Morgunblaðið - 17.12.1994, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 17.12.1994, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Gullkúnst Gullsmiðja Helgu LAUGAVEGUR 40 SÍMI 616660 HANDSMÍÐAÐ HERRASKART Bindishengjur, hringarog lyklar með íslenskum steinum og steinalausum Verð frá kr. 3.900 Borðlampar Loftljós Fatahengi - með trúðum, brúðum og honum Verð frá kr. 3.950 GOSA, KRISTALL KRINGLUNNI og FAXAFENI - bláu húsin SEIKO KINETIC - TÆKNI NÝRRAR ALDAR SEIKO KlNETIC ÚRIN VEITA INNSÝN í TÆKNI NÝRRAR aldar. í Seikd Kinetic úrunum er ÖRSMÁ AFLSTÖ-Ð SEM NEMUR JAFNVEL MINNSTU hreyfingu og umbreytir henni í RAFBPÐ . Q SKEIKU L QUARTZ NÁKVÆMNI FIYGGÐ Á HREYFIORKU í STAÐ RAFHLAÐNA. KlNETIC TÆKNIN ER BYLTING í FRAMLEIÐSLU Á ÚRUM SEM EYKUR ENN Á TÆKNIFORSKDT SEIKO. FORTÍOIN VAR í RAFHLÖÐUM. Framtíehn liggur í Kinetic. TÍMAMÓTAÚR VIÐSKIPTI Softis selur hlutabréf á sexföldu gengi til hluthafa Sala bréfanna íathug- un hjá bankaeftirlitinu BANKAEFTIRLIT Seðlabanka ís- lands hefur nú til athugunar hvort hlutabréfasala hugbúnaðarfyrirtæk- isins Softis hf. sem nú stendur yfir meðal hluthafa samiýmist reglum um almenn útboð verðbréfa. Fyrir- tækið annast sjálft sölu hlutabréf- anna og kynnir bréfin fyrir hluthöf- um í nýju fréttabréfi án þess að greina ítarlega frá fjárhagstöðu og rekstrarstöðu félagsins. Stjórn Softis hefur heimild aðal- fundar til að auka hlutafé um 5 milljónir að nafnverði. Hlutabréfin eru boðin á genginu 6,0 og er stefnt að því að afla 25 milljóna í rekstur- inn með þessum hætti. Samkvæmt upplýsingum félagsins lítur stjórnin svo á að ekki þurfi að hlíta reglum um almennt útboð því einungis sé verið að bjóða bréfin til hluthafa. í fréttabréfinu eru hluthafar ein- dregið hvattir til að kaupa bréf. Boðið er upp á greiðslukjör með Visa eða Eurocard raðgreiðslum til 24 eða 36 mánaða. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins hefur bankaeftirlitið ósk- að eftir upplýsingum frá Softis um hlutabréfasöluna, m.a. til að ganga úr skugga um hvort það falli undir reglugerð um almennt útboð. Reglu- gerðin gildir m.a. um hlutabréf sem boðin eru forkaupsréttarhöfum í fé- lagi þar sem félagsmenn eru 200 eða fleiri. Sömuleiðis gildir hún þeg- VERÐ á kopar snarhækkaði í vik- unni, en gullverð breyttist lítið og verð á kaffi hrundi. Hráolíuverð lækkaði um 1 dollara tunnan. Koparverð fór yfir 3,000 dollara tonnið í vikulok og hefur ekki ver- ið hærra síðan í apríl 1989, áður en samdrátturinn hófst. Fréttir hermdu að næstum því 14,000 tonn af koparbirgðum í London færu til Kína. Verð á öðrum málm- um var stöðugt vegna mikillar eftirspurnar og spákaupmennsku. Ýmsir telja að framhald verði á þessari þróun. Nánar um stöðuna á hrávöru- markaðnum í vikulokin: KOPAR: Heldur áfram að hækka og hefur hækkað um rúmlega 70% síðan 1993. Verðið komst í 3,002 dollara tonnið á föstudag og hefur ekki verið hærra í fjögur ár. ÁL: Hefur hækkað um 75% í ár, en verðið hefur ekki farið í yfir 2,000 dollara tonnið á ný síðan í nóvember. Um 28.000 tonn seldust af