Morgunblaðið - 08.12.1994, Síða 42

Morgunblaðið - 08.12.1994, Síða 42
42 FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR/PRÓFKJÖR Siv Friðleifsdóttir í 1. sæti > NÚ BLASIR við að verulegar breytingar verða á þingmannaliði Framsóknarflokksins við næstu alþingiskosningar, þar sem þrír af núverandi þingmönnum flokksins gefa ekki kost á sér til endurkjörs. í Reykjaneskjördæmi, þar sem Framsóknarflokkurinn vann marga glæsta kosningasigra í bæjar- og sveitarstjómakosningum sl. vor, liggur fyrir að nýtt fólk mun leiða flokkinn í komandi kosn- ingabaráttu til Alþingis, því núver- andi þingmaður flokksins hefur ^ákveðið að draga sig í hlé. Frá pólitísku sjónarhorni er Reykjaneskjördæmi margslungið: Ekkert af núverandi kjördæmum landsins hefur innan sinna vébanda jafn fjölbreytta hagsmuni mismun- andi atvinnuvega og Reykjanes- kjördæmi. Nálægt 40% af kjósend- um kjördæmisins í komandi al- þingiskosningum er á aldrinum 18-35 ára og um það bil 10% kjós- enda kjördæmisins munu þá greiða atkvæði í kosningum til Alþingis í fyrsta sinn. Það er ljóst að miklu máli skipt- ir, að framboðslista Framsóknar- flokksins í Reykjaneskjördæmi leiði manneskja sem hefur reynslu af pólitískri forystu, og jafnframt hæfileika til þess að setja sig inn í, oft á tíðum ólíka hagsmuni fyrir- tækja og einstaklinga í kjördæm- inu. Djúpstæður skilningur á þörf- um og vandamálum alls þess unga fólks, sem glímir við erfiða greiðslubyrði húsnæðislána, náms- Svo er fulltrúi nýrra tíma í Framsóknar- flokknum, að mati Ingi- bjargar Davíðsdóttur, Reyknesinga. lána, og er jafnvel án atvinnu er skilyrði þess að Framsóknar- flokknum farnist vel í komandi kosningum. Það er mín skoðun að Siv Frið- leifsdóttir sé sá leiðtogi er leitt geti Framsóknarflokkinn til nýrrar sóknar í Reykjanes- kjördæmi í komandi alþingiskosningum. Siv Friðleifsdóttir er ekki einungis vel menntaður og reynslu- mikill stjórnmálamað- ur. Hún hefur jafn- framt til að bera þá hörku, festu og víðsýni sem allir alvöru stjórn- málamenn þurfa að hafa. Siv hefur í tveimur síðustu bæjar- stjómarkosningum leitt sameiginlegan lista félagshyggju- fólks á Seltjarnarnesi með glæsilegum árangri, og sýnt þar og sannað að hún metur meira sameiginlega pólitíska hagsmuni félagshyggju- afla en þrönga hagsmuni sjálfrar sín. Siv hefur með fjölmörgum störfum sínum, svo sem innan „Norræna ,félagsins“ og „Samtökum um vestræna samvinnu“, aflað sér meiri þekk- ingar á sviði utanríkis- mála en almennt ger- ist meðal stjórnmála- manna, og ég fullyrði meiri en nokkur annar frambjóðandi í próf- kjöri Framsókn- arflokksins Reykja- nesi lO^desember nk. Reyknesingar! Siv Friðleifsdóttir er ekki einungis verðugur fulltrúi á Alþingi ís- lendinga, hún er jafn- framt fulltrúi nýrra tíma í Framsóknarflokknum, þar sem konur munu í ríkara mæli verða að skipa forystusess. Höfundur er BA í stjórnmálafræði. verðugur þingfulltrúi Ingibjörg Davíðsdóttir NÚ STYTTIST tíminn óðfluga til ’ -1 næstu Alþingiskosn- inga. Stjómmálaflokk- amir em nú að velja fólk á sína lista, ýmist með prófkjöri eða upp- stillingu. Ég vil minna á opið prófkjör Framsóknar- flokksins í Reykjanes- kjördæmi 10. desember næstkomandi. Ekki er skilyrði fyrir þátttöku að