Morgunblaðið - 17.12.1994, Page 38
38 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
„Vandamálin hrannast upp“
UPPSLATTARGREIN Morgun-
blaðsins 7. des. sl. um gífurleg
vandamál í félagslega íbúðakerfínu
er að mati undirritaðs ekki til þess
fallin að uþplýsa þá, sem ekki þekkja
til, um raunverulega stöðu félagslega
íbúðakerfísins. Með ólíkindum er, að
svona skuli vera hægt að fjalia um
9.052 íbúðir og íbúa þeirra. Mikil
ábyrgð fylgir því að skrifa greinar
þar sem heilt lánakerfí sem þjónað
hefur landsmönnum frá 1929, er
dæmt nánast ónýtt. Halda mætti að
húsin væru að hrynja, gott fólk var-
ist slysin og kaupið ekki félagslega
íbúð, er verið að segja. Engar heildar-
útskýringar, ekkert um það að þetta
hafi hjálpað þúsundum fjölskyldna
til að eiga öruggt húsaskjól. Óskum
til húsnæðisnefnda um innlausn
fjölgar vegna stöðugra skrifa um
húsnæðiskerfí sem er óhagstætt fólk-
inu! Fólk flýr frá bestu kjörunum á
húsnæðismarkaðinum, vegna mis-
skilnings og jafnvel vegna rangra
upplýsinga.
„Vandamálin hrannast upp“,
„sveitarfélögin að sligast undan kerf-
inu“, slagorð eftir slagorð! Vissulega
standa um 46 íbúðir af 9.052 félags-
GÓÐAR GJAFAHUGMYNDIR - GOTT VERÐ
Verð frá: Verð frá:
Ávaxtapressur 1.790,- Jólatrésseríur 580,-
Baðvogir 1.160,- Kaffikvarnir 2.720,-
Borðofnar 9.990,- Kaffivélar 1.990,-
Brauð- og álegsshn. 5.620,- Kartöfluskrælarar 3,590,-
Brauðristar 1.780,- Matyinnsluvélar 2.860,-
Dósahnífar 2,590,- Mínútugrill/vöfflujárn 11.370,-
Dósahnífar m. brýnf 3.790,- Pelahitarar 2.450,-
Djúpsteikingarpottar 8.530,- Rafmagns-kjöthnífar 2.990,-
Eggjasjóðarar 3.280,- Rakvélar 3.990,-
Espresso-kaffivélar 3.570,- Rykiugur 8.530,-
Ferða-vekjaraklukkur 990,- Ryk- og vatnssugur 13.970,-
, Gufustraujárn 2.970,- Safapressur 3.490,-
Hand-hrærivélar 2.950,- Samlokugrill 2.970,-
Hand-ryksugur 3.220,- Skeggsnyrtar 1.320,-
Hárblásarar 1,810,- Strauborð 3.520,-
Hitamælar-digital 1.090,- Staujárn 1.990,-
Hitapúðar 2.980,- Vöfflujárn 3.980,-
Hitateppi 3.870,- Örbylgjuofnar:
Hnífa- og skærabrýni 2.660,- 27 Itr. 21.990,-
Hraðsuðukönnur 3.290,- Með grilli 23.420,-
Hrærivélar 4.740,- Meö grilli og blæstri 37.890,-
. . . OG ÓTAL MARGT FLEIRA
iponix HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SlMI (91)24420
Besta jólagjöf
allra námsmanna!!
Hraðlesfrarnámskeið - námsfækninámskeið
Gjöf sem gefur arð ævilangt!
Á hraðlestrarnámskeiðum fjórfalda nemendur að
jafnaði lestrarhraða sinn með sambærilegri eða
betri eftirtekt.
Á námstækninámskeiðunum er kennd
skipulagning náms, glósugerð, ritgerðasmíð,
próftaka o.fl. Afköst vaxa og öll námsvinna verður
mun léttari.
