Morgunblaðið - 09.04.1995, Side 18
18 B SUNNUDAGUR 9. APRÍL1995
MORGUNBLAÐIÐ
+
GULLI spyr hvort ég vilji kaffí eða te
og ég bið um te, enda sannfærður
um að hjá svona fólki hljóti allir
eldhússkápar að vera fullir af for-
vitnilegum og sjaldgæfum telaufum. Fyrir val-
inu verður Calli-te, gert úr kínverskum jurtum.
„Má ekki bjóða þér kærleikskorn,“ spyr
Gulli og bendir á bunka af spjöldum sem ligg-
ur á borðinu. Á spjöldunum eru spakmæli, sem
Guðrún hefur safnað og samið, en þeim er
ætlað að örva gleðina í hjörtum manna og fá
þá til að hugsa jákvætt. Ég dreg spjald og á
því eru þessi skilaboð: „Ég get aðeins leitað
að þroska fyrir mig, ekki aðra.“ Á spjaldi
Guðrúnar er letrað: „Markmið mitt er að öðl-
ast innri frið“ og Gulli bætir því við að þá sé
takmarkinu náð. En hann virðist þó hafa hitt
naglann á höfuðið með sínu spjaldi, að minnsta
kosti með hliðsjón af þeim kaflaskiptum í lífi
þeirra hjóna sem í vændum er: „Sérhver endir
er upphaf að einhveiju nýju.“
„Já, það má vissulega segja að ákveðnum
kafla í lífi okkar sé nú lokið og nýr að hefj-
ast,“ segir Guðrún. „Við vorum einmitt að
tala um það, þegar við vorum fyrir vestan um
síðustu helgi. Þá helltist svo mikill söknuður
yfír Gulla gagnvart þvi að í rauninni erum við
að segja skilið við líf okkar, eins og við höfum
lifað því hingað til, - hið hefðbundna fjöl-
skyldulíf og tengslin við vinina, í því ytra formi
sem þau hafa verið.“
- Ertu þá ekki viss um það, Gulli, í hjarta
þínu, að þú sért að gera rétt?
„Jú, það er ég. Við höfum verið að undirbúa
þetta í tvö ár. En söknuður er partur af lífínu
og maður hefur um tvennt að velja. Annað-
hvort að takast á við söknuðinn eða grafa
hann inni í sér. Margt fólk bregst þannig við
erfíðum málum, að grafa þau í hjartanu, en
þá verða þau bara erfiðari viðfangs síðar meir.
Söknuðurinn, sem ég finn mest fyrir er sá,
að hér höfum við búið frá því að yngsti strákur-
inn okkar man eftir sér, en hann er nú flmmt-
án ára. Hér á hann sína félaga og er eiginlega
eina barnið, af þessum fímm drengjum sem
ég á, sem ég hef komist í mjög náið samband
við. Ég fékk meira að segja að halda á honum
á undan Gunnu þegar hann fæddist. í þessu
húsi höfum við byggt upp okkar fjölskyldulíf
og nú erum við að bijóta þetta allt upp.
Líf okkar verður ekki eins og það hefur
verið, jólahald og ýmislegt annað, sem hefur
verið kjölfestan í lífsmynstrinu, breytist. Þessi
drengur flytur að vísu með okkur vestur, en
hann fer í'heimavistarskóla til að byija með.
Guðjón, eldri sonur okkar, hefur verið hérna
hjá okkur, en verður eftir í bænum. Ég hef
unnið með tveimur sonum mínum og tengda-
dóttur og það tekur nú enda. Þessi fjölskyldu-
tengsl halda því ekki lengur, og ýmislegt ann-
að sem hefur verið fastur punktur í tilver-
unni. Ég hef farið í gufubað á hveijum degi
með „gufubaðsfjölskyldunni" minni, og það er
vissulega mikil eftirsjá að þefm félagsskap,
eins mikið litróf og þar er. Ég hef rekið fyrir-
tæki í 27 ár, með fullt af fólki í vinnu, og ég
segi skilið við þetta allt. Auðvitað hugsar
maður til þess með söknuði, og hann helltist
þarna yfir mig. En þá settumst við hjónin nið-
ur og settum upp okkar eigið námskeið til að
vinna okkur út úr söknuðinum. Það er eina
leiðin, annars sest hann bara að í hjartanu."
