Morgunblaðið - 19.02.1995, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1995 11
Reykingar 13-16 ára barna og unglinga í Reykjavík 1974-1994
% Hlutfall stúlkna sem reykja daglega .
% Hlutfall stráka sem reykja daglega
16ára
fíeyklaus heimili 10-16 ára
barna í fíeykjavík
fíeyklaus heimili 10-16 ára
barna í fíeykjavík
1974 1978 1982 1986 1990 1994
1974 1978 1982 1986 1990 1994
Reykingar í 3. bekk Verslunarskóla Islands 1988-94
1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994
Haust
Sveinn Magnússon skólalæknir
Verslunarskólans hefur skráð
reykingar nemenda í 3. bekk
(16 ára á árinu) á hverju hausti
frá 1988, en hetur ekki fylgt
könnuninni ettir í etri bekkjum.
í könnun sem nemendur sjálfir
stóðu fyrir í vetur meðal allra
nemenda skólans kemur hins
vegar í Ijós að um 61 % nemenda
reykja ekki, en 39% aO staðaldri.
Um 6,5% reykja 1-5 sígarettur á
dag, um 5,5% reykja 6-10 á dag,
um 5% 11-20 sígarettur á dag og
um 1,5% meira en pakka á dag.
17% nemenda reykja einungis
undir áhritum áfengis og um
3,5% sjaldnar en einu sinni í viku.
REYKINGAR FRAMHALDSSKOLANEMA
Hópefliö
áhrifamesti
þátturinn
kAU VORU alveg til í að spjalla
f um reykingar en vildu alls
í Fellahelli eru leyfðar reykingar
starfsfólks í einu herbergi.
Á böllum hefur reglan víðast
hvar verið sú að undanförnu að
hleypa unglingunum út til að
reykja. „Við prófuðum að taka upp
algjört reykingabann, en það varð
til þess að ákveðinn hópur kom
ekki á böllin. Af tvennu illu ákváð-
um við því að hleypa krökkunum'
út á um það bil klukkustundar
fresti," sagði Lára S. Baldursdóttir
forstöðumaður Frostaskjóls.
Frumvarp til
tóbaksvarnalaga
I frumvarpi sem liggur nú fyrir
Alþingi eru meðal annars ákvæði
um að banna reykingar í húsakynn-
um sem einkum eru ætluð börnum
og unglingum. Binda forkólfar gegn
reykingum miklar vonir við frum-
varpið og vonast til að það nái fram
að ganga á þessu þingi.
„Þarna er meðal annars ákvæði
um að svipta megi sölustaði tima-
bundið réttindum til að selja tóbak
við ítrekuð brot á sölu til barna og
„Þcað haffa komió
hingað börn ffrá
Reykjavik sem
haffa reykt, en
þeim heffur verið
gert Ijóst að hér
ríkir reykinga-
bann og þau haffa
ffylgt þvi efftir,"
sögðu skólastjór-
artveggja
sveitaskóla.
unglinga," sagði Þorvarður Örnólfs-
son, framkvæmdastjóri Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur. „Einnig
bann við innflutningi, sölu og fram-
leiðslu á munntóbaki, sem við telj-
um mikinn ávinning. Við lítum þó
svo á að það sé ekki nema hálfur
sigur unninn og munum því leggja
kapp á við þingið að samþykkja
bann við sölu á því fínkoma neftób-
aksdufti sem krakkar hafa í aukn-
um mæli sóst í.“
Krabbameinsfélagið heldur uppi
reglubundnu forvarnarstarfi i
grunnskólum landsins en Þorvarður
Örnólfsson segir félagið ekki hafa
bolmagn til að fara inn í einstaka
bekki framhaldsskóla. „Við emm
að kanna möguleika á því að sýnd-
ar verði ákveðnar myndir til dæmis
í 1. eða 2. bekk í framhaldsskólum.
Einnig emm við að vinna að blaði
sem ætlað er elstu bekkjum í grunn-
skóla og yngri nemendum í fram-
haldsskóla," sagði hann.
Er freeóslan á heimilum neeg?
Af viðtölum við böm og unglinga
hér á síðunum kemur fram að fé-
lagsskapurinn skiptir vemlegu máli
og sennilega meira en hvort reykt
er á heimilum. Margir foreldrar sem
reykja kannast við prédikanir barna
sinna gegn reykingum og er þá
tækifærið oft notað til að ræða
skaðsemi reykinga. Umhugsunar-
vert er því hvort foreldrar sem neyta
ekki tóbaks hugsi nægilega mikið
um að ræða skaðsemi reykinga við
börn sín.
Einokun á fóbakssölu?
Einnig er athyglisvert að gmnn-
skólabörnin leggja áherslu á að verð
á tóbaki verði hækkað. Hins vegar
kom fram í máli þeirra að þau ólu
önn fyrir ellilífyrisþega sem þau
töldu ekki hafa efni á að kaupa tób-
ak svo háu verði. Þá má hins vegar
velta því fyrir sér hvort betri kostur
sé að hækka verð á tóbaki eða færa
sölu þess eingöngu yfir til Áfengis-
og tókbaksverslunar ríkisins?
ekki myndatöku, nema þau sem
reyktu ekki, þeim var alveg sama.
