Morgunblaðið - 17.12.1994, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Námsefni fyrir fiskverkafólk endurnýjað
Um 10.000 maims hafa sótt
námskeið fyrir fiskverkafólk
Morgunblaðið/Rax
NÁMSEFNIÐ kynnt. Elínbjörg Magnúsdóttir, Arnar Sigurmunds-
son og Gissur Pétursson, kynna nýtt og endurnýjað námsefni
fyrir fiskverkafólk. Um 250 manns verða á námskeiðum um jólin.
STARFSFRÆÐSLUNEFND físk-
vinnslunnar hefur nú endumýjað
námefni fyrir fiskverkafólk að hluta
til og gefið út nýtt. Nefndin hefur
starfað í 9 ár og haldið 100 fundi,
en þátttakendur á námskeiðum
nefndarinnar eru alls um 10.000.
Undirstaða námskeiðanna er svo-
kallað grunnnámskeið, þar sem far-
ið er yfír alla helztu þætti fisk-
vinnslunnar og íslenzks sjávarút-
vegs, en auk þess gefst fiskverka-
fólki kostur á mörgum öðrum nám-
skeiðum. Nú hefur verið samið
námsefni um innra eftirlit og er það
talið fyrsta námsefni af því tagi í
veröldinni fyrir fískverkafólk, en
innra eftirlit og gæðamál skipta
mjög miklu hvað varðar samninginn
um Evrópska efnahagssvæði og
reyndar allan útflutning fiskafurða.
Aðdragandi stofnunar Starfs-
fræðslunefndar fiskvinnslunnar var
nokkuð langur. Forvígismenn bæði
vinnuveitenda og verkalýsðhreyf-
ingarinnar höfðu lengi haft áhuga
á að skipuleggja fræðslu fyrir fisk-
verkafólk, sem hefði það að mark-
miði að bæta vinnubrögðin við
vinnsluna svo þau skiluðu af sér
auknu verðmæti og bættum kjörum
fiskverkafólks.
Til þess að svo gæti orðið, þyrfti
að taka á öllum þáttum vinnslunnar
í fræðsluefninu, gefa fólkinu heild-
aryfirsýn yfír gæðamál, líkamsbeit-
ingu við vinnu, kjaramál, markaðs-
mál, öryggi á vinnustöðum og fleira.
Árið 1984 skipaði þáverandi sjávar-
útvegsráðherra starfshóp til að und-
irbúa og koma á námskeiðahaldi
fyrir fiskverkafólk og árið eftir voru
fyrstu tilraunanámskeiðin haldin.
Upp úr því mótaðist námsefnið og
skipuð var sérstök nefnd, Starfs-
fræðslunefnd fískvinnslunnar til að
annast fræðsluna.
Kauptryggingarsamningur
skilyrði
{kjarasamningum í febrúar 1986
varð um það samkomulag mikki
vinnuveitenda og verkalýðshreyf-
ingarinnar námskeiðahald físk-
verkafólks og meðal annars að
starfsfólki yrðu greidd laun úr at-
vinnuleysistryggingasjóði meðan á
námskeiðum stæði, enda væru
námskeiðin haldin meðan vinnu-
stöðvun væri. Sjávarútvegsráðu-
neytið stæði straum af kennslu-
kostnaði og námsgagnagerð og
skilyrði fyrir setu á námsskeiðunum
væri’, að starfsfólkið hefði kaup-
tryggingarsamning og unnið við
fískvinnslu í að minnsta kosti tvo
mánuði. Að loknu námskeiði fengi
starfsfólk svo launahækkun og
starfsheitið sérhæfður fískvinnslu-
maður.
Mikil aðsókn
Mikil aðsókn hefur verið að nám-
skeiðunum og fyrstu þijú árin lá
við að allt starfandi fiskvinnslufólk
sækti þau. Nú sækja grunnnám-
skeiðin fyrst og fremst nýtt starfs-
fólk, 700 til 800 á ári, en fjöidi
þeirra, sem sækja sérnámskeiðin fer
vaxandi ár frá ári. Á þessu ári hafa
rúmlega 700 manns sótt grunnn-
ámskeið á 24 stöðum á landinu.