Á indíánaslóðum
- En hvað rekur fólk út í svona róttækar
hreytingar á lífí sínu?
„í rúm þijú ár höfum við verið að leita að
húsnæði fyrir utan bæinn,“ svarar Guðrún.
„Við vorum að leita að stað, sem var nógu
nálægt til að við gætum keyrt í vinnuna. Jörð,
þar sem við gætum fengið meira svigrúm til
að komast í snertingu við náttúruna, en samt
þannig að við gætum stundað okkar vinnu
áfram. Við höfðum reyndar talað um að þetta
væri yndislegur staður fyrir vestan, en bara
of langt í burtu.
Svo fórjim við til Bandaríkjanna í fyrra, þar
sem við dvöldum meðal Seneca-indíána. Þar
staðfestum við meðal annars hjónabandsheit
okkar að þeirra hætti, hjá indíánaömmu minni,
og við upplifðum miklar innri breytingar á
okkur í þessari ferð.“
- Indíánaömmu þinni?
„Já, eldra fólk hjá indíánum er kallað afar
og ömmur í virðingarskyni. „Amma“ mín heit-
ir Twylah og ég hef verið að læra hjá henni
síðan 1991 og tilheyri „úlfahópnum" hennar.
Og Gulli var vígður inn í hópinn þegar við
staðfestum hjónabandsheitið.
„Það sem er merkilegast við heimspeki og
menningu indíána er þessi stórkostlega nátt-
úruhugsjón," bætir Gulli við. „Það er enginn
möguleiki á andlegri vinnu nema að hafa nátt-
úruhugsjónina. Við verðum að snúa við blaðinu
gagnvart jörðinni. Við erum vemdarar jarðar-
innar, en ekki drottnarar. Indíánar skildu þetta
betur en aðrir. Þegar hvíti maðurinn kom og
fór að ryðja landið fylgdust þeir með í forundr-
an, gáttaðir á þessari sjálfseyðingarhvöt. Og
þegar hvíti maðurinn bauð þeim greiðslu fyrir
Hiónin Guðrún og Guðlaugur Bergmann hafa sagt skilið
við lífið í höfuðborginni, selt eigur sínar og ákveðið að
hefia nýtt líf í Brekkubæ á Hellnum undir Snæfellsjökli.
Sveinn Guðjónsson ræddi við þau um ástæðumar sem
að baki liggja, óvenjuleg lífsviðhorf, mannrækt og ævin-
týrið, sem þau telja sig eiga í vændum undir Jökli.
land þá hristu þeir höfuðið og sögðu: „Hvern-
ig getum við selt ykkur landið? Við eigum það
ekki.“ Það er þessi grundvallarmunur á hugs-
unarhætti, að skilja, að menn eiga ekki jörðina
sem þeir ganga á, heldur lifa þeir með henni.“
Að rækta fólk og grænmeti
„En eftir þessa ferð,“ heldur Guðrún áfram,
„og þær innri breytingar sem við gengum í
gegnum skaut þessari hugmynd, eins og eld-
ingu niður í höfuð okkar: „Áf hveiju flytjum
við ekki bara vestur og setjum þar upp þetta
andlega samfélag sem félagsskapur okkar
byggir á?“ Gulli bætir því við að á stjórnar-
fundi í Snæfellsás hf., sem hefur keypt landið
að Brekkubæ, hafi verið staðfest að þar skuli
sett á stofn andlegt, vistvænt og sjálfbært
samfélag, en landið er um 130 hektarar innan
girðingar og að auki mörg hundruð hektarar
í óskiptu landi, sem er í sameign með fímm
öðrum bæjum á Hellnum.
- Á hverju ætlið þið að lifa? Verðið þið með
kýr og kindur?
„Nei, við ætlum að rækta fólk og græn-
meti,“ segir Guðrún og hlær. „Megináherslu
leggjum við á að rækta okkur sjálf, auk þess
að vinna með öðru fólki sem vill stunda sjálfs-
rækt. Við höfum haldið þarna mót uridir yfír-
skriftinni „Mannrækt undir Jökli“, og því starfí
verður haldið áfram og nú allt árið um kring.
