Morgunblaðið - 17.12.1994, Side 20
20 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
10 nellik-
ur á 400
krónur
NELLIKUR verða seldar saman
10 í búnti á 400 krónur í verslun-
inni Biómavali á næstu dögum. „Á
þessum árstíma er innflutningur á
nokkrum tegundum afskorinna
blóma fijáls og er án tolla,“ segir
Bjarni Finnsson, framkvæmda-
stjóri Blómavals.
Nellikur eru til í nokkrum gæða-
flokkum og í 400 króna búntum
eru ijölblóma nellikur, sem allar
hafa marga knúppa. Nellikur í
hærri gæðaflokkum verða seldar á
90-125 krónur stykkið. Bjarni seg-
ir að markaðsverð erlendis á blóm-
um breytist dag frá degi, það sé
í hærri kantinum nú fyrir jól, en
gera megi ráð fyrir lægra verði
eftii; áramót. Tollalaus innflutning-
ur a fímm afskornum blómateg-
undum gildir til apríl á næsta ári.
Jólastjörnur, sem framleiddar
voru hér á landi, eru nú nánast
uppseldar, að sögn Bjarna. „Ég
held að aldrei hafi jafn margar
jólastörnur verið seldar og enn er
spurt eftir þeim. Þess vegna ætlum
við að flytja inn 500-1.000 jóla-
stjörnur frá Belgíu."
Landsliðs-
búningar
LANDSLIÐSBÚNINGAR Brasilíu
og Ítalíu, liðanna sem léku til úr-
slita á H.M. í knattspymu s.l. sum-
ar, fást í stærðunum 4 - 16 í Sport-
vöruversluninni Spörtu.
Búningarnir em íslensk fram-
leiðsla, saumaðir af Henson hf.
Þeir eru seldir í settum; treyja,
buxur og sokkar. Treyjur Brasilíu
era merktar að aftan með númeri
og nafni Romario, en treyjur Ítalíu
merktar að aftan með númeri og
nafni Baggio.
Morgunblaðið/Árr.i Sæberg
EINU sinni hélt Margrét Hauksdóttir að ísgerð væri
aðeins á færi „snillinga“, en nú hefur hún komist
að raun um annað. Feðgarnir á heimilinu, þeir Frið-
rik og Elvar Arnar, sjá um pistasíurnar, sem vilja
„rýrna“ töluvert á meðan verið er að hreinsa þær.
UPPSKRIFT VIKUNNAR
Hátíðarís
ájólunum
HEIMATILBÚINN ís er í huga
margra nokkuð sem tilheyrir á stór-
hátíðum og á mörgum heimilum er
ísgerð hluti af undirbúningi jólanna.
Svo hefur verið um nokkurra ára
skeið á heimili Margrétar Hauks-
dóttur, upplýsingafulltrúa hjá Flug-
leiðum, og var hún ekkert að liggja
á „leyndarmálinu" þegar Neytenda-
síðan falaðist eftir uppskriftinni.
Margrét sagði þó að uppskriftin
væri ekki hennar eigin hugarsmíð.
Hún hafi fengið hana hjá ágætri
samstarfskonu, en sósan hafi tekið
örlitlum breytingum með árunum.
„Ég hélt hér í eina tíð að ísgerð
væri mikið og flókið mál og bar því
ósvikna virðingu fyrir þeim, sem
buðu upp á heimatilbúinn ís á stór-
hátíðum. Síðan hef ég komist að
raun um að það er mjög einfalt og
fljótlegt að búa til sinn eigin ís.
Eftir að ég komst yfir þessa upp-
skrift hefur ísinn verið á borðum á
mínu heimili á aðfangadagskvöld
enda nýtur hann mikilla vinsælda,"
segir Margrét.
I þessari uppskrift tekur mestan
tíma að gera pistasíuhneturnar til-
búnar, það er að bijóta utan af
þeim skelina, mylja af lausa húð
og taka úr þær hnetur, sem eru
dökkar og skemmdar og geta því
sett óbragð í ísinn, segir Margrét,
sem gjarnan nýtur aðstoðar feðg-
anna á heimilinu við þetta, þeirra
Friðriks Þ. Stefánssonar og Élvars
Arnar Friðrikssonar, „en pistas-
íurnar eru svo góðar að það getur
tekið ótrúlega langan tíma að ná
saman 50 grömmum í skál“.’
