Morgunblaðið - 08.12.1994, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 61
FÓLK í FRÉTTUM
Bameignir í
Hollywood
►LEIKKONAN gíruga Rose-
anne og Ben Thomas eiga von
á barni í ágúst eftir vel
heppnaða glasafrjóvgun. Það
kemur vel á vondan því í sjón-
varpsþáttum sínum í vetur
verður Roseanne ólétt eftir
mótleikara sinn, John Good-
man. Og það eru fleiri í Holly-
wood sem geta glaðst þessa
dagana. Leikstjórinn vinsæli
Spike Lee og eiginkona hans
Tonya Lewis eignuðust
stúlkubarn 2. desember og
verður það skírt Satchel Lew-
is Lee.
MICHAEL Douglas
Engirni kynlífsfíkiU
MICHAEL Douglas segist hafa ráðið bót á áfengisfíkn sinni
og bjargað hjónabandi sínu. Þá neitar hann öllum fregnum
um að hafa farið í meðferð við kynlífsfíkn. „Ég vissi að ég
drykki of mikið,“ segir Douglas. „Ég vann sleitulaust í 25
ár undir stöðugu álagi og átti auk þess við drykkjuvanda-
mál að stríða. Þetta var gengið svo langt að ég varð
að taka ábyrgð á gerðum mínum.“
Douglas neitar aftur á móti öllum fregnum um
að hafa farið í meðferð við kynlífsfíkn sinni. „Slúð-
urblöðin fjölluðu mikið um málið, en allt var það
kjaftæði. Sagan var góð, en átti bara ekki við um
mig. í alvöru, ég hef aldrei þóst vera dýrlingur,
en þetta gengur of langt. Ég neita að trúi því að fólk
sé með þennan uppspuna á heilanum."
Douglas hefur ekki komið nálægt kvikmyndaleik í tvö
ár og segir samband sitt við fjölskyldu slna og föður, Kirk
Douglas, hafa batnað til muna. Michael er nú farinn að
hugsa sér til hreyfíngs og fer með aðahlutverk væntanlegr-
ar myndar sem nefnist Forseti Bandaríkjanna. Af því til-
efni var honum nýlega boðið í sérstaka skoðunarferð um
Hvíta húsið, þar sem tökur á myndinni munu fara fram.
Það er Oliver Stone sem mun leikstýra myndinni.
LEIKSTJORINN Spike Lee í
hópi barna, en sjálfur eignað-
ist hann barn með eiginkonu
sinni fyrir skömmu.
Fulltrúi
Reuters
í rúm 40 ár
►Þorsteinn Thorarensen hefur
íátið af störfum sem fulltrúi
Reuters-fréttastofunnar hér á
landi. Þorsteinn hóf störf fyrir
Reuter árið 1951 og hefur því
verið fulltrúi bresku fréttastof-
unnar á íslandi í rúma fjóra
áratugi. Fjölmargir yfirmenn
Reuters á Norðurlöndum komu
hingað til lands til að kveðja
Þorstein og þakka honum fyrir
vel unnin störf. Myndin var tek-
in í síðdegishófi sem fréttastof-
an efndi til á Hótel Sögu síðast-
ROSE-
ANNE,
sem ætlar
að giftast
Ben Thom-
as á næst-
unni, á von
á barni.
liðinn föstudag. Frá vinstri:
Simon Haydon, fréttastjóri
Reuters á Norðurlöndum, Ivan
Mulcahy, yfirmaður Reuters á
Norðurlöndum og í Eystrasalts-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ríkjum, Þorsteinn
Thorarensen, og Bo
Geitel, tækniyfirmað-
ur Reuters á Norð-
urlöndum.
FOLK
Lange og
Baldwin
leika saman
ALEC Baldwin og Jessica Lange
munu fara með hlutverk Stanleys
Kowalski og Blanche DuBois í
þriggja klukku-
tíma sjónvarps-
mynd sem gerð
verður eftir leik-
riti Tennessee
Williams „A
Streetcar
Named Desire".
Þau léku einmitt
saman í upp-
færslu leikritsins
á Broadway árið
1992 við mjög
góðar undirtekt-
ir.
Fyrsta kvik-
mynd sem gerð
var eftir leikrit-
inu er frá árinu
1951 og er sígild
í kvikmyndasög-
unni. Henni var
leikstýrt af Elia
Kazan og í aðal-
hlutverkum voru
Vivien Leigh,
Marlon Brando,
Kim Hunter og
Karl Malden.
Önnur útgáfa af
leikritinu var
gerð árið 1984
og þá voru Treat
Williams og
Ann-Margaret í aðalhlutverkum.
Þetta er kærkomið tækifæri fyrir
Alec Baldwin, sem ekki hefur geng-
ið sérstaklega vel upp á síðkastið.
Það er sagt að hann hafi líka átt
það inni, en hann hafnaði hlutverki
Jacks Ryan í „Patriot Games“ á
sínum tíma vegna uppfærslunnar á
„A Streetcar Named Desire“ á
Broadway.
W
Jessica Lange
a m
Inri
Wr m TT
hjá
vir
okkur
Nýbýlavegi 4, (Dalbrekkumegin)
Kópavogi, sími 45800.
B Einhneppt jakkaföt
frá kr. I 5.800,-
& Föt m/vesti
frá kr. 21.800,-
9 Tweed föt
með eða án vestis
frá kr. I 7.500,-
9 Stakar dömu- og
herrabuxur
frá kr. 4.900,-
9 Stakir ullarjakkar
dömu og herra
frá kr. 10.900,-
N Ý K O M I Ð
9 Herraskyrtur í miklu úrvali
9 Dömublússur.
9 Bindi - hálsklútar - treflar.
9 Dömupeysur.
Opið virka daga
frá kl. 9-18.
Opið laugardaga
frá kl. 10-18
DALBREKKA
AUÐBREKKA
Kuldaúlpur - Fleecepeysur - Mittisúlpur - Sleðagallar
Sokkar - Köflóttar skyrtur - Bakpokar - Húfur -
Svefnpokar -Vettlingar - O.m.fl.
GLÆSILEG VERSLUN MIÐSVÆÐIS Á STÓR-REYKJAVÍKURSVÆÐINU