Auðvitað gerist þetta ekki allt á einni nóttu
og samfélagið verður að byggjast upp eftir
því sem fleiri koma með okkur.“
„Við gætum auðvitað verið með beljur til
að sjá samfélaginu fyrir mjólk, ef við vildum,"
segir Gulli. „En það eru margir aðrir aðilar
þarna í kringum okkur sem geta séð fyrir því
og við þá látið eitthvað í staðinn. Þetta bygg-
ist auðvitað allt á því að við hjálpum hvert
öðru og skiptum með okkur verkum.
Ef við skoðum þetta í viðara samhengi má
segja að stórborgir séu að verða eins konar
krabbamein á þjóðfélögunum, og má jafnvel
heimfæra það upp á Reykjavík. Menn eru gjör-
samlega komnir úr öllum tengslum við náttúr-
una. Flestir eru hættir að bera ábyrgð á eigin
lífi og ætlast til að aðrir komi til bjargar og
sjái um framvinduna. Glæpatíðni eykst og ill-
kynja sjúkdómar. Þetta er orðið eins og kýli.
Og það er í sjálfu sér óeðlilegt að byggja jörð-
ina okkar með þeim hætti að hrúga fólki inn
í borgirnar eins og sardínum í dós.
Ef menn vilja breytá heiminum verða þeir
að byija á sjálfum sér. En við hugsum oftast
út fyrir okkur. Það á að breyta öllu með því
að láta þig gera betur því þú ert alltaf að
gera einhverjar vitleysur. Ekki ég. Og þá verð
ég að bjarga þér í stað þess að bjarga bara
sjálfum mér. Þessi hugsun er auðvitað röng,
því það sem er gott fyrir mig er líka gott fyr-
ir þig, og allt sem er vont fyrir mig er líka
vont fyrir þig. Það er afleitt fyrir okkur báða
ef ég menga jörðina í kringum mig. Það er
líka slæmt fyrir okkur báða ef ég eyði of miklu,
ef ég til dæmis veiði of mikið úr sjónum eða
geng á gæði jarðarinnar með öðrum hætti.
Þetta skildu indíánarnir. Þess vegna felldu
þeir bara sjötta hvert tré. Þess vegna veiddu
þeir aldrei meira en þeir þurftu.
Það má kannski segja að sú hugmynd okkar
að flytja vestur á Snæfellsnes sé sprottin af
sömu hugsun. Við ætlum að sýna að við getum
aðlagað okkur að þessum nýja lífsstíl. En það
gerist ekki nema að fólk sé tilbúið til að vinna
í andlegu samfélagi og láta kærleikann ráða.“
Leiðarljós
Til að byija með munu hjónin Rósalind
Ragnarsdóttir og Stefán Steinar Benediktsson
flytja vestur ásamt Guðrúnu og Gulla, en þau
eru með þijú börn og það er óráðið ennþá
hvort þau hafa þar heils árs búsetu, að minnsta
kosti fyrst um sinn. Rósalind og Stefán Stein-
ar keyptu upphaflega landið að Brekkubæ, en
seinna var stofnað hlutafélag áhugasamra ein-
staklinga, sem keypti af þeim jörðina og að
sögn Gulla er nú verið að samþykkja deiliskipu-
lag fyrir svæðið, sem gerir ráð fyrir að þar
verði reist kúluhúsabyggð og hann bætir því
við að svona vistvæn, sjálfbær samfélög eigi
sér hliðstæður víða um heim.
Þegar blaðamaður kvartar undan því að
hafa ekki enn fengið fullnægjandi skýringu á
því á hveiju fólkið í samfélaginu ætli að lifa
er Gulli með svar á reiðum höndum:
„Það getur enginn komið og sest að í þessu
samfélagi nema að hann geti sýnt fram á að
hann geti lifað þar. Auðvitað hlýtur það að
vera misjafnt eftir hveijum og einum hvemig
hann hyggst framfleyta sér. Hvað okkur Guð-
rúnu varðar munum við halda áfram að reka
okkar heildsölu og útgáfustarfsemi. Við eru
ekkert að segja tækninni stríð á hendur þótt
við flytjum vestur og verðum að sjálfsögðu
með tölvu og fax. Við þurfum ekkert að vera
í Reykjavík til að geta sinnt okkar störfum
eftir sem áður.