vera flokksbundinn - í Framsóknarflokkn- um. Um 40% kjósenda hér á landi em á aldrin- um 18-35 ára. Það er mikilvægt að þessi hópur hafi málsvara ofar- lega á listum stjórnmálaflokkanna. Það hefur færst í vöxt nú undan- farið að eldra fólk hefur vikið fyrir yngra fólki og sums staðar hefur þeim eldri verið hafnað. Það er sjálf- sögð skylda stjórnmálaflokkanna að endurnýja sínar forystusveitir með ungu, dugmiklu og framsæknu fólki. Ungu fólki með nýjar hug- myndir og áherslur. Siv Friðleifsdóttir sækist eftir 1. sæti Framsóknar- flokksins á Reykjanesi. Þar fer ung kona sem þorir, getur og vill. Hún hefur áralanga reynslu af félags- og stjórnmálum, þrátt fyr- ir ungan aldur. Hún hefur setið í mörgum nefndum og ráðum á vegum hins opinbera og látið gott af sér leiða. Hún situr í bæjar- stjóm í sínu sveitarfé- lagi og leiðir þar list- ann. Þetta sýnir best hversu mikið traust bæjarbúar bera til hennar og hennar verka. Það em fáir flokkar sem geta státað af jafn ungum sveitarstjórnarmönnum og Framsóknarflokkurinn, eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar. Það hefur einnig mikil endurnýj- un á sér stað í forystusveit flokks- ins. Á nýliðnu flokksþingi kynnti flokkurinn stefnuskrá sína. Yfir- skrift þingsins var Fólk í fyrirrúmi. Framsóknarflokkurinn er eini flokk- urinn sem vaknaður er til meðvit- undar um þarfir unga fólksins. I stefnuskránni em kynntar miklar breytingar í húsnæðislánakerfínu, stóraukinn réttur gifts fólks, í skatta- og dagvistarmálum, björg- unaraðgerðir til handa heimilum í landinu, og lengi mætti telja. Hver er betur fallinn til að fylgja þessari stefnu eftir, en ung manneskja, Siv þekkir þessi mál af eigin raun. Framsóknarflokkurinn má ekki láta þetta tækifæri sér úr greipum ganga. Á meðan hinir flokkamir Siv er kona sem þorir, getur og vill, segir Vig- dís Hauksdóttir, sem mælir með Siv í fyrsta sæti framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjaneskjördæmi. stilla upp sínum gömlu, lúnu brýn- um, kjörtímabil eftir kjörtímabil, sem hafa ekki nokkurt skynbragð á þarfir og nauðsynjar ungs fólks er Siv verðugur og glæsilegur fulltrúi. Það er mikilvægt að hún hljóti góða kosningu í fyrsta sæti listans, og leiði hann til glæsilegs kosninga- sigurs í Alþingiskosningunum í vor. Höfundur er blómakaupmaður. Opið prófkjör í Reykjaneskjördæmi Vigdís Hauksdóttir Ný hringleið - bylt- in g í ferðaþjónustu STRAUMUR ferða- manna til íslands hefur vaxið gífurlega á undanfömum ámm. Á þessu ári eru horf- ur á að 180 þúsund erlendir ferðamenn komi til landsins og skili þeir um 9 milljörð- um króna í tekjur til þjóðarbúsins. Athygli vekur að þeim ferða- mönnum fjölgar sem hér hafa skamma við- dvöl. Aukin þjónusta á Suðurnesjum Það skiptir gífurlega miklu máli hvernig tekið er á móti öllu þessu fólki og hvaða þjónusta því er boðin. Þetta á ekki síður við um þá sem stansa stutt. * í þessu sambandi þarf að skoða á hvern hátt er hægt að auka um- svif í ferðaþjónustu í tengslum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar og nýta þessa miklu umferð ferðamanna til atvinnuuppbyggingar á Suðumesj- um. Lengi vel virtist það vera nátt- úmlögmál að allir flugfarþegar yrðu að fara til Reykjavíkur til gist- ingar. Þetta