Morgunblaðið - 08.12.1994, Side 40

Morgunblaðið - 08.12.1994, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Pólitískt sjónarspil og pólitískir trúðar í MORGUNBLAÐINU 18. nóv- ember sl. birtist grein undir fyrir- sögninni „Tívolíhúsið í Hveragerði til sölu“ ásamt mynd af Hvera- gerði þar sem segir að Hveragerð- isbær hafi keypt Tívolíhúsið „með það í huga að lífga upp á bæjarlíf- ið og vera með markað í húsinu um helgar“. Umræða um siðferði og siðferðiskröfur til þeirra sem fara með almannafé hefur verið nokkur undanfarið og nefni ég í því sambandi Listahátíð Hafnar- fjarðar, ferðakostnað sveit- arstjórnar Patreksfjarðar, dagpen- inga og ferðakostnað til maka ráð- herra á ferðalögum erlendis. Grein þessi er innlegg í þá umræðu. Þess skal jafnframt strax getið að undir- ritaður byggði umrætt hús og rak þar skemmtigarðsstarfsemi frá 1988 til haustsins 1993. Sérstaða Tívolíhússins Tívolíhúsið var sérhannað og byggt fyrir skemmtigarðsstarf- semi veturinn 1987. Starfsemin hófst á skírdag 14. apríl 1987. Tívolístarfsemin, þ.e. rekstur vél- knúinna leiktækja, var síðan starf- rækt allt að 6 mánuði ár hvert til haustsins 1993. Tívolí Hveragerði átti fastan sess í hugum yngstu kynslóðarinnar um land allt sem vinsæll skemmtigarður. Staðsetn- ing Tívolíhússins í Hveragerði er góð með tilliti til þess að fjölskyldu- fólk á höfuðborgarsvæðinu þarf að fara stutt og Hveragerði er í alfaraleið. Tívolístarfsemi er hluti af menningu í Evrópu og víðar og hefur verið það síðustu 100 ár. Með tilliti til framangreinds var bygging Tívolíhússins í Hveragerði ekki út í bláinn. Byggingarkostnaður Framreiknaður lóðar- og bygg- ingakostnaður Tívolíhússins er yfir 80.000.000 kr. en byggingarkostn- aður fór tugmilljónir fram úr kostnaðaráætlun verkfræðings hússins. Slíkt er ekki einsdæmi um sérhannaðar bygging- ar, sbr. t.d. ráðhús- bygginguna og Perluna í Reykjavík. Undirrit- aður lenti því í veruleg- um greiðsluerfiðleikum vegna skuldsétningar. Háði það tívolístarf- seminni en ein af rekstrarforsendum tí- volístarfsemi er einmitt að bjóða sífellt upp á kostnaðarsamar nýj- ungar. Hveragerðisbær kaupir Tívolíhúsið Búnaðarbankinn eignaðist Tívolíhúsið á uppboði í október 1993. Ég átti í samningaviðræðum við bankann um kaup á húsinu en samningar tókust ekki. Hveragerðisbær átti forkaupsrétt á húsinu. Þá kynnti ég forráðamönnum Hveragerðis- bæjar með bréfum og viðtölum áhuga minn á því að tívolístarfsem- in yrði rekin áfram í húsinu. Við- brögð þáverandi bæjarstjóra og meirihluta Hveragerðisbæjar voru hins vegar þau að fá Tívolíhúsið keypt sem fyrst til eigin nota. Þá átti ég aftur viðræður við Búnaðar- bankann um kaup en án árangurs. Bankinn gaf mér þriggja vikna frest til að rýma húsið ella yrðu öll vélknúnu leiktækin og annað í húsinu íjarlægt að viðlögðum út- burði með aðstoð sýslumanns. Við þessar aðstæður varð ég að gefa upp alla von um frekari rekstur Tívolísins. Tívolíhúsið var rýmt strax í apríl sl. og tókst að selja vélknúnu leiktækin úr landi. Pólitískt sjónarspil Skilyrðislaus krafa fyrrverandi bæjarstjóra og sveitarstjómar- meirihluta Hveragerðisbæjar og gegn vilja minnihlutans um að Tí- volíhúsið væri tómt fyrir afhend- ingu strax í apríl sl. var hluti af pólitísku sjónarspili þeirra til að Ólafur Ragnarsson hrl. Gæða húsgögn á góðu verði Stórglæsilegir hornsófar 2ja+horn+3ja sæta með leðri á slitfleti Litir: Svart - brúnt - grænt - rautt - vínrautt. Yerð aðeins kr. 123.900 stgr. Líttu á verðið! Euro raðgr. til allt að 36 mánaða. Visa raðgr. til allt að 18 mánaða. Yalhúsgögn ÁRMÚLA 8, SÍMAR 812275, 685375. slá ryki í augu Hver- gerðinga. Ætlun þeirra var að opna þar útimarkaðsstarfsemi fyrir