Morgunblaðið - 17.12.1994, Side 2

Morgunblaðið - 17.12.1994, Side 2
2 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ I- í » FRETTIR Lán Fiskveiðasjóðs íslands vegna samdráttar í þorskveiðum 1,8 milljarðar lánaðir til um 470 bátaútgerða ÞORSTEINN Pálsson, sjávarútvegsráðherra, kynnti í ríkisstjóm í gærmorgun að Fiskveiða- sjóður íslands myndi að hans beiðni veita sér- stök lán til útgerða báta til að komast yfir það erfíðleikatímabil sem nú stendur yfir vegna minnkandi þorskveiðiheimilda, að upphæð 1,8 milljarðar króna. Fiskveiðasjóður sendi í fyrradag út bréf til 472 útgerðarmanna báta, með tilboði upp á lán upp á 1,8 milljarða króna. Ætlunin er að hjálpa bátaflotanum um þriggja ára skeið, vegna skerðingar á þorskveiðiheimildum. „Þessi lán eru hugsuð til þess að auðvelda Tilgangurinn að bregð- ast við tímabundnum erfiðleikum bátaflotanum að komast í gegnum þessa skerð- ingu, sem við vonum að sé tímabundin,“ sagði Þorsteinn í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði að lánin yrðu afborgunarlaus í þrjú ár. „Bátaflotinn á miklu örðugara um vik að laga sig að breyttum aðstæðum en togaraflot- inn,“ sagði sjávarútvegsráðherra. Hann sagði togarana geta sótt á fjarlægari og dýpri mið. Yfírleitt væru þeir í eigu fyrirtækja, sem væru með fjölbreyttari rekstur og gætu því frekar jafnað út sveifluna. Bátarnir á hinn bóginn væru oftar í eigu einstaklinga. Þess vegna hafi verið farið í þessa aðgerð. Við mat á lánsfjárhæð verður lögð til grund- vallar skerðing aflaheimilda miðað við fiskveið- iárið, er hófst 1. september 1991 og upphaf yfírstandandi fískveiðiárs. Þorsteinn sagði að ennfremur yrði tekið mið af greiðslugetu og stöðu lána útgerðanna hjá sjóðnum. Hagfræðingur ASÍ rengir útreikning VSÍ Ráðstöfunartekjur meðallauna 20% rýrari en 1988 KAUPMÁTTUR ráðstöfunartekna landverkafólks með meðallaun ASÍ hefur rýmað um 20% frá 1988, eins og fram kom í skýrslu Ríkisend- urskoðunar sem út kom í október sl. segir Gylfí Arnbjömsson, hag- fræðingur ASÍ, í tilefni af útreikn- ingum hagfræðings VSÍ á breyting- um ráðstöfunartekna, sem Morgun- blaðið skýrði frá í gær. Borga 316 þúsund krónum meira en 1988 „Þetta þýðir í krónum talið að hjón með meðaltekjur, þar sem annar makinn er í hálfu starfí, fá í sameiginlegar tekjur um 150-160 þúsund krónur á mánuði. Þau þurfa í dag að borga 316 þúsund krónum meira í skatta en þau hefðu gert samkvæmt þeim lögum sem í gildi vom árið 1988. Þess vegna skýtur það mjög skökku við ef Vinnuveit- endasambandið telur sig hafa ein- hver gögn um að ráðstöfunartekjur þessa fólks hafí aukist," sagði Gylfí. Gylfi segir að samstaða hafi ríkt um það milli samningsaðila á vinnu- markaði á undanförnum árum, að eitt meginmarkmið kjarasamninga hafi verið að bæta kjör þeirra lægst launuðu. Gylfi segist því ekki geta jitið á útreikninga hagfræðings VSÍ, sem greint var frá í Morgunblaðinu í gær, á breytingum ráðstöfunar- tekna lágtekjufóks og hærra lau- naðra á árunum 1988-1994, sem innlegg í þessa umræðu, nema Vinnuveitendasambandið sé að boða þá stefnubreytingu að hug- takið kjarajöfnun eigi að ná til hinna hæst launuðu en ekki þeirra sem lægst eru launaðir. Gylfi seg- ist efast um að sátt geti orðið um það við lausn kjarasamninga. Morgunblaðið/Kristinn Síðustu forvöð VERSLUNAREIGENDUR við Laugaveginn eru í góðu jóla- skapi um þessar mundir. Hið LESBÚK LESBÓK fylgir ekki Morgun- blaðinu í dag. Hins vegar verð- ur vegleg Jólalesbók borin til kaupenda miðvikudaginn 21. desember. sama gildir um starfsmenn ís- landsbanka en í gær lagði Ge- org sparibaukur bankans í ferð í hestvagni niður Laugaveginn ásamt 13 fylgdarmönnum af ættkvísl jólasveinsins. Væntan- lega hafa margir notað tæki- færið og ítrekað óskalistann sinn og er engu líkara en að þessi drengur sé að ganga úr skugga um að engar gjafapant- anir hafi farið milli mála hjá þeim kumpánum í Bankastræt- inu í gær. