Morgunblaðið - 19.02.1995, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C
42. TBL. 83. ARG.
SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1995
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Jógaflug á
herflugvelli
FYRRVERANDI herflug-völlur banda-
ríska hersins í Suffolk í Bretlandi verð-
ur brátt notaður til annars konar flugs,
því jógar hafa keypt hann til að geta
stundað flugæfingar sínar og íhuganir.
Maharishi-stofnunin hyggst koma þar
á fót háskóla náttúrulögmálsins og
búist er við að þúsundir jóga stundi
þar nám. Dr. Geoffrey Clements, að-
stoðarrektor skólans, sagði að flug og
íhuganir svo margra jóga ætti að draga
úr glæpum og sjúkdómum; tvö þúsund
manns nægðu til að fækka glæpum um
allt Bretland, en 7.000 ættu að hafa
áhrif út um allan heim.
Óaðskiljan-
legir feðgar
FAHD, konungur Saudi-Arabíu, hefur
skipað yngsta hirðráðgjafann i sögu
landsins - son sinn Abdelaziz prins.
Sonurinn er 22 ára og hermt er að
hann víki aldrei frá föður sínum. Þessu
fékk Qaboos soldán af Óman að kynn-
ast þegar hann heimsótti Fahd nýlega
og óskaði eftir því að fá að tala við
hann einslega. Soldáninum til mikillar
armæðu var prinsinn kyrr í salnum og
ómanski þjóðhöfðinginn varð að fara
án þess að geta borið upp erindið.
Soldáninn lét rannsaka málið og
hermt er að hann hafi fengið þær upp-
lýsingar að spámaður hafi greint Fahd
konungi frá því að þegar engill dauð-
ans kæmi að vitja hans í konungsgarði
yrði yngsti sonur hans ekki við hlið
hans. Fahd konungur fyrirskipaði því
prinsinum að vikja aldrei frá honum
meðan hann væri í höllinni.
Bankarán með
hjálp leigubíla
BANKARÆNINGJAR í Berkeley í Kali-
forníu nota nú í æ ríkari mæli þjónustu
leigubíla til að flýja eftir að hafa rænt
bankana. Á einum mánuði voru framin
sex bankarán þar sem ræningjarnir
stukku upp í Ieigubíla og brunuðu í
burtu með ránsfenginn. Einn ræningj-
anna var þó óheppinn, því leigubílstjór-
inn hans skrapp á skyndibitastað með-
an farþeginn rændi banka. Ræninginn
varð því að bíða eftir bílstjóranum í
bílnum og starfsmaður bankans sá
hann. Lögreglunni tókst að finna bíl-
stjórann og náði ræningjanum.
Lögreglan segir að oft sé erfítt að
hafa uppi á leigubílum sem bankaræn-
ingjarnir nota og þegar það takist sé
sjaldgæft að bílstjórarnir geti lýst þeim.
Konudeginum fagnað
Morgunblaðið/RAX
Tilskipun frá Jeltsín Rússlandsforseta
Skjöl um kjama-
vopn verði birt
Markmið forsetans er að afhjúpa sögu
fyrstu kjarnavopna Sovétríkjanna
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
fyrirskipaði í gær að leynileg skjöl
um sögu fyrstu kjarnavopna Sovét-
ríkjanna yrðu birt, að sögn frétta-
fulltrúa hans.
í yfirlýsingu frá fréttafulltrúan-
um sagði að Jeltsín hefði gefið út
forsetatilskipun þess efnis að skjöl
um kjarnavopnin, allt til ársins
1954, yrðu tekin saman og undirbú-
in til birtingar. Ekki kom fram hvenær
skjölin yrðu gefin út.
„Tilskipuninni... er ætlað að skapa nýja
og hlutlæga mynd af upphafi kjarnorkuiðn-
aðar landsins og sögu fyrstu kjarnavopn-
anna í Sovétríkjunum,“ sagði í yfirlýsing-
unni.
Borís
Sovétmenn sprengdu fyrstu
kjarnorkusprengju sína í tilrauna-
skyni árið 1949, fjórum árum eftir
að Bandaríkjamenn vörpuðu kjarn-
orkusprengju á Hiroshima. Sovét-
menn urðu hins vegar fyrstir til að
prófa vetnissprengju árið 1953.
Deilt um tilurð vopnanna
Jeitsín Rússneskir fjölmiðlar og sagn-
fræðingar hafa deilt um hvort Sovétríkin
hafi þróað kjarnavopn sín upp á eigin spýt-
ur eða komist yfir upplýsingar um tæknina
frá Bandaríkjunum.
Ekki kom fram í yfirlýsingunni hvort öll
skjöl sem tengjast sögu kjarnavopnanna
yrðu birt eða aðeins hluti þeirra.
Minnisbæk-
ur Whitmans
fundnar
New York. Reuter.
FJÓRAR minnisbækur bandaríska
skáldsins Walts Whitmans hafa fund-
ist eftir að hafa verið týndar frá
heimsstyrjöldinni
síðari og þær gætu
veitt fræðimönn-
um nýja innsýn í
þróun eins af
þekktustu ljóðum
heims.
Uppboðsfyrir-
tækið Sotheby,
sem komst yfir
bækurnar, segir
að í þeim séu ýms-
ar heimspekilegar
hugleiðingar
skáldsins, lýsingar
reynslu hans af hjúkrunarstörfum í
þrælastríðinu, og fyrstu drög að
þekktasta ljóði hans, Song of Myself.
Bækurnar hurfu úr bókasafni
bandaríska þingsins árið 1942 þegar
þær voru settar í kassa og fluttar á
öruggari stað þar sem talin var hætta
á að Þjóðverjar gerðu árásir á Wash-
ington. Þegar kassarnir voru opnaðir
1946 höfðu 14 minnisbækur horfið.
Walt Whitman
Whitmans á
ERU <15
GLERAUGUN
FEIG?
20
VIÐ ERUM BESTAR
VmSEOPn/AlVZNN^
KRISTUR NÆGIR MER