Það var ekki einu sinni hægt að
semja við þau hin um að andlitin
sæjust ekki. Ástæðan var ekki sú
að þau væru að reykja í felum fyr-
ir foreldrum sínum heldur fannst
þeim óþarfi „að alþjóð fylgdist
með“, sem bendir til að þau séu
ekki stolt af atferli sínu.
Ungmennin sem við hittum í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
em: Börkur, 19 ára, sem byijaði
að reykja í framhaldsskóla, Guð-
mundur, 18 ára, byijaði að fikta í
9. bekk, Gyða, 16 ára, fór að reykja
sumarið eftir 10. bekk, Rebekka,
16 ára, fiktaði í kringum 13 ára
aldur en kveðst núna hafa tekið þá
ákvörðun að reykja ekki, Magnús,
17 ára, sem hefur aldrei reykt og
Kári, 17 ára, sem prófaði einu sinni
og fannst það vont.
Ganga I augun á stelpunum
„Ég man þegar ég reykti fyrst,“
segir Guðmundur. „Það var á gaml-
árskvöld þegar ég
var í 9. bekk. Vin-
ur minn var að
fikta við að reykja
til að vekja at-
hygli stelpnanna
og þá fór ég að
prófa líka. í 10. bekk var ég farinn
að reykja frekar reglulega.“
„Ég var í hópi þeirra í grunn-
skóla sem ætlaði aldrei að reykja,“
segir Börkur. „Þegar ég byijaði í
framhaldsskóla hófst það þannig
að ég settist inn í reykingaherberg-
ið í frímínútum því þar var oft
skemmtilegasta fólkið. Svo fór ég
að prófa og smám saman var ég
farinn að reykja. Ég held ég hafí
keygt fyrsta pakkann á fylleríi."
„Á vinnustaðnum sem ég vann
um sumarið reyktu allar vinkonur
mínar og þá fór ég að reykja líka,“
segir Gyða.
Lítió reykt heima
Þau koma ýmist frá reyklausum
heimilum eða þar sem „pabbi verð-
ur að reykja úti á svölum". Hins
vegar reykja foreldrar Rebekku, en
hvorki hún né systkini hennar.
Unga fólkið er sammála um að fé-
lagsskapurinn í kunningjahópnum
hafí mest um það að segja hvort
unglingar byiji að reykja. „Það er
alla vega ekki vegna nikótínskorts,"
segir Börkur.
„ímyndin skiptir líka máli,“ segir
Guðmundur.
„Maður heldur að það sé „töff“
í byijun, en þegar maður er byijað-
ur er ekkert jákvætt við þetta,“
segir Börkur.
„Það er ekkert „töff“ að reykja,
þvert .á móti,“ segir Rebekka. „Það
reykja svo margir að skiljanlegt er
að fleiri bætist í hópinn. Sumir eru
bara þannig að þeir verða að vera
eins og aðrir til að falla í hópinn.
Þá skiptir ekki máli hvort verið er
að tala um reykingar eða eitthvað
annað.“
Fjölbreyttur áróóur
nauósynlegur
Þegar þau eru spurð hvers konar
áróður sé mikilvægastur segja þau
að ekkert eitt skipti máli, það sé
misjafnt hvað höfði ti! hvers um
sig. Þeim finnst til dæmis glataður
áróður og árangurslítill að nefna
íþróttamenn sem dæmi um hreysti
og fyrirmynd þeirra sem reykja
ekki.
„I grunnskóla horfðum við ár
eftir ár á mynd frá Krabbameinsfé-
laginu og fannst hún ógeðsleg, en
svo fóru krakkarnir beint út að
reykja í frímínútum," segir Reb-
ekka.
Þau eru öll sammála um að óþarfí
sé að banna reykingar í MH meðan
þær eru á einum ákveðnum stað.
Þau sem reykja segja að erfitt sé
að hætta því nema félagamir taki
sig saman. Aðspurð hvort þau hafi
hugleitt að hætta kveðst Gyða ekki
hafa gert það alvarlega. Börkur seg-
ist ætla að hætta þegar hann hafi
fundið tilgang lífsins og Guðmundur
segir það mögulegt síðar. „Meðan
ég er í þessum félagsskap þar sem
allir reykja, er það vonlaust," segir
hann og bætir við að það sé ekki
heldur hægt að fara á kaffihús án
þess að reykja. „Svo brýtur það oft
upp óþægilegar þagnir.“
„ E g var í hópi þeirra í
grunnskóla sem ætlaói
aldrei a ó reykja"
REYKINGAR GRUNNSKOLANEMA
Veró á lóbaki
skiptir máli
MAFNLEYND og „engar
myndatökur vegna ömmu og
afa“ voru skilyrðin sem ungling-
amir í 10. bekk Hlíðaskóla fóru
fram á í upphafi viðtals. Við skul-
um því kalla þau Palla og Sigga,
sem byijuðu að reykja sumarið
eftir 8. bekk, og Siggu og Jónu
sem byijuðu að reykja í 8. bekk.
