Morgunblaðið - 09.04.1995, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1995 B 7
MANNLÍFSSTRAUMAR
Umhverflsmál /Hvad erab gerast
í umhverfisrábuneytinuf
Verksvid um-
hverfisráðu-
neytisins
NÝLEGA kom út rit á vegum umhverfisráðuneytisins sem heitir
Ástand og þróun umhverfismála á íslandi 1995, en ráðuneytinu er
gert samkvæmt lögum að gefa út slíka skýrslu árlega. Þar er að
finna upplýsingar um stofnanir sem undir ráðuneytið heyra og frá
öðrum ráðuneytum sem um slík mál fjalla, t.d. frá Náttúrufræði-
stofnun íslands, Veðurstofu íslands, Rannsóknarstöðinni við Mý-
vatn, Náttúruverndarráði, Hollustuvernd ríkisins, Landmælingum
íslands, Skipulagi ríkisins, Siglingamálastofnun, Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins, Landgræðslu ríkisins, Hafrannsóknastofnun, Hag-
stofu Islands og Vegagerð Islands. Efni skýrslunnar er skipt í 7
meginkafla þar sem fjallað er um ástand umhverfis og náttúruauð-
linda, álagið á umhverfið, umhverfisvernd, alþjóðasamstarf, við-
fangsefni og framtíðaráherslur. Hér er gripið niður í fyrsta kaflann
sem er samantekt um ástand og helstu verkefni. Ritið allt er um
100 blaðsíður svo hér er stiklað á stóru.
BENT er á hvernig landnám
hefur frá upphafi raskað
viðkvæmu jafnvægi í náttúru
landsins. Rányrkja, óhagstæð
veðrátta og stóráföll af völdum
náttúruhamfara höfðu sín áhrif.
Talið er að frá
landnámi hafi
landgæði rýrn-
að um allt að
80%.
Vönduð stað-
fræðikort eru
undirstaða allra
rannsókna á
umhverfinu. Is-
lendingar eru áratugum á eftir
nágrannaþjóðunum bæði að því
er varðar gróður- og jarðfræði-
kortagerð. Því er brýnt að Land-
mælingum Islands sé gert kleift
að ljúka því verkefni. Til þess
þarf að endurnýja tækjabúnað
stofnunarinnar.
Veðurstofa íslands annast
umhverfisvöktun á andrúms-
loftinu, þ.e. veðurþjónustu,
rannsóknir á veðurfari og
mengunarmælingar. ísland er
auðugt af góðu grunnvatni mið-
að við stærð og ræðst það ann-
ars vegar af tiltölulega mikilli
úrkomu og vel lekum jarðlög-
um. Grunnvatnsrennsli til fall-
vatna og sjávar telst um 1000
m2/sek. Aðeins 1% þessa
magns er nýtt í dag í vatns-
veitur og atvinnurekstur.
Jarðfræðideild Veðurstofunn-
ar ræður yfír fullkomnu mæli-
kerfi til að fylgjast með ástandi
jarðskorpunnar en það er mikil-
vægur grundvöllur til að geta
sagt fyrir um ýmiss konar vá,
s.s. jarðskjálfta og eldgos.
Skipulögð landgræðsla hófst
hér árið 1907 og hefur víða tek-
ist að hefta hættulegasta foks-
andinn. Gerð nýrra korta af jarð-
vegsrofum lýkur árið 1995.
Framræsla mýra og afleiðing-
ar þeirra framkvæmda hafa
valdið breytingum á lífríki lands-
ins en nú hefur dregið úr þeim.
Vegna fámennis og mikillar
ljarðlægðar frá þéttbýlum lönd-
um er mengun andrúmslofts yfír
íslandi yfirleitt lítil. Mikilvægt
er þó að fylgjast með magni
ýmissa efna, s.s. koldíoxídi og
ýmsum þrávirkum lífrænum efn-
um.
Öllu efnisnámi fylgir jarðrask
og varanleg breyting á útliti
landsins. Ekkert heildaryfirlit er
til um ástand þessara mála en
áætlað er að malarnotkun í land-
inu nemi um 6 miljónir m3 á
ári. Það er allt að fímmfalt á
við það sem gerist í nágranna-
löndunum.
Sjávarútvegur er burðarás
íslensks efnahagslífs. Fiskveiði-
lögsagan var færð í 200 mílur
árið 1975 og gefur íslandi kost
á að nýta lífríki sjávar skynsam-
lega. Þó hefur hrygningarstofn
þorsks, helsta nytjafisksins,
aldrei mælst minni en árið 1994.
Settar eru árlega reglur um
leyfilegan afla fyrir hverja teg-
und fiskjar að fengnum ráðlegg-
ingum Hafrannsóknastofnunar.
Árlegur afli af íslandsmiðum
hefur að jafnaði verið um 1,5
milljónir tonna.
