Morgunblaðið - 22.02.1995, Page 20

Morgunblaðið - 22.02.1995, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Flétta til fortíðar MYNPLIST Kjarvalsstaðir VEFLIST Kristin Jónsdóttir. Opið daglega frá 10-18 til 12. mars. Aðgangur 300 kr. FORTÍÐIN er ekki lokuð bók í augum núlistamanna, sem hafa menntað sig í skóla lífsins, því að til hennar sækja þeir ekki síður lífsmögn en stíla og strauma samtíðar. Þetta hefur viljað vefjast fyrir mörgum og þá helst skóluðu listafólki síðustu áratuga, og er hér myndlistin ekki ein á báti, því að stundum er eins og að ritlistin hafi byijað eftir 1970! Að ýja að þessu er í takt við umræðu dagsins í listum á menningarsíðum dag- blaða víða um heim, en er síður sérskoðun skrifanda né aðdróttanir úr lausu lofti! Sumir af nafnkenndustu mynd- listarmönnum nútímans eru með annan fótinn í fortíðinni í söguleg- um skilningi, og má hér nefna þjóð- veijann Anselm Kiefer, enn aðrir leita í tæknibrögð meistara fort- íðarinnar svo sem Italinn Wainer Vaccari, en myndverk hans hafa vakið mikla athygli hin síðari ár. Þetta er einfaldlega vegna þess, að við getum ekki svarið fortíðina af okkur og hún telst jafn stór hluti lífsins og nútíðin, vegna þess að án hennar væri nútíminn ekki til og því síður nokkuð líf á jörðu. Sá er skynjar ekki fortíðina skynj- ar ei heldur samtímann, hrynjandi og æðaslátt lífsins. Kristín Jónsdóttir frá Munka- þverá, telst í hópi þeirra lista- manna, sem sækja til arfleifðar fortíðar um leið og hún hrærir upp í nútímanum. Jafnframt stendur hún með báða fætuma í íslenzkum jarðvegi, því að hún notar efni sem er hvað nærtækast í umhverfinu og er náttúrulegur hluti þess. Margir íslenzkir listamenn hafa sótt til ullarinnar bæði sem sýnis- legs veruleika eða sem hluta efnis- áferðar og á ég þá við, að þeir hafi blandað liti sína eða litagrunn með ull til að ná vissri upphleyptri fyrirferð í myndverk sín. En Krist- ín hverfur mun lengra aftur í fort- íðina og til einnar elstu aðferðar mannsins til að gera sér voðir og klæði, sem er þæfður ullarflóki. Jafnfram leitar hún aftur til fortíð- ar með því að skírskota til ritmáls- ins, sem hefur verið svo stór hluti af lífi þjóðarinnar frá upphafi byggðar og fram á daginn í dag. En með því að tvinna þetta tvennt saman og færa í nútíma- búning býr hún til margræða merkingu,-eins konar myndrænt táknmál, sem hver og einn getur lesið í svo sem lyndiseinkunn hans og uppeldi býður honum. Trefja- glerið sem er afurð nútímans er svo alltaf nærri sköpunarferlinu bæði sem umbúðir utan um lista- verkin og hluti þeirra. Hér skynjum við áhrif að utan, jafnfram því að yfir sumum verkanna er austrænn léttleiki, og þá reikar hugurinn einkum til Japan. Sýning Kristínar að Kjarvals- stöðum er mikilvægur áfangi á ferli hennar og staðfestir að hún er kominn í hóp okkar athyglis- verðustu myndlistarmanna. Henni er vel komið fyrir í miðrýminu þótt tómleikinn þar og hið þunga gólf vinni gegn þessum léttu og innilegu sköpunarverkum. Sýning- arskráin, sem er í staðlaðri