Morgunblaðið - 17.12.1994, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Formaður FFSÍ um
kjaraviðræður
Best að
klára nú
málið
„ÞAÐ væri öllum fyrir bestu að
setjast núna niður af heilindum
og reyna að klára þetta mál, ef
menn vilja ekki fá nýtt verkfall,“
segir Guðjón A. Kristjánsson, for-
maður Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands. Samtökin ítrek-
uðu í gær við Landsamband ís-
lenskra útvegsmanna að þau væru
reiðubúin að setjast að samninga-
borði til að reyna að ljúka samn-
ingsgerð.
„Þegar þeim tókst að kljúfa
samstöðu sjómanna í september
hættu þeir að tala við okkur, vegna
þess að þeir töldu að þeir væru
búnir að leysa málið með Sjó-
mannasambandinu," segir Guðjón.
í ályktun sambandsstjórnar Sjó-
mannasambandsins á fimmtudag
segir að í ljósi þess að önnur sam-
tök sjómanna hafi rekið áróður
gegn kjarasamningi, sem sjó-
mannasambandið og LÍÚ gerðu í
haust, sé rétt að þessi samtök
sýni getu sína til að ljúka samn-
ingsgerð en Sjómannasambandið
ætli ekki að svo stöddu að leita
eftir samningum. Var skora á að-
ildarfélögin að afla sér verkfalls-
heimildar.
Rætt um verkfallsheimild
milii jóla og nýárs
Guðjón sagði að sú vinna sem
fram fór í sumar þegar viðræður
stóðu yfir í um þijá mánuði hefði
orðið til lítils. Hann sagði að þeirri
áskorun hefði verið beint til aðild-
arfélaga FFSÍ sl. vor að afla sér
verkfallsheimildar en lítið verið um
fundarhöld síðustu mánuði mörg
félög myndu hins vegar halda að-
alfundi milli jóla og nýárs og þar
yrði eflaust tekin afstaða til þess
hvort veitt verði heimild til boðun-
ar verkfalls.
Viðræður við Evrópusambandið vegna inngöngu EFTA-ríkja
Forgangslisti í tollamál-
um til athugunar hjá ES6
LISTI íslendinga yfír forgangsmál
í viðræðum við Evrópusambandið
vegna tollabreytinga, sem verða
þegar Svíþjóð, Finnland og
Austurríki ganga í sambandið, er
nú til athugunar hjá framkvæmda-
stjórn ESB. Beðið var um slíkan
lista eftir fund Þorsteins Pálssonar
sjávarútvegsráðherra með Leon
Brittan, varaforseta fram-
kvæmdastjórnarinnar, og var
hann sendur til Brussel fyrir
nokkrum dögum.
Ýmis atriði vegna fækkunar í
EFTA eru til umræðu milli ís-
lands, Noregs og hinna EFTA-ríkj-
anna. Hvað varðar stofnanir
EFTA, eftirlitsstofnunina, dóm-
stólinn og fastanefndina, er gert
ráð fyrir að starfsemi þeirra verði
efnislega óbreytt, þótt fulltrúum
og starfsmönnum verði fækkað.
Óformlegt samkomulag
um þingmannanefnd
Hvað varðar sameiginlega þing-
mannanefnd EFTA og ESB er
fjöldi þingmanna í henni bundinn
í EES-samningnum sjálfum, 33
frá hvorum samtökum. Ekki verð-
ur hróflað við því ákvæði, en sam-
kvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er sennilegt að gert verði
óformlegt samkomulag um að
færri þingmenn sitji fundi nefnd-
arinnar.
EES standi
Ýmis þau mál, sem óafgreidd
eru varðandi samskipti EFTA og
ESB verða rædd á fundi EES-
ráðsins í Brussel næstkomandi
þriðjudag. í EES-ráðinu sitja ráð-
herrar allra ríkja EFTA og ESB.
Líklegt er að skriður komist á frá-
gang ýmissa mála eftir fundinn
og gengið verði frá þeim fyrir ára-
mót eða á fyrstu vikunum í janúar.
