Morgunblaðið - 17.12.1994, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1994 35
_______AÐSEMPAR GREINAR_
Er sameining vinstri
flokka þjóðþrifamál?
EINAR Kárason, rit-
höfundur, skrifar at-
hyglisverða grein í DV
12. desember síðastlið-
inn. Þar fjallar hann um
þá sundrungu sem ríkir
meðal vinstri manna en
eftir því sem kröfurnar
um sameiningu þeirra
verða hærri dreifast þeir
víðar. Einar segir að
sameinaðir gætu vinstri
flokkarnir myndað sig-
ursæla yfirburðahreyf-
ingu en sundraðir geri
þeir ekkert gagn nema
fýlla hugsanlega stuðn-
ingsmenn vonleysi og
kaldhæðni.
Kjartan
Magnússon.
of oft tekist að taka
stjórnarþingmenn og
ráðherra á taugum.
Hvatinn til eyðslu
skattfjár er einfaldlega
miklu ríkari en hvatinn
til sparnaðar þegar
þingsæti og ráðherra-
stólar eru í húfi.
Einn flokk til
ábyrgðar
Þetta gainalkunna
slagorð Sjálfstæðis-
flokksins gæti öðlast
nýja merkingu ef vinstri
menn sameinuðust í
einum stórum flokki.
Slík sameining gæti, ef
Einar hefur óneitanlega margt til
síns máls. Við fyrstu sýn kynni hugs-
anleg sameining íslenskra vinstri
manna að vekja ótta hjá hægri
mönnum. Hins vegar má færa marg-
vísleg rök fyrir því að slík sameining
væri góður kostur fyrir hægri menn
ekki síður en vinstri sinna og reynd-
ar þjóðina alla.
Eyðsluhyggja og skattagleði
Vinstri menn hafa ekki borið
gæfu til að standa sameinaðir í ein-
um stórum flokki eins og sjálfstæð-
ismenn. Sundrungin hefur oftar en
ekki verið vörumerki vinstri manna
og fyrir kosningar í vor mun enn
eitt vinstra framboðið líta dagsins
ljós og vafalaust hljóta umtalsvert
fyigi.
Foringjar Þjóðvakans hafa engar
þær hugsjónir fram að færa sem
ekki hafa margoft áður heyrst hjá
öðrum vinstri sinnuðum frambjóð-
endum. Þess vegna grípa þeir til
þess ráðs að lofa meiri fjáraustri úr
ríkissjóði en aðrir stjórnarandstöðu-
flokkar hafa komist yfir. Aðrir
vinstri sinnaðir stjórnmálamenn
reyna nú að svara þessari sam-
keppni þannig að yfirbjóða enn bet-
ur. Þetta er því miður sá leikur sem
hefur verið iðkaður af miklu kappi
um hríð í íslenskum stjórnmálum.
Sparnaður jafnharðan
skotinn niður
Hvernig er staðan í íslenskum
stjórnmálum um þessar mundir?
Samstjórn Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðuflokks er að ljúka kjörtímabili
sínu. Hún hefur staðið sig betur en
margar aðrar ríkisstjórnir á undan
en samt hefur ekki enn tekist að
ná jafnvægi í ríkisfjármálum. Eng-
um dylst að ríkisstjórnin hafði mik-
inn og einlægan vilja til þess í upp-
hafi kjörtímabilsins að ná hallanum
niður. Þó hefur það farið svo að í
hvert sinn sem sparnaðarhugmyndir
hafa verið kynntar hefur stjórnar-
andstaðan samviskulega lagst gegn
þeim ásamt ýmsum þrýstihópum og
jafnvel ríkisreknum fjölmiðlum.