er sem betur fer að breytast eftir að hótelrekstur hófst í Keflavík. Fyrir þá sem ein- ungis hafa skamma viðdvöl hér á landi er mikilvægt að byggja upp þjónustu sem næst flugvellinum. Bláa lónið er lýsandi dæmi um hvernig nýta má þá kosti sem nátt- úra svæðisins gefur. Ný hringferð Nú er farið að ræða breikkun Reykjanes- brautarinnar vegna þeirrar miklu umferðar sem um hana fer. Ljóst er að bæta þarf samgönguleiðina milli Suðurnesja og Reykjavíkur en mér finnst að skoða þurfi fleiri kosti í því sam- bandi en breikkun Reykjanesbraut- ar. Fram hafa komið athyglsiverðar hugmyndir um lagningu vegar á sunnanverðu Reykjanesi; um Grindavík og Krísuvík og þaðan til Reykjavíkur. Þessi leið er ein hin stórbrotnasta og sérkennilegasta sem til er í okk- Unnur Stefánsdóttir ar landshluta og ólíkt áhugaverðari fyrir ferðamenn en þjóðleiðin norð- an á nesinu. í framhaldi af slíkum vegi mætti hugsa sér nýjan veg frá Krísuvík um Selvog til Þorlákshafnar og Hveragerðis. Þá er þess að geta að áform eru uppi um vegagerð frá Kambabrún sunnan Hengils til Nesjavalla. Þá væri búið að opna nýja hringleið fyrir þá ferðamenn sem hafa lítinn tíma. Á þessari leið Nýta þarf mikla umferð ferðamanna, segir Unn- ur Stefánsdóttir, til atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum. gefst færi á kynnast mörgu af því sem áhugaverðast er að sjá og reyna á Islandi. Til þess að greiða slíkum hug- myndum Ieið þarf samstarf þing- manna úr þremur kjördæmum; Reykjanesi, Reykjavík og Suður- landi. Varla getur reynst erfítt að ná samstöðu meðal þingmanna, þar sem slík uppbygging gæti haft mikla þýðingu fyrir atvinnusköpun í þessum kjördæmum. Höfundur er leikskólakennari í Kópa vogi og tekur þátt í prófkjöri framsóknarmanna & Reykjanesi 10. des. nk. Fólk í fyrirrúmi HEITI greinar þessarar er sótt í kjörorð Framsóknarflokksins fyrir næstu alþingiskosningar. í henni felst að flokkurinn lætur hagsmuni fólksins, fjölskyldn- anna í landinu, skipa öndvegi í stefnuskrá sinni. En hvað táknar það? Svarið er einfalt: Fólk í fyrirrúmi felur í sér að stjórnmálum sé beitt í þágu almennings en ekki fáeinna útval- inna og að efnahagur heimila og þjóðarbús sé öruggur. Því miður verður þess lítt vart í vinnulagi stjómar- flokkanna með þeim hörmulegu afleiðingum að mörg heimili eiga alvarlega í vök að verj- ast og í atvinnulífinu ríkir stöðnun. Þessu vill Framsóknarflokk- urinn breyta - þannig vill hann láta fólk vera í fyrirrúmi. í því skyni þarf að afla fjár og skipta svo kök- unni eftir hugmyndum manngildis. Heimsfrægar vörur? Danir ráða yfir takmörkuðum auð- lindum. Þeir grípa til þess ráðs að nýta hráefni sitt til hins ýtrasta og skapa sér sem mest verðmæti. Þetta hefur skilað þeim árangri að danskar matvörur t.d. eru heimsfrægar. Þess- um árangri hafa frændur vorir náð með því að tengja saman auðlindir sínar og hugvit. Til samanburðar má skoða sem dæmi að verðmæti sjávarafla á Reykjanesi einu var árið 1993 um 8 milljarðar króna. Megnið af vörunni er flutt úr landi lítt unnið. Bænim við gæfu til aif ná sama framleiðslu- stigi og Danir gæti sama hráefni gefið okkur 14 milljarða verðmæti i stað 8. Þarna munar heilum sex milljörðum í Reykjanesi einu og þarf engan snilling til að sjá hvaða áhrif sú búbót hefði á mannlíf allt. Munur- inn byggir á því einu að skapa sér aukin verðmæti úr sama hráefni. í Evrópu og Bandaríkjunum stefnir í að almenningur kaupi sér að lang- mestu leyti tilbúna rétti til matar (í örbylgjuofna o.s.frv.). Markaður fyr- ir fullunnar sjávarafurðir og land- búnaðar er m.