Morgunblaðið - 17.12.1994, Page 48
48 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Grettir
éKBrTlP, ES VEITA€>þu VILT ,
EKKI KARA UPP i SVEIT U/W 70L
1N. £N 0úe>u „
PIG 5AA1T UNÖ<?
7AVÍS /Z-lð
Tommi og Jenni
Ferdinand
Auðvitað kann ég að telja, ég sé Og eitt nef og tvö augu og einn og eina stóra systur!
átta fingur og tvo þumla ... munn og tvö eyru ...
Kristilegt sið-
gæði og kynvilla
Frá Guðmundi Erni Ragnarssyni:
ÆTLAR þú að taka því þegjandi
að nú er verið að undirbúa laga-
setningu um að láta grunnskólann
kenna barninu þínu að óeðli kynvill-
unnar sé jafn eðlilegt og sjálfsagt
og það eðli sem Guð hefur áskapað
hveijum karlmanni og hverri konu?
Nei, þú hlýtur að sporna við fæti,
og ert tilbúinn að gera allt sem
þarf til að koma í veg fyrir að
grunnskólinn, sem á að vera til að
byggja upp ungmenni, geri tilraun
til að bijóta barnið þitt niður á við-
kvæmu kynþroskaskeiði þess, með
því að kenna því að velja á milli
þess sem yrði kallað tveir jafn eðli-
legir hlutir, gagnkynhneigð eða
samkynhneigð. En þessi tvö orð eru
einmitt til þess valin og fallin að
slá ryki í augu fólks um að um sé
að ræða eitthvað tvennt sem eigi
jafnan rétt á sér. Hvenær fór myrk-
ur að hafa sama gildi og ljós og
hvenær varð lygin jafnrétthá sann-
leikanum?
I októberbyijun kom út rit sem
kallað er Skýrsla nefndar um mál-
efni samkynhneigðra. Skýrsla þessi
er til orðin vegna þess að Davíð
Oddsson forsætisráðherra skipaði
nefnd til þess arna fyrir liðlega
hálfu öðru ári í frámhaldi af álykt-
un Alþingis frá árinu áður, um að
ríkisstjórnin láti kanna stöðu kyn-
villinga á íslandi, sem Alþingi kall-
ar samkynhneigt fólk. í skipunar-
bréfum forsætisráðherra til nefnd-
armanna fullyrðir hann að kynvill-
ingar séu beittir misrétti sem þurfí
að hverfa. En ein af tillögum nefnd-
ar þessarar er að fræðsla um kyn-
villu verði felld inn í námskrá í
grunnskóla.
Árið 1000 samþykkti Alþingi
íslendinga að fylgja kristinni trú.
Og það höfum við Islendingar gert
síðan og þó einkum pólitískt og
siðferðilega. Eigum við ekki að
halda það hátíðlegt árið 2000? En
hvað er að gerast? Það er engu lík-
ara en að Alþingi og ríkisstjórn sé
að undirbúa yfirtöku einhverslags
heiðindóms með nefndri skýrslu.
Fleira bendir til þess. Vonandi er
ekki í bígerð að bjóða heiðnum, í
stað kristnum, erlendum trúarleið-
togum til Alþingis árið 2000 til
þess að vera þar með trúarathöfn
til þess að leggja niður kristinn sið
í þessu landi.
Hvað heldur Alþingi að Gerald
O. Barney sé raunverulega að
leggja til? Það er engu líkara en
að leiðtogar þjóðarinnar haldi sig
sýna landsmönnum hve víðsýnir og
upplýstir þeir eru með því að hafna
1000 ára gömlum grundvelli sem
þó hefur staðið undir stjórnarskrá
landsins og löggjöf frá fyrstu tíð
og margfaldlega blessað bæði land
og þjóð. Við verðum að leiða leið-
toga okkar út úr þessari villu eða
fá skjótt aðra leiðtoga I staðinn sem
eru upplýstir um kristið siðgæði
og siðferði.
„Eigi skalt þú leggjast með karl-
manni sem kona væri. Það er viður-
styggð." Þannig talar Guð í þriðju
Mósebók. Þetta endurtekur Biblían
aftur og aftur. Guð eyddi Sódómu
vegna þess að nær allir íbúar henn-
ar syndguðu gegn honum með kyn-
villu. Nei, Reykjavík skal ekki verða
sem Sódóma og Akureyri ekki far-
ast eins og Gómorra.
Á íslandi hafa allir jafnan rétt
til að kvænast og giftast. En hjóna-
band er alls ekki til nema milli
karls og konu. Allt annað er afsk-
ræming á sköpunarverki Guðs og
áætlun hans með manninn. Engin
þjóð eða þjóðstjóm sem vill vera
blessuð af Guði getur gefíð karli
og karli löggildingu til sambúðar,
sem um hjón væri að ræða. Við
skulum afstýra því að Alþingi setji
lög sem leiðir til ógæfu fyrir land
og þjóð og við skulum koma í veg
fyrir að kynvilla eða annað siðleysi
verði upphafið á meðal okkar, þá
getum við sungið þjóðsönginn okk-
ar áfram kinnroðalaust.
GUÐMUNDUR ÖRN RAGNARSSON
prestur, Brávallagötu 10, Reykjavík.
Heilræði
Látið aldrei barnið
sulla í heitu vatni.
Hitaveituvatn get-
ur skaðbrennt lítið
bam.
Allt efni sem birtist i Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt f
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskiiur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.