Ráðherrafundur EFTA sam-
þykkti á fundi sínum í Genf í vik-
unni að EES-samningurinn yrði
efnislega óbreyttur með öllu, þótt
fækkaði í hópi EFTA-ríkjanna.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er undirbúningur ráð-
herrafundarins í Brussel á þriðju-
dag langt kominn og ekkert hefur
komið fram, sem bendir til að ríki
ESB muni þar setja sig upp á
móti því að samningurinn standi.
Morgunblaðið/RAX
Stálþil fyrir
bryggju
í Helguvík
BUIÐ er að reka niður 61 metra
af 150 m stálþili fyrir væntanlega
loðnulöndunarbryggju í Helguvík
að sögn Péturs Jóhannssonar
hafnarstjóra. Er áætlað að þilið
verði komið á sinn stað í byrjun
febrúar en það sem komið er dug-
ar fyrir loðnulöndun að sögn hafn-
arstjórans. Fullnaðarfrágangi lýk-
ur í vor og verður þilið sjálft og
fylling látið duga fram að því.
Kostnaður við bryggjuna fullfrá-
gengna er 150 miHjónir og er
framkvæmdin m.a. fjármögnuð
með lántöku fyrir væntanlegri
fjárveitfngu. Einnig er búið að
steypa sökkul að flokkunarhúsi
og ráðgert er að ljúka við hráefn-
istanka um mánaðamótin jan-
úar/febrúar svo hægt sé að taka
á móti loðnu segir hafnarsljórinn.
Stálgrindarhúsið verður reist milli
jóla og nýárs. AIls munu um 30
manns starfa við framkvæmdina
þegar mest lætur að Péturs sögn.
SPRON hafnaði viðskiptum
við Grimaldi Hoffmann & Co.
GRIMALDI Hoffmann & Co.
í Belgíu, sem notaði banka-
reikninga í íslandsbanka og
Landsbanka til peninga-
þvættis nú í haust, sótti um
að komast í viðskipti við
Sparisjóð Reykjavíkur og ná-
grennis um miðjan september
en var hafnað.
Ólafur Haraldsson, aðstoð-
arsparisjóðsstjóri SPRON,
segir að íslenskur aðili hafi
MÁLFLUTNINGSSTOFA Skúla
Th. Fjeldsted er sá innlendi aðili
sem hafði milligöngu fyrir Grim-
aldi Hoffman & Co. um stofnun
bankareikninga fyrir fyrirtækið
við íslenskar fjármálastofnanir.
Vegna fréttaflutnings af því máli
hefur Skúli Th. Fjeldsted sent frá
sér eftirfarandi fréttatilkynn-
ingu:
„I 85 ár hefur málflutnings-
skrifstofa mín haft það að aðal-
starfi að sinnaýmsum erindum
fyrir erlenda aðila á íslandi. Eru
viðskiptavinir skrifstofunnar
jafnaðarlega ekki um það spurðir
hvort þeir séu óheiðarlegir og
öllum verkum, sem um er beðið
oglöglegeru, sinnt.
í vor barst skrifstofunni fyrir-
spurn frá Grimaldi Hoffmann et
bréflega sótt um að opna tvo
gjaldeyrisreikninga fyrir
hönd Grimaldi Hoffmann &
Co. 15. september sl. Umsókn-
inni var fylgt eftir með sam-
tali og kom þá fram að fyrir-
tækið væri í verðbréfavið-
skiptum milli landa. Reikn-
ingarnir yrðu notaðir til að
leggja inn á þá fjárhæðir sem
myndu síðan fara út aftur,
m.ö.o. þá átti að nota reikn-
Yfirlýsing
frá Skúla
Th. Fjeldsted
Cie S.A. um það hvort erlendur
aðili mætti eiga hér á landi gjald-
eyrisreikning. Var þetta athugað
m.a. með viðtölum við reynda
bankamenn og leiddi sú könnun
í ljós að ísland hefur verið alger-
lega opnað fyrir fjárstreymi til
o g frá útlöndum og öllum aðilum
frjálst að eiga hér gjaldeyris-
reikninga.
