Morgunblaðið - 09.04.1995, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 09.04.1995, Qupperneq 24
24 B SUNNUDAGUR 9. APRÍL1995 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNU t '( ,/ YSINGAR Útflutningsfyrirtæki í Reykjavík óskar eftir starfskrafti hálfan dag- inn eftir hádegi. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af almennum skrifstofustörfum, toll- pappírum o.þ.h. Starfið krefst einnig góðrar ensku- og þýskukunnáttu. Ef þú hefur áhuga á að vinna hjá ört vaxandi fyrirtæki, þá sendu inn umsókn til afgreiðslu Mbl. fyrir 20. apríl, merkta: „K - 6969“. KÓPAVOGSBÆR Laus staða Laus er til umsóknar hálf staða við fjölskyldu- deild Félagsmálastofnunar Kópavogs. Verksvið er einkum á sviði barnaverndar og forsjár-, umgengnis- og ættleiðingamála. Leitað er að starfsmanni með félagsráðgjafa- menntun eða sambærilega menntun. Reynsla af starfi í félagsmálastofnun æskileg, svo og að viðkomandi geti hafið störf hið fyrsta. Umsóknarfrestur er til 21. apríl 1995. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum er liggja frammi á Félagsmála- stofnun Kópavogs, Fannborg 4. Nánari upplýsingar gefur Gunnar Klængur Gunnarsson, deildarfulltrúi í síma 45700. Starfsmannastjóri. Tæknival Tœknival hf. er 12 ára gamalt framsœkið tðlvu- fyrirtæki með u.þ.b. 100 starfsmenn og veltan á stðasta ári var yfir milljarð isL króna. Fyrirtækið býður viðskiptavinum stnum heildarlausnir l iðnaði, sjávarútvegi og verslunarrekstri. Vegna enn aukinna umsvifa óskar Tæknival hf. eftir að ráða starfsmenn t hugbúnaðardeild fyrirtækisins. FORRITUN OG ÞJONUSTA I HUGBÚNAÐARDEILD VIÐ LEITUM AÐ kraftmiklum forriturum og vel skipulögðum aðilum til að sjá um þjónustu og uppsetningu ýmissa upplýsingakerfa. HÆFNISKRÖFUR eru að umsækjendur hafi haldbæra tölvumenntun og/eða reynslu í Windows forritun. Einnig leitum við að aðilum með gott innsæi í virkni bókhalds og upplýsingakerfa. Áhersla er lögð á fag- mennsku, skipulögð vinnubrögð, þægilega framkomu og hæfni til hópvinnu. í BOÐI ERU áhugaverð og krefjandi störf hjá öflugu og framsæknu fyrirtæki með góðan liðsanda. Vinsamlega athugið að fyrirspurnum varðandi ofangreint starf verður eingöngu svarað hjá STRÁ Starfsráðningum hf. Umsóknarfrestur er til aprílloka. Umsóknareyðublöð eru fyrirliggjandi á skrifstofunni sem opin er frá kl. 10-16, en viðtalstímar eru frá kl.10-14. ST Starfsráðningar hf Suðurlandsbraut 10 ■ 5. hœð ■ 108 Reykjavik , Sími: S88 3031 ■ Fax: S88 3010 Cuiný Harbardóttir Starfsmaður óskast U.M.F. Stjarnan hyggst ráða starfsmann til starfa á skrifstofu félagsins. Starfssvið: Símavarsla og upplýsingagjöf, skjalavarsla og bréfaskriftir, umsjón félagaskrár, innheimta o.fl. Vinnutími: Mánudaga til föstudaga kl 13.00-19.00. Við leitum að starfsmanni vönum ofangreind- um störfum og með brennandi áhuga á félagsmálum. Umsóknir, er tilgeini aldur, menntun og fyrri störf, skilist á afgreiðslu Morgunblaðsins í síðasta lagi þriðjudaginn 18. apríl 1995, merktar: „S - 1001." AKUREYRARBÆR STARFSMANIMADEILD Leikskólakennarar Leikskóladeild Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða leikskólastjóra við nýjan leikskóla, Kiðagil, frá 1. júlí 1995. Laus er til umsóknar staða leikskólastjóra við leikskólann Kiðagil í Giljahverfi frá 1. júlí nk. Fyrirhugað er að leikskólinn taki til starfa þann 1. september. Próf frá Fósturskóla íslands eða sambærileg- um skóla áskilið. Nánari upplýsingar um starfið gefur deildar- stjóri leikskóladeildar eða leikskólaráðgjafar í síma 96-24600. Laun eru samkvæmt kjarasamningi STAK og Akureyrarbæjar eða Launanefndar sveitarfé- laga og Félags íslenskra leikskólakennara. Nánari upplýsingar um kaup og kjör gefur starfsmannastjóri Akureyrarbæjar í síma 21000. Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9. Umsóknarfrestur er til 21. apríl 1995. Leikskóladeild Akureyrarbæjar. SÍMAVARSLA EFTIR HÁDEGI. FYRIRTÆKBÐ er eitt af öflugri innflutnings- fýrirtækjum landsins. STARFIÐ felst í móttöku, símaafgreiðslu, upplýsingagjöf, móttöku skilaboða auk léttra skrifstofustarfa. HÆFNISKRÖFUR eru að umsækjendur séu kurteisir og þægilegir í viðmóti, með góða enskukunnáttu og skýrir í tilsvörum. Leitað er að aðila, sem þolir vel álag og eflist við. UMSÓKNARFRESTUR er til og með 12. apríl n.k. Ráðning verður sem fýrst. Umsóknareyðublöð cru fyrirliggjandi á skrif- stofunni, sem opin er frá kl. 10-16, en viðtalstímar eru frá kl.10-14. Starfsráðningar hf Suðurlandsbraut 30 ■ 5. heeð ■ 108 Reykjavik Simi: S88 3031 ■ Fax: S88 3010 RAI iiii; Cubný Harbardóttir ISaffiaMÉl Elcon hf. Rafeindavirki Elcon hf. óskar eftir að ráða rafeindavikja. Starfið er fólgið í að sjá um uppsetningu og viðhaldi á siglinga-og fiskileitartækjum sem fyrirtækið selur. Viðkomandi þarf að hafa góða þjónustulund, vera duglegur og ábyggilegur, hafa góða þekkingu á þessu sviði og haldgóða þekkingu á tölvum og tölvubúnaði og notkun þeirra. Nánari upplýsingar veitir Árni Marinósson í símum 552 9510 og 561 9510. Atvinnumálafulltrúi Hveragerðisbær auglýsir starf atvinnumála- fulltrúa laust til umsóknar. Starfið: • Að vera bæjarstjórn til ráðgjafar við myndun atvinnumálastefnu. • Vinna að markvissum aðgerðum til uppbyggingar atvinnulífs í bænum. • Stuðla að aukinni samvinnu fyrirtækja í bænum. Hæfniskröfur: Æskilegt er að viðkomandi hafi háskóla- menntun á viðskipta- og tæknisviði. Reynsla af rekstri fyrirtækja eða ráðgjafastörfum skil- yrði. Þarf að hafa frumkvæði og geta unnið sjálfstætt. Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma 98-34000 á milli kl. 10.00-12.00. Umsóknir, sem innihalda upplýsingar um menntun, fyrri störf og annað, sem umsækj- andi vill að komi fram, sendist fyrir 20. apríl nk. til undirritaðs. Bæjarstjórinn í Hveragerði, Einar Mathiesen. Iðntæknistofnun vinnur að tækniþróun og aukinni fram- leiðni í íslensku atvinnulífi. Á stofnuninni eru stundaðar hagnýtar rannsóknir, þróun, ráðgjöf, gæðaeftirlit, þjónusta, fræðsla og stöðlun. Áhersla er lögð á hæft staitsfólk til að tryggja gæði þeirrar þjónustu sem veitt er. Ráðgjafi Iðntæknistofnun óskar að ráða starfsmann til að annast ráðgjöf og upplýsingar til fyrir- tækja vegna þátttöku í evrópskum rann- sókna- og tækniþróunaráætlunum. Annars vegar er um að ræða leiðbeiningar og aðstoð vegna þátttöku í verkefnum á vegum Evrópu- sambandsins. Hins vegar aðstoð við að koma niðurstöðum úr rannsóknaverkefnum á framfæri í atvinnulífinu, þar sem það á við. Æskilegt er að umsækjendur hafi tækni- menntun og góða tungumálakunnáttu. Um- sækjendur þurfa einnig að hafa haldgóða þekkingu á sem flestum þáttum atvinnulífs- ins. Þekking á stuðningskerfi ESB í rann- sókna- og þróunarmálum er einnig æskileg. Óskað er eftir hugmyndaríkum einstaklingi sem á auðvelt með að taka frumkvæði og vinna með öðrum. Hvatt er til að jafnt konur, sem og karlar, sæki um starfið. Umsóknarfrestur er til 21. apríl. Umsóknir sendist til Karls Friðrikssonar deildarstjóra, sem jafnframt veitir allar nánari upplýsingar. Iðntæknistofnun IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS Keldnaholti, 112 Reykjavík Sími 587 7000

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.