Morgunblaðið - 08.12.1994, Page 41

Morgunblaðið - 08.12.1994, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 41 I I I I I I I i I i I ( : ( ( ( < ( i < fjárhagslegan ávinning. 5. Við fjárhagslegar ákvarðanir skal forðast að láta skyldleika, vensl, vinskap eða búsetu ráða ákvörðuninni. 6. Upplýsingaskylda gagnvart þeim sem fjárhagsleg ákvörðun varðar hverju sinni. Tjón Hvergerðinga Umrætt tívolíhúsamál er ein- stakt að því leyti að allar ofan- greindar siðferðiskröfur voru snið- gengnar af bæjarstjóranum og meirihluta bæjarstjórnar Hvera- gerðis. Beint fjárhagslegt tjón Hveragerðisbæjar vegna markaðs- starfsemi í Tívolíhúsinu sumarið 1994 er um 5-6.000.000 kr. Þetta tjón er mjög verulegt með tilliti til þess að Hveragerði er lítið bæjarfélag, íbúar Hveragerðis eru aðeins um 1.500. Þá er ótalið tjón vegna atvinnumissis þeirra sem störfuðu í Tívolí Hveragerði og tjón seljenda vöru og þjónustu í Hveragerði en tívolístarfsemin lað- aði að sér margan ferðamanninn til Hveragerðis. Almenn umræða um siðferði í stjórnsýslu og um siðferðisafglöp stjórnvalda er æskileg því að hún leiðir til siðbótar. Þeir sem vinna við stjórnsýslu eru þjónar almenn- ings en ekki öfugt. Þessi sannindi virðast mörgum óljós. Hver vill ráða til starfa siðlausa þjóna? Höfundur er fyrrverandi eigandi - Tívolí Hvcragerði. um ekki alveg eins að og hin Norð- urlöndin. Samvinna við frændur okkar er ágæt og auðvitað viljum við hafa sem best samskipti við þá, en þegar ölið er af könnunni og deila á gullinu eru engir harð- ari í viðskiptum við okkur en ein- mitt þessir frændur okkar. Danir t.d. börðust harðast á móti því að séríslensku bókstafirnir væru áfram í evrópska tölvumálinu, ef marka má blaðafréttir. Og einnig, ef marka má fréttir útvarps og blaða, talaði hin merka kona, for- sætisráðherra Noregs, aðeins um Norðurlöndin fjögur í sambandi við úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Finnlandi. Það eru því ekki rök fyrir okkur að sækja um aðild að ESB bara af því að hin Norðurlönd- in hafi gert það. Við getum haft gott samstarf við þau eins og áður, en það verður að vera á jafnréttis- grundvelli og við eigum ekki að láta þau segja okkur fyrir verkum. Munum við ekki eftir því, að sænsk blöð ræddu um það að Svíar gætu leiðbeint íslenska utanríkisráðherr- anum við að stjórna fundum EFTA, þegar formannssætið kom í okkar hlut? Við lítum á þetta sem móðg- un, enda vissum við að ráðherran- um þurfti ekki að leiðbeina. En við verðum að vera raunsæ. Þjóðríkjum hefir fjölgað mjög í Evrópu og flest vilja þau inn í ESB. Þau hafa ekki legu eða að- stöðu íslands. Við getum borið okkur saman við Möltu og Kýpur, sem bæði eru eylönd eins og ís- land. Ef ísland væri eina smáríkið í sambandinu horfði málið öðruvísi við. En við getum ekki gert kröfu til að fá aðra meðferð en önnur smáríki eða ef til vill væri réttara að orða það þannig að ESB gæti ekki gert upp á milli ríkja sam- bandsins og dettur nokkrum í hug, að staða og áhrif smáríkja verði einhver, ef til einhverra átaka kæmi eða grundvallarágreinings. Það gæti komið fram nýr Hitler í stjórn sambandsins, þ.e. sterkur maður, sem kynni að hafa megn- ustu vantrú á smáríkjum og vildi hagræða hlutunum stóru ríkjunum til hagsbóta. í þessu sambandi skulum við aftur hugleiða stöðu Eystrasaltsríkjanna eins og hún var í rússneska ríkinu. Og við gætum einnig rifjað upp afstöðu Svía í þeirra málum og margra annarra ríkja, þegar þessi lönd vildu rífa sig laus. Höfundur er fyrrv. sýslumaður Húnvetninga. Alltaf-allsstaðar með Siemens NORLAND Nóatúni 4 • Sími 628300 3 n X 6 $ £ G X G X Uéuntv tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi STRETCH-GALLABUXUR Margir litir sokkar og sokkabuxur Fjölbreytt úrval Opið daglega kl. 9-18. Laugardag 10. des. kl. 10-18. Sunnudag 11. des. kl. 13-17. V!5A Í5LAND Álfabakka 16,109 Reykjavík, síml 56717C3 RAÐGREIÐSLUR TIL 24 MÁNAÐA RAÐGREIÐSLUR VISA hafa reynst afar örugg og vinsæl leið til greiðsludreifingar vegna kaupa á dýrari munum, svo sem húsbúnaði, heimilistækjum, innréttingum og jafnvel bifreiðum. Með RAÐGREIÐSLUM VISA getur þú jafnað út greiðslubyrði þinni á þægilegan og ódýran hátt á allt að 24 mánuði eftir því sem þú hefur þörf fyrir *** og söluaðili samþykkir. INNKAUPATRYGGING og framlengdur ábyrgðartfmi búnaðar og tækja. Láttu RAÐGREIÐSLUR VISA létta þér róðurinn... ...OG OSKIN RÆTIST! Nýtt kortatímabil

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.