ö.o. stór og fer vax- andi. Þar eru sóknarfæri okkar ótæmandi. Skera eða raða? Ekkert gerist af sjálfu sér. Hlut- verk stjórnmálamanna er að skapa skilyrði fyrir efnahagsvexti. Til þess þarf að raða málum í forgangsröð eftir markmiðum í stað þess að beita niðurskurðarhnífnum á alla mála- flokka. Þar með erum við njörvuð í stöðnun og óbreytt ástand. Markmið- ið er að efla verðmæti. Til þess þarf aðgerðir. Nefna má nokkrar: Eigi að örva fullvinnslu verður að efla rannsóknir þannig að ávallt séu fyrir hendi nýjar upplýsingar og nýj- ar hugmyndir í þróun á vörum og öðru er snertir framleiðslu. Því á ríki og atvinnulíf að leggja mun meira fé til rannsókna. Ekki fer alltaf saman hugvit og peningaeign. Þess vegna þarf að leggja fé til að örva og styrkja íslenska hugvits- menn en af þeim eigum við nóg. Vandinn er sá að þeir eiga nú erfítt með að fá fé til að þróa hugmyndir sínar. Starfsmenntun er lyk- ilatriði í verðmætasköp- un. Þannig hafa t.d. Danir og Japanir lagt áherslu á þann þátt sem lið í uppbyggingu efna- hagslífs. Vextir og almenn starfsskilyrði fyrirtækja verða að vera þannig að þau geti meira en skrimt og ekki hverfi allt þrek þeirra í afborganir lána. Góð vara selst vel ef hún er kynnt neytendum. Við verðum þess vegna að fjárfesta í kraftmikilli markaðssókn erlendis, t.d. hópi dug- mikilla einstaklinga er hafa ekkert annað að atvinnu. Ofantaldir þættir hafa allir útgjöld Leggja þarf fé, segir Hjálmar Arnason, til að styrkja íslenska hug- vitsmenn. í för með sér. En þar er um að ræða fjárfestingu sem skilar sér margfalt til baka. Þannig aukum við verð- mæti, þannig hleypum við vexti í atvinnulíf og útrýmum atvinnuleysi. Þá getum við líka gert okkur vonir um bjartari sýn til framtíðar. Fyrir fólkið Eilíft deiluefni er skipting þjóðar- kökunnar. Framsóknarflokkurinn leggur áherslu á að henni sé skipt á grundvelli manngildis þar sem fólkið er haft í fyrirrúmi. Þannig á að stýra útgjöldum að fólk fái mannsæmandi laun fyrir vinnu sína, laun sem upp- fylla grundvallarþarfir allra. Gera þarf fólki kleift að stunda vinnu sína án þess að vera á eilífum þeytingi með böm á milli leikskóla eða gæslu- staða. Skuldafeni heimilanna verður að eyða með sértækum skuldbreyt- ingum. Skattur á að vera réttlátur - tvísköttun þarf að hverfa, hjón að geta notið að fullu persónuafsláttar og hátekjuskattur alls ekki afnuminn. Forgangsröðun ríkiskassans á þess- um nótum miðar að því að fólkið í landinu geti haft atvinnu og haft aðstöðu til að stunda hana, átt heim- ili og um leið notið þess að vera manneskjur. Þannig birtist stefna framsóknar - stefna er setur mann- gildi ofar auðgildi - lætur fólk vera í fyrirrúmi. Um það snúast kosning- arnar í vor. Kjósenda er svo að velja. Höfundur er skólamcistari og tekur þátt í prófkjöri Framsóknarmanna í Reykjancskjördæmi. Hjálmar Árnason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.