Ef þú vilt bætast í hóp ánægðra nemenda
Hraðlestrarskólans, sem hafa margfaldað
lestrarhraða sinn og afköst í námi, skaltu biðja um
„námsmannapakkann“ (við bjóðum gjafabréf) í
jólagjöf, en hann inniheldur bæði námskeiðin á
sérlega hagstæðu verði, kr. 15.800.
Námskeið hefst í janúar nk. Kennt er í HÍ.
Skráning er í símum 642100 og 641091.
HHAÐLESrRARSKOLINN
Percy B.
Stefánsson
legum íbúðum auðar, en
unnið er að lausn þessa
vanda. Um 70 félagsleg-
ar íbúðir eru sérstaklega
leigðar út. Yfírleitt er
þessum íbúðum breytt í
félagslegar kaupleigu-
íbúðir þar sem lánin eru
til 50 ára með 1% vöxt-
um. Upphaf byggingar
félagslegra íbúða er
umsókn til Húsnæðis-
stofnunar frá viðkom:
andi sveitarfélagi. í
umsókninni koma fram
upplýsingar um þörf á
félagslegu húsnæði á
viðkomandi stað og
beiðni um ákveðnar
íbúðarstærðir. Það er
viðkomandi sveitarfélag, Sem óskar
eftir því að byggja félagslegar íbúðir
og hlýtur í dag að bera sína ábyrgð?
Lítuin svo á umhverfið, sem íbúð-
areigandinn býr við. Hvað hefur
gerst, af hverju verður vandi hans
til? Er ekki atvinnuleysi, minnkaði
yfírvinna og þar af leiðandi lægra
kaup? Er ekki sífellt verið að breyta
skattakerfinu og enn verið að því,
heyrum við í fjölmiðlum. Allt, sem
nefnt hefur verið, hefur augljóslega
afgerandi árhrif á áætlanagerð íbúð-
areigandans. Sífelldar breytingar
skapa öryggisleysi. Stöðugleiki er
forsenda þess að hægt sé að gera
raunhæfar áætlanir fram í tímann.
„Aðgerðir miðast við að fólk passi
inn í kerfíð, en ekki er búið til hús-
næðiskerfi fyrir fólkið." Hvernig er
það hægt? „Ófremdarástand ríkir í
húsnæðismálum láglaunafólks", er
haft eftir fulltrúum ASÍ og rétt er
að vandi margra er stór. En af hveiju?
Munur á upphitunarkostnaði er t.d.
allt að 2,5-faldur milli landshluta.
Hvar þú kýst að búa er í dag kjara-
mál, ekki byggðamál! Undirritaður
hefur m.a. fengið allmarga einstæða
foreldra í viðtal með um 60.000. kr.
á mánuði. Vandi þessa
fólk er ekki húsnæðisl-
ánið heldur lág laun. í
meðfýlgjandi töflu má
sjá greiðslubyrði af 7.
m.kr. félagslegri íbúð.
Sjá töflu
Umræðan um fym-
ingu félagslegra Mða
er einfölduð og kölluð
„eignaupptaka", en það
er staðreynd að hús eld-
ast og viðgerða er þörf.
Ef fýrning er ekki.reikn-
uð eðlilega erum við
alitaf að selja of dýrar
íbúðir og Byggingar-
sjóður verkamanna allt-
af að lána samsvarandi of há lán.
Hver á að borga þennan mismun?
Um leið og þess er krafíst að fyrning
lækki, er verð félagslegra íbúða sagt
of hátt, ekki lækkar verðið með þessu
móti. Er það ekki raunkostnaður við
að búa í íbúðinni, sem skiptir höfuð-
máli, hvað þarf ég að borga? Fróð-
legt væri að sjá raunverulegan
samanburð við íbúð á almennum
Er það ekki raunkostn-
aðurinn við að búa
í íbúðinni, sem skiptir
máli, spyr Percy B.
