Morgunblaðið - 22.02.1995, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995 35
FRÉTTIR
Björgunarsveitir SVFÍ á Vestfjörðum
Stuðningur við formann
almannavarnanefndar
Ostadag-
ar á Hótel
Sögu
HÓTEL Saga og Osta- og smjörsalan
sf. standa fyrir. sérstökum ostadög-
um í veitingastaðnum Skrúði á Hótel
Sögu til og með sunnudeginum 26.
febrúar.
íslenskir ostar fá að njóta sín í
matreiðslunni og gegna stóru hlut-
verki í öllum réttum á hlaðborðinu í
Skrúði bæði í hádeginu og á kvöldin.
Þessa daga mun hörpu- og píanóleik-
arinn Sophie Marie Schoonjans laða
fram ljúfa tóna fyrir matargesti.
Einnig gefst matargestum kostur á
að taka þátt í getraun þar sem ostak-
örfur verða dregnar út í lok ostadag-
anna.
í anddyri Hótel Sögu mun sérstök
ostakynning standa yfír alla ostadag-
anna milli kl. 17 og 19. Þar munu
ostameistarar frá Osta- og smjörsöl-
unni og matreiðslumenn frá Hótel
Sögu bjóða gestum og gangandi að
bragða á margverðlaunuðum íslensk-
um ostum með tilheyrandi veigum
um leið og þeir miðla fróðleik um
osta og ostagerð.
------» ♦ ■♦-----
■ FUNDUR trúnaóarfólks af
vinnustöðum ífiskvinnslu á félags-
svæði Verkalýðsfélagsins Baldurs
á ísafirði telur ósættanlegt að fólk
eigi ekki rétt á kauptryggingu fyrr
en eftir 9 mánaða starf hjá sama
vinnuveitenda en lýsir ánægju sinni
með þau ákvæði sem koma í veg
fyrir að vinnuveitendur geti losað sig
við kauptryggingasamninginn á einu
bretti eins og fyrri ákvæði reyndust
bera með sér.
Fundurinn mælir með því að tekn-
ar verði nú þegar upp alvöruviðræður
við Vinnuveitendafélag Vestfjarða
og Vinnumálasambandið um kröfur
þær sem lagðar voru fram á vegum
ASV. Fundurinn lýsir vonbrigðum
með að í almennum viðræðum á
vinnumarkaðinum hafi ekkert tillit
verið tekið til landsbyggðarfólks um
lækkun á rafmagni til húshitunar,
lækkun vöruverðs og á fleiri sviðum
sem mikið misrétti ríkir.
Fundurinn lýsir furðu sinni á því
að ríkisstjórn skuli setja verkafólki
tímamörk við samningsgerð með
hótunum um þingslit. Ekki er annað
vitað en alþingismenn séu í vinnu
hjá fólkinu í landinu, segir í frétt frá
Baldri.
■ REYKJA VÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir tveimur námskeiðum á
næstunni í almennri skyndihjálp.
Fyrra námskeiðið hefst miðviku-
daginn 22. febrúar kl. 19. Kennt
verður til kl. 23 og eru kennsludag-
ar 22., 23. og 27. febrúar. Síðara
námskeiðið hefst föstudaginn 24.
febrúar kl. 19 og kennt verður til
kl. 23. Námskeiðinu verður lokið
ÁKVEÐIÐ hefur verið að af-
greiðslutími Víkingalottósins muni
í framtíðinni fýlgja breytingum á
sumar- og vetrartíma í Evrópu.
Breytingin felst í því að á vetuma
loka sölukerfi Víkingalottósins kl.
17 á miðvikudögum en ekki kl. 16
eins og verið hefur.
Þessi nýi afgreiðslutími tekur
gildi nú þegar og verður í gildi til
og með 22. mars en þá mun af-
■ HAFNARGÖNGUHÓPUR-
INN rifjar upp gamlar leiðir frá
Reykjavík fram á Nes miðvikudag-
inn 22. febrúar. Gengið verður frá
Hafnarhúsinu kl. 20 upp Grófina
og Aðalstræti og upp á Landakots-
hæðina. Þar getur göngufólk valið
um tvær leiðir. Þá eldri og styttri
sem farin var eftir Eiðsgrandanum
um gamla bæjarstæði Eiðis eða
valið þá yngri og lengri sem farin
var suður í Kaplaskjól og áfram
rétt ofan Lambastaða. Frá Lamba-
stöðum verður gengið þvert yfir að
Eiði. Þar hittast hóparnir og ganga
saman til baka að Hafnarhúsinu.
Litið verður inn hjá Gunnari skipa-
um helgina og verður kennslutími
ákveðinn í fyrsta tíma. Bæði nám-
skeiðin teljast 16 kennslustundir.
Þátttaka er heimil öllum 15 £ra og
eldri. Námskeiðin verða haldin í
Fákafeni 11, 2. hæð. Námskeiðs-
gjald er 4.000 kr., skuldlausir
félagar í RKÍ frá 50% afslátt.