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson HOFSBOLI var hífður úr sjónum við bryggjuna á Blönduósi eftir mikla feigðarför daginn áður. 400 kílóa naut drukknar í Blöndu Blönduósi. Morgunblaðið. Fjögur hundruð kílóa Galloway-naut slapp frá gæslumönnum sínum við slát- urhúsdyrnar á Blönduósi í fyrradag og endaði líf sitt í Blöndu. Jón Gíslason, bóndi á Hofi í Vatnsdal, eigandi nautsins, sagði, að þegar hefði átt að taka það úr kerru við slátur- húsdymar á Blönduósi hefði það sloppið og horfið niður í fjöm. Hófst þá þegar eltinga- leikur og dreif að fjölda manns til aðstoðar. Nautið stefndi að ós Blöndu og í ánni endaði það líf sitt. í gærmorgun fundu menn svo bola rekinn við Blönduósbryggju og var hon- um komið fyrir í viðeigandi grafreit. Jón Gíslason á Hofi sagði það lán í óláni að nautið hefði tekið þessa stefnu því ómögulegt væri að segja hvað gerst hefði ef nautið hefði stefnt inn í bæinn og blandað sér í hóp fólks í jólainnkaup- um. Sendiráðið í Brussel Fjórir nýir full- trúar RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum í gær að fjölga fulltrúum ráðuneyta við sendi- ráðið í Brussel um fjóra. Þar voru fjórir fulltrúar fyrir. Þessi ákvörðun er að sögn Ölafs Dav- íðssonar, ráðuneytisstjóra í for- sætisráðuneytinu, tekin vegna breyttra aðstæðna á Evrópska efnahagssvæðinu. Verða átta Fjögur ráðuneyti hafa nú þegar fulltrúa við sendiráðið í Brussel. Það eru sjávarútvegs- ráðuneytið, fjármálaráðuneytið, menntamálaráðuneytið og iðn- aðar- og viðskiptaráðuneytið. Ríkisstjórnin ákvað í gær að menntamálaráðuneytið fengi viðbótarfulltrúa í Brussel, iðn- aðar- og viðskiptaráðuneytið og umhverfisráðuneytið myndu sameinast um annan, sá þriðji ynni fyrir félagsmála- og heil- brigðis- og tryggingaráðuneyt- ið og sá fjórði myndi sinna verk- efnum fyrir landbúnaðarráðu- neytið og samgönguráðuneytið. Ragnar Hall fjallar um mál Sævars Ciesielskis DÓMSMÁLARÁÐHERRA setti í gær Ragnar Hail hrl. ríkissak- sóknara til að fjalla um beiðni Sævars Ciesielskis um endur- upptöku á máli hans. Ragnar var settur ríkissak- sóknari til að fjalla um beiðni Sævars vegna þess að Hallvarð- ur Einarsson ríkissaksóknari vék sæti í málinu. Hallvarður var vararíkissaksóknari á þeim tíma sem mál Sævars var til rannsóknar og hafði því bein afskipti af því. Grunaðir um saltfisk- þjófnað ÞRÍR menn eru í haldi RLR grunaðir um að hafa stolið 2,5 tonnum af fullunnum saltfiski úr gámi fyrir utan fískverkun- arfyrirtækið Kaldalón í Hafnar- firði í fyrrinótt. Lögreglan í Hafnarfírði og Keflavík handtók mennina þeg- ar þeir voru á leið úr Vogum í átt að Hafnarfirði á tveimur sendibílum. Stolni fiskurinn var í bílunum og er kominn til réttra eigenda. Mennirnir hafa áður komið við sögu lögreglu. í VIÐRÆÐUM fulltrúa Zink Corp- oration of America við fulltrúa Landsvirkjunar, um hugsanlegt orkuverð, sem sinkverksmiðja kæmi til með að greiða. kom samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins fram, að hinir erlendu aðilar gerðu sér í hugarlund, að þeir gætu keypt raf- orku á 8 til 12 mills fyrir kílóvatt- stundina, sem er um eða innan við helmingur þess raforkuverðs, sem Landsvirkjun og íslensk stjórnvöld munu setja upp. Arðsemi varla nægileg Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er talið ólíklegt að arð- semi fjárfestingar sem þessarar nægi til þess að fjársterkir aðilar verði reiðubúnir til þess að leggja fram þá miklu fjármuni sem til þarf, eða í kringum 10 milljarða króna. I i I \ i i i Sinkframleiðendurnir með óraunhæfar orkuverðshugmyndir Voru tilbúnir að greiða 8til 12millsfyrirkWh i Morgunblaðið hefur jafnframt upplýsingar um að hugmyndir hinna erlendu viðmælenda um raf- orkuverð til hugsanlegrar sinkverk- smiðju hafí verið afar óraunhæfar, því þeir hafi miðað útreikninga við að verð raforkunnar yrði á bilinu 8 til 12 mills fyrir kíklóvattstundina (kWh) en ekki um 20 mills, eins og Landsvirkjun og íslensk stjórn- völd telja vera lágmarksverð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.