Með því nú firmað Grimaldi
Hoffmann et Cie S.A. óskaði þess
að stofna hér bankareikninga og
ingana til gegnumstreymis
fjármuna.
Ólafur segir að starfsmönn-
um hafi strax þótt þessi lýsing
orka tvímælis sérstaklega með
tilliti til laganna um aðgerðir
gegn peningaþvætti. Haft var
samband við gjaldeyriseftirlit
Seðlabankans og að höfðu
samráði við starfsmenn banka-
eftirlits hafi verið ákveðið að
hafna þessum viðskiptum.
það var fullheimilt og löglegt
hlaut beiðni firmans hér að lút-
andi að verða sinnt, sem og var
gert, án þess sérstaklega væri
spurt um hvort til stæði að stunda
peningaþvott, enda er það hlut-
verk bankanna og ríkissaksókn-
ara að fylgjast með því.
Nafn mitt hefur dregist inn í
umræðuna um meinta ólöglega
starfsemi Grimaldi Hoffmann et
Cie S.A. fyrir það fullkomlega
eðlilega lögmannsverk, sem ég
innti af hendi, með stofnun gjald-
eyrisreikninga fyrir félagið hér á
landi. .
Er fréttatilkynning þessi því
út gefm til að eyða nú þegar
hugsanlegum ranghugmyndum
um að Fjeldsted stundi peninga-
þvott.“
Tillaga til þingsályktunar
Lög um tjáningar-
frelsi endurskoðuð
FIMM þingmenn úr fjórum flokkum
hafa lagt fram tillögu til þingsálykt-
unar um endurskoðun laga um tján-
ingarfrelsi. Þar er því beint til ríkis-
stjórnarinnar að hraða endurskoðun
á ákvæðum hegningarlaga um meið-
yrði.
Þá kemur einnig fram að ríkis-
stjórninni verði falið að semja sér-
stakt frumvarp um prentfrelsi og um
framkvæmd á þeim ákvæðum stjórn-
arskrárinnar sem eiga að tryggja
það. Höfð verði hliðsjón af hliðstæð-
um lögum í nágrannalöndunum um
prent- og tjáningarfrelsi og verði
þess einnig gætt að taka mið af nýrri
tækni í fjölmiðlun þannig að ný lög
verði í samræmi við þá tækniþróun
sem orðið hafi á sviði fjölmiðlunar.
í greinargerð segir meðal annars
að ákvæði hegningarlaga í þessum
efnum séu löngu úrelt og um það
sé samstaða meðal flestra þeirra sem
að þessum málum hafí komið. Flutn-
ingsmenn eru Svavar Gestsson, Ingi
Björn Albertsson, Jón Helgason,
Kristinn H. Gunnarsson og Kristín
Einarsdóttir.
Ásta Ragriheiður Jóhannesdóttir
Ekki í Alþýðubandalag
„ÉG HEF aldrei rætt við Alþýðu-
bandalagið um möguleika á fram-
boði mínu fyrir flokkinn og sá þetta
fyrst í Morgunblaðinu," sagði Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir, vara-
þingmaður Framsóknarflokksins, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Skýrt var frá því í Morgunblaðinu
í gær að á fundi kjörnefndar fulltrúa-
ráðs Alþýðubandalagsfélaganna í
Reykjavík á fimmtudagskvöld hefði
Árni Þór Sigurðsson, formaður kjör-
nefndar, lýst því yfir að ein af þeim
sem kjörnefnd hefði rætt um að stilla
upp í efstu sæti Alþýðubandalagsins
í Reykjavík hefði verið Ásta Ragn-
heiður. „Það var aldrei haft samband
við mig og ég er enn í Framsóknar-
flokknum," sagði Ásta Ragnheiður.
„Alþýðubandalagsmenn hafa leitað
út fyrir sinn hóp að þessu sinni og
þá er ekki óeðlilegt að mitt nafn
komi upp, þar sem ég hef lýst
óánægju minni með stefnu og for-
ystu Framsóknarflokksins í Reykja-
vík.“