Viðskiptahliðin takmarkast í raun af nafni
fyrirtækis okkar, sem heitir Leiðarljós. Það
byggir á því að allt sem við gerum sé í sam-
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. APRÍL1995 B 19
Ef menn vilja breyta
heiminum verða
þeir að byrja á sjálf-
um sér
AMMA Twylah
staðfestlr hjóna-
bandsheit Gunnu
og Gulla á Indí-
ánavísu.
GUÐRUN að mála myndlr á tjald sltt fyrir vestan.
Jökulllnn og „hrlngurlnn" umtalaði í baksýn.
GULLI í nýju hlutverkl, dyttar
að útihúsunum á Brekkubæ.
ræmi þennan nýja lífsstíl sem við erum að
taka upp. Bækurnar, snældurnar og fleira, sem
við erum að gefa út, eru byggðar á þessum
lífsstíl. Sem dæmi get ég tekið þessa bók,“
segir Gulli og bendir á bók á borðinu sem ber
heitið Boðskapur Maríu til mannkynsins.
„Margt fólk sem hefur lesið hana segir að hún
hafí breytt lífí sínu, einkum kaflinn um kærleik-
ann og kaflinn um boðskap Maríu til fjölskyld-
unnar. Einnig ætlum við að halda námskeið
og fyrirlestra á staðnum, en svo erum við
auðvitað tilbúin til að ferðast áfram til ýmissa
staða á landinu, eins og við höfum gert hingað
til til að kenna og ræða málin. En auðvitað
verðum við að byija á að tileinka okkur þenn-
an lífsstíl sjálf áður en við getum ætlast til
að aðrir geri það.“
Eln á fjallinu
Guðrún seldi verslunina Betra líf síðastliðið
haust, en þar er áfram rekin svipuð starfsemi
og áður, nú undir stjórn nýrra eigenda. Hún
kvaðst þó áfram myndu selja framleiðslu sína
þar, svo sem Víkingakortin og Kærleikskornin
svo og ýmsar bækur, sem þau hjón gefa út.
En hugmyndina að Víkingakortunum kvaðst
Guðrún hafa fengið er hún hóf að reka verslun-
ina:
„Þegar ég sá öll þessi spáspil sem voru til,
til dæmis Tarot-spilin, sem notuð eru til að
sjá inn í framtíðina og önnur spáspil, fannst
mér vanta tilfinnanlega íslensk spil og um tíma
bjóst ég við að einhver annar myndi búa slík
spil til. Svo gerðist það í ferð í Bandaríkjunum
1991, er ég bjó með Lacota-indíánum, að ég
fastaði og sat úti á fjalli í 24 tíma, sem er
ákveðin helgiathöfn hjá þeim. Ég fór upp á
fjallið, sem er í 1.400 metra hæð yfir sjávar-
máli, í mjög góðu veðri, sól og heiðríkju í allar
áttir. Ég taldi þetta því ekki erfítt verk og var
dálítið hissa á því að lögð var sérstök áhersla
á að ég mætti ekki gefast upp og hætta við,
sama hvað á dyndi. Svo var ég skilin þarna
eftir vafin inn í þijú teppi og að öðru leyti
nakin, bara ég, teppin og máttarvöldin.
Um kvöldið var fullt tungl og ég var pott-
þétt á því að þetta yrði yndislegt þarna á fjall-
inu, með tunglið lýsandi mér alla nóttina og
að þetta yrði frábært. Tunglið kom upp, svona
eins og við hliðina á mér yfir fjallsbrúnina, en
skömmu síðar komu þrumuský með tilheyr-
andi látum og eldingum og ég var með lífið í
lúkunum um að þá og þegar myndi slá eldingu
niður i trén í kringum mig. Það rigndi stans-
laust alla nóttina. Undir morgun var komin
þoka og síðan kom slydda. Ég lifði nóttina af
með því að biðja. Það má segja að þarna hafi
ég í raun skilið mátt bænarinnar. Því það var
það eina sem hélt í mér lífi. Ég var orðin bólg-
in af kulda, kreppt í rennblautum teppum og
ekkert skjól fyrir veðri og vindum. Ég gat
ekkert farið. Það var enginn nálægt og von-
laust að ætla að feta sig niður fjallið í myrkrinu.
