Morgunblaðið - 22.02.1995, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR: EVRÓPA
Útvarpsstjóri BBC um varðveizlu
evrópsks menningararfs
Ríkisfj ölmiðlun
í stað
Brussel. Reuter.
JOHN Birt, útvarpsstjóri brezka
ríkisútvarpsins BBC, hvetur Evr-
ópusambandið til að leggja áherzlu
á ríkisfjölmiðlun í því skyni að
vemda evrópskan menningararf,
fremur en að setja kvóta á sjðn-
varpsefni frá löndum utan Evrópu.
Birt sagði í Brussel á mánudag
að bezta leiðin til að efla evrópskan
menningararf í ljósvakamiðlum
væri að hvetja til innlendrar dag-
skrárgerðar í aðildarríkjunum og
styðja við bakið á „hefð fyrir ríkis-
ijölmiðlun."
kvóta
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins stefnir að því að hafa til-
búna fyrir 15. marz tillögu um end-
urskoðun tilskipunar sambandsins
um „sjónvarp án landamæra".
Breyta þarf tilskipuninni, meðal
annars til að gera ráð fyrir nýjum
möguleikum í margmiðlun. Tillaga
Frakka um kvóta á erlent sjón-
varpsefni á undir högg að sækja
og áfram er ágreiningur, bæði í
ráðherraráði menningarmála, og í
framkvæmdastjórninni, um breyt-
ingar á tilskipuninni.
Reuter
Upplýsingaþjóðfélagið
skiptir sköpum
JACQUES Santer, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, og Martin Bangemann,
sem fer með upplýsinga- og fjar-
skiptamál í framkvæmdastjórn-
inni, héldu í gær blaðamanna-
fund um nauðsyn þess fyrir ESB
að halda sig á upplýsingahrað-
brautinni og dragast ekki aftur
úr öðrum heimshlutum. „Þróun
upplýsingaþjóðfélags skiptir
sköpum fyrir framtíð okkar,“
sagði Santer. Sjö helztu iðnríki
heims munu í næstu viku halda
fund um upplýsingasamfélagið
og reyna að koma sér saman um
setningu alþjóðlegra regla um
alls konar ný form fjarskipta og
fjölmiðlunar, sem ryðja sér hratt
til rúms.
Fundað um
skepnu-
flutninga
• RÁÐHERRAR landbúnaðar-
mála í ESB hófu í gær viðræður
um málamiðlunartillögu
Frakka, sem vonazt er til að
geti leyst hálfs annars árs langa
deilu um flutning lifandi dýra
milli aðildarríkja sambandsins.
Norðlægari ríki, til dæmis Bret-
land og Danmörk, sem flyija út
búfénað á fæti til suðlægari
ríkja, vilja strangari reglur um
hvíldartima dýranna á milli
ferðalaga, brynningn, fóður og
annan aðbúnað dýranna. Suður-
Evrópurílgunum, sem háð eru
innflutningi lifandi dýra, sem
slátrað er til manneldis, hefur
þótt óþarfi að herða reglurnar,
en mikill þrýstingur er nú á
ráðherrana frá dýravinum að
bæta aðbúnað dýranna.
• ALAIN Juppe, utanríkisráð-
herra Frakklands, sem fer með
forystu í ráðherraráði ESB,
greindi Evrópuþinginu frá því á
mánudag að hann teldi mögu-
legt að ná samkomulagi við
Grikkland um tollabandalag
ESB og Tyrklands. Gríski Evr-
ópumálaráðherrann, George
Alexander Mangakis, gaf sömu-
leiðis í skyn að samningar um
það, sem Grikkir vilja fá í stað-
inn, væru á lokastigi. Stefnt er
að fundi með Tyrkjum 6. marz
næstkomandi, en verði ekki búið
að ná samkomulagi við Grikk-
land í tæka tíð verður fundinum
frestað, að sögn Juppes.
