Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 34
34 B SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1995
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Góu páskaegg heildsöluverð
500
Coca Cola
n/2 1 KR. 118
SVARTISVANURINN
SÖLUTURN - MYNDB ANDALEIGA - ÍSBÚÐ
LAUGAVEGI ll8, REYKJAVÍK - SÍMI 551 6040
Góu páskaegg
heildsöluverð
270 gr. KR. 573
Maarud snakk
loogr. KR.135
\V\VÍ'
\í«
Meðan birgðir endast
STEFÁN
HERMANNSSON
■4- Stefán Her-
' mannsson fædd-
ist á Bakka í Húsa-
vík 15. október
1923. Hann lést á
Landspítalanum 31.
mars sl. Foreldrar
hans voru Hermann
Stefánsson og
Friðný Ólafsdóttir.
Stefán var þriðji
yngsti átta systkina.
Hann nam á Laug-
um en fór síðan í
Stýrimannaskólann
í Reykjavík 1948 til
1949. Hann giftist
Katrínu Jóhannesdóttur og áttu
þau einn son, Jóhannes, sem er
látinn.
Stefán Hermannsson verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju
á morgun, 10. apríl, og hefst
athöfnin kl. 15.
HANN Stefán mágur okkar er dá-
inn. Við eigum eftir að sakna hans
mikið. Sambandið milli okkar fjöl-
skyldna var alltaf mjög náið.
Þeir svilarnir Stefán og Guðni
byggðu saman hús á Hrísateig 43
ásamt móður okkar systra. Hún bjó
alla tíð hjá þeim Kötu
og Stebba eins og þau
voru kölluð innan fjöl-
skyldunnar. Hún vildi
hvergi annarsstaðar
búa og lýsir það best
hvernig tengdasonur
Stefán var.
Jóhanna systir okkar
fluttist svo ásamt sinni
fjölskyldu á Hrísateig
43 nokkrum árum siðar
og áttum við yndisleg
ár saman með honum
elsku Stebba mági okk-
ar.
Kata og Stebbi eign-
uðust einn son, Jóhannes, yndislegan
glókoll sem við öll dáðum og móðir
okkar sá ekki sólina fyrir þessum
sólargeisla á heimilinu. Hann var
þeim allt.
Árin liðu í gleði og sælu en svo
syrti að. Árið 1974 fékk Stefán blóð-
tappa við heilann aðeins fimmtíu og
eins árs gamall og gekk aldrei heill
til skógar síðan. Hann náði þó sæmi-
legri heilsu og vann mörg ár eftir
þetta áfall og með dugnaði og þjálf-
un tókst honum að vinna og skrifa
með vinstri hendinni. Hann vann
mörg ár hjá Kletti hf. við sýnatöku
af mjöli og lýsi og sá um alla skýrslu-
ERLENDUR
SIGURÐSSON
+ Erlendur Sig-
urðsson fæddur
12. apríl 1924 í
Reykjavík. Hann
lést 5. apríl sl. á
Borgarspítalanum
í- Reykjavík. For-
eldrar hans voru
Sigurður Halldórs-
son verksljóri og
Marólína Guðrún
Erlendsdóttir. Er-
lendur starfaði
lengst af sem vöru-
bílstjóri, eða frá
1946 til 1976 og síð-
an hjá Húsasmiðj-
unni til 1984, þegar hann hóf
störf hjá Áburðarverksmiðju
ríkisins, þar sem hann starfaði
til 70 ára aldurs. Eiginkona
hans er Anna Clara Sigurðar-
dóttir, f. 26.5.1927 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Sigurð-
ur Jónsson bílstjóri og Guðrún
Ágústa Jóhannsdóttir. Börn
Erlendar og Clöru eru: 1) Þór-
ir, f. 24.3. 1945, múrari. Börn
hans: Ásgeir Hinrik og Erla
Lind. 2) Guðmundur, f. 10.2.
1952, matreiðslu- og fram-
reiðslumaður. Börn hans:
Guðný Ásta, Jón Halldór, Guð-
rún Ágústa, Jón Ferdinand,
Ásta og Guðrún. 3) Marólína
Guðrún, f. 2.1.1954, aðst.stúlka
tannlæknis, eiginmaður hennar
er Björgvin Björgvinsson fast-
eignasali. Börn: Anna Clara,
Davíð, Elísabet og Sylvía. 4)
Olga Dagmar, f. 7.5. 1957,
nemi. Börn: Birna Sif, Edda
Hlíf og Thelma Rut.
Útför Erlends fer fram frá
Dómkirkjunni á morgun og
hefst athöfnin klukkan 10.30.
VIÐ viljum minnast pabba okkar
með fáeinum orðum. Hann var ró-
lyndur maður mjög sem ekki fór
mikið fyrir. Hann annaðist móður
okkar, sem hefur verið bundin
hjólastól undanfarin sjö ár, af ein-
stakri natni og þolinmæði. Þau hafa
alla tíð verið mjög samrýnd og hvort
öðru stoð í gegnum sætt og súrt í
lífinu. Fyrir tæpu ári kom í ljós að
pabbi var með illkynja sjúkdóm.
Sem dæmi úm hve einstakur maður
hann var og umhyggjusamur um
móður okkar, er þegar hann var í
mjög erfiðri lyfjameðferð, klæddi
hann sig upp daglega til að fara
heim til mömmu, þó hann þyrfti að
koma á spítalann eftir
nokkrar stundir aftur.
Síðustu mánuðina sem
hann lifði var hann orð-
inn mjög mikið veikur.
Við viljum þakka
starfsfólki Borgarspít-
alans, deildum E-6 og
B-6, fyrir góða umönn-
un og sérstaklega
Magnúsi Jónssyni
lækni, sem pabbi hafði
miklar mætur á.
Elsku mamma, við
vitum að þú átt góðar
minningar um élsku-
legan eiginmann, sem
er mikils virði. Guð styrki þig í þinni
sorg. Við þökkum þér fyrir allt og
allt, elsku pabbi.
Þín börn,
Þórir, Guðmundur, Marólína
og Olga Dagmar.
Hann afí í Búðó er dáinn. Það er
mjög sárt að fá fréttir sem þessar
þegar maður er í fjarlægu landi og
getur ekki verið með sínum nán-
ustu. En nú er kvöl hans loks á
enda.
Elsku amina, mamma Olga, Tóti
og Gummi, verið sterk. Ég sendi
ykkur öllum mínar dýpstu samúðar-
kveðjur frá Tenerife. Vertu sæll,
afi minn.
Anna Clara Björgvinsdóttir.
Mig langar til að minnast hans
Edda með nokkrum orðum.
Ég kynntist þessum hæga og
blíða manni fyrir um það bil fjórum
árum. Ég þekkti hann ekki vel en
mér er afar hlýtt til hans, slíkt ljúf-
menni var hann og barngóður.
Ég kveð hann afa Edda fyrir
hönd litlu barnanna minna Jóns
Ferdínands og Ástu Guðrúnar.
Elsku Clara, ég bið Guð að
styrkja þig í sorg þinni og ykkur
systkinin, Guðmundur minn, Olga,
Tóti og Malla.
Esther.
Einn af öðrum hverfa samferða-
mennirnir úr hópnum, nú síðast
mágur minn og vinur Erlendur Sig-
urðsson, bifreiðastjóri, Eddi eins og
við kölluðum hann dagsdaglega.
Nú hefur sorgin knúið dyra á hinu
hlýlega heimili hans og skarðið er
stórt, það finna eftirlifandi kona
hans og böm best. Þar ríkir nú