Morgunblaðið - 17.12.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 17.12.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1994 23 FRÉTTIR: EVRÓPA Verðandi forseti framkvæmdastjórnar Vill sameigin- legan gjaldmiðil fyrir aldamót Brussel, Madrid. Reuter, The Daily Telegraph. JACQUES Santer, verðandi forseti framkvæmdastjórnar ESB, segir í viðtali við spænska dagblaðið El Pais í gær að koma verði á efna- hagslegum og peningalegum sam- runa fyrir 1999. Ella hafi ESB mis- tekist ætlunarverk sitt. Þegar Santer var spurður hvort að hann óttaðist að fjölgun aðildar- ríkja í allt að 21 myndi ekki ógna samrunaferlinu sagði hann endur- skoðun Maastricht-sáttmálans á ríkjaráðstefnunni 1996 skipta öllu máli. „Þar verður að koma skýrt fram að þróun og stækkun [Evrópusam- bandsins] kaliar á sterkar stofnanir til að koma í veg fyrir upplausn ... Ég er og verð áfram andvígur stækkun til austurs í þeim tilgangi að grafa undan stofnunun sam- bandsins og breyta ESB í fríversl- unarsvæði. Slíkt væri í andstöðu við anda sambandsins," sagði Sant- er. { skýrslu frá framkvæmdastjórn- inni um efnahagsmál á þessu ári er þeirri skoðun haldið fram að raunhæft sé að stefna að þriðja og lokastigi hins efnahagslega sam- runa árið 1997. Samkvæmt Maas- tricht felst í þriðja stiginu að verð- ítali fær sjávarút- vegsmálin • EMMA Bonino, fulltrúi ítala í nýrri framkvæmdastjórn, mun fara með sjávarútvegsmál frá og með áramótum. Upphaflega hafði verið ákveðið að Norðmað- urinn Thorvald Stoltenberg hefði sjávarútvegsmálin á sinni könnu en af því gat ekki orðið eftir að Norðmenn höfnuðu ESB- aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu. Bonino er féjagi í Róttæka flokknum á Italíu og fer einnig með neytenda- og mannúðarmál í framkvæmdastjórninni. • TALIÐ er útilokað að ESB takist að gera samning um tolla- bandalag við Tyrki í næstu viku líkt og stefnt var að. Er ekki búist við neinni niðurstöðu af fundi embættismanna á mánu- dag. Ástæðurnar eru óánægja með frammistöðu Tyrlqa í mann- réttindamálum og andstaða Grikkja. „Ef Tyrkirnir mæta [á fundinn á mánudag] munu þeir fara heim tómhentir eftir að les- ið hefur verið yfir þeim um mannréttindamál," sagði emb- ættismaður í Brussel. • FRANSKI nýgaullistaflokk- urinn RPR hefur ákveðið hvaða stefnumál hann hyggst leggja áherslu á er Frakkar taka við forystunni í ráðherraráðinu í byijun næsta árs. RPR vill auka lýðræðislega ábyrgð innan ESB og auka hlut ríkisstjórna aðildar- ríkjanna. Þá ætlar flokkurinn að beijast fyrir því að Þjóðveijar verði fastafulltrúar í öryggisráði SÞ og að stofnuð verði efri deild Evrópuþingsins. Er talið að frambjóðendur hægrimanna í forsetakosningunum, þeir Edou- ard Balladur og Jacques Chirac, muni milda Evrópuandstöðu sína fyrir kosningarnar, í kjölfar þess að Jacques Delors féll frá fram- boði. bólga, vaxtastig, opinber skuldsetn- ing og fjárlagahalli sé innan ákveð- inna marka í þeim ríkjum sem ætla að eiga aðild að hinum sameiginlega gjaldmiðli. Þar með væri hægt að koma slíkum gjaldmiðli á árið 1999. Þau tvö ríki sem mesta áherslu hafa lagt á samrunann, Frakkar og Belgar, eru hins vegar í hópi þeirra sem síst eru líkleg til að standast þær kröfur sem Maastricht gerir. Um síðustu helgi staðhæfði Ken- neth Clarke, fjármálaráðherra Bret- lands, að einungis Bretar, Þjóðvetj- ar og Lúxemborgarar myndu upp- fylla skilyrðin árið 1997 og John Major forsætisráðherra sagði „úti- lokað“ að hægt yrði að koma á sameiginlegum gjaldmiðli 1999. Breskir embættismenn segja lítið mark takandi á skýrslu fram- kvæmdastjórnarinnar og segja hana einkennast af „óskhyggju". Henning Christophersen, sem fer með efnahagsmál innan fram- kvæmdastjórnarinnar, hafi ávallt trúað á að hægt væri að standa við tímamörkin og því kæmi ekki á óvart að hann héldi enn fast í þau. „Það er hans starf að stappa stálinu í menn,“ sagði einn embættismaður. Reuter Nasrin á Evrópuþingi TASLIMU Nasrín voru á fimmtu- dag afhent Sakharov-verðlaun Evrópuþingsins sem veitt eru baráttumönnum fyrir tjáningar- frelsi. Hún hefur verið dæmd til dauða af islömskum heittrúar- mönnum í heimalandi sínu Bangladesh vegna ritverka sinna. • HIN nýja Evrópustefna norsku stjórnarinnar hefur beðið skipbrot, segir blaðið Aftenpost- en. ESB-ríkin greindu á fimmtu- dag norskum stjórnvöldum frá því að ekki sé hægt að verða við flestum kröfum þeirra um nánari samskipti með vísan til þess að ekki sé réttlætanlegt að Norð- menn fái aðra meðferð en aðrar þjóðir utan sambandsins. Evr- ópusambandsríkin eru öll af vilja gerð að hafa góð samskipti við Norðmenn en af því leiðir hins vegar ekki að Norðmenn geti tekið virkan þátt í innra starfi ESB líkt og stjórnin hafði farið fram á. „Við verðum einnig að leggja áherslu á samskiptin við ísland, Kýpur, Möltu, Tyrkland, Liechtenstein og Sviss,“ sagði fulltrúi ESB í Brussel. GJOF TIL HEIMILISIIMS H AGKVÆMT KRÓNUR Notaöu vatn úr krananum heima og njóttu þess aö dnekka eigiö sódavatn eöa gosdrykk. Sodastream er umhverfisvænt því sömu umbúöir eru notaöar aftur og aftur. Geföu heimilinu nýja Sodastream tækið, gjöf sem gefur arö.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.