Morgunblaðið - 17.12.1994, Qupperneq 60
MICROSOFT. einarj.
WINDOWS. SKÚLASONHF
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SlMI 691100, SÍMBRÉF 691181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: IIAFNARSTRÆTI 86
LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Fimm slösuðust í hörðum árekstri tveggja fólksbíla á V esturlands vegi
Tvær
stúlkur í
lífshættu
FIMM slösuðust og tvær stúlkur eru
þungt haldnar eftir harðan árekstur
tveggja bíla við Skálatún í Mos-
fellsbæ um kl. 22.30 í gærkvöldi.
Fólksbíll á leið til Reykjavíkur
snerist á hálum veginum og rann í
veg fyrir Lada-bíl á norðurleið.Þrjár
stúlkur voru í fólksbílnum og köstuð-
ust tvær þeirra út en ökumaðurinn
sat klemmdur í flakinu. Tvær stúlkn-
anna voru taldar mjög þungt haldnar
og a.m.k. önnur þeirra, sem kastast
hafði 20 metra út fyrir veg, var
meðvitundarlaus og talin í lífshættu.
Hjón voru í Lada-bílnum ogslösuð-
ust þau en gengu í sjúkrabíla sem
fluttu þau til rannsóknar á slysadeild.
BILL stúlknanna þriggja er gjörónýtur eftir áreksturinn við Skálatún í Mosfellsbæ í gærkvöldi.
Atlantsálhópnum settur lokafrestur til að svara eftir helgi
Rætt við þýska álframleið-
endur um stækkun IS AL
Hugmyndir eru uppi um þriðjungs
stækkun álversins í Straumsvík
UNDANFARIÐ hafa farið fram viðræður á milli hluta íslensku álvið-
ræðunefndarinnar, formanns stjórnar Landsvirkjunar og forstöðu-
manns Markaðssviðs Landsvirkjunar annars vegar og þýsks álframleið-
anda, Vereinte Aluminium Werke, hins vegar, um möguleikann á því
að tiltölulega ný álverksmiðja í eigu fyrirtækisins, sem hefur verið
lokuð um hríð, verði flutt til Islands, og reist á svæði ÍSAL í Straums-
vík. Það þýddi allt að 40 þúsund tonna aukningu á ársframleiðslu í
Straumsvík, annaðhvort í samvinnu við ÍSAL, eða sjálfstætt.
Morgunblaðið hefur upplýsingar
um, að til greina kemur, að stækk-
unin í Straumsvík verði í samvinnu
við ÍSAL og Alusuisse, þannig að
um blandað eignarhald verði að
ræða, eða að Vereinte Aluminium
Werke ætti eitt stækkunina. Báðir
möguleikar eru til skoðunar og hef-
ur ekki verið gert upp á milli þeirra,
skv. upplýsingum Morgunblaðsins.
Báðir kostir álitlegir
Litið er á hvorn kostinn sem er,
sem mjög álitlegan. Þetta hefði í
för með sér mun betri nýtingu á
svæði ÍSAL í Straumsvík, auknar
tekjur fyrir Landsvirkjun, aukna
atvinnu á svæðinu og auknar tekjur
fyrir ríkissjóð.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins, telja stjórnendur iðnað-
arráðuneytisins og Lantjsvirkjunar,
að þeir aðilar sem mynda Atlantsál-
hópinn, þ.e. Alumax, Hoogovens og
Gránges, hafi dregið úr hömlu að
gera upp hug sinn, um hvort ráðist
verði í framkvæmdir á Keilisnesi.
Því verður þeim settur lokafrestur
á fundi íslensku álviðræðunefndar-
innar með fulltrúum þeirra, í Amst-
erdam í Hollandi, næstkomandi
þriðjudag. Lokafresturinn sem
veittur verður, verður ekki nema
til nokkurra vikna, samkvæmt upp-
Iýsingum Morgunblaðsins.
Sá sem fyrstur er
tilbúinn fær afslátt
Viðhorf íslenskra stjórnvalda er,
að hægt sé að bjóða þeim sem fyrst-
ur er tilbúinn til að kaupa ónýtta
’raforku, hagstætt raforkuverð, í
ákveðinn aðlögunartíma. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins er þá verið að ræða um afslátt
frá 20 mills kwh, í ákveðinn tíma.
Gefam þeim í gogginn
NÚ þegar jólin nálgast og mann-
fólkið hugar að gjöfum og kræs-
ingum er ekki úr vegi að hugsa
líka til smáfuglanna.
Fuglarnir fúlsa ekki við brauð-
mylsnu, en þeir sem vilja hafa
meira við geta leitað til matvöru-
verslana, sem flestar selja fugla-
korn. Tvö fyrirtæki framleiða
fuglakorn, Kornax, sem selur
ómalað hveitikorn ,og Katla, sem
selur kurlaðan maís. Framleið-
endurnir tveir láta Sólskríkju-
sjóðinn njóta góðs af hluta sölu-
verðsins, en sjóðurinn sendir
m.a. fuglakorn til barnaskóla úti
á landi einkum, þar sem snjó-
þyngst er.