Meðan ég var þarna á fyallinu fór ég að
hugsa um að svona útiseta hefði líka verið til
hér á íslandi, hjá víkingunum í gömlu trúnni
okkar. Þá hefðu menn farið og leitað eftir
tengslum við guðina úti í náttúrunni og raunar
eru til heimildir fyrir því. Víkingarnir voru
vissulega miklir trúmenn og menn fóru með
feldi sína á afvikinn stað og sátu úti til að
tala við guðina og hlusta á þá. Þegar ég kom
heim leitaði þessi hugmynd mjög sterkt á mig
að gera leiðsagnarspil til að hjálpa fólki í sinni
þroskaleit og byggja þau á táknum úr daglega
lífinu og trúarlífi víkinganna. Og það má
kannnski segja að ég hafi snúið þessu yfir á
víkinga dagsins í dag, sem ég segi að sé hinn
andlegi víkingur. Sá sem er að leita inn á við
og vinna með sjálfan sig. Víkingar til forna
voru í landkönnun og leituðu út á við. En við
þurfum að kanna hið innra með okkur. Og í
þeirri könnun þurfum við á einhveijum hjálpar-
tækjum að halda og þá eru spilin mjög hentug
því þau eru myndræn Og geta gefið leiðsögn
um hvað þú þarft að vinna með hjá sjálfum
þér og hvar hindranirnar eru í þínu eigin lífi.“
Sterk trú
Guðrún segir að til að lifa í hinu nýja samfé-
lagi þurfi menn að hafa sterka trú:
„Menn þurfa ekki endilega að vera kristnir,
en það er nauðsynlegt að þeir trúi á Guð, eða
einhvern æðri mátt. Eitthvað sem er sterkara
en þú. Við getum kallað það Skaparann. Trú
og trúarbrögð eru tvennt ólíkt. Trúin er eitt-
hvað sem þú hefur í þér og er á æðri kraft,
Skaparann eða Guð, eða hvað þú kýst að kalla
það. En trúarbrögðin setja upp formið hvernig
samband þitt við þennan æðri kraft á að vera
pg ákveða hvað þú mátt og hvað þú mátt ekki.
í trúnni ertu fullkomlega frjáls, í trúarbrögðun-
um ertu heftur."
Við þetta hefur Gulli að bæta: „Okkur er
alveg nákvæmlega sama hvaða leið fólk fer
til að leita að Guði í sjálfu sér. Okkur kemur
það ekki við svo lengi sem fólk er að leita.
Við getum hugsað þetta sem pýramída. Við
eitt homið er múhameðstrúarmaður og við
hitt kristinn maður og þeir fara báðir að klifra
upp og enda á sama stað, á toppinum. En eins
og ástandið er nú fer allur tíminn í að rífast
um hvor leiðin sé betri og þeir klífa aldrei
pýramídann. Hvað er að klífa pýramídann? Það
er að þroska sjálfan sig. Það er að leita að
Guði og hann er á toppi pýramídans.“
Gegndarlaus græögi
Við víkjum talinu að lífsviðhorfum og lífs-
stíl Vesturlandabúa og Gulla liggur ýmislegt
á hjarta í þeim efnum:
„í fyrsta skipti í veraldarsögunni er tæknin
orðin svo mikil að við getum látið öllum líða
vel, ef við bara skiptum gæðunum réttlátlega
á milli manna. Það sem kemur í veg fyrir það
er hins vegar sú gegndarlausa græðgi, sem
lífsmáti okkar Vesturlandabúa einkennist af.
