Morgunblaðið - 19.02.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1995 39.
Ástarljóð í Nönnukoti
FÓLK í FRÉTTUM
Hvað segir
Elizabeth Taylor?
►SHERILYN Fenn, sem leikur Elizabeth Taylor í fram-
haldsþáttum um líf leikkonunnar, segir í nýlegu viðtali
að fólk verði að skilja að hún sé ekki Elizabeth Taylor,
heldur hafi hún aðeins tekið að sér að leika hana.
Þá mun Sherilyn Fenn ekki verða með fjólubláar augn-
linsur til þess að Ííkja eftir augnalit Taylor, heldur mun
hún verða með fjólubláan farða kringum augu sín, sem
eru fagurblá.
Fenn segist hafa horft á margar myndirmeð Elizabeth
Taylor, þar á meðal „Who’s Afraid of Virginia Woolf?“.
„Eg hef aldrei áður séð tvær manneskjur hakka hvor aðra
í spað eins og þar.“
Annars sagði Fenn að hún væri vissulega „dálítið hrædd“
við að leika persónu sem væri á lífi og bætti svo við:
„Hvað ætli Elizabeth segi?“
SHERILYN
Fenn býr sig
nú undir að
leika Eliza-
beth Taylor.
í TILEFNI af Valentínusardeginum
voru lesin ástarljóð við kertaljós í
kaffihúsinu Nönnukoti í Hafnar-
firði. Nína Björk Ámadóttir ljóð-
skáld, Magnús Ragnarsson leikari
og Vilborg Halldórsdóttir leikkona
og Didda ljóðskáld sáu um upplest-
urinn, en Gunnhildur Einarsdóttir
hörpuleikari um undirleik.
Lesið var upp úr skáldskap gömlu
meistaranna, meðal annars verkum
Davíðs Stefánssonar, Jónasar Hall-
grímssonar, Skáld-Rósu, Sigurðar
Breiðíjörð, Steins Steinars og Jón-
asar Guðlaugssonar. Vilborg Hall-
dórsdóttir, sem hafði veg og vanda
af skipulagningu kvöldsins, segir
ekki útilokað að þetta verði endur-
tekið: „Þótt Valentínusardagurinn
sé liðinn, er alltaf tilefni til að gleðj-
ast yfir ástinni."
EFTIRMINNILEGT atriði úr
„Casablanca" frá árinu 1942.
Endurgerð
Casablanca
►í HOLLYWOOD er nú í bígerð
að endurgera kvikmyndina sí-
gildu „Casablanca" og sam-
kvæmt dagblaði í New York mun
Kevin Costner að öllum líkindum
leysa Humphrey Bogart af hólmi
sem Rick. Demi Moore þykir lík-
legust til að hreppa hlutverk Ilsu,
sem áður var leikin af Ingrid
Bergman.
Fær Love
hluverkið?
COURTNEY Love hefur sóst
mikið eftir því að fá hlutverk í
kvikmyndum. Hingað til hafa
kvikmyndagerðarmenn ekki séð
sér hag í því að nýta hæfileika
sðngkonunnar. Það gæti þó
breyst. Danny DeVito sást ný-
lega fylgjast með frammistöðu
Love á tónleikum, en hann er
að vinna að myndinni „Feeling
Minnesota", þar sem Keanu
Reeves og Vencent D’Onofrio
verða í aðalhlutverkum.
Þeir leika bræður sem beijast
um ástir stúlku. Gwyneth
Paltrow átti fyrst að leika stúlk-
una, en hætti við. Marisa To-
mei var næst á óskalistanum,
en reyndist setja of háar launa-
kröfur.
WrTF*
TL i 11 m
ort a aoeins Kr. y.y
Vegna væntanlegrar stækkunar World Class og verkfalls
kennara bjóðum við þetta einstaka tilboð til 15. mars nk.
Skeifunni 19, Reykjavík.
Símar 553 0000 og 553 5000
, : 1
\ §1 SE'
tgr. fpw'i *' ■w^bbI
\ «p»a» , jc