Sú hefð hefur skapazt að mörg
fyrirtæki nota tímann um jól og
áramót til námskeiðahalds og nú
um jólin verða námskeið í Reykja-
vík, Akranesi, Ólafsvík, Siglufírðí,
Dalvík, Hrísey, Akureyri og Eyrar-
bakka. Áætlað er að um 250 manns
sitji þessi námskeið.
30 mismunandi nám-
skeið í boði
Nú býðir Starfsfræðslunefndin
upp á um 30 mismunandi nám-
skeið. Um eitthundrað leiðbeinend-
ur vítt og breitt um landið kenna á
þessum námskeiðum, en kennslu-
efni er endumýja og aukið eftir
þörfum. Auk námskeiðahaldsins
stendur nefndin einnig fyrir margs
konar kynningu á sjávarútvegi. Þá
stóð nefndin fyrir íslandsmóti í
handflökun í vor og þátttöku á
heimsmeistaramóti í handflökun í
kjölfar þess. Fyrirhugað er að halda
íslandsmót í flökuninni á ný í apríl
á næsta ári.
Nokkrar umræður eiga sér nú
stað um skilyrði fyrir þátttöku á
námskeiðunum. Eins og er eiga
atvinnulausir þess ekki kost að
sækja námskeiðin, þótt þeir hafi
mikla reynslu af fískvinnslu. At-
vinnurekendur hafa hreyft þeirri
hugmynd að skilyrði um kauptrygg-
ingarsamning verði fellt niður, en
fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar
hafa lagzt gegn því, en vilja opna
atvinnulausum leið inn á námskeið-
in. Báðir aðilar em þó sammála því
að fræðslan komi bæði verkafólki
og vinnuveitendum til góða. Launa-
hækkun í dag er um 3.000 krónur
á mánuði til þeirra, sem námskeið-
unum ljúka og atvinnurekendur fá
betra starfsfólk.
Formaður Starfsfræðslunefndar
fiskvinnslunnar er Arnar Sigur-
mundsson, en aðrir í nefndinni eru
Gylfi Gautur Pétursson, Elínbjög
Magnúsdóttir, Óðinn Baldursson,
Svavar Svavarsson og Ágúst H.
Elíasson. Starfsmaður nefndarinn-
ar frá upphafi er Gissur Pétursson.
Hjá okkur er alll á góðu verði
Gráðusög Samlokugrill
Verð kr. 2.790 Verð kr. 2.490
Verkfærasett -135 hlutir.
Verð kr. 6.980
Stalhilla
Hæð 150 cm.
Breidd 75 cm.
Dypt 30 cm.
Kaffikanna
Verð kr. 1.890
Utvarpsvekjaraklukka
Verð kr. 1.980
Verð kr. 1.890
fhlenska Póstveiylunin
Smiðjuvegi 30
Opið laugardag
kl. 10-18,
sunnudag
kl. 13-17.
I|ú L L S Llk L! /«. L^
J G L /A r I L B (J 0
HEITI Ltr. H. B. Dýpt Verð
ME 140 85 50 60 25.000.-
MC 225BEU 225 123 55 55 35.000,-
TMP280 280 147 60 55 37.000,-
DF285IT 285 150 60 60 41.900,-
RF370BEU 370 180 60 60 62.300,-
Pil
TILBOÐ „
A bökunarofnumD
OG HELLUBORÐUM H
KJOLUR hf.
Suöurlandsbraut 22, SfMI 888890
§
BÖKUNAROFNAR FRÁ KR. 29.670,- slgr.
OG HELLUBORÐ - - 15.700,-stgr. W
ARISTON 'p'tá&e&e 'KZCftuiCet, € /S