Morgunblaðið - 19.02.1995, Side 34
34 SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
0GVSÐO ÞlS
FFfl/Wi AUS '
L/fWSAEAÐSM
FBA/nAN í blS
*E>Ult EN ES k
Tommi og Jenni
Ljóska
there! i hear
THEM! I HEAR
THE C0Y0TE5
H0WLIN6...
CHARLIE BROWN! I
HEARP THE COYOTE5
A6AIN !THEY 50UNPED
50 L0NELY IT
5CAREP ME...
4 W( (IiAi .-S iSSi
Þarna! Ég heyri í Kalli Bjarna! Ég
þeim! Eg heyri heyrði aftur í sléttu-
sléttuúlfana góla ... úlfunum! Þeir hljóm-
uðu svo einmana, að
það hræðir mig.
OH, IM 50RRY..PIP
I UlAKE YOU UP? 15
THERE A TIME CHAN6E
UJHERE YOU LlVE?
I PON T THINK 50..
WE ONLY LIVE HALF
A BLOCK APART..
Ó, mér þykir svo fyrir því...
vakti ég þig? Er tímamunur
þar sem þú býrð?
Ég held ekki ... Við búum
bara einni götu frá þér ...
BREF
TTL BLAÐSEMS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Svar til Sól-
veigar og Helgu
Frá Kristínu Stefánsdóttur:
í GEGNUM árin hef ég látið það
vera að svara opinberlega fyrir mig.
En þegar að starfsheiðri mínum er
vegið beint, eins og með grein þeirra
Sólveigar D. Erlendsdóttur og Helgu
Garðarsdóttur sem birtist í Morgun-
blaðinu sunnudaginn 12. febrúar síð-
astliðinn, þá get ég ekki orða bund-
ist lengur.
Undirrituð er snyrti- og förðun-
armeistari og hefur starfað við
greinina síðastliðin 10 ár ásamt því
að vera kennari við Fjölbrautaskól-
ann í Breiðholti, snyrtideild, síðast-
liðin þijú ár.
Þar sem bréf þeirra er fullt af
rangfærslum langar mig að leiðrétta
nokkur atriði í bréfi þeirra.
Þær segja: „Námskeiðið fór hægt
af stað þar sem förðunardaman hafði
greinilega í nógu öðru að snúast,
en að leiðbeina okkur.“ Þær gleyma
því að minnast á að fyrst um kvöld-
ið, eða kl. 19, var hver þátttakandi
tekinn í persónulega leiðbeiningar
af hárgreiðslumeistara um hármeð-
ferð og hárstíl hvers og eins.
í öðru lagi minnast þær á tæki,
tól og bursta frá No Name. Undirrit-
uð hefur alltaf talað almennt um
áhöld, því að þetta er eitt stærsta
undirstöðuatriði velheppnaðrar förð-
unar.
í þriðja lagi segja þær: „Hún fólst
í því að við vorum látnar mála okk-
ur sjálfar, ekkert var verið að eyða
í okkur förðunarefnum og fengum
við því aðeins dropa af hveiju fyrir
sig.“ Það er rétt að fljótandi farði
og púður er skammtað hverri fyrir
sig, en ekki er það gert út af ein-
hverri nísku, heldur til að ná sem
bestum árangri. Er reynsla mín sú,
að alltaf sé best að hver og ein
máli sig sjálf undir leiðsögn því það
er mikill munur á að fara í förðun
á snyrtistofu eða á námskeið til að
læra að mála sig sjálf. Meira magn
var ekki gefið einfaldlega af þeirri
ástæðu að meira magn þurfti ekki
til þess að fá jafna og fallega áferð.
Allar aðrar förðunarvörur sem til
þurfti eins og varalitur, varalitablý-
antur, augnskuggar, maskari og
kinnalitur lágu frammi fyrir hverja
og eina. Ekki veit ég hvaða aðrar
vörur þær hafa hugsað sér að nota
meira.