Hægt verður að ganga í félagið
á staðnum.
greiðslutími aftur breytast í fyrra
horf, þ.e. til kl. 16 á miðvikudögum.
Vetrartími er frá 10. febrúar til
og með 22. mars verður lokað fyrir
sölu kl. 17 á miðvikudögum. Sumar-
tími frá 28. mars til og með 29.
september verður lokað fyrir sölu
kl. 16 á miðvikudögum.
Athugið að afgreiðslutími sölu-
kerfis Lottós 5/38 er óbreyttur.
smið og fylgst með smíði víkinga-
skipsins. Allir eru velkomnir í ferð
með HGH.
-------♦ ♦ ♦--------
■ AÐALFUNDUR Menningar-
og friðarsamtaka íslenskra
kvenna haldinn 11. febrúar sl.
fagnar þeirri breytingu sem orðið
hefur á starsfháttum Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkur og telur það
til fyrirmyndar að til forstöðu og
stjórnunar í stofnuninni hafa valist
konur sem hafa fjölþætta menntun
og reynslu við störf á sviði félags-
mála, segir í frétt sem blaðinu hef-
ur borist.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá formanni
björgunarsveita Slysavarnafélags-
ins á norðanverðum Vestíjörðum:
„I ljósi framkominnar gagnrýni
fréttamanna á framgöngu formanns
almannavarnanefndar ísafjarðar
vegna takmarkana og strangrar
stýringar á fréttaflutningi frá snjó-
■ DREGIÐ hefur verið í jólaget-
raun Regnbogaframköllunar og
hlutu eftirtaldir aðilar verðlaun:
Lúðvík Vilhjálmsson, Hvassaleiti
15, Reykjavík, hlaut 1. verðlaun
sem var vikuferð til Orlando fyrir
tvo með hóteli og morgunverði.
Önnur verðlaun komu í hlut Gunn-
■ MORGUNBLAÐINU-heíur bor-
ist athugasemd þar sem Óháði list-
inn árettar: „Að gefnu tilefni vill
Óháði listinn árétta eftirfarandi.
Samtök óháðra, sem Ögmundur Jón-
asson leiðir og fara fram með Al-
þýðubandalaginu í Reykjavík í næstu
alþingiskosningum, tengjast Óháða
listanum sem bauð fram til Stúdenta-
ráðs árið 1994 ekki á neinn hátt.
Engar viðræður milli samtakanna
tveggja hafa átt sér stað. Því lítur
Óháði listinn það alvarlegum augum
að tilraun sé gerð til að notfæra sér
vinsældir og fylgi hans í Háskólan-
um. Mikilvægt er að kjósendur geri
sér grein fyrir þessu og þeim mun
sem er á stefnuskrá og hugmynda-
fræði þessara tveggja samtaka."
flóðunum í Súðavík, vilja fundar-
menn lýsa yfír stuðningi sínum við
almannavarnanefnd í þeim störfum
er lutu að fréttaflutningi af atburð-
unum á meðan leitin stóð yfír.
Jafnframt vilja björgunarsveitar-
menn þakka þá nærgætni sem all-
flestir fréttamenn sýndu á erfíðum
stundum."
laugs Ýmis, Borgarvegi 3, Njarð-
vík og eru þau Olympus Zoom
myndavél, þriðju verðlaun hlaut
Páll Guðlaugsson, Brekku,
Tálknafirði. Hann fær Olympus
MJU-1 myndavél. Fimmtíu bangsar
og lukkutröll voru veitt í aukaverð-
laun.
Aðalfundur
foreldrafélags
misþroska
barna
AÐALFUNDUR Foreldrafélags
misþroska barna verður haldinn
miðvikudaginn 22. febrúar nk. kl.
20.30 í Æfíngadeild Kennarahá-
skóla íslands, gengið inn frá Ból-
staðarhlíð.
Á dagskrá eru skýrsla stjórnar
og reikningar, kjör formanns og
þriggja stjórnarmanna og önnur
mál.
Breyttur afgreiðslu-
tími Víkingalottós
ANTON Magnússon, verslunarsijóri hjá Regnbogaframköllun í
Reykjavík, afhendir Lúðvík Vilþjálmssyni og Ingveldi Fjeldsted 1.
verðlaun, vikuferð til Orlando fyrir tvo með hóteli og morgunverði.
Hœrri vextir á
Spariieib 48:
Nú bjóöast hœrri vextir á Sparileiö 48 í
íslandsbanka. Sparileiö 48 er verötryggö og bundin í
48 mánuöi.
Meö því aö gera samning um reglubundinn
sparnaö er öll upphœöin laus aö loknum binditíma
reikningsins og hvert innlegg nýtur verötryggingar,
óháö því hvaö þaö hefur staöiö lengi á reikningnum.
Taktu markvissa stefnu í sparnaöi. Þaö borgar
sig aö spara á Sparileiöum í íslandsbanka.
ÍSLANDSBANKI
- í takt vib nýja tíma!