Morgunblaðið - 17.12.1994, Síða 10

Morgunblaðið - 17.12.1994, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/RAX LISTASKÓLANEMAR fylgdust með framsöguræðu Ólafs G. Ein- arssonar menntamálaráðherra af þingpöllum. Sjálfseigiiarstofn- un um listmennt- un á háskólastigi MENNTAMÁLARÁÐHERRA mælti fyrir frumvarpi til laga um listmennt- un á háskólastigi á Alþingi í gær. Með frumvarpinu er ráðherra heimil- að að gera samning við lögaðila, fé- lög eða stofnanir um listmenntun á háskólastigi. Menntunin fari fram á vegum sérstakrar stofnunar að full- nægðum þeim kröfum sem gerðar eru til slíkrar menntunar af hálfu menntamálaráðuneytisins. Ólafur G. Einarsson, menntamála- ráðherra, rakti forsögu málsins og helstu rök fyrir því að færa list- menntun á háskólastig. Meginá- stæða þess að ekki hefðu verið sett lög um listmenntun á háskólastigi væri að það hefði haft umtalsverð útgjöld í för með sér. Því hefði hann ákveðið haustið 1992 að skipa nefnd til að kanna kosti og galla þess að stofna sjálfseignarstofnun um list- menntun á háskólastigi. Árangur nefndarstarfsins liti dagsins ljós með flutningi frumvarpsins. Framlög á fjárlögum í frumvarpinu segir að sá sem taki að sér menntunina samkvæmt samningnum ákveði inntökuskilyrði enda svari þau og námskröfur til þess sem tíðkist í listháskólum er- lendis. Kveða skal á um á hvaða sviðum lista á að veita menntun og námskröfur. Ennfremur um framlög úr ríkissjóði, en þau skulu háð fram- lögum á fjárlögum. Fyrsta samning- inn skal gera til 5 ára en fyrir lok samningstímabils verði gerð úttekt á starfsemi stofnunarinnar og niður- stöður lagðar fyrir Alþingi. Valgerður Sverrisdóttir, Fram- sóknaflokki, fagnaði frumvarpinu og sagði að eins og gullmola innan um ýmislegt annað sem lagt væri fram í þinginu um þessar mundir. Mikil- vægt væri að breyta menntun í list- um og fagnaði hún því sérstaklega að málið hefði verið unnið í samvinnu við listamenn og samtök þeirra. Björninn væri hins vegar ekki unnin þó frumvarpið yrði samþykkt, þar sem fjárveitingar væru háðar fjárlög- um hveiju sinni og ætti eftir að Ijúka framkvæmdum við húsnæði skólans. Guðrún Helgadóttir, Alþýðu- bandalagi, sagði að þetta frumvarp væri merkur áfangi í listalífi lands- ins, en tók undir það með mennta- málaráðherra að enn væru ýmsir endar lausir varðandi þessi mál. Hún nefndi sérstaklega framlag Reykja- víkur til listmenntunar og sagði fleiri sveitarfélög geta komið að málinu. Það er sko þess virði að líta inn til okkar! Opið í dag frá kl. 10-22. og á morgun /sunnudag frá kl. 12“ 12 NYBYLAVEGUR E Toyota DALBREKKA Nýbýlavegi 4, (Dalbrekkumegin) Kópavogi, sími 45800. FRÉTTIR Fundið að flutningi listmuna frá Laugarvatni í geymslu á Selfossi Ráðuneytið vill munina aftur til Laugarvatns MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur gert athugasemdir við að mun- ir, sem eru í eigu Hússtjórnarskólans á Laugarvatni, hafa verið fluttir ti! geymslu í Listasafni Árnessýslu. Ráðuneytið ritaði Héraðsnefnd Ár- nesinga bréf vegna þessa og þar fór Orlygur Geirsson fram á að munirn- ir yrðu fluttir aftur til Laugarvatns. Um er að ræða þijú málverk eftir Jóhann Briem, skólamyndir af nem- endum og kennurum og styttur sem gefnar voru skólanum á sínum tíma. Munirnir hafa í átta ár verið geymd- ir í einu herbergi húsmæðraskóla- hússins. Þar voru þeir settir á sínum tíma og áttu að geymast í átta daga. Mikilvægt að geyma tryggilega íþróttaskóiinn þurfti á þessu her- bergi að halda en hann nýtir hús- næði Hússtjórnarskólans. Af þeim sökum og að ekki var vitað hvaða umgangur yrði um herbergið var tekin ákvörðun um það af formanni Sambands sunnlenskra kvenna, safnverði Listasafns Árnessýslu og forseta héraðsnefndar að flytja flesta munina til geymslu hjá Listasafni Árnesinga á Selfossi. „Við töldum mikilvægt að lista- verkin og gjafimar væru í tryggri geymslu. Eg tel að heppilegasta lausnin á þessu sé að setja upp safn á Laugarvatni með hlutum, tengdum gamla Húsmæðraskólanum," sagði Lýður Pálsson safnvörður í svarbréfi héraðsnefndar Árnes- inga til