í fjórða lagi tala þær um að það
hafi tekið tvær mínútur að mála
annað augað fyrir kvöldförðun. Á
námskeiði sem slíku tekur þetta um
það bil tíu til fimmtán mínútur og
fer það náttúrlega eftir augnum-
gjörð, stíl og hvað hver og ein velur
að mála sig mikið.
í fimmta lagi var námskeiðið þrír
og hálfur tími en ekki einn og hálf-
ur tími, eins og þær segja frá í bréfi
sínu.
í sjötta lagi segjast þær hafa lab-
bað út eins og grýlur. Ástæðan fyr-
ir því sem þær kalla grýlur er að
fólkið er látið fara heim til sín með
annað augað málað með dagförðun
og hitt með kvöldförðun er til þess
að þær geti gefið sér tíma heima
hjá sér til að fara yfir það sem þær
sáu og gerðu fyrr um kvöldið.
Að lokum: Misjafnt er mannanna
mat í hvað sé dýrt og hvað sé ódýrt.
Á meðan við búum við frjálst mark-
aðskerfí hlýtur þetta mat alltaf að
vera huglægt hjá hveijum og einum.
Undirritaðri þykir leitt að vita til
þess, að þær telji sig ekki hafa feng-
ið peninganna virði á námskeiði sem
slíku og hefði kosið að stúlkurnar
hefðu haft samband við mig beint.
Því ekkert hefði sjálfsagðara verið
að veita þeim aukakennslu til viðbót-
ar, því markmið námskeiðanna hefur
alltaf verið að kenna hinni almennu
konu undirstöðuatriði grunnförðun-
ar, ásamt dag- og kvöldförðun, en
ekki hina svokölluðu tísku- og ljós-
myndaförðun.
KRISTlN STEFÁNSDÓTTIR,
snyrti- og förðunarmeistari.
Pharmaco-ris-
inn byltir sér
Frá Baldri Ársælssyni:
HAFNAR eru byggingarfram-
kvæmdir á stærstu lóð í hjarta
Garðabæjar við Hörgatún. Nokkur
þúsund fermetra verksmiðjubygging
á tveimur hæðum á að rísa. Svo
mikill hraði er við grunninn að haf-
ist er handa við uppgröftinn kl. fimm
á morgnana svo jörð skelfur undan
þungavinnuvélunum. Verktakinn vill
ekki gefa upp nafn á fyrirtæki sínu
og segir að ekki sé búið að gefa því
nafn. Vonandi finnur hann það bráð-
lega eða er hann kannski hræddur
við lögbann? Andstaðan við verk-
smiðju á þessu svæði er mikil í ná-
grenninu.
Svo er annar „risi“, SÍS sálugi, á
nokkur þúsund fermetra lóð við Goð-
atún. Einn útlimur risans, sem hreyf-
ist varla lengur, er Sjöfn, dótturfyrir-
tæki SÍS sáluga. Þar er dreifingar-
stöð og lagerhúsnæði aðallega fyrir
allt að hundrað tonn af málningu,
aðeins í 18 metra fjarlægð frá næstu
íbúðarhúsum. Man nokkur eftir
hvernig fór fyrir Málningu hf. við
Kársnesbraut í Kópavogi? Þetta
mega íbúar í elsta íbúðarhverfi
Garðabæjar búa við þó nóg sé til af
lóðum í verksmiðjuhverfum. Bæjar-
stjórnin er með öruggt fylgi á bak
við sig, hunsar allar kvartanir og
lætur bæjarverkfræðinginn gumsast
áfram með alla uppbygginguna sem
er til skammar. Að lokum skorum
við á umhverfismálaráðherra að láta
mál Sjafnar til sín taka, hvort rétt-
lætanlegt sé að geyma hátt í hundr-
að tonn af málningu nánast inni í
íbúðarhverfi.
F.h. íbúa við Goða- og Hörgatún,
BALDUR ÁRSÆLSSON,
Hörgatúni 1, Garðabæ.
Allt efni sem birtist I Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt i
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.