Morgunblaðið - 17.12.1994, Side 1

Morgunblaðið - 17.12.1994, Side 1
80 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 289. TBL. 82. ARG. LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Bossi boru- brattur Róm. Reuter. UMBERTO Bossi, leiðtogi Norðursambandsins á Ítalíu, sagðist í gær njóta stuðnings meirihluta neðri deildar ítalska þingsins til þess að mynda nýja ríkisstjórn í stað samsteypu- stjórnar Silvios Berlusconis. Berlusconi og Bossi höfðuðu í gær ákaft til lítils miðflokks, Þjóðarflokksins, um stuðning. Uppistaða flokksins eru liðs- menn fyrrverandi flokks kristi- legra demókrata. Gæti afstaða þeirra ráðið nokkru um hvernig traustsyfirlýsingu á ríkisstjórn Berlusconis næstkomandi mið- vikudag reiðir af. Bossi sagði í gær, að dagar Berlusconis væru taldir. Aðeins tvær leiðir væru út úr stjómar- kreppunni; að Berlusconi færi frá og ný samsteypustjórn mynduð eða boðað yrði nýrra til þingkosninga. Bossi kvað 325 þingmenn neðri deildarinnar af 630 styðja myndun nýrrar ríkisstjórnar. Gleðja börn í Sarajevo með gjöfum TIL þess að gleðja stríðshrjáð börn í Sarajevo um jólin söfn- uðu grunnskólabörn í Frakk- landi leikföngnm og sendu til Bosniu. Söfnuðust nokkrir bíl- farmar af gjöfum sem franskir liðsmenn friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna í Bosníu hafa afhent í Sarajevo siðustu daga. Var myndin tekin í einum barnaskóla borgarinnar í gær þar sem gjafirnar voru vel þegnar. * Aætlar ekki langt fram á við FRANSKUR heimspekingur, Jean Guitton, sagði í gær, að læknar Francois Mitterrands Frakklands- forseta teldu að forsetinn ætti aðeins sex mánuði eftir ólifaða. Guitton sagði að Mitterrand hefði tjáð sér þetta er forsetinn kom til fundar við sig til þess að ræða hvað tæki við eftir dauðann. Mitterrand vildi þó ekki kann- ast við að andlát væri í nánd eftir fund með Silvio Berlusconi forsæt- isráðherra Italíu í gær. „Læknarn- ir mínir hafa ekki sagt að ég ætti í mesta lagi sex mánuði eftir ólif- aða. Og ég býst ekki við svo skjót- um endalokum. Þegar maður er hins vegar kominn á efri árin og þjáður af ákveðnum sjúkdómi í þokkabót þá duga engar lang- tímaáætlanir," svaraði forsetinn. ■ Hvað bíður fyrir handan?/24 Novo-Shúrvoj, Moskvu, Grosní. Reuter. YFIRMAÐUR einnar af þremur rússneskum herdeildum, sem hafa sótt að Grosní, höfuðstað uppreisnarhéraðsins Tsjetsjniu, lýsti þvi yfir í gær að hún myndi ekki sækja lengra fram þar sem hernaðaraðgerðirnar gengju í berhögg við stjórnarskrá Rússlands. Viktor Tsjernomyrdín, forsætisráðherra Rússlands, hótaði árásum á borgina en léði máls á viðræðum við Dzhokhar Dúdajev, leiðtoga Tsjetsjníu, sem fyrirskipaði liðsmönnum sínum í gær að hörfa um kílómetra frá víglínunni í grennd við Grosní. ívan Babítsjov hershöfðingi, sem stjórnar her- deildinni, hélt tilfinningaþrungna ræðu í bænum Novo-Shúrvoj, um 35 km vestan við Grosní, þar sem hann stöðvaði herdeildina. „Þeir [ráðamenn- irnir í Moskvu] geta fordæmt okkur, en við skjót- um samt ekki. Við beitum ekki skriðdrekum gegn fólkinu. Við förum ekki lengra,“ sagði Babítsjov við um 1.000 bæjarbúa sem hlýddu á hann. Oánægja innan hersins Yfirlýsingin endurspeglar mikla óánægju með- al rússneskra hermanna með þá ákvörðun rúss- nesku stjórnarinnar að gera innrás í Tsjetsjníu Tsjetsjenar tóku nokkra hermenn til fanga. Hún hefur nú sameinast herdeildinni norðan við