Morgunblaðið - 19.02.1995, Page 4
4 SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 12.2. - 18.2.
► UNGUR maður beið
bana í hörðum árekstri
fólksbíls og vörubíls við
brúna yfir Laxá í Mikla-
holtshreppi sl. þriðjudag.
Maður sem var farþegi í
fólksbilnum var fluttur
slasaður til Reykjavíkur
með þyrlu Landhelgis-
gæslunnar.
► VERÐ á járnblendi
hefur hækkað frá í nóv-
ember Gert er ráð fyrir
að hagnaður Járnblendi-
verksmiðjunnar á Grund-
artanga hafi verið um
280 milljónir króna á síð-
asta ári.
► GÓÐ loðnuveiði hefur
verið undanfarna daga
og í vikulokinn var fjöldi
báta við loðnuveiðar við
Hrollaugseyjar. Loðnu-
frysting er víða hafin og
til Granda hf. í Reykjavík
var fyrsta loðnan til
frystingar flutt á bílum
frá Þorlákshöfn.
► DEILT hefur verið um
grunnskólafrumvarp
sem menntamálaráð-
herra lagði fram á Al-
þingi í vikunni og hafa
fulltrúar stjómarand-
stöðunnar í menntamála-
nefnd lagt til að fmm-
varpinu verði vísað frá,
m.a. vegna þess að fyrir-
vömm Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga og
kennarafélaganna við
fmmvarpið hafi ekki
verið fullnægt.
4.800 kennarar í
verkfalli
VERKFALL 4.800 kennara í lang-
flestum grunn- og framhaldsskólum
landsins hófst á föstudaginn og hefur
verkfallið áhrif á skólagöngu nærri
60.000 nemenda. Verkalýðsfélögin í
Flóabandalaginu svokallaða, Dags-
brún, Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og Hlíf, hafa boðað verk-
fall sem hefst á miðnætti 28. febr-
úar. Búist var við miklum fundahöld-
um í kjaraviðræðum um helgina, en
talsverður gangur var í sérkjaravið-
ræðum landssambanda og félaga inn-
an ASÍ og vinnuveitenda á föstudags-
kvöldið, og ekki var talið útilokað að
samningar tækjust í kennaradeilunni.
Fíkniefni að virði
12,5 millj. gerð
upptæk
FÍKNIEFNALÖGREGLAN lagði
hald á fíkniefni, sem talið er að nemi
12,5 milljónum króna að söluverð-
mæti, ,í fórum þriggja 22 ára gam-
alla manna sem handteknir voru á
miðvikudaginn. Fíkniefnin voru flutt
í vörusendingu sem kom til landsins
með flutningaskipi frá Evrópu.
Vopnað rán í
söluturni
TVEIR grímuklæddir menn vopnaðir
hnífum frömdu rán og ógnuðu fimmt-
án ára gamalli afgreiðslustúlku og
kærasta hennar í sölutumi við Leiru-
bakka í Breiðholti sl. miðvikudags-
kvöld. Mennimir, sem komust undan
með um 60 þúsund krónur, vora
handteknir tveim dögum síðar, en
þeir vora báðir 18 ára gamlir.
Jeltsín boðar upp-
stokkun í hernum
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
gagnrýndi yfirstjóm hersins fyrir
slæma frammistöðu í stríðinu í
Tsjetsjníju og boðaði
uppstokkun í hem-
um í árlegri stefnu-
ræðu sinni á þinginu
á fimmtudag. Dag-
inn áður höfðu yfír-
menn rússnesku og
tsjetsjensku her-
sveitanna í
Tsjetsjníju náð sam-
komulagi um
tveggja daga vopna-
hlé. Rússar sökuðu á þriðjudag þing
Eistlands um afskipti af innanlands-
málum Rússlands með því að sam-
þykkja að viðurkenna sjálfstæði
Tsjetsjníju „eins fljótt og hægt er
þegar ástandið í alþjóðamálum gerir
það kleift“.
Tímamótasamkomu-
lag um N-Irland
BRESK og írsk stjómvöld eru að
leggja síðustu hönd á rammasam-
komulag um Norður-írland eftir
margra mánaða viðræður. Búist er
við að það verði kynnt á leiðtoga-
fundi ríkjanna innan skamms en
meginefni þess verður líklega stór-
aukinn samgangur og samvinna milli
írsku ríkjanna.