Tillaga um arðgreiðslur veitustofnana lögð fram
Afgjaldið mun
í FJÁRHAGSÁÆTLUNUM veitu-
stofnana Reykjavíkurborgar, sem
lagðar verða fyrir borgarráð í dag,
er gert ráð fyrir hækkun afgjalds,
sem veiturnar greiða til borgarinn-
ar.
Afgjald er hlutfall af heildarút-
gjöldum - þ.e. nokkurs konar að-
stöðugjald - veitustofnana Reykja-
víkurborgar, Hitaveitu, Rafmagns-
veitu og Vatnsveitu, og greiðist til
Reykjavíkurborgar, sem er eigandi
fyrirtækjanna.
Aðalsteinn Guðjohnsen raf-
magnsveitustjóri staðfesti í samtali
við Morgunblaðið í gær að gert
væri ráð fyrir hækkun afgjalds í
fjárhagsáætlun Rafmagnsveitunn-
ar en vildi að öðru leyti ekki tjá sig
um málið. Það vildi Alfreð Þor-
hækka
steinsson, formaður stjórnar veitu-
stofnana Reykjavíkurborgar, ekki
heldur þar sem borgarráð hefði enn
ekki ijallað um málið.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er gert ráð fyrir verulegri
hækkun gjaldsins sem muni þegar
fram í sækir óhjákvæmilega leiða
til hækkunar á gjaldskrám fyrir-
tælq'anna.
Lagt til að
Fiskveiða-
sjóður verði
hlutafélag
NEFND sem unnið hefur að endur-
skoðun laga um Fiskveiðasjóð ís-
lands kynnti Þorsteini Pálssyni,
sjávarútvegsráðherra, þær hug-
myndir sínar á fundi í gær, að
leggja til í frumvarpsformi, fyrir
áramót, að Fiskveiðasjóði verði
breytt í hlutafélag.
Birgir Isleifur Gunnarsson, seðla-
bankastjóri, er formaður nefndar-
innar, en aðrir nefndarmenn eru
Björgvin Vilmundarson, bankastjóri
Landsbankans, og Kristján Ragn-
arsson, formaður LÍÚ.
Þorsteinn fylgjandi
„Mér líst vel á þessa hugmynd,"
sagði sjávarútvegsráðherra. Hann
var spurður hvernig slík breyting
væri hugsuð, ef af yrði: „Eitt er
nú að breyta sjóðnum í hlutafélag
og annað að taka ákvörðun um
að selja hlutabréfin á markaði,"
sagði Þorsteinn.
Ráðherra sagði að breyting sem
þessi yrði að gerast með býsna
góðum aðdraganda. Ræða þyrfti
við alla lánveitendur Fiskveiða-
sjóðs áður en slík ákvörðun væri
tekin og undirbúa málið mjög
vandlega.
Aðspurður hvort hann teldi að
frumvarp sem þetta gæti orðið að
lögum á þessu þingi, svaraði sjávar-
útvegsráðherra: „Það er nú stutt
eftir af þessu þingi, þannig að ég
er ekki endilega viss um það. Þarna
er líka verið að tala um, að víkka
starfssvið sjóðsins, sem í dag er
mjög þröngt. Gera starfsreglurnar
almennari og meira í samræmi við
það sem almennt gerist í lánastofn-
unum.“
------» ♦ ♦----
Afnám tvísköttunar
Tekjutap
250 millj-
ónir í stað
2 milljarða
TILLÖGUR ríkisstjórnarinnar um
afnám tvísköttunar lífeyris þýða
að ríkissjóður missir 250 milljón
króna skatttekjur á þessu ári.
Hefði verið valin sú leið að heim-
ila fólki að draga lífeyrissjóðs-
greiðslur frá tekjum hefi ríkissjóð-
ur tapað 1,8 til 2 milljarða tekj-
um.
Tekjutapið eykst ár frá ári
Ríkisstjórnin vill undanþiggja
hluta eftirlauna fólks 70 ára og
eldra frá skatti. Flestar aðrar vest-
rænar þjóðir koma í veg fyrir tvís-
köttun með því að heimila fólki
að draga lífeyrissjóðsiðgjöld frá
tekjum á skattframtali. Það myndi
kosta ríkissjóð 1,8 til 2 milljarða.
ASI bendir á að hægt væri að
gera það í áföngum. Tekjutap rík-
issjóðs með þeirri aðferð ríkis-
stjórnarinnar eykst ár frá ári þar
til tekjutapið verður það sama og
í hinni leiðinni.
■ Afnema ekki/30-31