Stefánsson. Hvað
þarf að borga?
markaði þar sem allt væri með,
ástand íbúðar, raunveruleg fyrning
og annar kostnaður, sem til fellur við
það að eiga íbúð. Þetta er gert þegar
kostnaður vegna félagslegrar íbúðar
er reiknaður.
Mánaðarleg greiðslubyrði:
Verð 3-4 herb. Mðar 7,0 m.kr. Lán 6,3_m.kr., útborgun 700.000 kr.
Dæmi 1: Árstekjur kaupenda 1.000.000 kr.
Afb.á ári Vaxtagjöld Vaxtabætur Samt.á ári Gr.byrði/mán. Gr.byrði/mán.
áári m/vaxtab. m/vaxtab. án vaxtab.
1. ár 0 151.200 0 151.200 12.600 12.600
2. ár 88.500 151.200 91.200 148.500 12.400 19.900
3. ár 90.700 149.100 91.200 148.500 12.400 19.900
4. ár 92.800 146.900 89.100 150.700 12.600 19.900
Dæmi 2: Árstekjur kaupenda 1.800.000 kr.
Afb.á ári Vaxtagjöld Vaxtabætur Samt.á ári Gr.byrði/mán. Gr.byrði/mán.
áári m/vaxtab. m/vaxtab. án vaxtab.
1. ár 0 151.200 0 151.200 12.600 12.600
2. ár 88.500 151.200 43.200 196.500 16.400 19.900
3. ár 90.700 149.100 43.200 196.500 16.400 19.900
4. ár 92.800 146.900 41.100 198.700 16.600 19.900
Raunkostnaður við að búa í félags-
legri íbúð er í dag 1,5% fyrning og
2,4% vextir. Kostnaður þessi verður
vegna 4. herb. 8.0 m.kr. íbúðar
25.000 kr. á mánuði. Vaxtabætur
lækka svo þennan kostnað í 20.000
kr., ef um er að ræða hjón með
150.000 kr. á mánuði. Þetta hefur
viðkomandi greitt fyrir afnot af íbúð-
inni fyrir utan almennan rekstrar-
kostnað. Hvort þetta telst lágt eða
hátt skal ekki metið hér. Undirritaður
hefur í tveimur greinum í Morgun-
blaðinu birt upplýsingar um áhrif
vaxtahækkunar á greiðslubyrði eig-
enda félagslegra íbúða. Hækkun
vaxta úr 1% í 2,4% í mars 1993 og
svo í 4,9% ef tekjur fara yfír leyfilegt
hámark. Þar voru tekin dæmi, sem
sýndu, að áhrif hækkunar vaxta á
greiðslubyrði, að teknu tilliti til vaxta-
bóta, eru varla merkjanleg. Greiðslu-
byrðin lækkaði jafnvel, sem hlutfall
af tekjum, við hækkun vaxta. Þrátt
fyrir þessar staðreyndir, sem eru ein-
falt reikningsdæmi, heldur umræðan
áfram um gífurleg áhrif þessarar
hækkunar á greiðslubyrði íbúðareig-
andans.
Því er haldið fram í greininni að
„stór hluti vandans" í dag stafí af
því að ekki er heimilt að taka tillit
til skulda umsækjanda um félagslega
íbúð. Húsnæðisnefndir hafi ekki get-
að sinnt þessum umsækjendum, ef
þeir hafí verið yfír tekjumörkum. I
64 gr. laga nr. 97/1993 stendur að
heimilt sé að víkja frá eigna- og tekju-
mörkum ef meiri háttar röskun hafi
orðið á högum umsækjanda, t.d.
lækkun tekna. Venjulega hefur orðið
mikil tekjulækkun hjá þessum aðilum
þrátt fyrir að meðaltal tekna sé yfír
mörkum síðustu þriggja ára. Allar
umsóknir um undanþágu frá eigna-
og/eða tekjumörkum vegna sérstakra
aðstæðna eru skoðaðar hjá Hús-
næðisstofnun. Nefna má vikulega
fundi um þessi mál með húsnæðis-
nefnd Reykjavíkur.