Samkomulag Rabins
og Arafats
YITZHAK Rabin, forsætisráðherra
ísraels, komst að samkomulagi á
fimmtudag við Yasser Arafat, Ieið-
toga Frelsissamtaka Palestínumanna
(PLO), um að aflétta að hluta banni
við ferðum araba til ísraels.
k- FIMMVELDIN svo-
kölluðu eru reiðubúin að
bjóða Júgóslavíu, sam-
bandsríki Serbíu og
Svartfjallalands, að af-
létt verði viðskiptabanni
á ríkið gegn því að það
taki upp stjómmála-'
tengsl við Króatíu og
Bosníu. Stjóm Serbíu gaf
til kynna að tryggja
þyrfti öryggi serbneska
minnihlutans í löndunum
áður en hún gæti viður-
.kennt sjálfstæði þeirra.
Þ- WILLY Claes, fram-
kvæmdastjóri Atlants-
hafsbandalagsins, hefur
sætt harðri gagnrýni
nokkurra NATO-ríkja
vegna ummæla hans þess
efnis að Vesturlöndum
stafaði jafn mikil ógn af
íslömskuift bókstafstrú-
armönnum og kommún-
ismanum á sínum tíma.
Ummælin eru sögð geta
skaðað áform NATO um
viðræður við Norður- ■
Afríku um öryggismál
þessa heimshluta,
^ VOLKER Riihe, varn-
armálaráðherra Þýska-
lands, hefur lagttil að
Atlantshafsbandalagið
hefji samningaviðræður
um sérstakan samning
við Rússa til að tryggja
aukið samráð í öryggis-
málum Evrópu. Hug-
myndin gæti endurspegl-
að viðhorfsbreytingu
innan NATO, sem hingað
til hefur sagt að ekki
komi til greina að
tryggja Rússum sér-
stöðu.
FRÉTTIR
Engar hjartaaðgerðir á börnum á Landspítala á þessu ári
Stofnkostnaður myndi
sparast á tveimur árum
TIL AÐ mæta niðurskurði á fjár-
framlögum til hjartaaðgerða á
Landspítala hefur verið ákveðið að
engar hjartaaðgerðir verða gerðar á
bömum á spítalanum á þessu ári.
Að sögn Ásgeirs Haraldssonar,
yfírlæknis á Bamaspítala Hringsins,
myndi stofnkostnaður til að hægt
yrði að gera slíkar aðgerðir hérlend-
is borga sig upp á innan við tveimur
áram og eftir það myndu um 10
milljónir króna sparast á ári.
Á síðasta ári gengust 27 íslensk
böm undir hjartaaðgerðir. Af þeim
voru 20 send til Englands í 22 ferð-
um en 7 aðgerðir vora gerðar á ís-
landi af Bjama Torfasyni hjarta-
skurðlækni og Hróðmari Helgasyni,
sérfræðingi í hjartasjúkdómum
bama, en í fyrra var ákveðið að hefj-
ast handa við að færa þessar aðgerð-
ir hingað heim að svo miklu leyti sem
kostur er.
Tryggingastofnun ríkisins greiðir
kostnað við að senda böm utan til
aðgerða og felst hann i sjúkrahúsvist
og kostnaði við aðgerð, fylgd foreldr-
is og dagpeningum og fylgd læknis,
sem oft er nauðsynleg.
Hjarta- og lungnavél dýrust
„Það sem við þurfum til að geta
hafíð þessa starfsemi fýrir alvöra á
íslandi er bætt aðstaða til að greina
hjartagalla, hjarta- og lungnavél fyr-
ir böm og nokkur tæki til eftirlits.
Hjarta- og lungnavélin, sem er það
dýrasta í þessu, myndi verða ákveðið
öiyggistæki því hún yrði hugsanlega
notuð við miklar ofkælingar, við al-
varlegar eitranir eða stórslys og það
væri tæknilega mögulegt að nota
hana við ákveðna sjúkdóma hjá ný-
fæddum börnum. Síðan þarf að kosta
rekstur deildarinnar, sem felst í
mannahaldi og afskriftum af tækj-
um. Við teljum að stofnkostnaðurinn
muni skila sér á einu og hálfu til
tveimur árum og eftir það yrði veru-
legur sparnaður af starfseminni,"
segir Ásgeir.
Stofnkostnaður, þ.e. hjarta- og
lungnavél og annar tækjabúnaður,
kostar um 30 milljónir króna, að
sögn Ásgeirs, en kostnaður við að
senda 20 böm til Englands, eins og
gert var á síðasta ári, er tæpar 40
milljónir króna.
Frábær árangur
„Ef við gætum gert þessar aðgerð-
ir heima yrði það gríðarlegur munur
fyrir aðstandendur. Það er nógu erf-
itt að eiga barn með alvarlegan
hjartagalla þótt ekki þurfí að þvæl-
ast utan, með tilheyrandi erfiðleik-
um, og þurfa að eiga öll samskipti
á ejlendu tungumáli."
