Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1995 B 35
MINNIIMGAR
gerð í því sambandi.
Kata og Stebbi voru mjög sam-
rýnd hjón enda þurftu þau á því að
halda í lífinu. Fyrir þrem árum
misstu þau son sinn af slysförum.
Hann lét eftir sig son sem Stefán
heitir, átta ára gamall. Afi hélt mik-
ið uppá nafna sinn og nú á hann
eftir að lýsa upp tilveruna hjá ömmu
sinni einsog hingað til.
Guð blessi þig elsku systir og litli
frændi.
Guðrún og Jóhanna.
Það var síðla árs 1968 sem ég
kynntist heimilisanda Stefáns Her-
mannssonar og Katrínar Jóhannes-
dóttur. Þegar ég þvældist með syni
þeirra Jóhannesi um borg og bý, í
leit að tilgangi lífsins og framtíðinni,
var það í ófá skipti sem okkur var
boðið upp á hressingu hjá Stebba og
Kötu eins og þau voru kölluð. Þvílík
þjónustulund í garð ungmenna sem
leituðu að tækifærum framtíðarinnar
hefur mér ætíð verið minnisstæð og
endurspeglaði þá hlýju sem Stebbi
bjó yfír en fór samt fremur dult með.
Hann var maður ljóshærður með
sterka andlitsdrætti, hár, herða-
breiður og hraustlegur útlits. Ég
minnist þess þegar hann reisti fjöl-
skyldu sinni nýtt heimili að Lauga-
læk, er hann stóð uppi á vinnupalli
og strauk útvegginn með múrbretti,
rólegu'm en ákveðnum hreyfingum.
Nokkru síðar frétti ég að hann hefði
fengið blóðtappa með þeim afleiðing-
mikill söknuður því Eddi var ein-
stakur heimilisfaðir, hlýr og elsku-
legur. Hann var vænn drengur,
grandvar og prúður, kunni vel að
meta glettni og gamansemi, heiðar-
leika hans var viðbrugðið. Hann
taldi aldrei eftir sér að rétta bróður-
hönd ef til hans var leitáð, hann
vildi hvers manns vanda leysa ef
það var á hans valdi. Nú syrgja
margir þennan öðling, ekki síst
kona hans sem hefur átt við lang-
varandi veikindi að stríða, börnin
og ekki síst barnabörnin sem elsk-
uðu og virtu afa mikið. Þau fundu
hlýju og góðmennsku sem frá hon-
um streymdi og var alltaf til staðar
ef á þurfti að halda.
Eiginkona Edda er Anna Clara
Sigurðardóttir, elskuleg kona sem
reynst hefur honum vel, ekki síst í
veikindum hans. Sambúð þeirra
hefur verið góð, þeim varð íjögurra
barna auðið, öll vel gerð og foreldr-
um sínum til sóma.
um að hann lamaðist á öðrum helm-
ingi líkama síns og míssti málið.
Þrátt fyrir þessa erfiðleika vann
hann af sinni seiglu, með hjálp Kötu,
sonar þeirra og ættingja að koma
sér í það form að verða sjálfbjarga.
Þetta tókst honum og var hann fljót-
lega byijaður að vinna aftur og hélt
því um allangt skeið, eða þangað til
kreppa tók að í atvinnulífinu. Gat
hann farið allra sinna ferða án hjálp-
artækja og málinu náði hann að
vissu marki og gat gert sig ótrúlega
skiljanlegan.
Fyrir 6 árum eignaðist Stefán lít-
inn nafna sinn Jóhannesson, sem var
þeim Kötu langþráð perla úr ólgusjó
þessa lífs. Þann skugga bar þó á
að tveimur árum síðar lést einkason-
ur þeirra Jóhannes Stefánsson eftir
langvarandi veikindi. En það æxlað-
ist þó þannig að Stebbi litli varð enn
meira hjá afa sínum og ömmu núna
síðustu árin sem ljós í langnætti
ævikvölds sem þakklætisvottur al-
mættisins fyrir óeigingjama þjón-
ustulund.
Þegar ég leiði hugann að heimili
þeirra Kötu og Stebba koma mér í
hug orð Páls postula úr I. Kor. 13.
kafla. „Kærleikurinn er langlyndur,
hann er góðviljaður, ... samgleðst
sannleikanum; hann breiðir yfir allt,
trúir öllu, vonar allt, umber allt.“
Ég votta Katrínu Jóhannesdóttur
og öllum aðstandendum dýpstu sam-
úð mína og þakka ógleymanleg
kynni.
Sigurður R. Sigurbjörnsson.
Á yngri árum vann Eddi algenga
vinnu, aðallega við húsabyggingar,
eftir að stríðinu lauk hóf hann sjálf-
stæðan atvinnurekstur sem vörubif-
reiðastjóri og vann við það starf
þar til að hann réðst til starfa hjá
Áburðarverksmiðju ríkisins, þar
starfaði hann þar til hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir. Eddi
reyndist frábær starfsmaður að
hveiju sem hann gekk og vann sér
hlýhug og vináttu þeirra manna
sem með honum störfuðu. Þó við
lítum yfir farinn veg og langi að
margt komi fram sem við geymum
í dýrmætum sjóði minninganna,
verðum við að horfa fram á veg.
Ég, systkini hans og fjölskyldur
þeirra þökkum fyrir þær stundir
sem við höfum átt með þessum
góða dreng. Öll biðjum við honum
fararheilla á nýrri vegferð, blessuð
sé minning hans.
Magnús Bergsteinsson.
er einn af þessum
skemmtilegu og vöndudu svefn-
sófum sem fást í Húsgagnahöllinni
en þarfást yfir 60 gerðir.
Kr. 35.590
Mikið úrval af húsgögnum
til fermingagjafa.
BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 5871199
Formáli minningargreina
ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um,
er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum.
lagana 7-17 apríl n.k. í veitingasalnum Lóninu. Páskahlaðborc
hlaðið krásum, góðgæti fyrir börnin (eftir matinn að sjáifsögðu)
páskaungar til sýnis fyrir unga fólkið, páskaleikur og lifandi
tónlist á kvöldin
// I0hj>?skala;i..
fr-ppnirbáf^'kUr
6 #1l ^ikr. *
Reykt lambacarpaccio, einiberja grafinn lax,
reyktur lax, eggjaréttir, reyksoðinn silungur,
baunasalöt, quiche lorrane ogfl.
FyUtur kaUmnn, ofnsteiktir kjúklingar, kaldreyktar
lambalundir, jurtakryddáð lambalceri, hangikjöt,
kryddbakaður fiskur, pastaréttir, heitir eggjaréttir,
grænmeti ogfl.
11 11
Súkkulaðikaka, súkkulaðibollar með ferskum
ávöxtum, búðingar, súkkulaðimús, marsipanterta,
lítil páskaegg ogfl.
Páskahlaðborð
Verð kr. 1395,- í hádeginu
og kr. 1950,- á kvölain
LÖPTkilBtft
Borðapantanir í síma 552 2321
■iju . li;irr
T