannborgar og við bensínsölu Olís í Hamraborg. Þórir segir að fyrirtækið hafi sýnt þessu verkefni mikinn áhuga og muni taka þátt í kostnaði við það. Þórir segir að forsvarsmenn ann- arra húsfélaga hafi haft samband við sig vegna bílageymslna og hann hafi svarað fyrirspurnum frá þeim og mælt eindregið með því að eftirlits- kerfi séu sett upp í bílageymslum. Þau hafi mjög sterk varnaðaráhrif og mik- inn fælingarmátt gagnvart þeim sem hyggist bijóta af sér. Þá sé kerfið ekki eingöngu notað til að fylgjast með hugsanlegum afbrotum heldur einnig til þess að íbúar viti hveijir séu á ferð í bílageymslunni. Þórir segir mikla ánægju ríkja með þessar breytingar. Fólk sé mun örugg- ara nú en áður. Ástandinu í bíla- geymslunni hafi verið líkt við Harlem en nú sé búið að breyta Hamraborg- inni úr Harlem í höll. Fyrirbyggjandi að fá menn í eftirlitsferðir Hannes Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Securitas, segist best þekkja til í Hamraborginni vegna þess að fyrirtækið hafi séð um að koma upp myndavélakerfinu þar. Hann seg- ir það vera að færast í vöxt að mynda- vélar séu notaðar til eftirlits, jafnt utan dyra sem innan, ekki síst vegna þess að þær hefðu lækkað mjög í verði síðustu ár. Hannes segir að Securitas hafi ver- ið fengið til að taka að sér eftirlit í bílageymslum sem séu opnar. Þær séu margar þannig að auðvelt sé að vinna þar skemmdarverk og bijótast inn í bíla í skjóli myrkurs. Hann segir að með því að lýsa vel upp bílageymslur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.