Morgunblaðið - 19.02.1995, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.02.1995, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLA.ÐIÐ Ujlitidifi'jinil fá.’i PftUuil'JIII pi-'IH _____ HÁSKÖLABIO SÍMI 552 2140 Háskólabíó FRUMSYNING: EKKJUHÆÐ aðsokní num af Mia Farrow, Joan Plowright og Natasha Richardsson eru illkvitnislegu, dásamlegu ekkjurnar á Ekkjuhæð. Allt fer á hvolf þegar ung og falleg ekkja flytur þangað. Fljótt kvisast út sá orðrómur að ekki sé allt með felldu með lát bónda hennar... Yndislegur húmor með afbragðs leikurum. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. SHORT CUTS - KLIPPT OG SKORIÐ „Ljómar af meistaralegri kvikmyndagerð frá einum af sönnum meisturum kvikmyndanna" ■<'/> AA. i'jlbl p.'rl.r. \iíu 2 /i DU'jjljój Leikstjóri: ROBERT ALTMAN . Ath. ekki ísl. texti. Sýnd kl. 9. B.Í. 16ára. STÆRSTA BÍÓIÐ. ALLIR SALIR ERU FYRSTA FLOKKS. SKUGGALENDUR S.V. Mbl ★ ★★,/2 Á.Þ. ★ ★★★ Ó.H.j Sýnd kl. 8.50 og 11.10. B.i.i4ára. Sýnd kl. 4, 6.30 og 8.50. ÓGNARFLJÓTIÐ ★** H.K Sýnd kl. 11.10. F0RREST GUNP Sýnd kl. 3 og 5.30. lUorræn hátíð MANNEN PÁ BALKONGEN Sýnd kl. 3. Síð. sýningar. Mánudag kl.5. ZAPPA Synd kl. 5 Sýnd kl. 7. OKEYPIS AÐGANGUR! Gong Li og Yimou skilin KÍNVERSKA kvikmyndasljarn- an Gong Li og leikstjórinn Zhang Yimou hafa slitið sambandi sínu og samvinnu til margra ára. Þau hafa unnið saman að röð verð- launamynda á borð við Rauða lampann og Blóðakra, auk þess að hafa átt í ástarsambandi. Gong Li sleit sambandi þeirra, en sam- kvæmt dagblaðinu WenHui hefur hún tekið upp samband við annan mann. Gong Li og Yimou unnu nýiega saman að kvikmynd, sem á að eiga sér stað á fjórða áratugnum í Kína. Þar er Gong Li í hlut- verki djasssöngkonu sem sér fyr- ir sér með því að troða upp á næturklúbbum, auk þess að veca augnayndi stórglæpamanns. Líkur eru taldar á því að sam- vinnu Gong Li og Yimou sé lokið, en það er mikið áfall fyrir kvik- myndaiðnaðinn í Kína. Síðasta mynd þeirra „To Live“ var verð- launuð á Cannes-kvikmyndahá- tíðinni og þau eru meðal fárra Kínveija sem hafa náð frægð og frama í hinum vestræna heimi. Við þetta virðist framtíð þeirra beggja vera afar tvísýn. An leik- konunnar Gong Li missa kvik- inyndir Zhangs Yimous óumdeil- anlega mikið aðdráttarafl, en þær hafa verið byggðar í kring- um hana til þessa. Auk þess var Yimou nýlega bannað að vinna með erlendum kvikmyndafyrir- tælg'um eða taka við erlendri fjár- mögnun. Þannig refsuðu kin- versk yfirvöld honum fyrir að sýna myndina „To Live“ á kvik- myndahátíðinni á Cannes án sam- ráðs við þau. Framtíð Gong Li er líka óráð- in. Hún vinnur nú með öðrum kínverskum leikstjóra af „fimmtu kynslóðinni", „Chen Kaige“, en margir hafa þó spáð því að hún muni falla í gleymsku án hand- leiðslu Yimous. Sjálfur segir Yimou í samtali við kínverska fjölmiðlaj „Eg virði ákvörðun hennar. Ég vona innilega að hún verði hamingjusöm og njóti vel- gengni í starfi.“ I leit að íslenskum kúrekaskáldum GUND í góðum félagsskap Roberts Redfords. GEORGE Gund III er á skrá yfir rík- ustu menn heims, ekki langt fyrir neð- an Ted Turner, eig- anda sjónvarps- risans CNN. Gund kom við hér á landi á einkaþotu sinni um helgina til að vera viðstaddur frumsýningu á mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Á köldum klaka, sem hann fjármagnaði að stórum hluta. Blaðamaður króaði Gund af í stutta stund á frumsýningarhófi og spurði hann hvernig honum líkaði myndin sem hann lagði hálfa milljón dollara í. „Mér fannst hún mjög skemmti- leg. Hún er frábærlega tekin og óvenjuleg. Hún sýnir vel fegurð landsins á vetuma; þetta er hrika- leg, næstum ógnvekjandi fegurð sem þú' fínnur hvergi annars staðar í heiminum.