stærð er mun betur úr garði gerð en oft- ast áður og einkum á það við band- ið. Þá er formáli Ólafs Gíslasonar faglegur og upplýsandi. Bragi Ásgeirsson Leikfélag Akureyrar Óvæntri heim- sókn að Ijúka SÍÐUSTU sýningar á Óvæntri heim- sókn eftir J.B. Priestley, sem Leikfé- lag Akureyrar frumsýndi á jólum, verða á fimmtudags- og föstudags- kvöld nk. Sýningin er í leikstjóm Hallmars Sigurðssonar. Arnar Jóns- son er gestur Leikfélagsins og fer með aðalhlutverkið, Goole, sem kom- inn er á heimili Birlingfjölskyldunnar til að rannsaka átakanlegt dauðsfall stúlku nokkurrar. Hann er þó ekki venjulegur rannsóknarlögreglumaður. „Þetta margslungna leikverk Priesleys er ekki einungis þrunginn og spennandi sakamálaleikur sem heldur áhorfendum föngnum, heldur beinir hann einnig spjótum sínum að siðferði samfélagsins," segir í kynn- ingu. Með önnur veigamikil hlutverk í Óvæntri heimsókn fara Þráinn Karlsson, Sunna Borg, Rósa Guðný Þórsdóttir, Sigurþór Albert Heimis- son, Dofri Hermannsson og Bergljót Arnalds. ------♦ ♦ ♦ Minningarkvöld um Björn B. Björnsson MINNIN G ARKV ÖLD um Björn Braga Bjömsson, hljóðupptöku- mann, verður hald- ið í kvöld, miðviku- daginn 22. febrúar, á Sólon íslandus kl. 21. Á minningar- kvöldinu verður tónlist, upplestur, leiklist o.fl. Þeir sem fram koma era m.a. Hörður Torfa- son, Andrea Gylfa- dóttir, Borgardætur, Valdimar Flyg- enring. Bjöm Bragi Björnsson RANNÍS AUGLÝSING UM SKIPAN FAGRÁÐA OG ÚTFLUTNINGSNEFNDA HJÁ RANNSÓKNARRÁÐI ÍSLANDS Lög um Rannsóknarráö íslands nr. 61/1994 tóku gildi á sl. ári meö sameiningu á Vísindaráði og Rannsóknaráöi ríkisins. Nýlega gekk Rannsóknarráð íslands frá skipun í fagráð og úthlutunarnefndir á vegum ráðsins í samræmi við lögin. Rannsóknarráð íslands skipar tvær úthlutunarnefndir til eins árs í senn, eina fyrir Vísindasjóð og aðra fyrir Tæknisjóð og sitja 5 manns í hvorri nefnd. Hlutverk úthlutunarnefnda er að gera tillögur um styrkveitingar úr sjóðunum innan ramma ráðstöfunarfjár þeirra með hliðsjón af stefnu ráðsins. Rannsóknarráð skipar fagráð til að fjalla um einstök svið vísinda og tækni og gefa faglegar umsagnir um styrkumsóknir til sjóðanna. Jafnframt er fagráðum ætlað að meta stöðuna á viðkomandi vísinda- og tæknisviði og vera Rannsóknarráði íslands til aðstoðar við stefnumörkun og eflingu rannsóknastarfseminnar í landinu. Skipuð voru sex fagráð. Eftirfarandi einstaklingar hafa verið skipaðir í útflutningsnefndir og fagráð ÚTHLUTUNUNARNEFNDIR Úthlutunarnefnd Vísindasjóðs Dr. Þorsteinn Loftsson, lyfjafr, prófessor Háskóli (slands (formaður) Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir, bókasafnsfr. próf., Háskóli Islands Dr. Jakob Ingvason, eðlisfr., próf. Háskóli íslands Dr. Loftur Guttormsson, sagnfr., próf. Kennaraháskóli (slands Dr. Ingvar Birgir Friðleifsson, jarðfr., forstöðum. Jarðhitaskóla SÞ Hug- og félagsvísindi Dr. Halldór Armann Sigurðsson, málfr., próf. Háskóli (slands (formaður) Dr. Rúnar Vilhjálmsson, félagsfr., dósent Háskóli íslands Dr. Guðný