birgðum í London og eftirspurn virðist stöðug. NIKKEL: Enn hefur dregið úr áhyggjum af birgðum frá rússnesku Norilsk-risabræðslunni vegna frétta um orkuskort sem nýlega leiddu til mestu hækkunar síðan í júlí 1991 — 9,575 dollara tonnið. Nú virðist verðið óstöðugt, um 8,800 dollarar í vikulokin. GULL: Verðið hefur orðið stöðugra síðan það komst í mestu lægð í sjö mánuði 5. desember — 375.75 doll- ara únsan. Veikari staða dollars leiddi til hækkunar í 378-379 doll- ara og líklegt er að það verð haldist í bili. SILFUR: Verðið einnig heldur stöð- ar heildarsöluverð er hærra en 5 milljónir. Verður ekki annað séð en útboð Softis falli undir skilgreiningu um almennt útboð þar sem bæði fjöldi hluthafa og útboðsfjárhæðin er yfir tilgreindum mörkum. Slík útboð þurfa að fara fram fyrir milligöngu verðbréfafyrirtækis og uppfylla þarf reglur stjórnar Verðbréfaþings um gerð útboðsgagna og aðdraganda útboðs. Fullyrt að bréfin séu góð fjárfesting Stjórn Softis fullyrðir í fréttabréf- inu að hlutafé Softis sé mjög góð fjárfesting. Þá segir ennfremur: „Náist aðeins sæmilegur söluárang- ur mun arður af hlutafé standa und- ir tvöfalt hærra gengi en hlutirnir eru nú seldir á og náist góður árang- ur getur hlutaféð margfaldast að verðgildi. Augljóst er að til þess þarf ekki margar sölur af svipaðri stærð og hugsanleg sala á Ítalíu....“ Þarna er vísað til umfjöllunar fréttabréfsins um ferð fulltrúa Softis á ráðstefnu Acucobol-hugbúnað- arfyrirtækja á Ítalíu. Kemur fram að dreifingaraðili Acucobol Italia leggi áherslu á að kynna Louis-hug- búnaðinn stórum þarlendum hug- búnaðarfyrirtækjum. Byrjað verður á einu stóru hugbúnaðarfyrirtæki sem leggur til hugbúnað á u.þ.b. 10 ugra, um 4.80 dollarar únsan, viku eftir mestu lægð í 12 mánuði, 4.64 dollara. Engin merki um vaxandsi hylli. , HRAOLIA: Lækkaði í 15.25 doll- ara tunnan miðað við skjóta afhend- ingu. Bent á ugg um miklar benzín- birgðir í Bandaríkjunum, gott veður á norðurhveli og aukið magn af Norðursjávarolíu. KAFFI: Lækkaði um 10% í um 2,500 dollara tonnið um miðja vik- una. Það var 40% lægra verð en hæsta verð í níu ár, 4,140 dollarar, sem fékkst í september sökum uggs út af frosti og þurrkum í Brasilíu. Verðið hefur lækkað síðan vegna spákaupmennsku. Samkvæmt bandarískri spá verður uppskeran í Brasilíu 1995/96 15.7-17.7 milljón- ir (60 kg) pokar og hún styrkir ekki stöðuna. KÓKÓ: Verðið hærra en þegar það komst í mestu lægð í sex mánuði þar sem sendingar frá Vestur-Afr- íku hófust seint. SYKUR: Lítil breyting frá því í nóvember þegar sykur seldist á hæsta verði í fjögur og hálft ár, 414.50 dollara tonnið. Sumir sér- fræðingar spá nýrri verðhækkun eftir áramót. Búizt við að birgðir minnki vegna vísbendinga um lé- lega uppskeru í Rússlandi og Úkra- ínu. HVEITI: Verðið stöðugt eftir 50% hækkun í ár, en lítið eitt lægra síð- an það komst mest í 150 dollara tonnið. FAO segir að uppskeran í heiminum 1994 muni minnka um 30 milljónir tonna í 535 milljónir vegna þurrka í Astralíu og lélegrar uppskeru í Rússlandi. JURTAOLÍA: Lítil breyting. þúsund Unix-tölvur sem hver um sig hefur 3-4 notendur. Gert er ráð fyr- ir að hvert fyrirtæki greiði 400 doll- ara fyrir Louis á hverja tölvu og 100 dollara fyrir hvern notanda. „Með einföldum reikningum má sjá að eitt slíkt hugbúnaðarhús getur auðveld- lega gefið Softis tekjur upp á meira en eitt hundrað milljónir króna ...