Morgunblaðið - 22.02.1995, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995 19
LISTIR
Unga Island
Myrkir músíkdagar
Tónleikar
með Multi-
media
í BORGARLEIKHÚSINU á Litla
sviðinu í kvöld, miðvikudaginn 22.
febrúar, kl. 20, verða fjölmiðlunar-
tónleikar og þar verða flutt fimm
verk; Leifturrúnir, Summary.
Three Worlds According to One,
Gestures, Tactile and Tethered,
Samstimi og Ferð.
Verkið Leifturrúnir fyrir tvö
myndbandstjöld eftir Steinuni
Vasulka er frumflutt á íslandi.
Steinunn tók í nærmynd upp á
myndband járnsmíðar í Santa Fe-
málmsteypusmiðjunni.
Summary, Three Worlds Acc-
ording to One er verk eftir Kjartan
Ólafsson sem hann samdi árið
1994 í stúdíói Sibelius Akadem-
íunnar. Grennefniviður verksins
er fenginn úr tónsmíðum Kjartans
frá árunum 1986-1994.
Sérstakur gestur tónleikanna
er Japaninn og Daninn Kojiro
Umezaki sem flytur verk sitt Gest-
ures, Tactile and Tethered fyrir
sahkuhachi og víxlverkandi tölvu-
vinnslu. Uirlezaki hefur flutt verk
sín í Boston, Ffladelfíu og New
York og nú nýlega með víxlverk-
andi tölvutónlistarkerfí sem lærir
sjálft í Tókíó og Moskvu. Hann
er nú gestafræðimaður Darmouth-
háskólans í Vermont.
Verkið Samstimi eftir Magnús
Bl. Jóhannsson var fmmflutt á
íslandi á tónleikum Musica Nova
á Hótel Borg 6. desember 1961.
Er verkið hið þriðja í röð íslenskra
verka þar sem elektrónískum
tækjum er beitt við tórismíðar en
það fyrsta var Elektronísk stúdía
(1959) eftir Magnús Blöndal og
annað verkið var Leikar nr. 3
(1960) eftir Þorkel Sigurbjörns-
son.
Helstu hljóðlindar þessa verks
eru sínustónar, symbalhljóð, suð-
hljóð, tvær kvenraddir (Kristín
Anna Þórarinsdóttir og Þuríður
Pálsdóttir), pípuorgel og svokölluð
klangplata sem fyrirfannst á út-
varpsstöðum á þessum árum,
ásamt nokkrum hljóðum.
Hilmar Þórðarson flytur sjálfur
verk sitt Ferð sem samið var í
CRIM-tónverinu í Marseille sl.
sumar. Þetta verk er hluti af
stærra verki Goblins from the
lands of Ice sem Hilmar hefur
verið að vinna með japanska
Butoh-danflokknum Hamphin-
Ha.
Appleumbóðið hf. hefur lánað
mikið af búnaði til tónleikahalds-
ins.
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
fyrir alla!
Jitqpbhbib
- kjarni niálvinv!
TONOST
Digrancskirkja
MYRKIR MÚSÍKDAGAR
Barnakórar syngja íslenska söngva.
Sunnudagurinn 19. febrúar 1995.
SKÓLAKÓR Kársness, undir
stjórn Þómnnar Björnsdóttur,
Gradualekór Langholtskirkju, undir
stjóm Jóns Stefánssonar, og Kór
Öldutúnsskóla, undir stjórn Egils
Friðleifssonar, lögðu Myrkum mús-
íkdögum til efni, með tónleikum í
Digraneskirkju og fluttu ný og
gömul söngverk, sem flest em sér-
staklega samin fyrir barnakóra.
Máríuvers, eftir Pál ísólfsson, Þú
álfu vorrar, eftir Sigfús Einarsson
og þjóðsöngurinn, Ó, Guð vors
lands, eftir Sveinbjöm Sveinbjöms-
son, vom einu verkin sem umrituð
hafa verið fyrir barnaraddir.
Það vekur athygli hversu mörg
tónskáld hafa sótt sér textaefni til
nútíma ljóðskálda og má þar helst
nefna Jakobínu Sigurðardóttur,
með kvæðið Vökuró, sem Hróðmar
Sigurbjörnsson hefur tónklætt mjög
fallega, Þorstein Valdimarsson, en
við Vorlauf eftir hann hefur Mist
Þorkelsdóttir gert fallega tónsmíð
og um Næturró Þorsteins hefur
Fjölnir Stefánsson ofið fallegt tón-
mál. Sigurbjöm Einarsson hefur
endurkveðið hið latneska Te Deum,
en við þann texta hefur Þorkell
Sigurbjömsson samið viðamikla
tónsmíð en hann átti einnig fallegt
lag við kvæði eftir Pál J. Árdal.
Eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur
voru tvö kvæði tónsett, Maríuóður
með hugþekku lagi eftir Hildigunni
Rúnarsdóttur og hin skemmtilega
Barnagæla, við bráðsmellið tónverk
eftir Hjálmar H. Ragnarsson.
Þjóðvísur og gömul helgistef
njóta vinsælda hjá tónskáldum og
má þar nefna tvö lög eftir Atla
Heimi Sveinsson, Gakktu hægt um
gleðinnar dyr og Sofa urtu börn,
bráðfallegt lag og eftir undirritað-
an, lag sem nefnist Þjóðlífsmynd.
Nokkrar raddsetningar á þjóð-
lögum bar þarna fyrir eyru, t.d. hin
bráðfallega Barnagæla Jórunnar
Viðar, sem einnig var flutt af flokki
ungra hljóðfæraleikara, Jesú, mín
morgunstjarna eftir Jón Þórarins-
son og Drottningin stár undir lofts-
ins sala, gamall vikivaki úr Melodíu.
Salutatio Mærie, eftir Jón Nor-
dal, var viðamesta tónverkið á
efnisskránni og eins og reyndar öll
viðfangsefnin, mjög vel flutt. Hver
kór söng tvö lög en síðan ýmist
allir eða tveir saman og var flutn-
ingur ungu söngvaranna glæsileg-
ur. Má með sanni segja, að það
„Unga ísland", sem Egill, Jón og
Þórunn eru að ala upp, sé bæði
fallegt, mennilegt og líklegt til að
halda uppi merki menningar hér á
landi um ókomin ár.
Jón Ásgeirsson
Skipulagöur sparnaður
Þegar spara á skipulega er oftast erfitt að byrja,
en með smá þolinmæði kemstu fljótt upp á lagið
því æfingin skapar meistarann.
Sparisjóðurinn býður þér Skipulagðan spamað
sem aðstoðar þig við að setja markmið í spamaði.
1 samráði við okkur í sparisjóðnum geturðu fundið þér
heppilega samsetningu spamaðarforma og við sjáum
síðan um alla framkvæmdina fyrir þig.
Skipulagður spamaður stuðlar að góðu skipulagi
á tjármálum þínum og getur aukið sparifé þitt
án teljandi fyrirhafnar.
tt
SPARISJOÐIRNIR
-Jyrirþig ogþína