notað og nýtt á vegum bæjarins í þeim tilgangi að kaupa sér vinsældir meðan nýja- brumið væri á starf- seminni og afia sér þannig atkvæða í sveit- arstjórnarkosningun- um í maí sl. Þessi lodd- arabrögð mistókust' hrapallega. Starfsemin gekk illa og var húsinu lokað löngu fyrr en ráðgert var. Markaðs- starfsemin var í sam- keppni við aðra smásölu í Hvera- gerði og mikil óánægja varð meðal Hvergerðinga með markaðsstarf- semina. Og fýrrverandi meirihluti kolféll og sjálfstæðismenn unnu stórsigur og mynda nú einir meiri- hluta. Bæjarstjórinn hrökklaðist úr bænum. Öllum mátti vera ljóst að markaðsstarfsemin var fyr- Þeir sem vinna við stjórnsýslu, segir Olaf- ur Ragnarsson, eru þjónar almennings en ekki öfugt. irfram dæmd til að mistakast en þessi loddarabrögð voru samt keyrð í gegn á atkvæðaveiðunum. Tjónið vegna sjónarspilsins borga Hvergerðingar eins og alltaf alls staðar þegar siðspilltir ráðamenn stjórna eftir eigin geðþótta. Beittir ranglæti Eðlilegt má teljast að Hvera- gerðisbær hlúi að atvinnustarfsemi í bænum á þessum tímum atvinnu- leysis. Því var full ástæða til að leigja húsið út til áframhaldandi tívolístarfsemi eða a.m.k. hluta þess. í Tívolíinu unnu eingöngu Hvergerðingar. ★ í Tívolíinu var að auki rekin útimarkaðsstarfsemi fyrir notað og nýtt en takmarkaður áhugi var á slíkum rekstri. ★ Tekjur Hveragerðisbæjar, raf- magn og fasteignagjöld, af tívolí- starfseminni hafa verið á aðra millj- ón króna ár hvert. ★ Kostnaður Hveragerðisbæjar umfram tekjur af umræddri mark- aðsstarfsemi sumarið 1994 var yfir 4.000.000 kr. skv. áreiðanlegum heimildum. ★ Að auki má geta þess að Hvera- gerðisbær fékk styrk úr Atvinnu- leysistryggingasjóði vegna Tívolí- hússins. Styrkumsóknin og styrk- veitingin er siðlaus og sóun á skatt- peningum með tilliti til þess að verið var að koma í veg fyrir at- vinnustarfsemi sem þegar fór fram í húsinu. Viðurkenndar siðferðiskröfur 1. Fjárhagsleg ákvörðun hverju sinni verður að vera vel ígrunduð og óumdeild. íbúarnir, skattgreið- endur, borga tjónið hveiju sinni ef ákvörðun reynist röng. 2. Ráðamenn setji almannahags- muni ofar sérhagsmunum. 3. Sveitarstjórnir reki ekki at- vinnustarfsemi í samkeppni við einkaaðila nema hagsmunir sveitarfélagsins mæli með því. 4. Þess sé gætt að fjárhagslegar ákvarðanir mismuni ekki íbúunum. Ákvörðun sem er ekki almenns eðlis má ekki bitna á einstökum íbúum eða veita einstökum íbúum Við eignm ekkert erindi í ESB Fyrri grein ÞÉGAR rætt hefír verið um aðild íslands að ESB undanfarið hefír hvað eftir annað heyrst, að engin eða svo til engin umræða hafí farið fram um málið, kosti eða galla aðildar og önnur vandainál sem kynnu að koma upp ef við gengjum í það og einnig ef við stæðum utan þess. Ég vil því koma á framfæri minni skoðun á málinu, af því líka að ég veit að margir eru sama sinnis. Ég ætla að byija þessa grein með því að segja, að ég tel enga ástæðu til þess að við Islendingar sækjum um aðild að Evrópusambandinu, en tek jafnframt fram, að ég tel þá, sem vilja sækja um aðild eða vilja láta kanna hvaða kostir eru til boða fyrir okkur, ekkert verri ís- lendinga fyrir það. Það er hinsvegar hreinn bamaskapur og sýnd- armennska að ætla sér að sækja um aðild að- eins til þess að kanna með hvaða skilmálum hún fengist. Við emm ekki einir í heiminum og væntanlegir við- semjendur okkar fylgj- ast með umræðunni og myndu taka mið af henni í hugsanlegum samn- ingaúmleitunum. Sagj; hefir verið að í álitsgjörð- um frá starfsmönnum háskólans, sem enn hafa ekki verið birtar, telji þeir hagkvæmt að ganga í Evrópusambandið sem fullgildir aðilar. Um þessi álit er að svo komnu máli ekki hægt að ræða, bæði er að þau hafa ekki verið birt