Morgunblaðið - 17.12.1994, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuter
Boðið í landspildu
GUO Maosheng, frá dagblaðinu
Economic Daily býður í land-
spildu á fyrsta uppboði á land-
areignum, sem haldið er í Kína.
Guo hætti við á síðustu stundu
og var eignin seld á um 130
miiyón yuan, sem svarar um
einum milljarði kr.
Mánaðarlangri stj órnarkr eppu á Irlandi lokið
Olíkir flokkar í sam-
steypusljórn Brutons
Dublin. The Daily Telegraph, Reuter.
RÚMLEGA mánaðarlangri stjórn-
arkreppu á írlandi lauk á fimmtu-
dag er John Bruton, leiðtogi Fine
Gael, myndaði stjórn með Verka-
mannaflokknum og Lýðræðislega
vinstriflokknum. Þar sem flokk-
amir eru mjög ólíkir hefur verið
talað um „regnboga^tjóm", marg-
ir telja að Bruton geti reynst erf-
itt að halda stjóminni saman til
lengdar. Sambandssinnar á Norð-
ur-Irlandi fagna umskiptunum en
Bmton hefur lýst vilja sínum til
að írland afnemi stjórnarskrárá-
kvæði um tilkall til norðurhérað-
anna.
Albert Reynolds, forveri Brut-
ons í embætti og leiðtogi stærsta
flokks landsins, Fianna Fail, gerði
út af við ríkisstjóm flokks síns og
Verkamannaflokk*s Dicks Springs
fyrir nokkmm vikum er hann skip-
aði umdeildan saksóknara í emb-
ætti forseta hæstaréttar.
Allt skárra en Reynolds
Reynolds átti gott samstarf við
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, um að koma á friðar-
samningum á N-írlandi en mót-
mælendur í héraðinu treysta þó
ekki Reynolds og líst betur á Bru-
Reuter
JOHN Bruton, forsætisráð-
herra írlands, heilsar Gerry
Adams, leiðtoga Sinn Fein.
ton. „Það mun koma í ljós hvort
fyrri yfirlýsingar hans verða leið-
arljósið þegar til kastanna kemur
- en hins vegar er allt skárra en
Albert Reynolds“, sagði David
Trimble, einn af þingmönnum n-
írskra sambandssinna í London í
gær.
Gerry Adams, leiðtogi Sinn
Fein, og Braton áttu fund í gær
en vitað er að Adams og menn
hans í írska lýðveldishernum, IRA,
hryðjuverkasamtökum kaþólikka,
eru nokkuð á varðbergi gagnvart
Braton sem er hægrisinnaður
mjög.
„Ruddinn Bruton“
Spring verður varaforsætisráð-
herra en milli hans og Brutons
hefur andað köldu svo að stjórnar-
myndunin kom mörgum á óvart.
Bruton mistókst tvisvar á ferli sín-
um sem ljármálaráðherra á níunda
áratugnum að fá fjárlög samþykkt
vegna andstöðu vinstriflokka.
Hann hlaut auknefnið „Bruton
ruddi“ 1982 er hann vildi leggja
virðisaukaskatt á barnaskó.
Á þingi sitja 165 fulltrúar, Fine
Gael hefur 4 sæti, Verkamanna-
flokkurinn 32 og Lýðræðislegi
vinstriflokkurinn 6 sæti. Hinn síð-
astnefndi hefur ekki áður átt sæti
í ríkisstjóm. Flokkurinn á rætur
að rekja til þess er marxistahluti
írska lýðveldishersins, IRA, gekk
á braut á sjötta áratugnum.
Stjórnmálaflokknum IRA, sem er
lýðræðislegur, má ekki rugla sam-
an við hryðjuverkasamtökin á N-
írlandi er klufu sig út úr upphaf-
legu hreyfingunni skömmu eftir
1970.
JÓLAGLAÐNINGUR HJÁ McDonald's
Tilboðið gílrtír dagana 16., 17., 18. og 19. desember eða á meðan birgöir endast.
Á PLANINU HJÁ McDonald’s AÐ SUÐUR-
LANDSBRAUT 86 GETUR ÞÚ PENGIÐ KEYPT
ÍSLENSKT RAUÐGRENI OG FYRSTA FLOKKS
NORÐMANNSÞIN. SÖLUMENN KENNA ÞÉR
AÐ MEÐHÖNDLA RAUÐGRENIÐ ÞANNIG AÐ
ÞAÐ ENDIST OG FELLI SÍÐUR BARR OG EF ÞÚ
KAUPIR McSTJÖRNUMÁLTÍÐ, SEM ER
AFSLÁTTARMÁLTÍÐ, FÆRÐ ÞÚ STÓRAN
AFSLÁTT TIL VIÐBÓTAR Á NORÐMANNSÞIN.
VERÐDÆMI: 1,90 M FYRSTA FLOKKS
NORÐMANNSÞINUR: VENJULEGT VERÐ KR.
4.650,- McDonald’s VERÐ: KR. 3.999,-
Reuter
MITTERRAND heilsar almenningi við upphaf leiðtogafundar
Frakka og ítala í Aix-en-Provence í gær.
Mitterrand ræðir við heimspeking
Hvað bíður
fyrir handan?
París. Reuter.
FRANQOIS Mitterrand Frakk-
landsforseti segir lækna sína álíta
að hann eigi í mesta lagi sex
mánuði eftir ólifaða, að sögn há-
aldraðs heimspekings er forsetinn
ræddi við fyrir skömmu. Mitterr-
and þjáist af krabbameini í blöðru-
hálskirtli og hefur dregið mjög
úr embættisskyldum sínum að
undanfömu. Hann var skorinn
upp í annað sinn sl. sumar.
Talsmenn forsetans, sem er 78
ára gamall, neituðu að tjá sig um
ummæli heimspekingsins, hins 93
ára gamla Jeans Guittons. Mitter-
rand hefur verið við völd í nær
14 áry lengur en nokkur annar
þjóðhöfðingi Frakka frá því í
stjómarbyltingunni 1789.
Mitterrand heimsótti Guitton í
nóvember til að ræða um líf eftir
dauðann en Guitton er virtur
fræðimaður, félagi í frönsku aka-
demíunni og sanntrúaður kaþó-
likki. Hann sagðist hafa tjáð for-
setanum að hægt væri að deyja
með tvennum hætti - sem her-
maður eða hershöfðingi. Þótt her-
maður félli í orrustu væri hann
umkringdur vinum. „Hershöfð-
inginn er algerlega einn. Þú berð
sömu ábyrgð og hershöfðingi þar
sem þú ert þjóðhöfðingi Frakk-
lands. Þú hefur verið öllum stór-
kostlegt fordæmi", sagði Guitton.
í viðtali við Liberation hafði
heimspekingurinn eftir Mitterr-
and: „Trúarbrögðin eru samsafn
fáránleikans“. Guitton svaraði:
„Nei samsafn hins dularfulla".
Hann sagðist hafa útskýrt fyrir
forsetanum að fáránleikinn væri
„ekkert, á honum væri aðeins ein
lausn:
Að skjóta sig í höfuðið. Hið
dularfulla merkir á hinn bóginn
stiga sem við klifrum upp, á efsta
þrepinu er dauðinn.“ Er Mitterr-
and spurði hvað tæki þá við sagð-
ist Guitton hafa svarað: „Ég veit
það ekki, það er kallað „fyrir
handan“.“