• SIR LEON Brittan, fram-
kvæmdastjórnarmaður í ESB og
fyrrverandi ráðherra í ríkis-
stjórn brezka íhaldsflokksins,
tekur undir hugmyndir kristi-
legra demókrata í Þýzkalandi
um að kjarna Evrópuríkja verði
leyft að halda áfram hraðari
samrunaþróun, til dæmis með
sameiginlegum vörnum, þótt
jaðarríki á borð við Bretland
stæðu á móti því að taka á sig
slíkar skuldbindingar.
• JEAN-LUC Dehaene, forsæt-
isráðherra Belgíu, hefur boðað
til þingkosninga í landinu 21.
maí næstkomandi, sjö mánuðum
á undan áætlun. Dehaene segist
vera að sækja sér endurnýjað
umboð til erfiðra aðgerða, með-
al annars fjárlagagerðarinnar
fyrir 1996. Búizt er við að mik-
inn niðurskurð þurfi til að Belg-
ía standist skilyrði Maastricht-
sáttmálans fyrir aðild að sam-
eiginlegri Evrópumynt, sem er
á stefnuskrá forsætisráðherr-
ans.
ERLENT
Bandaríkjamenn leita ákaft að sjálfri allrameinabótinni
Skvapkenndir undra-
sveppir afar eftirsóttir
Boston. Morgunblaðið.
LEIT Bandaríkjamanna að
allrameinabótinni beinist nú
að skvapkenndum sveppi, sem
nefnist kombucha, og aðdá-
endur hans virðast spretta upp
eins og gorkúlur um þessar
mundir.
Vörubílstjórinn Kenneth Si-
korsky er að minnsta kosti
sannfærður, hann var frá
vinnu í tíu ár vegna örorku,
sem ekki var sprottin af nein-
um smámunum. Hann var veill
fyrir hjarta, átti við melting-
artruflanir, bólgur í blöðru-
hálskirtli og of háan blóð-
þrýsting að stríða, auk þess
sem hann þjáðist af sykursýki
og þunglyndi.
Fyrir nokkrum mánuðum
fékk hann sér seyði gert af
kombucha-sveppinum að ráði
nágranna og kvillarnir hurfu
eins og dögg fyrir sólu, ef frá
er talin hjartaveilan.
„Nú er eins og ég sé aftur
orðinn lítill krakki,“ sagði Si-
korsky, sem er 44 ára, í sam-
tali við fréttastofu AP.
Fulltingismenn sveppsins
segja að hann geti læknað
vagl á auga og unnið bug á
gráu hári, en ekki eru allir
jafn trúaðir á ágæti sveppsins.
Læknar og vísindamenn hafa
sagt fólki að hafa varann á,
þótt ekkert hafi komið fram,
sem beri því vitni að hætta
stafi af kombucha.
Kombucha er ekki eiginleg-
ur sveppur heldur ger- og
bakteríugróður, sem myndar
fúkkalyf. Úr honum er lagað
Tveir Pakistanar áfrýja dauðadómi vegna guðlasts
Ráðgjafar dómsins
mæla með sýknun
Bænaprestur dregur ásakanirnar til baka
anir. Hann krafðist þess að stjórnin
sæi honum fyrir vernd.
Salamat, sem var 12 ára þegar
hann á að hafa framið glæpinn,
hefur þegar verið í fangelsi í ár þar
sem dómararnir, sem óttast um líf
sitt, hafa neitað að láta hann lausan
gegn tryggingu.
Blóðþyrstur múgur
Benazir Bhutto, forsætisráðherra
Pakistans, kvaðst í síðustu viku
vera miður sín vegna dauðadómsins
og það hefur leitt til ásakana um
að hún hafi vanvirt réttarkerfið og
reynt að hafa áhrif á dómarana.
