Morgunblaðið - 02.04.1995, Page 4
4 B SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
segir Áslaug. „ En blessuð vertu,
ég rauk upp hér áður fyrr og skellti
hurðum.“
„Þú þegir kannski í korter núna,“
segir Haraldur íhugandi eins og það
hafi verið mælt vísindalega.
Hamingjan er mikið undir heils-
unni og góða skapinu komin, segja
þau. Bæði eru þau göngugarpar
sem njóta þess að vera úti, hvorugt
þeirra hefur reykt og þau segjast
borða hollan mat, án þess þó að
vera mikið að hugsa um það. Har-
aldur fékk kransæðastíflu fyrir
fjórtán árum, en slapp vel frá þeirri
raun og er nú stálhraustur eins og
eiginkonan sem aldrei hefur kennt
sér nokkurs mein.
BARA
„En það sem skiptir hvað mestu
máli er fjölskyldan og vinimir,"
segja þau. „Við erum svo heppin
að hafa börnin nálægt okkur og þau
eru svo miklir vinir okkar, bömin
og bamabörnin."
En þótt fjölskyldan sé mikilvæg-
ust segja þau að ekki megi gleyma
því hversu stóm hlutverki vinimir
gegna. Haraldur er frá Akranesi
og Áslaug frá Reykjavík og því
þekktu þau ekki marga þegar þau
fluttust til Hafnarfjarðar, en fóru
fljótlega með öðmm hjónum á fund
hjá eldri skátum, St. Georgsgildi,
eins og það er nefnt.
„Þessi félagsskapur hefur fært
okkur bestu vinina. Vináttan þróað-
ist smám saman og nú er þetta
allgóðurhjónahópur sem hittist, fer
út saman eða í ferðalög. Sumir
segja að það sé nóg að eiga fjöl-
skylduna og börnin, en við teljum
að vinimir skipti ekki síður máli.“
. Þau hjónin eru ekki aðeins í fé-
lagsskap eldri skáta, bæði em þau
í félögum hvort um sig og sækja
fundi kannski oft í viku.
Það má því segja að ómeðvitað
hafi þau undirbúið félagslegu hlið-
ina þótt þau telji að fyrr hefði mátt
huga að fjárhagshliðinni.
Áhugamálin
Þau segja að ósjálfráð verka-
skipting ríki innan heimilisins, en
hvað um sameiginleg áhugamál?
„Við áttum engin sameiginleg
áhugamál þegar við byijuðum að
vera saman, þá höfðum við bara
áhuga hvort á öðm,“ segir Áslaug.
„Við emm ekkert lík, og mjög ólík
í skapi. Hann er svo yfirvegaður
og rólegur og honum vinnst allt svo
vel, sama hvað hann tekur sér fyr-
ir hendur.“
- En hvernig er hún? spyr ég
Harald.
„Hún er svo óskaplega miklu
hressari en ég. Hún er opin persónu-
leiki og á auðvelt með að rabba við
fólk, sem er kannski ekki mín sterka
hlið. Svo er hún snögg upp og snögg
niður. Við bætum hvort annað upp.“
íþróttir vom helstu áhugamál
Áslaugar þegar hún var yngri, en
flugvélar vom líf og yndi Haralds
og tók hann einkaflugmannspróf á
sínum tíma. En nú hefur hann snú-
ið sér að öðm. Eftir áramótin fór
hann að læra útskurð hjá Náms-
flokkunum og segist sjá eftir því
að hafa ekki byijað fyrr.
„Hann er alltaf með hamar og
nagla og er iðinn eins og maurarn-
ir,“ segir Áslaug. „Ég hef aldrei séð
hann liggja fyrir uppi í sófa, ég
kæmi hlaupandi með hitamæli ef
það gerðist.
Ég hef líka alltaf í nógu að snú-
ast hér heima. Oft hef ég verið að
hugsa um að bæta einhveiju við
mig í ensku eða þýsku, en ég er
föst í þeim hugsunarhætti að
finnast ég alltaf þurfa að gera eitt-
hvað að gagni.“
Sumarbústaðurinn í Skorradal er
þó sameiginlegt áhugamál. Hann
var 18 fermetrar þegar þau keyptu
hann fyrir mörgum ámm en er nú
rúmir 40 fermetrar, og verður ekki
stækkaður meir að sögn Haralds.
„Þar er kyrrðin geypileg og oft
erum við ein í dalnum. Utiveran
gefur okkur mikið. Við höfum verið
að gróðursetja og fömm í langar
göngur.“
- Ferðist þið til útlanda líka?
„Já við höfum ferðast víða,“ seg-
ir Haraldur. „En núorðið viljum við
alls ekki fara burt af landinu frá
því í maí og fram í september.
Okkur finnst það algjör tíma-
eyðsla."
- Hvar og hvenær eigið þið mestu
gleðistundir ykkar saman?
„Eftir að Halli hætti að vinna
hefur hann leyst af flugradíómenn
úti á Iandi og við því þurft _að aka
til hinna ýmsu staða,“ segir Áslaug.