Núna reykja þau hvert um sig í
kringum 8-12 sígarettur á dag.
Þijú þeirra fá vasapeninga hjá for-
eldrum sínum og eiga þannig fyrir
tóbaki en ein stúlknanna vinnur
um helgar.
Þau segjast öll sjá eftir því að
hafa byijað að reykja og vildu
gjarnan hætta. Siggi hefur reynt
það nokkrum
sinnum en félag-
arnir eru ekki
samstíga og því finnst honum það
erfitt. Undir þetta tekur Sigga:
„Það þýðir ekkert að hugsa um
það þegar allur hópurinn reykir.“
Vilja ókeypis námskeió
Aðspurð hvort þau mundu taka
þátt í námskeiði á vegum Krabba-
meinsfélagsins með öðrum ungl-
ingum til að hætta að reykja segj-
ast þau vera tilbúin til þess ef það
kosti ekkert. Aðspurð segjast þau
ekki vera tilbúin að borga 1.000
kr. fyrir slíkt námskeið.
„Það er alltaf talað um að full-
orðna fólkið eigi að hætta og hald-
in eru námskeið fyrir það, en aldr-
ei talað um unglingana," segja þau.
Stelpurnar byijuðu að reykja í
frímínútum í skólanum til að falla
inn í hóp eldri nemenda, en strák-
arnir þegar þeir kynntust öðrum
hópum unglinga sumarið fyrir 9.
bekk. Til að geta reykt í frímínút-
um urðu þau að pukrast á ná-
grannalóðum og Jóna segist einu
sinni hafa verið rekin úr skóla
þegar upp komst um hana.
- Hvernig er hægt að koma í
veg fyrir reykingar í frímínútum?
Kjósið þið svo strangar reglur að
það væri aðhald fyrir ykkur að
reykja ekki?
„Nei, ekki fyrr en við erum
hætt í skólanum. Það yrði alltaf
hægt að finna einhverja smugu til
að reykja,“ segja Sigga og Siggi.
„Eldri krakkarnir í skólanum
mega fara út af lóðinni í frímínút-
um og þá reykja þau á leiðinni út
í sjoppu. Ef sjoppa yrði sett upp í
skólanum mundu reykingar
minnka, því þá væri hægt að banna
algjörlega að fara út af lóðinni,“
segir Jóna.
Þátti flott aó reykja
Þau eru sammála um að þegar
þau byijuðu að reykja hafi þeim
þótt sú athöfn flott. Hins vegar
hafi þau komist að því síðan að
svo sé ekki og það kosti einungis
peningaútlát.
Þau eru líka sammála um að
þau vilji ekki að yngri krakkarnir
í skólum falli í sama farið og segja
að fræðslan verði að vera meiri
og fjölbreyttari.
„Það þýðir ekki alltaf að sýna
sömu myndina og sama leiðinlega
efnið, svo maður sofni,“ segja þau
og bæta við að reyndar hafi vel
tekist til í Tónabæ í síðustu viku
en þangað kom Þorvarður Örnólfs-
son og lék fyrir þau nokkurs konar
leikþátt.
„Það þarf að vera eitthvað svona
skemmtilegt,“ segir Sigga.
Undir þetta taka þau hin og
Siggi bætir við: „Hræðsluáróður-
inn er árangurslítill, því við hugs-
um ekkert um að við eigum eftir
að deyja vegna reykinga eftir 40
ár.“
iþróttamenn - hvaó?
Þegar þau eru spurð um íþrótta-
menn sem góða fyrirmynd skella
þau upp úr og þegar blaðamaður
verður eitt spumingarmerki kemur
skýringin: „Félagið mitt varð ís-
landsmeistari í körfubolta í fyrra
og það reyktu nokkuð margir í lið-
inu,“ segir Palli. „Mjög margir
krakkar sem stunda íþróttir reykja
pg allir fremstu handboltamenn á
Islandi reykja.“
- Hvemig er þá hægt að koma
í veg fyrir að unglingar byrji að
reykja, þráast blaðamaður við.
„Það er ekkert hægt. Það fer
eftir krökkunum,“ segir Sigga.
______________ - Ef sígarettu-
I pakkinn hækkaði
veralega, hvað þá?
„Það mundi skipta öllu máli. Ég
mundi hætta," segir Palli og hin
taka öll undir það og segja að eng-
inn hafí efni á að kaupa sígarettu-
pakkann á 400-500 krónur.
Eftir nokkrar umræður og
vangaveltur var niðurstaðan greini-
lega sú að veruleg hækkun á tób-
aki væri það sem þau teldu árang-
ursríkast í baráttunni gegn reyk-
ingum ungs fólks.
„Enginn heffur effni á a ö k a upasi g arettupakka á 400-500 kr."