Við erum að ganga frá jörðinni. Svisslendingar
einir saman menga meira á alheimsvísu en
allir Indveijar. Á hveiju sekúndubroti sem Guð
gefur erum við að eyða svæði á borð við fót-
boltavöll af regnskógum, til að búa til auðfeng-
ið akurlendi, til að geta haldið áfram að hlaða
á okkur hormóna-hamborgararössum.
Með öðrum orðum: Ef Kínveijar einir saman
fengju sér klósettpappír, færu öll tré á jörð-
inni. Ef Kínveijar einir saman fengju sér is-
skáp, er ósonlagið farið. Og ef Kínveijar einir
saman fengju sér bíla af sömu tegundum og
við Vesturlandabúar, er andrúmsloftið farið.
Ergó: Þessi lífsmáti gengur ekki upp. Hann
er að ganga frá öllu sem við lifum á. Jörðin
getur gefið okkur upp að vissu marki, en það
er ekki hægt að nauðga henni endalaust.
Það nákvæmlega sama gildir um líkama
þinn. Þú getur borðað óhollan mat öðru hveiju
og stressað þig upp endrum og sinnum. Líkam-
inn getur tekið við því. En ef þú ert endalaust
að borða óhollan mat, endalaust að stressa
þig, endalaust að reykja og drekka, þá gefst
líkaminn upp. Ég er ekki að tala um að við
eigum að fara að lifa einhveiju aumingjalífi.
En við þurfum örugglega ekki nema brotabrot
af öllu því drasli sem við erum að hrúga i
kringum okkur. Við getum lifað miklu merki-
legra mannlífí með aðeins brot af öllu þessu.
Alltaf að selja
Þú gerir þér væntanlega grein fyrir því,
Gulli, að það er fullt af fólki úti í bæ, sem lítur
á þig sem gamla bisnessmanninn, Gulla í
Karnabæ, og að þú sért bara að notfæra þér
nýaldarhugsjónina til að græða á henni?
„Já, já, ég hef oft heyrt það. En ég get
sagt þér eitt. Ég hef alla tíð, alla tíð, verið
mjög stoltur af því að vera kaupmaður og bis-
nessmaður. Og ef menn gera sér ekki grein
fyrir því, þá ætla ég að reyna að útskýra það
nú, að heimurinn sem við búum í er raunveru-
lega skapaður af kaupmönnum. Menn búa til
eitthvað, skapa hluti eða hugmyndir, en það
þurfa að vera til kaupmenn eða bisnessmenn
til að koma því á framfæri. Allt sem er hér í
þessari stofu er verk einhvers sem hefur skap-
að það og búið það til, en það þurfti kaup-
mann til að koma því í verð og á framfæri.
Kaupmennska eða bisness er í eðli sínu ekki
af hinu vonda, þótt danskir einokunarkaup-
menn hafi á sínum tíma misnotað aðstöðu sína
hér. Kaupmenn og bisnessmenn eru menn sem
hreyfa hluti til. Og ég er stoltur af því, að
hvað sem ég geri, þá er ég að hreyfa hluti
til. Ég er alltaf að selja. Ég er að selja þér
núna mína hugmynd um það hvernig ég er
að breyta sjálfum mér. Þegar þú horfir á per-
una þama og hún lýsir sjálfri sér, þá lýsir hún
þér líka. Ef ég get lýst sjálfum mér þá get
ég líka lýst þér.
Ég er alltaf að selja af því ég er kaupmað-
ur. Þótt ég fari út á Snæfellsnes þá held ég
áfram að vera Gulli kaupmaður og ég er stolt-
ur af því sem ég hef gert á mínum ferli sem
kaupmaður. Ég hef verið í íslenkum iðnaði í
rúman aldaríjórðung og barist fyrir því að ís-
lenskt fagfólk og iðnaðarfólk geti selt fram-
leiðslu sína. Ég hef komið með hugmyndirnar,
ég hef komið þeim á framfæri með því að fá
ykkur blaðamenn til að skrifa um þær. Ég hef
auglýst í Mogganum, og öðrum fjölmiðlum,
og ég hef reynt að fá fólk til að kaupa mínar
hugmyndir og mína vöru. Þetta er mitt líf.
Og ég held áfram að selja, því ég er og verð
alltaf kaupmaður."