“ Sömuleiðis bindur Sofis vonir við að samningar takist við danskt hug- búnaðarfyrirtæki sem þýði 25 til 40 milljónir í tekjur. Fjármagn á þrotum Um ástæður hlutafjárútboðsins segir stjórn Softis, að fjármagn fé- lagsins sé þrotið en tekist hafi að halda rekstrinum áfram með því að stjórnarmenn og nánustu aðstand- endur hafi gengist í ábyrgðir fyrir félagið og staðið undir rekstrinum. Þá segir: „Nú erum við á lokasprett- inum og stuðningur hluthafa hefur aldrei verið mikilvægari og aldrei hefur verið ljósara að sá stuðningur leiði til árangurs. Einnig er verið að vinna að því að fá íslenska og er- lenda aðila til að leggja til fjármagn í rekstur félagsins, ýmist sem lánsfé eða hlutafé. Félagið þarf ekki mikið fé til að komast í arðbæran rekstur en samt sem áður tekur það mikinn tíma að afla fjármagnsins og erfítt er að þreyja þorrann þegar nánustu aðstandendur eru nánast þurrausnir." Deutsche Bank Verðtryggð íslensk bréf álitleg DÓTTURFYRIRTÆKI Deutsche Bank er alvarlega að íhuga að fjár- festaa íslenskum skuldabréfum, að sögn Ernst-Ludwig Drayss, for- stöðumanns hjá fyrirtækinu. Hann sagði að þar vægi þungt að bréfin væru verðtryggð, sem væri trygg- ing fyrir góðri ávöxtun, en á hinn bóginn væri smæð íslenska verð- bréfamarkaðarins áhyggjuefni. Fulltrúar frá Deutsche Asset Management voru hér á landi ný- lega að kynna þjónustu sína jífeyris- sjóðum o.fl. fjárfestum. Á sama tíma voru þeim kynntir fjárfesting- armöguleikar hér. Drayss sagði að fyrirtækið hefði beðið um meiri upplýsingar, en ef íslensk skuldabréf gætu gefið t.d. 5,6% raunávöxtun væri um mjög álitlegt tilboð að ræða. Það væri þó ljóst að góðan hagvöxt þyrfti til að standa undir þeim vöxtum. Fjárfestar sem Deutsche Asset hefur á sinni könnu kaupa sjaldan fyrir lægri upphæðir en 5 milljónir dollara, eða um 350 milljónir ís- lenskra króna, í einu og þeir vilja tryggja „hreyfanleika“ fjárfesting- ar sinnar, þ.e. að þeir geti selt bréf- in með litlum fyrirvara, að sögn Drayss. Smæð íslenska markaðar- ins gerði það hins vegar að verkum að erfitt gæti reynst að finna kaup- endur með nægilegt bolmagn þegar mikið af bréfum kæmi á markað. Vantar öflugan viðskiptavaka Guðmundur Hauksson, forstjóri Kaupþings, sem hafði milligöngu um heimsókn Deutsche Asset Management, sagði að það vantaði öflugan viðskiptavaka á íslenska markaðinn til að hann gæti orðið álitlegur kostur fyrir erlenda fjár- festa. Til að bæta úr því þyrfti Seðlabankinn að sýna að hann væri virkur á markaðnum, sem hann hefði gert á tímabili, en bankinn hefði síðan skorið niður kauptilboð. Hrávörumarkaður Koparverð hækkar en olía og kaffi lækka London. Rcuter.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.