Ásgeir segir að árangur Bjama
og Hróðmars sé frábær og hafi spít-
alinn heiðrað þá sérstaklega um síð-
ustu áramót fyrir þetta starf þeirra.
„Síðan eru fjárveitingar til spítalans
mikið skornar niður og m.a. verður
að fækka hjartaskurðaðgerðum
verulega. Því hefur verið ákveðið að
hætta þessari þróunarstarfsemi. Við
vonumst til þess að við fáum aukafj-
árveitingu til að geta hrundið þessu
af stað og að það fáist skilningur á
því að ef lagt verður út í fjárútlát
þá skila þau sér tiltölulega fljótt til
baka,“ segir Ásgeir.
,<-S/íti
Ganga land-
gönguliða
GÓÐGERÐRAGANGA breskra
landgönguliða þvert yfir ísland
hefst 3. mars og koma mennirnir
til landsins í lok mánaðarins. Ferð-
in er farin til styrktar mæn-
usködduðum en á myndinni eru
Alan Chambers, Sean Chapple,
Simon Barnes upplýsingafulltrúi
rannsóknasjóðs fyrir mænuskadd-
aða og Tim Welford. Mennirnir
ætla á skíðum og er gert ráð fyr-
ir að þeir muni ganga um 14 tíma
á dag og að hver þeirra muni
draga allt að 113 kílóa hlass á
eftir sér.
Alþýðubandalagið ætlar að afnema gjöld á
nemendur, aldraða og sjúklinga
Vill að lágmarkslaun
hækki um 10-15 þúsund
Morgunblaðið/Þorkell
LAUNAMÁLIN voru ofarlega á baugi á stefnu-
þingi Alþýðubandalagsins og óháðra.
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, formað-
ur Alþýðubandalagsins, sagði á
stefnuþingi Alþýðubandalagsins og
óháðra í gær að lágmarkslaun á ís-
landi yrðu að hækka um 10-15 þús-
und á mánuði. Hann hét því jafn-
framt að ef Alþýðubandalagið kæm-
ist í ríkisstjóm að loknum kosningum
myndi það afnema gjöld á nemend-
ur, sjúklinga og aldraða sem núver-
andi ríkisstjórh hefði lagt á fólk á
þessu kjörtímabili.
„Við eigum á þessum fundi að
segja það skýrt og afdráttarlaust að
lágmarkslaun á Islandi verður að
hækka um a.m.k. 10-15 krónur á
mánuði. Kjarasamningar sem gerðir
verða á næstunni og fela ekki í sér
slíka niðurstöðu munu ekki verða
mikilvægt skref til að leiðrétta það
mikla misrétti sem _hér hefur verið
fest í sessi,“ sagði Ólafur Ragnar.
Launafólk að gera uppreisn
„Skólarnir sem standa auðir þessa
dagana og verkfallsboðun Dagsbrún-
ar, Hlífar og Verkalýðs- og sjó-
mannafélagsins Keflavíkur eru tákn-
rænir vitnisburðir, hrópandi veruleiki
um að hægri tilraunin á íslandi hef-
ur mistekist. Hún er að leysast upp
í allsherjar uppreisn Iaunafólksins í
landinu gegn þessari stefnu. í þeirri
uppreisn er mikilvægt að á G-listum
allt í kringum landið sitja nú forystu-
menn launafólksins í landinu, sem
hafa gengið inn á vettvang stjórn-
málanna til þess að sýna það í verki
að baráttan um lífskjörin á Islandi
fer ekki bara fram við samningaborð-
ið, fer ekki bara fram með verkföll-
um, hún fer fyrst og fremst fram á
þeim vettvangi sem lýðræðið hefur
kosið sér í sölum þjóðþinganna þar
sem fulltrúar fólksins ákveða hvað
gera skuli,“ sagði Ólafur Ragnar.
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB og frambjóðandi á G-listanum
í Reykjavík, sagði að það væri erfið-
ara að vera efnalítill í dag en fyrir
fjórum árum þegar núverandi ríkis-
stjórn tók við völdum. Mikil kjara-
skerðing hefði verið ákveðin í sölum
Alþingis á kjörtímabilinu. Þess vegna
þyrfti að fjölga fulltrúum launafólks
á Alþingi.
Á stefnuþinginu, sem er undir
kjörorðinu „vinstri kjölfesta, vinstri
lífskjör, vinstra vor“, verður gengið
frá kosningastefnuskrá Alþýðu-
bandalagsins og kosningastarfið
skipulagt. Miðstjórn Alþýðubanda-
lagsins kemur saman til fundar í dag.