ráðuneytis sem stíiað er á Örlyg Geirsson er bent á að frá því Húsmæðraskólinn var lagður niður hafi SSK haft verulegar áhyggjur af munum skólans og hafi ítrekað farið fram á að munirnir væru í tryggri geymslu innan skólans. ítök kvenfélaga í bréfinu segir Sigríður Jensdóttir forseti héraðsnefndar að konur úr SSK hafi drifið í því að koma munun- um á skrá og í trygga geymslu í samráði við Lýð Pálsson. Bréf Örlygs Geirssonar kom til umræðu á_ fundi héraðsnefndar 3. desember. I ályktun nefndarinnar er vísað til svars menntmamálaráðherra við fyrirspurn Kristínar Ástgeirsdótt- ur um húsmæðraskóla. Þar sagði ráðherra um Laugarvatn: „Kvenfélög héraðsins hafa þar einnig nokkur ítök og hafa umsjón með varðveislu gripa sem voru í eigu skólans." í ályktun- inni er síðan bent á að SSK hafi farið þess á leit við héraðsnefnd Árnesinga að munum hússtjórnar- skólans sem Iægju undir skemmdum yrði komið í örugga geymslu. Við þessari beiðni hefði verið orðið og héraðsnefndin teldi rétt að munirnir yrðu varðveittir á Listasafni Árnes- inga þar til eigendur kæmu sér sam- an um framtíðarlausn. „Það er von mín og okkar heima- aðila að sem fyrst verði fundin varan- leg lausn á þessu máli þar sem sú lausn sem nú hefur verið fundin er ekki til frambúðar," sagði Sigríður. Morgunblaðið/Júlíus UNGIR gestir á sögusýningunni Leið til lýðveldis, sem nú stendur í Aðalstræti 6, Andlát SIGURÐUR H. PÉTURSSON SIGURÐUR Helgi Pétursson, gerlafræð- ingur, lést á áttugasta og áttunda aldursári að morgni 15. desem- ber sl. Hann var heim- ilismaður á Hrafnistu- heimilinu í Hafnarfirði seinustu æviárin. Sig- urður var fæddur 19. maí 1907 á Skamm- beinsstöðum í Holtum, Rangársýslu, sonur Péturs Jónssonar bónda og Guðnýjar Kristjánsdóttur, hús- móður. Sigurður lauk stúdentsprófí frá Menntaskólanum í Reykjavík 1929 og stundaði síðan nám við háskóla í Kiel, Leipzig og Kaupmannahöfn. Hann lauk dr. phil. prófí í tækni- legri gerlafræði frá háskólanum í Kiel árið 1935 og hóf sama ár störf sem eftirlitsmaður með mjólk hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík, en þar starfaði hann í tíu ár. Hann starfaði einnig sem sérfræðingur í iðnaðardeild Atvinnudeildar HÍ 1937-1960 þegar hann varð deild- arstjóri gerladeildar Rannsóknar- stofu Fiskifélags íslands. Sigurður kenndi við framhaldsdeild Verslun- arskóla íslands frá 1943 til 1955. Hann varð félagi í Vís- indafélags íslendinga 1949 og sat f stjóm þess 1951-1953 og í stjóm Hins íslenska náttúrufræðifélags 1946-1950 og formað- ur þess 1950-1955. Á árunum 1956-1965 ritstýrði hann Nátt- úrufræðingnum og Tímariti VFÍ 1946- 1949. Hann sat í Fisk- matsráði frá stofnun þess 1960. Sigurður stofnaði Niðursuðu- verksmiðju Borgar- fjarðar h.f. í Borgamesi og veitti henni forstöðu um margra ára skeið. Sigurður ritaði mikinn fjölda greina og ritgerða sem birtust bæði í fræðitímaritum og dagblöð- um, hérlendis og erlendis. Sigurður kvæntist Þorsteinu Hannesdóttur árið 1932, en þau slitu samvistir. Hann kvæntist Mörthu Guðrúnu Eiríksdóttur árið 1947 en þau slitu samvistir. Þriðja eiginkona hans var dr. Selma Jóns- dóttir, fyrrum forstöðumaður Listasafns íslands, sem nú er látin, en þau gengu í hjónaband árið 1955. Lýðveldis- sýningunni að ljúka SÖGUSÝNINGU Þjóðminja- safns |slands og Þjóðskjala- safns íslands, Leiðin til lýð- veldis, sem nú stendur yfir í gamla Morgunblaðshúsinu, Aðalstræti 6, lýkur á Þorláks- messu. Að sögn Þóru Krist- jánsdóttur, umsjónarmanns sýningarinnar, hafa margir lagt leið sína á sýninguna frá því hún var opnuð síðastliðið vor. Sýningin verður opin daglega kl. 12-17 fram á Þor- láksmessu. Saga sjálfstæðisbaráttunnar Á sýningunni er rakin saga sjálfstæðisbaráttunnar frá hugsjónastarfi Baldvins Ein- arssonar og Fjölnismanna um 1830 fram til stofnunar lýðveldis á Þingvöllum 17. júní 1944. Sýningarefnið, þ.e. skjöl, munir, myndir og fatn- aður, er sett fram í af- mörkuðum efnisþáttum, sem komið er fyrir í 17 básum á tveimur hæðum í gamla Morgunblaðshúsinu Aðal- stræti 6.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.