og þeir geta heldur ekki gefið skynsamlegt álit um annað en það sem hægt er að reikna til verðs. Það sem snertir tilfinningar okkar sem þjóðar eru þeir ekki færari um að dæma en hver annar. Hitt er svo annað mál, að senni- legt er að vissir þættir efnahags- lífsins njóti góðs af veru í samband- Jón ísberg inu, en við missum líka margt og þá er bara að vega og meta. Við erum fullvalda þjóð og getum ráð- ið málum okkar sjálf. T.d. getum við skert þetta fullveldi með því að gangast undir forræði ríkja- bandalags. Það er hugtakabrengl- un og bara rugl að halda því fram að sjálfstæði þjóða nú á dögum felist í því að afsala sér sjálfstæð- inu og sameinast öðrum og sterk- ari þjóðum. Erum við íslendingar ekki svolítið upp með okkur af því að hafa átt okkar þátt í að Eystra- saltslöndin sögðu sambandinu við Rússa upp? Ef þeir sem beijast fyrir aðgangi að Evrópubandalag- inu nú væru sjálfum sér samkvæmir ættu þeir að harma sjálf- stæði þessara ríkja, en auðvitað þora þeir það ekki og segja að þau hafi verið þvinguð inn í rússneska veldið, en hver er munurinn á því að ógn manni í fjötrum með byssu, ef hann er ekki góða bamið, og því að halda kúfuðum diski af mat fyrir fram- an hungraðan mann og segja við hann: Þetta færðu ef þú gerir eins og ég vil, annars máttu drepast fyrir mér? Umbúðalaust er það þetta sem okkur er boðað. Okkur er sagt að við verðum einangruð og úti á klakanum ef við göngum ekki í þetta bandalag. En verðum við það? Við tökum nú þátt í mörgum alþjóðasamtök- um og íslenskar konur og karlar hafa komist þar í áhrifastöður af eigin ágæti en ekki eftir höfðatölu, því þá kæmi það ef til vill fyrir einu sinni á öld. Norðmenn kvört- uðu yfir því, þegar hafréttarsátt- málinn var gerður, að íslendingar hefðu þar meiri áhrif en íbúafjöldi landsins gæfi tilefni til. Við eigum mjög gott samstarf við Bandaríkin og vaxandi samstarf við ríki þau, sem eiga lönd að Norður-Atlants- hafinu og íshafinu, þar með taldir Engin ástæða er til að sækja um aðild að ESB, segir Jón ísberg, en þeir sem það vilja eru --------------3>-------------- ekki verri Islendingar __________en aðrir.___________ Rússar. Ef við göngum í Evrópu- sambandið getum við ekki samið við þessi ríki heldur gerir samband- ið það. Og hverra hagsmunir halda menn að komi til með að vega þyngra, hagsmunir sjómanna og fiskvinnslufólks í verstöðvum Ís- lands, Norður-Noregs og Græn- lands, að ekki sé talað um Rúss- lands, eða stórútgerða Spánar og Portúgals og raunar líka tilfinning- ar fólks, sem æsa má upp eins og umræðan um hvalamálið hefir bor- ið með sér? Norðmenn hafa þegar gert um- deildan samning við ESB og feng- ið ívilnanir til örfárra ára, en hvað skeður þegar semja á upp á nýtt? Við höfum reynsluna hér að heim- an. Skrifuðu ekki stjórnvöld upp á það í desember sl. að sveitarfélög- in þyrftu aðeins í það eina skipti að greiða 600 millj. kr. til atvinnu- leysismála, en taka svo þennan tekjustofn inn í fjárlagafrumvarpið í ár? Ef menn halda að svona nokk- uð komi ekki fyrir í milliríkjavið- skiptum, ættu þeir að rifja upp atburðina í Frakklandi sl. vetur. Evrópubúar vita yfirhöfuð lítið um ísland og í augum margra þeirra, sem eitthvað vita, er ísland nánast verstöð. Og ef til vill ekki óeðlilegt, því margir okkar ágæt- ustu manna líta einnig þannig á, þótt þeir geri sér það ekki ljóst. Þetta kemur t.d. fram í hugmynd- um um að virkja til þess svo að flytja orkuna út til notkunar í Evr- ópu í stað þess að byggja upp orkufrekan iðnað hér á landi. Þetta er nú innskot, sem ég tek til þess að minna á þessa landlægu minnimáttarkennd gagnvart út- lendingum. Sérstaklega ef við för-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.