“ Gund lagði líka töluvert á sig við að sjá myndina. Hann sagðist hafa lagt af stað á föstudagsmorgni frá Stokkhólmi, heimsótt borgina Bmo í Tékklandi um daginn að skoða ís- hokkíleik og lenti í Reykjavík rétt í tæka tíð til að mæta á frumsýning- una. Hann sagðist gera stuttan stans á íslandi, en héðan hélt hann aftur til Tékklands og þaðan til Moskvu, Pétursborgar, Novosibirsk og fleiri borga í Rússlandi til að skoða íshokkíleikara sem gætu hugsanlega leikið með liði Gunds í San Diego í Kaliforníu. Hvernig kom það til að auðmaður frá Kaliforníu fjármagni íslenska kvikmynd? „Ég hef verið viðriðinn kvikmynda- gerð í mörg ár. Ég var í sambandi við marga leikstjóra í Austur-Evrópu áður en múrinn féll og hef átt þátt í að halda kvikmyndahátíðir eins og San Francisco-hátíðina. Svo er kon- an mín kvikmyndagerðarmaður og hefur gert heimildarmyndir, meðal annars um Jiaiku-ljóð í Japan og sýndarveruleik. Ég hitti Friðrik á hátið í Tékkóslóvakíu og mér líkar vel við myndimar, eins og Börn nátt- úrunnar og Kúreka norðursins. Ég sýndi þá mynd á Kúrekaljóðlistarhá- tíðinni í Nevada." „Heimsæki kannski Skagaströnd“ Gund styrkir þá hátíð ríflega og hittir „kúrekaskáld“ víðs vegar að úr heiminum á flakki sínu á milli kvikmyndahátíða og íshokkíleikja. „Við höfum fengið til okkar kúreka- skáld frá Argentínu, Hawaii og Ástr- alíu. Kannski við fáum til okkar næst íslenska kúreka. Ég hef komið við á íslandi í 30 ár, fyrst í laxveiði og ég get vel hugsað mér að heim- sækja næst Skagaströnd og fleiri staði og reyna að fínna íslensk kú- rekaskáld." Gund biður blaðamann að afsaka á meðan hann bregður sér út á götu til þess að hringja í son sinn í San Francisco. Á Gund heima þar? „Jú, líklega. Synir mínir eru þar, en stundum er eins og maður búi í ferðatösku," segir George Gund III, sem á hús á sex stöðum í heiminum, þar sem hann dvelur á milli þess að hann flýgur um jarðkúluna á þot- unni sinni að leita uppi íþróttamenn, ljóðskáld og kvikmyndagerðarmenn. GEORGE Gund III er mikill athafnamaður. Nýtt í kvikmyndahúsunum Úlfhundurinn 1 Sambíóunum SAMBÍÓIN hafa tekið til sýninga Disney-myndina Úlfhundinn 2 (White Fang 2). Eins og í fyrri myndinni þarf úlfhundurinn að sýna kjark og þor til að lifa af í víðáttum Alaska, eins og segir í fréttatilkynningu. „Hér segir frá ferð úlfhundsins niður með fljótinu þar sem hann kynnist vinalegum flokki ipdíána, sem kallast Haida. Og nú mun aldagamall spádómur indíána leiða úlfhundinn inn í nýjan heim hættu- legra ferða og ævintýra þar sem hann verður að reiða sig á skarp- skyggni sína til að lifa af og bjarga þessu stolta fólki og um leið meist- ara sínum, Henry Casey.“ Með aðalhlutverk í myndinni fara þau Scott Bairstow, Charma- ine Craig, Alfred Molina og Geof- frey Lewis. Leikstjóri er Ken Olin, sem er einna þekktastur fyrir leik sinn í þáttaröðinni Á fertugs- aldri, en hann hefur einnig leik- stýrt verðlaunamyndum fyrir sjónvarp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.