Pistasíu- og Tobleroneís
'h lítri rjómi
6 eggjarauður
100 g sykur
1 tsk. vanillusykur
50 g pistasiukjarnar
1-2 stykki Toblerone-súkkulaði
(næstminnsta stærð)
Rjóminn léttþeyttur og settur til
hliðar á meðan að eggjarauðurnar
eru þeyttar ásamt sykri og vanillu-
sykri. Rjómanum síðan blandað
saman við. Pistasíuhnetukjarnarnir
eru muldir eða skornir niður, súkku-
laðið skorið í smábita, hrært vel
saman við ísblönduna en þó var-
lega. Allt sett í form, t.d. í hring-
laga form með gati í miðjunni. Fryst
í a.m.k. sólarhring áðuren ísinn
er borinn fram, en auðvitað má
geyma hann lengur.
Heit súkkulnðisésa
1 stk Toblerone súkkulaði
_______1 stk Mars súkkulaði____
30 g smjör
1 dl rjómi.
1-2 msk Ijóstsíróp
Rjóminn og smjörið hitað saman
í potti ásamt sírópinu. Súkkulaðinu
bætt út í, niðurbútað. Þessu leyft
að malla svolitla stund við lágan
hita. Laga má tvöfaldan skammt af
sósunni. Hluta hennar er hellt yfir
ísinn rétt áður en hann er borinn
fram og afgangurinn af sósunni er
settur í skál og borinn fram með.
Það má líka setja litlar marenskökur
á ísinn og hella sósunni síðan yfir,
en persónulega finnst Margréti þá
rétturinn of sætur.
KyíRLEIKSÍ
(v/iu ég rnW'n
'do®j&9'eði
44 KORT með kærleikskorn-
um eru í hverjum pakka.
Kærleikskorn
LEIÐARLJÓS hefur gefið út Kær-
leikskorn, kort með ábendingum til
þeirra sem vinna að breytingum á
lífi sínu. Guðrún Bergmann tók
kærleikskornin saman og segir:
„Kortin eru 44 talsins, en talan 4
táknar stöðugleika og framþróun og
samtalan 8 táknar innri kraft og
velgengni, sem ég treysti að fylgi
þeim sem notar kortin á þroskabraut
sinni. Kærleikskornin eru ætluð til
hjálpar til að staðfesta breytingar
sem fólk vill að verði á eigin lífi.“
Pakki með 44 kærleikskornum
kostar 790 krónur og er seldur í
versluninni Betra líf í Borgarkringlu
og í Pýramídanum í Dugguvogi.
Hægt er að draga eitt kort á dag,
eða fleiri. Notkun kortanna er eig-
anda í sjálfs vald sett. Dæmi um
kærleikskorn eru „Allar mínar tak-
markanir eru í eigin huga“ og „Innri
leit er auðgandi og fyllir líf mitt
gleði, kærieik og ljósi.“
Svona skreyta Bretar
enskujólakökuna
í JÓLAMATAR-
BLAÐI Morgun-
blaðsins sem kom •
út 1. desember sl.
voru birtar nokkr-
ar mismunandi
uppskriftir af
enskum jólakök-
um. Ein uppskrift-
in kom frá Christ-
ine McGrundy og
Margaret Whelp-
ton í Bretlandi.
Skömmu eftir að
blaðið kom út
barst okkur þessi
kaka frá þeim.
Svona skreyta þær
ensku jólakökuna
sína.
Morgunblaðið/Rax
Sófasett og hornsófar
í lebri - margir litir
Sendingin kemur þriðjudaginn 20. desember.
Valhúsgögn ÁRMÚLA 8, SÍMAR 812275,685375.
Söng- og barnaleikrit um Gljúfrabúa
RAUÐI dregillinn sendi nýlega
frá sér geisladiskinn Ævintýri
Gljúfrabúanna, sem er söng- og
barnaleikrit. Handrit og söng-
texta gerðu Lúfa og Benóní Jóns-
son, en einnig samdi Ásmundur
Örnólfsson söngtexta.
Við enda norðurljósanna er
ævintýraheimur, þar sem eru tvö
lönd, Bjartland og Myrkland. í
Bjartlandi eru bleikir akrar, grös-
ugir klettar og sígrænir skógar.
Þar búa margar góðar og glaðar
verur, meðal annars Gljúfrar. í
Myrklandi búa vondar verur sem
hata sólarljósið.
Einn góðan veðurdág komu
Myrklendingar í Bjartland og
rændu geislasteini, mestu ger-
semi Bjartlendinga. Þá fór leikur-
inn að æsast, því Bjartlendingar
vildu að sjálfsögðu endurheimta
geislasteininn sinn.
Meðal þeirra sem leika eru
Flosi Ólafsson, Edda Heiðrún
Backman, Sigrún Hannesdóttir,
Erlendur Eiríksson og Benedikt.
Árnason.