Morgunblaðið - 22.01.1995, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.01.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JANÚAR1995 B 5 í fremstu röð Eftir að hafa heyrt Philip Catharin í tríói Niels-Hennings í Há- skólabíói í apríl 1978 var engin leið til baka fyrir Bjöm Thoroddsen gítarleikara. Þá flaug honum ekki í hug, segir hann í samtali við Vern- harð Linnet, að rúmum sextán ámm síðar myndi hann sjálfur standa á sviði með Ni- els-Henning. BJÖRN Thoroddsen er einn af bestu gítarleikurum sem ísland hefur alið og síðasta hálfa annan ára- tug hefur hann verið í hópi al- fremstu djassleikara lándsins. Hann hóf feril sinn í rokkinu, en djassinn heillaði og eftir að hafa heyrt Philip Catharin í tríói Niels-Hennings í Háskólabíói í apríl 1978 var engin leið til baka. Þá flaug Birni ekki í hug, að rúmum sextán árum síðar myndi hann sjálfur standa á sviði með Niels-Henning. Það varð hinn 1. desember síðatliðinn, er djasstón- leikar voru haldnir í Perlunni til styrktar byggingu tónlistarhúss; þar lék Björn dúett með Niels- Henning. En hvernig ætli Birni hafi liðið það kvöld? „Þetta var dálítið ógnvekjandi en rosalega gaman. Mér leið vel á svið- inu eftir fyrsta lagið, því Niels hef- ur spilað með svo mörgum og á einstaklega auðvelt með að aðlag- ast samleikara sínum á svipstundu. Niels kom hingað til að leika á þessum tónleikum og í kvikmynd sem Hrafn Gunnlaugsson er að gera um Bellman fyrir norrænu sjónvarpsstöðvarnar. Egill Ólafsson söng 23. pistil Fredmans eftir Bell- man: „Anza mér móðir, hví æddir þú forðum/ upp í til bónda þíns?“ Niels sló bassann og ég fékk að vera með á gítar. Eftir upptökuna í Stúdíó Sýrlandi sem lauk um miðj- an dag kom til tals að ég léki með Niles á tónleikunum í Perlunni um kvöldið. Niels leist vel á það og ég spurði hvort við ættum þá ekki að æfa nokkur lög. „Nei,“ svaraði Ni- els. „Við leikum bara einhver klass- ■ ■ ísk djasslög." Ég vildi þá fá að vita hvaða lög það yrðu en Niels svar- aði fáu: „Við spilum bara eitthvað,“ sagði hann, enda kann hann alla djassbókina utanað. Þetta varð mér mikið áhyggjuefni, olli miklum heilabrotum og spennu, því ég kann ekki öll lög í heiminum. Við vorum síðastir á dagskrá á Perlutónleikunum og spennan jókst eftir því sem klukkan tifaði. Þegar fór að nálgast uppákomuna fór ég að reyna að pumpa hann og síðan að stinga uppá einhveijum lögum. Hann svaraði bara eins og ekta Dani: „Ja, ja,“ og samþykkti allt. Þá fór ég að róast og svo stigum við á stokk og ég reiknaði með eins og ég er vanur að annar hvor teldi inní lagið. „Jeg begynder,“ sagði Niels og byijaði að spila. Ég vissi ekkert hvað hann var að leika, skildi ekki neitt í neinu þangað til allt í einu að ég heyri örla fyrir laglínu - og hana kunni ég sem betur fer: Au privave Charlie Parkers. Þá vissi ég hvað ég ætti að gera og þá var björninn unninn. Niels fór með mig eins og gert var við litlu börnin í gamla daga, henti mér út í sund- laugina og annaðhvort varð ég að í PERLUNNI með Niels Henning. synda eða drukkna. Þetta var mikil reynsla og erfiðasta verkefnið sem sem ég hef lent í sem hljóðfæraleik- ari.