Morgunblaðið - 17.12.1994, Side 41

Morgunblaðið - 17.12.1994, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1994 41 við komum var búið að hringja í kunningjahjón og fá lánað auka rúm, því á heimilinu voru aðrir gest- ir. Sem sagt fjölskyldan var strax boðin velkomin, allt var gert klapp- að og klárt á nokkrum andartökum. Þannig var Karólína. Ég kynntist Karólínu og fjöl- skyldu sem barn, þegar þau fluttu til Flateyrar um 1960 og keyptu frystihúsið hér. Þau bjuggu í næsta húsi við mína fjölskyldu, forstjóra- húsinu. Kynni okkar áttu síðar eftir að aukast mikið. Ekki bara af því að sonur þeirra hjóna giftist systur minni Guðrúnu, heldur vegna þess að þau hjón voru „fósturforeldrar“ mínir í þijú ár á meðan ég gekk í menntaskóla. Ég tel það með meiri happaþáttum í uppvexti og þroska- ferli lífs míns, að fá að njóta vináttu og stuðnings þessara úrvals hjóna. Það var ekki auðhlaupið fyrir hvern sem er að hjartastað Karó- línu, en fyrir þá sem þangað kom- ust var ást og umhyggja ríkuleg. Trygglyndi, dugnaður og myndar- skapur eru þau atriði sem ég tel meðal mestu mannkosta Karólínu. Þessi stóra og myndarlega kona stóð einatt keik og upprétt í öllu mótlæti og erfiðleikum sem yfir hana dundu, erfiðleikum sem ör- ugglega má með sanni segja um, að hið hálfa hefði verið nóg. Það var öllum vinum hennar ljóst, að áfall það sem hún varð fyrir ung að árum, að sjá á eftir bróður sínum í eldsvoðanum í Krossinum í Kefla- vík, var henni ákaflega erfitt. Hún ræddi þetta ekki oft við mig, en nokkrum sinnum þó, og þá kom í Potturinn er lokaður meðan á steikingu stendur. Fitu- og lyktareyðandi slur tryggja fullkomið hreinlæti. Sumar gerðir með glugga svo fylgjast megi með steikingunni, sjálf- hreinsandi húöun og tæm- ingarslöngu tii að auðvelda oliuskipti. H'itaval 140-190°C. 20 mín. tímarofi með hljóðmerki. DeLonghi FALLEGUR, FLJÓTUR OG FYRIRFERÐARLÍTILL Verð aðeins frá 11.690,- til 13.990,- (sjá mynd) HÁTÚNI 4A SÍMI (91)24420 Dé Longhi diúpsteikingarpottarnir með snúningsKÖrfunni eru byltingarkennd tækninýjung TILVALIN JÓLAGJÖF TIL SÆLKERA /FOnix Með hallandi körfu sem snýst meöan á steikingunni stendur: • jafnari og fljótari steiking • notar aðeins 1,2 Itr. af olíu [ stað 3ja Itr. í öðrum. • mun styttri steikingartími • 50% olíu- og orkusparnaður MINNIIMGAR ljós að hún lagði alltaf mikla áherslu á það að bróðir hennar hafi verið kominn út úr húsinu, en farið inn aftur vegna þess að hann hélt hana vera ennþá inni. Eins og hún tæki á sig hluta sakarinnar um að svo fór sem fór. Þegar erfiðleikar í atvinnulífi landsmanna dundu yfir fyrirtæki þeirra hjóna hér á Flateyri, stóð hún með eiginmanni sínum gegnum þykkt og þunnt. Afskipti hennar af félags- og mannlífi hér voru líka öll sömu gerðar, dugnaður og fórn- fýsi einkenndi hennar störf. Lífs- krafturinn og viljinn hreif alla sem umgengust hana. Karólína var m.a. mjög virk í starfi slysavarnadeildar- innar Sæljóss á Flateyri. Hún eign- aðist hér líka marga aðdáendur og naut virðingar fyrir sín