Guðbjörnsdóttir, uppeldisfr., dósent Haskóli íslands Sigurður Snævarr, hagfræðingur Seðlabanka (slands Halldór J. Kristjánsson, lögfræðingur, iðnaðarráðuneyti Dr. Anna Agnarsdóttir, sagnfr., dósent Ht Dr. Gunnar Kristjánsson, guðfr., sóknarprestur Reynivöllum Heilbrigðis- og lifvísindi Dr. Einar Stefánsson, próf. Háskóli íslands yfirl. Landakotsspítala (formaður) Dr. Jórunn Erla Eyfjörð, sameindalíffræðingur, Krabbameinsfélagið Dr. Fjalar Kristjánsson, lyfjafræðingur, Delta hf. Davíð Á. Gunnarsson.yélaverkfr., forstjóri Rikisspítala Dr. Ingileif Jónsdóttir, ónæmisfr., deildarstjóri Landspítala Dr. Sigurður Guðmundsson, yfirlæknir Landspítala Nátfúruvísindi og umhverfisrannsóknir Dr. Axel Björnsson, eðlis- og jarðeðlisfræðingur (formaður) Dr. Trausti Jónsson, veðurfræðingur, Veðurstofunni Dr. Eggert Briem, stærðfr. prófessor Háskóli (slands Dr. Þorsteinn Hannesson, eðlisefnafr. (slenska járnblendifélagið Dr. Borgþór Magnússon, plöntuvistfr. Rannsókanst.landbúnaðarins Dr. Páll Hersteinsson, dýrafræðingur, fv. veiðistjóri Jóhann Már Maríusson, byggingaverkfr. aðstoðar.forstj. Landsvirkjun FAGRÁÐ Úthlutunamefnd Tæknisjóðs Þorkell Sigurlaugsson, viðskiptafr., frkvstj. Eimskipafél.íslands (formaður) Dr. Þorgeir Pálsson, flugvélaverkfr., flugmálastjóri Dr. Bjarni Guömundsson, fóðurfr., búvísindadeild á Hvanneyri Dr. Pétur Reimarsson, efnaverkfr.. framkvæmdastjóri Árness hf. Dr. Ágústa Guðmundsdóttir, matvælafr., dósent Háskóli (slands Iðnaðar og tæknirannsóknir Dr. Þorsteinn I.Sigfússon, eðlisfr., prófessor Háskóli fslands (formaður) Davíð Lúðvíksson, vélaverkfr., forstöðum. Samtökum iðnaðarins Gunnar Svavarsson, viðskiptafr., frkvstj. Hampiðjan hf. Ingvar Kristinsson, vélaverkfr. forstöðumaður Iðntæknistofnun Dr. JúKus Sólnes, byggingaverkfr. prófessor Háskóli íslands Jónas Frímannsson, byggingaverkfr., tæknil. framkvstj. Istak h.f. Sigrún Pálsdóttir, vélaverkfr., íslenska járnblendifélagið hf. Nýting lífrænnu auðlinda Dr. Áslaug Helgadóttir, plöntuerfðafr. deildarstj. Rannsóknastofnun landbúnaðarins (formaður) Dr. Jón V. Jónmundsson, búfjárfræöingur Búnaðarfélag íslands Dr. Ólafur Ástþórsson, líffræðingur Hafrannsóknastofnun Jón Þórðarson, sjávarútvegsfræðingur, Háskólanum á Akureyri Dr. Ragnar Árnason, hagfræðingur, prófessor Háskóli íslands Dr. Vigfús Jóhannsson, líffr. frkvstj.Laxeldisst. rík., Stofnfiskur hf. Dr. Kristján Þórarinsson, stofnvistfræðingur, LÍÚ Matvælavinnsla og matvælarannsóknir Dr. Einar Matthíasson, matvælaverkfr., Mjólkursamsalan hf. (formaður) Emilía Martinsdóttir, efnaverkfr. deildarstjóri Rannsóknast. fiskiðnaðarins Dr. Snorri Þórisson, matvælafr. frkvstj. Rannsóknaþjón./Sýni hf. Guðjón Þorkelsson, matvælafr., deildarstjóri Rannsóknast.landbúnaðarins Ragnheiður Hóðinsdóttir, matvælafr. deildarstj. Samtök iðnaðarins Guðbrandur Sigurðsson, matvælafr., frkvstj. nýsköpunarsv. ísl.sjávarafurðir Magnús Magnússon, vélaverkfr. frkvstj. útgsv. Útgerðarfél.Akureyringa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.