„Þá höfum við ekið í rólegheitum,
haft með okkur nesti og áð á falleg-
um stöðum. Bestu stundirnar eigum
við saman þegar við sitjum í laut
og hlustum á fuglana, bara tvö ein.“
Liffsreglan
Nú eiga þau hjónin langan og
góðan starfsferil að baki og því
eðlilegt að spyija hveiju þau eru
nú stoltust af þegar þau líta til
baka?
Þau verða bæði hugsi þegar svo
stórt er spurt, en svo segir Aslaug:
„Ég er stoltust af því að hafa kom-
ið börnunum mínum til manns.“
„Það sama gildir um mig,“ segir
Haraldur. „Einhvern veginn finnst
mér ég ekki vera stoltur af neinu
öðru.“
Svo horfir hann á konu sína og
segir kíminn: Kannski er ég líka
stoltur af því að þú skulir aldrei
hafa rokið frá mér.“
„Já, ég veit ekki hvort maður á
að vera stoltur af hjónabandinu, við
höfum kannski verið svona heppin,"
segir Áslaug og er nú greinilega
sokkin niður í heimspekilegar hug-
leiðingar.
- Hafið þið átt ykkur einhveija
lífsreglu?
„Já, hún er sú að koma fram við
aðra eins og við viljum að þeir komi
fram við okkur. Og við höfum reynt
að þræla því inn í börnin okkar.“
„Hvað ráðleggið þið nú fólki sem
er að hætta að vinna núna?
„Fyrst og fremst að hafa nóg
fyrir stafni," segir Haraldur. „Ef
menn eiga sér ekki áhugamál þegar
þeir hætta störfum, verða þeir að
ná sér í þau. Finna eitthvað sem
þeim finnst skemmtilegt að gera.
Síðan er um að gera að hugsa vel
um heilsuna, líta tilveruna jákvæð-
um augum og hafa gott samband
við fjölskyldu og vini.“
„Já, þetta gengur ekki lengur,"
segir Áslaug. „Nú geri ég eitthvað
spennandi næsta vetur, bíðum nú
við, hvað finnst mér skemmtilegt?"
Meðan reynt er að finna lausn á
því máli mænir lítill glókollur á
þau, nýkominn inn af róluvellinum,
og er meira en tilbúinn í allt sem
heitið gæti skemmtilegt.
Heilsa og
heilbrigði
í Perlunni
30. mars - 2. apríl
Komdu á stórkostlega heilsusýningu í Perlunni
þar sem á dagskrá verður:
Forvarnir gegn sjúkdómum.
Ókeypis rannsóknir á sýningargestum.
Kynning á vítamínum og bœtieínum.
Kynning á hollu matarœði.
Heilsa og hreyfing.
Frceðsla írá séríróðum í sýningarbásum.
Fyrirlestrar í íundarsal.
Opnunartímar verða:
Fimmtudag ....30. marskl. 17.30-21.00
Föstudag......31. marskl. 16.00-20.00
Laugardag..... 1. aprfl kl. 13.00-18.00
Sunnudag...... 2. apríl kl. 13.00-18.00
P E R L A N
AÐALFUNDUR SÍF HF.
Aðalfundur Sölusambands ísl. fiskframleiðenda hf. fyrir
áriö 1994 verður haldinn í Súlnasal Hótels Sögu
föstudaginn 21. apríl 1995 og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. grein 4.03 í samþykktum
félagsins.
2. Breytingar á samþykktum félagsins til samræmis við
lög nr. 2/1995 um hlutafélög.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Fundargögn og atkvæðaseðlar verða afhent á skrifstofu
SÍF hf., Aðalstræti 6, Reykjavík, miðvikudaginn 19. apríl
milli kl. 9 og 16 og föstudaginn 21. apríl milli kl. 9 og
12.
Um kvöldið verður haldið aðalfundarhóf fyrir hluthafa
og gesti þeirra í Súlnasal Hótels Sögu og hefst hófiö kl.
20.00. Húsið veröur opnað kl. 19.30. Aögöngumiöar á
hófiö verða seldir á skrifstofu SÍF og á aöalfundinum.
.Stjórn SÍF hf.
Notaðir gámar á góðu verði
✓
Odýr og þægileg geymsla
Margar gerðir af notuðum gámum til sölu eða leigu. Venjulegir
stálgámar, frystigámar, hálfgámar, einangraðir gámar, opnir o.fl.
Gámur getur verið ódýr og hentug lausn á ýmsum geymslu-
vandamálum, t.d. fyrir byggingastarfsemi, fiskverkendur,
flutningabílstjóra, bændur og hvers konar aðra atvinnustarfsemi.
Einnig fyrir tómstundastarf, t.d. við sumarbústaði, golfvelli,
hestamennsku o.fl.
Gámar þurfa ekki að stinga í stúf við umhverfið; það er hægt
að fella þá inní landslag, mála og skreyta á ýmsan hátt.
Leigjum einnig út vinnuskúra og innréttaða gáma
til lengri eða skemri tíma.
HAFNARBAKKI
v/Suðurhöfnina, Hafnarfirði,
sími 565 2733, fax 565 2735.