“ Hinn 18. janúar síðastliðinn lék Björn með bandaríska gítarleikar- anum Doug Raney á Kringlukránni og daginn eftir í Menningarstofnun Bandaríkjanna. Doug hefur oft leik- ið með Niels-Henning og komið hingað til lands í tvígang, en var þetta í fyrsta sinn sem þeir Björn iéku_ saman? „Ég hlustaði ekki á Doug þegar hann kom hingað með Horace Parl- an í febrúar 1978. Fór fyrst á djass- tónleika tveimur mánuðum síðar þegar Niels-Henning tríóið kom. En fyrir allmörgum árum hitti ég Doug í Kaupmannahöfn og bað hann um að kenna mér eilítið og fór tvisvar sinnum til hans í tíma. Nokkrum árum seinna, þegar hann lék á RúRek djasshátíðinni, kom hann á Kringlukrána þar sem ég var að spila og var með gítarinn með sér. Við spiluðum nokkur lög saman og það fór vel á með okkur. Það stendur til að gefa út djassgít- ardisk þar sem ég býð til mín gest- um og upp kom sú hugmynd að Morgunblaðið/Olat'ur Þórðarson Doug yrði gestur á þessum diski og þess vegna kom hann hingað og lék með mér, Tómasi Einarssyni bassaleikara og Einari Vali Schev- ing trommara." Björn Thoroddsen hefur leikið inn á .ijölda • diska, bæði undir eigin nafni og með Gömmunum, Kuran Swing og fleirum og heyra má hann á minningardiskum Guðmundar Ingólfsson, enda var Björn einn af þeim ungu djassleikurum sem námu í djassháskóla Guðmundar. „Ég byijaði að spila með Guð- mundi Ingólfssyni árið 1980 í Stúd- entakjallaranum og ég lék með honum meira og minna þar til á síðasta konserti lians á Egilsstöðum í júní 1991. Fráfall hans var mikill missir fyrir íslenskt djasslíf og auk þess að vera kennari minn í gegnum árin - bæði í veraldlegum málum sem tónlist - var hann góður vinur minn.“ Björn hefur alla tíð verið fyrir- ferðarmikill í íslensku tónlistarlífi og jafnan haft mörg járn i eldinum. Hvað ætli hann sé helst að fást við núna? „Ég er með djasshljómsveit sem leikur hér og þar; leik með borgar- listamanninum Símoni Kuran og félögum í Kuran Swing. Ég er að undirbúa söngskemmtun með Ríó tríóinu; leik að staðaldri með Agli Ólafssyni og hljómsveit og síðan rek ég tónlistarskóla ásamt Stefáni S. Stefánssyni og Gunnari Hrafnssyni og kenni fulla kennslu við Tónlistar- skóla FÍH.“ Tríó Bjössa Thor ásamt ýmsum gestaleikurum má oftast heyra á Kringlukránni, en þar hóf Guð- mundur Ingólfsson að leika djass á miðvikudagskvöldum fyrir mörgum árum. Eftir að Guðmundur dó hefur Björn séð um miðvikudagsdjassinn, þó hann leiki þar ekki alltaf sjálf- ur. Þetta er eini fasti djasspunktur- inn í bæjarlífinu - aðrir staðir hafa byijað á djasskvöldum en hætt. Sig- þór á Kringlukránni er öðrum ólíkur og hefur aldrei gefist upp. En er ekki eitthvað framundan hjá tríói Bjössa Thor annað en að spila upp- úr djassbókinni? „Við félagarnir, Giinnar Hrafns- son bassaleikari og Ásgeir Óskars- son trommari, erum að æfa með Agli Ólafssyni ný verk eftir mig og Egil, auk nýrra útsetninga á eldra efni m.a. frá Þursaflokknum. Þetta verður frumflutt á Háskólatónleik- um í Norræna húsinu 15. febrúar." Þá vaknar sú spurning hvernig Björn Thoroddsen fari að því að anna þessu öllu. „Með löngum vinnudegi alla daga vikunnar - en að sjálfsögðu gefst ekki mikill tími til að semja. Þetta kemur niður á tónsköpun minni. Ég hef lengi gengið með hugmynd að tónverki í kollinum og ég ætla mér að stofna samnorræna djass- hljómsveit til að flytja þetta verk á tónleikum hér heima, hljóðrita það síðan og halda svo í tónleikaferð um Norðurlönd - en þessi hugmynd verður ekki að veruleika nema ég hljóti einhver starfslaun eða styrki til að helga mig verkefninu algjör- lega um hríð.