Þúsundir herskárra múslima
hafa safnast saman við dómshúsið
til að krefjast þess að mennirnir
tveir verði teknir af lífi og sumir
hafa jafnvel hvatt til þess að Bhutto
verði drepin. „Ef dauðadóminum
verður hnekkt drepum við dómar-
ana og fjölskyldur þeirra," sagði
einn múslimanna og verjendum sak-
borninganna hefur einnig verið hót-
að lífláti.
Aðalverjandi sakborninganna
óttast um líf þeirra, hver sem úr-
skurður dómaranna verður. Dómar-
arnir ákváðu í gær að gera hlé á
réttarhöldunum til þriðjudags.
Lahore. Reuter, The Daily Telegraph.
VIRTUR lögfræðingur í Pakistan
ráðlagði í gær dómurunum í áfrýj-
unarmáli tveggja kristinna manna,
sem hafa verið dæmdir til dauða
fyrir guðlast, að sýkna þá af ákær-
unni. Islamskur bænaprestur, sem
sakaði mennina um guðlastið, hefur
dregið ásakanirnar til baka.
14 ára drengur, Salamat Masih,
og frændi hans Rehmat Masih, sem
er fertugur, voru sakaðir um að
hafa krotað guðlast á veggi mosku
bænaprestsins og kastað miðum
með vígorðum gegn Múhameð spá-
manni inn í garð hennar.
Dómaramir leituðu eftir umsögn-
um þekktra lögfræðinga sem „vina
réttarins", þeirra á meðal S.M. Za-
fers, fyrrverandi dómsmálaráð-
herra, sem sagði að ekki væru
nægilegar sannanir fyrir hendi til
að taka mennina af lífi. Flestir
hinna lögfræðinganna sem leitað
var til eru á sama máli.
Presturinn óttast um líf sitt
Aðalverjandinn segir að sækjend-
urnir hafi engar sannanir fram að
færa í málinu. Vígorðin hafi strax
verið máð af veggjum moskunnar
og sjónarvottar hafi neitað að hafa
þau eftir þar sem þau hafi misboð-
ið þeim.
KRISTNU mennirnir tveir
sem sakaðir eru um að hafa
svívirt Múhameð spámann.
Mennirnir voru handteknir í maí.
1993 og þriðji sakborningurinn var
skotinn til bana þegar þeir gengu
út úr dómshúsi í apríl í fyrra. Bæna-
presturinn, sem sakaði þá um guð-
lastið, var ákærður fyrir að hafa
myrt manninn, en var látinn laus
gegn tryggingu.
Bænapresturinn hefur dregið
ásakanirnar til baka og borið því
við að honum hafi borist morðhót-
KANTAREL-sveppur, sem margir kannast við, er afbragðs
fæða en hann er ekki það töfralyf sem kombucha er sagður vera.
seyði eða te og af einum
sveppi er hægt að rækta
birgðir til neyslu um aldur og
ævi. Ræktunin fer þannig
fram að sveppurinn er settur
í glerskál með þremur lítrum
af sætu tei og viku til tíu dög-
um síðar kemur fram nýr
sveppur.
Sveppate af þessu tagi er
drukkið í Rússlandi, Japan,
Póllandi, Búlgaríu, Mansjúríu,
Indónesíu og Þýskalandi.
Grein í dagblaðinu The New
York Times og sjónvarpsþátt-
ur um sveppinn virðist hafa
hleypt skriðunni af stað fyrir
alvöru í Bandaríkjunum.
Eigendur fyrirtækisins
Laurel Farms, sem stofnað var
í Los Angeles til að rækta og
selja sveppinn, segja að hann
hafi verið „sendur jarðarbúum
til að bæta heilsu og efla
ákveðni á þessum erfiðu tím-
um“. Þeir seldu á síðasta ári
rúmlega fjögur þúsund
sveppi. Heilbrigðir fá svepp-
inn á 50 Bandríkjadollara
(3.350 krónur), en sjúkir þurfi
aðeins að greiða 15 dollara
(um 1.000 krónur).
Á umbúðunum segir að
sveppurinn hafi tilfinningar
og bætt við: „Búist við krafta-
verki.“