Morgunblaðið - 22.01.1995, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
u. oq flrioínrjyiriP ÍT í)l
SUNNUDAGUR 22. JANÚAR1995 B 17
ATVMMW.At'GIYS^/G.AP
Veitingastjóri
óskast til starfa í Súlnasal Hótel Sögu.
Óskað er eftir reyndum framreiðslumanni,
sem hefur góða faglega þekkingu og reynslu
af stjórnun.
Nánari upplýsingar gefur starfsmannastjóri.
Umsóknir sendist til Hótel Sögu fyrir 4. febr-
úar nk.
Yfirvélstjóri
óskast á togskip frá Vestmannaeyjum.
Vélarstærð 1765 kw.
Upplýsingar í síma 98-13400.
Vinnslustöðin hf.
Fasteignasala
Umsvifamikil fasteignasala óskar að ráða
kröftugan og drífandi sölumann. Góð starfs-
aðstaða og líflegur starfsandi.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
sendist afgreiðslu Morgunblaðsins merkt:
„Sjálfstæður - 16104“ fyrir 26. janúar.
Farið verður með allar umsóknir
sem trúnaðarmál.
Akureyrarbær -
skipulagsdeild
Laus eru til umsóknar eftirtalin störf á Skipu-
lagsdeild Akureyrarbæjar:
1. Föst staða arkitekts eða skipu-
lagsfræðings
í starfinu felst m.a. vinna við hvers kyns
verkefni á sviði bæjarskipulags s.s. aðal-
skipulag, deiliskipulag og önnur hönnunar-
verkefni. Einnig felst í starfinu undirbúningur
og úrvinnsla afgreiðslumála og erinda sem
berast skipulagsnefnd. Tölvuvæðing er kom-
in áleiðis og ér stefnt að tölvuvinnslu upp-
drátta og annarra skipulagsgagna.
Umsækjandi þarf að hafa háskólamenntun í
byggingalist og/eða skipulagsfræðum (skipu-
lag bæja), hafa staðgóða þekkingu á bygg-
ingar- og skipulagsmálum og starfsreynslu
á því sviði.
Umsækjandi þarf að geta unnið sjálfstætt
og jafnframt eiga auðvelt með samvinnu á
breiðum grunni. Lögð verður áhersla á áhuga
á bæjarskipulagi og byggingarlist. Hann þarf
að eiga auðvelt með að tjá sig munnlega,
skriflega og með teikningum. Tölvukunnátta
og færni æskileg.
2. Afleysingastarf vegna fæðingar-
orlofs og sumarleyfa
Um er að ræða tímabundna ráðningu frá
feb./mars til sept./okt. 1995 eða eftir nánara
samkomulagi. Óskað er eftir umsækjanda
með háskólamenntun á sviði byggingar- og
skipulagsmála eða aðra viðeigandi menntun
og starfsreynslu. í starfinu felast hvers kyns
skipulags-, hönnunar- og skrifstofustörf á
verksviði deildarinnar. Áhugi og einhver inn-
sýn í verksvið deildarinnar er nauðsynleg.
Umsækjandi þarf að eiga auðvelt með að tjá
sig munnlega og skriflega, vera samvinnulip-
ur og sjálfstæður í vinnubrögðum. Tölvu-
kunnátta æskileg:
Upplýsingar um störfin gefa skipulagsstjóri
og starfsmannastjóri í síma 96-21000.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild
Akureyrarbæjar í Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til 31. janúar nk.
Starfsmannasstjóri.
Lögfræðingur
Lögfræðingur, sem lauk prófi sl. haust og
hyggur á frekara nám erlendis, í Evrópu-
rétti, næsta vetur, leitar eftir tímabundnu
starfi. Meðal kosta eru dugnaður, sjálfstæði
og samviskusemi. Getur hafið störf nú þegar.
Nánari upplýsingar í síma 686273.
Leikskólar Hafnarfjarðar
Leikskólastjóri
óskast í leikskólann Álfaberg, sem er tveggja
deilda leikskóli. Staðan veitist frá 15. mars.
Umsóknum skal skilað á skólaskrifstofu
Hafnarfjarðar, Strandgötu 4, fyrir 15. febrúar
nk. á umsóknareyðublöðum sem þar fást.
Einnig eru lausar stöður leikskólakennara.
Nánari upplýsingar veitir leikskólafulltrúi í
síma 53444.
Fiskiðnaðarmaður
frá Fiskvinnsluskólanum í Hafnarfirði óskar
eftir góðu framtíðarstarfi.
Áhugasamir vinsamlega sendið nafn og
símanúmer til afgreiðslu Mbl. fyrir 27. janúar,
merkt: „F - 15757“.
FJÓROUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
A AKUREYRI
Hjúkrunarfræðingar
- Ijósmæður
Lausar eru til umsóknar stöður á:
Lyflækningadeild,
Öldrunardeild,
Fæðingardeild.
Einnig óskum við eftir hjúkrunarfræðingum
og Ijósmæðrum til sumarafleysinga.
Upplýsingar veitir Þóra Ákadóttir, starfs-
mannastjóri, hjúkrunar, í síma 30273.
MÖTUNEYTI
FYRIRTÆKBÐ er virt þjónustufyrirtæki í
Reykjavík.
STARFIÐ felst í framreiðslu aðkeyptra
veitinga, tiltekt og frágangi í mötuneyti.
Vinnutími er frá kl. 09.00-14.30 alla virka
daga.
HÆFNISKRÖFUR eru að umsækjendur
hafi reynslu af sambærilegum störfum, séu
snyrtilegir, reglusamir og þægilegir í fram-
komu. Æskilegur aldur er 30-55 ár.
UMSÓKNARFRESTUR er til og með
25. janúar nk. Ráðið verður frá 1. febrúar
nk. Því er brýnt að umsækjendur skili um-
sóknum innan ofangreinds tíma.
Umsóknareyðublöð eru fyrirliggj-
andi á skrifstofunni, sem opin er
frá kl. 10-16, en viðtalstímar eru frá
kl. 10-14.
Starfsráðningar hf
Suðurlandsbraut 30 ■ 5. hceð ■ 108 Reykjavík
, Sími: 588 3031 ■ Fax: 588 3010
RA
Guðný Harbardóttir
Félagsráðgjafi
óskast
Félagsmálaráð Vestmannaeyjabæjar óskar
eftir félagsráðgjafa til starfa í eitt ár frá
1. marz 1995. Starfið er fjölbreytt og krefjandi
og nær til flestra þátta félagslegrar þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Hera Einarsdóttir,
félagsmálastjóri, í síma 98-12816.
Félagsmálastjóri.
Sölumaður
Söluskrifstofa KEA leitar eftir sölumanni
til starfa.
Á söluskrifstofu KEA fer fram sala á fram-
leiðsluvörum KEA í matvælaiðnaði, en einnig
er um hreinlætis- og máiningarvörur að
ræða.
Sérstök áhersla verður lögð á að sölumaður
taki þátt í reglulegum söluferðum og heim-
sóknum til viðskiptavina Söluskrifstofunnar.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Æskilegt er að viðkomandi hafi góða undir-
stöðumenntun, skipulagshæfni og eigi gott
með samskipti. Reynsla af sölumennsku er
æskileg.
Upplýsingar veitir Páll ÞórÁrmann, fórstöðu-
maður markaðs- og sölusviðs,
í síma 96-30300.
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi 24. janúar
1995 til Kaupfélags Eyfirðinga, starfsmanna-
stjóra, Hafnarstræti 91-95, 600 Akureyri.
ORACLE
hugbúnaður
Traust fyrirtæki með aukin umsvif í þjónustu
og verkefnum á sviði Oracle hugbúnaðar
leitar að starfskrafti til framtíðarstarfa.
Starfið felst einkum í þjónustu við kröfu-
harða notendur, sem og fjölbreyttum og
krefjandi verkefnum sem tengjast Oracle
hugbúnaði.
Hæfniskröfur
★ Reynsla af Oracle hugbúnaði eða sam-
bærilegum hugbúnaði, æskileg.
★ Reynsla af DBA (Database Administration)
mikilvæg, en ekki skilyrði.
★ Reynsla af hugbúnaðargerð með Oracle
hugbúnaði eða sambærilegum hugbún-
aði æskileg, en ekki skilyrði.
★ Reynsla af einu eða fleirum eftirfarandi stýri-
kerfum; DOS/Windows, UNIX, Netware,
NT og Open VMS.
★ Metnaður í starfi, sem og sjálfstæð vinnu-
brögð skilyrði.
★ Háskólamenntun ekki skilyrði, en afar
æskileg.
★ Tungumálakunnátta í ensku og dönsku.
★ Æskilegur aldur 26-39 ára.
í boði er áhugavert starf fyrir réttan aðila
með mikla möguleika á allan hátt.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon í
síma 616688.
Lögð er áhersla á 100% trúnað vegna
umsókna og fyrirspurna.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs merktar: „Oracle - tækifæri" fyrir
28. janúar nk.
RÁÐGARÐUR hf.
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17105 REYKJAVÍK SÍMI616688