“ - En fyrst þú vinnur svona mik- ið hefurðu þá ekki komið þér upp varasjóði til að taka þér ársfrí? „Þó að vinnutíminn sé þetta lang- ur og mikið unnið eru tekjur þeirra sem vinna við tónlist það lágar að þær nægja rétt til að framfleyta fjölskyldunni.“ - En hefurðu ekki fengið styrki eða listamannalaun? Búinn að vera í fremstu röð íslenskra djassleikara í 15 ár? „Nei, ég hef aldrei fengið starfs- laun né styrki vegna listgreinar minnar," svarar Björn að bragði. Ótrúlegt en satt. Það er kominn tími til að Björn Thoroddsen hljóti náð fyrir augum og eyrum þeirra er úthluta starfslaunum til lista- manna í þessu landi. Hann hefur sannað og sýnt að hann er í hópi fremstu tónlistarmanna okkar og það mun launa sig margfalt fyrir íslenskt listalíf að hann geti helgað sig tónsköpun óskiptur um tíma. Kennsla er göfugt starf en lýjandi og ekki verður fjölskyldan send á vergang - helst vildi ég, eins og flestir íslenskir djassunnendur, að Bjössi Thor gerði ekkert annað en að spila og skrifa djassmúsík. Sony gerir tilboð í Wembley Haítí Skammt í brottför Bandaríkjahers Washing^on. The Daily Telegraph. BÚIST er við því að um 6.000 manna lið Sameinuðu þjóðanna (SÞ) muni taka yfir öryggisgæslu á Haítí síðari hluta marsmánaðar. Senn líður því að brottför Banda- ríkjahers eftir fjögurra mánaða her- setu. Warren Christopher, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagðist búast við því að SÞ tækju við gæslu á Haítí síðari hluta mars. Banda- ríkjamaður mun fara með stjórn gæsluliðs SÞ. Talið er að val á bandaríska her- foringjanum muni valda deilum á Bandaríkjaþingi, þar sem repúblik- anar ráða nú ríkjum. Þeir hafa ver- ið andvígir hernaðarafskiptum Bandaríkjamanna á Haítí og vilja helst að herinn verði kallaður heim sem fyrst til að binda endi á herför sem hefur kostað 765 milljónir dala frá því í október 1993. Þá er þess að vænta að ekki verði allir sáttir við tímasetningu á brott- för Bandaríkjamanna, þar sem glæpaalda hefur riðið yfir Haítí að undanförnu. Bandarískur hermaður var skotinn fyrir skömmu og var þar að verki fyrrum yfirmaður í einkaher Jean-Claude Duvaliers, „Baby Doc“, fyrrum einræðisherra á Haítí. SONY og Viacom, tvö af stærstu útgáfufyrirtækjum heims á sviði tónlistar og sjónvarpsefnis, hafa gert tilboð í Wembley-leikvanginn í norðurhluta London. Sony rekur nú þegar Milton Keynes-leikvang- inn í Bandaríkjunum í samvinnu við Pace Entertainment, sem einnig stendur að baki tilboðinu í Wembl- ey. Tilboðið hljóðar upp á 6 milljón- ir punda, um 6 milljarða ísl. kr. Það er eitt af þremur sem borist hefur í Wembley og var sett fram fyrir átta mánuðum. Því hefur hingað til verið hafnað þar sem stjórnarfor- maður Wembley hefur reynt allt sem í hans valdi hefur staðið til að halda leikvanginum. Það hefur ekki tekist og því verður að nýju að fjalla um tilboð Sony og Viacom. Sá kann ei gott að þiggja sem ei þakkar. Jón E. GuÖmundsson, listamaður, þakkar öll- um þeim, sem gerðu honum 80 ára afmœlisdag- inn ógleymanlegan. Hugheilar kveÖjur. Jón E. Guðmundsson. -FJÖLSKYLDUDAGAR í CARUSO^ Sunnudags-, þriðjudags- og miðvikudagskvöld Pizzu- og pastahiaðborð kr. 790,- RESTAURANT Bankastræti, sími 627335

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.