höf- uðstaðinn. Hópur kvenna og aldraðra gerði aðsúg að Babítsjov eftir ræðuna. „Það er ekki okkur að kenna að við erum hér,“ sagði hann við fólkið. „Við viljum þetta ekki. Þessar hernaðaraðgerðir eru brot á stjórnarskránni. Það er bannað að beita hernum gegn friðsömum borgurum. Það er bannað að skjóta á fólkið," sagði hann. Hóta að „fara alla leið“ Dúdajev fyrirskipaði liðsmönnum sínum að hörfa um kílómetra frá víglínunni en sagði að fyrirmælin yrðu endurskoðuð ef rússnesku her- sveitimar sæktu lengra fram. Tsjernomyrdín setti það skilyrði fyrir viðræð- unum við Dúdajev að liðsmenn hans legðu niður vopn fyrir miðnætti í kvöld, annars myndu rúss- nesku hersveitirnar halda áfram að beijast og „fara alla leið“. Forsætisráðherrann kvaðst efins um að Dúdajev vildi semja um frið. Áður hafði Borís Jeltsín Rússlandsforseti boðist til að hefja friðar- viðræður við Dúdajev. Reuter RÚSSNESKI ofurstinn Gennadíj Kondal- ín, yfirmaður rússneska heraflans við vesturlandamæri Tsjetsjníu, með konum úr friðarsamtökum tsjetsjnískra kvenna. Hann sagðist myndu neita fyrirskipunum um að halda með sveitir sínár til Grosní. til að hindra aðskilnað héraðsins frá Rússlandi. Önnur herdeild var í gær komin um sjö km frá norðuijaðri Grosní og framrásin stöðvaðist á fjalli við borgina. Þriðja herdeildin lenti fljót- lega í vandræðum austan við Grosní þegar Reuter Létta und- ir með fá- tækum ÁTJÁN vestræn ríki sem mynda svonefndan Parísar- klúbb lánardrottna hafa ákveðið að rétta fátækum þjóðum hjálparhönd og boðist til að aðstoða þau við að kom- ast úr klóm örbirgðar. Christian Noyer, seðla- bankastjóri Frakklands og for- maður samtakanna, sagði að ákvörðunin þýddi að nokkur ríki gætu fengið allt að 67% erlendra skulda felld niður. Til þessa hafa ríki mest geta fengið 50% skulda niður- felld. Ekki er einvörðungu um að ræða eftirgjöf á afborgunum og vöxtum sem gjaldfalla á næstu þremur árum, heldur eiga nokkur ríki þess kost að fá eftirgjöf af öllum lánum. Helmut Kohl kanslari Þýskalands um stækkun NATO Vill samráð við Rússa Bonn. Reuter. HELMUT Kohl, kanslari Þýska- lands, lýsti því yfir í gær að Rúss- ar yrðu að gegna lykilhlutverki við uppbyggingu nýs evrópsks öryggiskerfis þó að Atlantshafs- bandalagið (NATO) yrði enn um ókomna tíð helsta trygging álfunn- ar fyrir friði og stöðugleika. Samskipti Rússa og Vesturlanda hafa verið mjög stirð undanfarna mánuði, ekki síst vegna áforma um að veita ríkjum í Austur-Evr- ópu aðild að NATO. Kohl sagði á fundi með erlendum stjórnarerind- rekum að mikilvægt væri að tengja þessi ríki betur við Vesturlönd og hvatti hann til nánara samstarfs NATO og ESB til að ná því mark- miði. Kanslarinn tók fram að stækkun NATO yrði að tengjast fjölgun aðildarríkja Evrópusambandsins og Vestur-Evrópusambandsins og vera hluti af heildaráætlun um öryggi í Evrópu. Slíka áætlun yrði að vinna í nánu samrádi við Rússa. „Rússar búast réttilega við að gegna hlutverki, sem er í samræmi við stöðu þeirra og virðingu. Fjölg- un NATO-ríkja verður því að eiga sér stað í samvinnu við fyrst og fremst Rússa og Úkraínumenn," sagði Kohl. Borís Jeltsín Rússlandsforseti hefur mótmælt harðlega áformum um stækkun NATO til austurs og lýst því yfir að slíkt muni leiða til „kalds friðar“ eftir fjögurra ára- tuga kalt stríð. Hershöfðingi neitar að að ráðast inn í Grosní

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.