Sameiginlega hefur þessum aðilum
Sameining vinstri
manna kynni að vekja
ótta hjá hægri mönnum,
segir Kjartan Magnús-
son, en hins vegar má
færa margvísleg rök
fyrir því að slík samein-
ing væri þjóðþrifamál.
vel tækist til, skerpt andstæðurnar
í íslenskum stjórnmálum og aukið
stöðugleika. Kjósendur gætu þá í
fyrsta sinn valið á milli tveggja
flokka eða einn flokk til ábyrgðar.
Það gæti vel verið að sameinaður
listi vinstri manna ynni í fyrstu sig-
ur á Sjálfstæðisflokknum. Slík úrslit
hefðu þó vonandi í för með sér nýtt
flokkakerfi þar sem stjórnmálamenn
bæru meiri ábyrgð á verkum sínum
en þeir gera nú. Einn flokkur fengi
þá tækifæri til að standa við stóru
orðin og að loknu einu kjörtímabili
sameinaðra vinstri manna ættu sjálf-
stæðismenn síst minni möguleika á
að ná hreinum meirihluta. Slíkt kerfi
myndi úrelda algengustu afsökun
íslenskra stjórnmálamanna hvar f
flokki sem þeir standa: „Ekki reynd-
ist unnt að standa við öll kosningalo-
forðin að þessu sinni þar sem við
lentum í samsteypustjórn." íslend-
ingar þurfa nú að búa við meingall-
að margflokkakerfi og flestir hljóta
að gera sér ljóst að festa og ábyrgð
eykst ekki í stjórnmálunum eftir því
sem flokkunum og hrossakaupunum
fjölgar.
„Verstu öflin
verða allsráðandi“
Sameining vinstri flokkanna er
ekki einungis æskileg vegna aukins
stöðugleika í stjórnmálunum. Hún
gæti einnig orðið til þess að laða
fleira hæfileikafólk til starfa á vinstri
vængnum en Einar lýsir núverandi
ástandi þannig:
„Klofningurinn verður líka til þess
að verstu öflin í hvorum flokknum
fyrir sig [Alþýðuflokknum og Al-
þýðubandalaginu] verða allsráð-
andi; hreintrúar- og meydómsklík-
ur af því tagi sem í hæsta lagi
gætu þrifist sem raddir kverúlanta
í stórum almennilégum flokki."
Stór, almennilegur vinstri flokkur
gæti laðað fleira hæfileikafólk út í
stjórnmál og það myndi ef til vill
staldra lengur við en nú tíðkast. Þá
yrði meiri von til þess að vinstri
menn huguðu betur að langtíma-
stefnumörkun í stjórnmálum en
hættu að hugsa um það eitt að yfir-
bjóða hver annan í eyðslu skattfjár
til að ná völdum eða halda þeim.
Höfundur er varaborgarfulltrúi í
Reykjavík.
Þú getur bakað, steikt og
grillað að vild í nýja
BLÁSTURS - BORÐOFNINUM
Rúmgóður 12,5 lítra ofn, en
ytri mál aðeins 33x44x23 cm.
'4 valmöguleikar: Affrysting,
yfir- og undirhiti, blástur og
grill.
Hitaval 60-230aC, 120 mín.
tímarofi með hljóðmerki, sjálf-
hreinsihúðun og Ijós.
JÓLATILBOÐSVERÐ
kr. 12.990,- stgr.
Þú geturvaliðum 6 aðrar
gerðir 4'lMllMI'j) borðofna.
/FOnix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420
Höfum opnaö
nýja deild
með lömpum
og gjafavöru
húsgagnaverslun,
Síðumúla 20, sími 688799.
Hvaðan komu þeir? Hverjir voru þeir? Hvað gerðu þeir? Hvað varð um þá?
Fræðandi, forvitnileg og spennandi frásögn af harðsvíruðustu glæpamönnumVesturheims
Bók sem þti gefur sjálfum þér, vinum þínum, eða óvinum! Fæst í bókabúðum.
Thomson vélbyssa,
algengt atvinnutæki.
,Scarface“ A1 Capone.Lögreglumynd frá 1931
Bonny og Clyde.