Nýting vatnsorku grundvall-
ast á hringrás vatnsins sem guf-
ar upp af höfunum, berst með
vindum inn yfír landið, fellur þar
sem úrkoma og rennur til baka
til sjávar. Á síðasta hluta leiðar-
innar er hægt að nota fallorku
vatnsins og er hún talin óþijót-
andi auðlind. Gerð miðlunarlóna
vegna vatnsorkunnar veldur því
að land fer undir vatn. Þar verða
því árekstrar við sjónarmið gróð-
urverndar eða nytja af beit.
Önnur umhverfisáhrif af völdum
virkjana eru tengd fossum og
náttúrufyrirbærum sem geta
breyst eða horfið.
Á flestum jarðhitasvæðum
sem eru í vinnslu er unnin meiri
orka en sem nemur náttúrulegu
afli þeirra. Orkan fæst úr heitu
bergi jarðhitakerfísins. Jarðhit-
inn er því takmörkuð auðlind.
Sett voru ný lög á síðasta ári
um mat á umhverfisáhrifum við
mannvirkjagerð. Lítil reynsla er
enn komin á þau. Umhverfís-
ráðuneytið hefur beitt sér fyrir
auknum mengunarvörnum og
m.a. fyrir heildarúttekt á stöðu
mála varðandi sorpföng í stórum
hluta landsins. Átaksverkefni
ráðuneytisins hafa víða valdið
viðhorfsbreytingum meðal al-
mennings og skilningur á gildi
umhverfisvemdar fer vaxandi.
Alþjóðlegt samstarf á sviði
umhverfismála hefur aukist á
síðustu árum. íslensk stjórnvöld
hafa einbeitt sér á tiltölulega
afmörkuðu sviði umhverfismála
í alþjóðlegu starfi. Áhersluatrið-
in hafa verið um vörn gegn
mengun hafsins, um sjálfbæra
nýtingu auðlinda hafsins og
notkun endurnýjanlegra orku-
gjafa. Einnig að bönnuð verði
losun hættulegra efna í sjó.
Varðandi hinn alþjóðlega
samning vegna loftslagsbreyt-
inga hafa íslensk stjórnvöldd
lagt áherslu á endumýjanlega
orkugjafa svo sem vatnsorku og
sólarorku og að þeir verði metn-
ir til jafns við kol, olíu og kjarn-
orku. Á þeim vettvangi er langt
í land að alþjóðleg samstaða
náist.
Þessum yfirlitskafla skýrsl-
unnar lýkur með fyrirheitum um
áhersluatriði ráðuneytisins á
næstu árum; að ljúka sem fyrst
heildstæðri áætlun um umhverf-
isvöktun, að undirbúa gerð
gagna sem taka mið af ástandi
umhverfís og nýtingu náttúru-
auðlinda, að efla gi-unnrann-
sóknir, að auka umhverfismennt
í skólum og meðal almennings.
stíl þá er þeirri hættu boðið heim
að lýðræðið syngi sitt síðasta. Ef
mjög margir máluðu sig svona út
í horn og vildu ekki vera með þá
myndi að lokum fara svo að völdin
myndu safnast á fárra manna
hendur og kannski enda með því
að einhver sæi sér leik á borði og
yfirtæki öll völd einn. Þá væri
komið einveldi sem auðveldlega
gæti endað með harðstjórp.
Mín niðurstaða er sú að maður
verði að sætta sig við það í þessu
lífi að eiga sjaldnast völ á algóðum
kosti. Það skiptir svo sköpum um
gæfu manns að hitta á að velja
þann kost sem skárstur er. Hins
vegar er það engum til gæfu að
búa til óraunhæfan kost og neita
svo þátttöku af því hann er ekki
fyrir hendi. Á þann máta málar
maður sig alls staðar út í horn og
endar sem sinnulaus eintijáningur
sem bíður þess eins að breiða yfír
sig græna torfu.
Staðreyndin er sú að sjaldnast
á fólk völ á algóðum kosti, hvorki
í stjórnmálum eða lífinu sjálfu.
Kúnstin er að velja rétt á milli
hinna mismunandi slæmu kosta.
Geti fólk ekki skilið þetta axlar
það ekki ábyrgð og verður ekki
fullorðið, heldur lifir eins og barn
í ímynduðum heimi þar sem öll
völd eru þess, samtímis því sem
það missir tengsl og áhrif í hinum
raunverulega heimi. Ef allir hög-
uðu sér þannig yrði samfélagið
smám saman mikilli hnignun að
bráð og myndi loks liðast í sund-
ur. Hið innra samhengi í lífí fólks
myndi að líkindum hljóta sömu
SIEMENS
Siemens RS 252R6
• Geislaspilari • Tvöfalt segulbandstæki
• Alvöruútvarp • 2x25 W • Gæðahátalarar
• Fullkomin fjarstýring
ALLT ÞETTA
FYRIR AÐEINS KR.:
39900,-
stgr.
Stórskemmtilegar stæður
á stórskemmtilegu verði!
Siemens RS 251R6
• Geislaspilari • Tvöfalt segulbandstæki
• Alvöruútvarp • 2x10 W • Gæðahátalarar
ALIT ÞETTA M
FYRIR AÐEINS KR.: ^
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 628300
29-9*5y-
stgr.,
MUNIÐ UMBOÐSMENN OKKAR UM LAND ALLT!