Sagt er „að meirihluti borgar-
stjómar Reykjavíkur hafi látið undan
og keypt 40 almennar kaupleiguíbúð-
ir“. Látið undan hveijum? Húsnæði-
stofnun ríkisins gerir ekki kröfur um
að keyptar séu íbúðir sem kosta rúm-
lega 10 m.kr. með bílskýli.
Alltaf er nauðsynlegt að skoða lög
og reglur með jöfnu millibili, aðstæð-
ur breytast fljótt hér á landi. Jafn
nauðsynlegt er, að þeir sem fjalla um
félagslegar íbúðir kynni sér málefnið
vel áður en farið er af stað með
umræðu það. Umræða eins og hún
hefur verið að undanförnu, um stór-
gailað húsnæðiskerfí, eignaupptöku
og óseljanlegar íbúðir án þess að
reynt sé að skilgreina ástæður vand-
ans, er hættuleg og eyðileggjandi.
Að lokum, kostir félagslega íbúða-
kerfísins ættu að vera jafnáhugaverð-
ir og gallar þess. Einhliða skrif um
ónothæft húsnæðiskerfí, sem búa í
9.000 fjöskyldur eru ábyrgðarhluti.
Félagsleg íbúð er góður valkostur
fyrir þá sem vilja öruggt húsnæði á
viðráðanlegum kjörum.
Höfundur er forstöðumaður
Byggingarsjóðs verkamanna.
Óvönduð vinnubrögð
ÞAÐ ER sjálfsagt
ekki góð latína að fara
að gagnrýna eftirlætis
fyrirtæki fjölmiðlanna,
þ.e. stórfyrirtækið
Hagkaup og Bónus, en
sami rass ku vera undir
þeim báðum. Mörgum
blöskrar þó dekur
flestra fjölmiðla við
þessi fyrirtæki. Þau
mega hvorki hósta né
stynja svo allar frétta-
stofur sendi ekki lið
manna á vettvang að
greina frá afrekunum.
Hvort heldur þeir bijóta
lög með ólöglegum inn-
flutningi matvæla eða
gefa kartöflur þá er
eins og um heimsviðburði sé að
ræða.
Þeir Jónannes og Óskar setjast
að líkindum reglulega niður yfír
kaffíbolla og leggjá á ráðin um
hvernig næst megi fá ókeypis aug-
Heimir L.
Fjeldsted
lýsingu í öllum frétta-
tímum ljósvakamiðl-
anna og á forsíðum
dagblaðanna. Þeir
spara fyrirtækjum sín-
um milljónatugi í aug-
lýsingakostnað sem
sömu fjölmiðlar verða
af. Út af fyrir sig er
þetta allt gott og bless-
að ef þeir sköðuðu ekki
aðra en viðkomandi
ijölmiðla. En skörin er
farin að færast upp í
bekkinn þegar þeir em
farnir að vega að heilu
starfsstéttunum eins og
bóksölum núna fyrir
jólin. Það er vitað mál
að bókabúðir veita
þjónustu allan ársins hring og flest-
ir mánuðir em magrir, en þeir þreyja
þorrann og góuna vegna þess að
jólabókaflóðið heldur þeim á floti
aðra mánuði ársins.
Mér finnst að þeir Jóhannes og
Bónus o g Hagkaup
leika sér að atvinnufjör-
eggi fjölda fólks, að
mati Heimis L.
Fjeldsteds, með óvönd-
uðum vinnubrögðum.
Óskar ættu að skammast sfn ræki-
lega fyrir óvönduð vinnubrögð og
ég veit að fjölmargir taka undir þá
skoðun mína. Þeir spila auðvitað á
fjölmiðlana eins og strákar í búða-
leik, en um leið eru þeir að leika sér
að fjöreggi tuga ef ekki hundraða
manna sem hafa lífsviðurværi sitt á
bóksölu allan ársins hring. Ekki
sinna þeir þörfum þessara viðskipta-
vina í annan tíma.
Höfundur er verslunarmaður.