störf. Ég minnist þess ekki að hafa oft séð hana verklausa utan vinnunnar, ef ekki voru heimilisstörfin sem köll- uðu, þá voru það hannyrðirnar sem heilluðu. Hvernig allt lék í höndum hennar var aðdáunarvert, útsjónar- semi og smekklegheit voru þar í fyrirrúmi. Hjónaband þeirra hjóna var í mínum huga ákaflega far- sælt. Börnin öll myndarfólk og bráðdugleg eins og foreldrarnir. Karólína var að mínu áliti kletturinn og um leið sameiningaraflið innan þessarar dugmiklu fjölskyldu. Þegar ég kvaddi Karólínu og Rafn í október sl. var ég ákaflega þakklátur forsjóninrii fyrir að hafa átt þess kost og látið verða af því að heimsækja þau í Flórída, enda heimsóknir mínar til annarra því miður ekki í forgangsröðinni. „Þið verðið að hringja i okkur strax og þið komið heim í kvöld. Það skiptir engu hvenær það verður, við verðum ekki í rónni fyrr en þið eruð komin í örugga höfn.“ Þetta voru lokaorðin hennar Karólínu við okkur þegar við kvöddum þau hjón seint um kvöldið góða í október. Við sáum okkur ekki fært að þiggja boðið um nætur- dvölina, því miður. Ég var reyndar mjög vongóður um að við myndum hittast aftur næsta vor í Hvera- gerði, þar sem þau voru búin að ákveða að dvelja þann tíma ársins sem þau yrðu hér á landi. Það verð- ur líka að viðurkennast að í því fólst einnig ánægja yfir því að foreldrar mínir hefðu í nálægð við sig fólk sem myndi styrkja þau og gleðja með nærveru sinni og vinskap. Nú er skarð fyrir skildi. Karólína hefur verið kvödd til forfeðra sinna og við sem þekktum hana, biðjum góðan guð að leiða hana og styrkja á þeirri göngu sem hún hefur nú hafið. Rafn, börnin og makar þeirra, barnabörnin og 'barnabarnabörnin hafa misst mikið. Ég vil fyrir hönd foreldra minna, systkina og fjöl- skyldna votta þeim öllum okkar dýpstu samúð. Guð leiði ykkur og styrki. Minningin um trygga, góða móður og eiginkonu lifir. Eiríkur Finnur Greipsson. CL O * ai Nú fer jólaumferðin í hönd og þörfm á bílastæðum eykst. Vegfarendur geta þó ^hyggjulausir lagt leið sína í miðborgina því þar er nóg framboð af bílastæðum. 6 bílahús: Þægilegasti kosturinn. Þú feilur aldrei á tíma, getur verslað áhyggjulaus og gengur að bílnum vísum í skjóli. Bílahús eru á eftirfarandi stöðum: Traðarkoti v/Hverfisgötu • Kolaportinu • Vitatorgi • Vesturgötu • Ráðhúsinu og Bergstöðum v/Bergstaðastræti. Miðastæði: Þú borgar fyrir þann tíma sem þú ætlar þér að nota, hvort sem það er hálftími, klukkutími eða jafnvel tveir klukkutímar. Veist þú að frá miðastæðum og bílahúsum er mest 3 mínútna gangur hvert sem er í miðborginni? Einfált og þægilegt - ekkisatt! Má bjóða ykkur stæði? Bílahúsin eru opin á eftirfarandi álagstímum * í desember: laugardag I7. frá kl. 9:30 - 23:30 sunnudag I8. frá kl. 12:00 - 18:00 þriðjudag 20. frá kl. 7:30 - 23:30 miðvikudag 2I. frá kl. 7:30 - 23:30 fimmtudag 22. frá kl. 7:30 - 23:30 Þorláksmessu 23. frá kl. 7:30 - 24:00 Aðfangadag 24. frá kl. 7:30- 12:00 BÍLASTÆÐASJÓÐUR Bílastœöi fyrir alla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.