Morgunblaðið - 23.04.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1995 B 5
yfir verkefninu og krafðist þess að
Lenny ynni með sér kvöld eftir
kvöld, sendi hann i vinnuna á öllum
tímum sólarhrings og lét hann
aldrei í friði. Bonnie var líka ergileg
yfir fjarveru eiginmannsins, en
hann laug sífellt að henni, sagðist
vera að lesa eða í vinnu. I nóvem-
ber var Lenny farinn að vantreysta
Kevin og var orðinn hræddur. Hann
vissi að Kevin bæði hótaði og talaði
fólk til, þegar honum hentaði. Þeg-
ar hann frétti að einhver hefði
hringt og þóst vera frá skattinum,
til að tilkynna að Lenr.y ætti
ógreidda skatta og símakerfi fyrir-
tækisins hagaði sér undarlega, var
Lenny ekki í vafa um hver væri að
hrella hann. Hann játaði nú allt
fyrir yfirmanni sínum. Daginn eftir
hringdi Lenny í tölvuöryggisvörð
Digital og sagðist vilja segja honum
hver hefði verið óboðni gesturinn í
tölvum þeirra. Öryggisvörðurinn
tók næstu flugvél til Los Angeles
og að höfðu samband við banda-
rísku alríkislögregluna, FBI, var
Mitnick tekinn fastur daginn eftir.
Mitnick var dæmdur í árs fang-
elsi og sex mánaða afvötnunar-
meðferð til að venja hann af tölvu-
notkun. Hann afplánaði dóminn í
opnu fangelsi og síðan tók með-
ferðin við. Um leið breytti hann
um líferni, stundaði líkamsrækt og
léttist um tæplega fimmtíu kíló,
breyttist úr fituhlunki í ungan og
rennilegan mann, enda aðeins 26
ára gamall. Hann útskrifaðist úr
meðferðinni tveimur mánuðum fyrr
en ætlað var, vegna góðs árangurs
og fékk vinnu sem forritari á heil-
sugæslustöð. Bonnie sótti um
skilnað og Kevin flutti til ömmu
sinnar.
Meistarastykki Mitnicks
Batinn var þó ekki algjör. Hann
tók fljótlega upp sömu iðju og frá
1992 hefur hann farið huldu höfði.
Síðasta jóladag tók vísindamaður
Rðeins pað Besta ncest þér
jBj
HANNES WÖHLER & CO,
Smiðjuvegi 72,
sími 554 4040.
62-62-62
- kjarni málsins!
og sérfræðingur í
tölvuöryggi, Tsu-
tomu Shimomura í
Kaliforníu, eftir því
að einhver hafði
komist inn í tölvu
hans og afritað
hundruð skjala og
forrita. Shimomura,
sem er þrítugur og
því ári yngri en Ke-
vin hóf nú leit að
þjófnum. Eftir
nokkra leit fannst
þýfið á tölvuneti,
tengt Internet og í
kringum það var
fjörug umferð.
Shimomura var nú
ekki í vafa hver and-
stæðingurinn var.
Mitnick á ekki
marga sína líka, en
Shimomura var
hönum ofjarl og
tókst að rekja símt-
ölin og hafa upp á
honum í Norður-
Karólínu. Shimo-
mura var viðstaddur
handtökuna og
Mitnick kallaði
hrósyrði til hans fyr-
ir snilldina.
í þetta skiptið á
Mitnick yfir höfði
sér allt að 35 ára
fangelsi. Hann
hafði viðað að sér
ótrúlegu magni upplýsinga, meðal
annars símakorts- og greiðslu-
kortanúmer, sem hann notaði til
að hringja fyrir, auk forrita. Sam-
tals voru þetta upplýsingar sem
fylltu hundruð milljóna tölvubæta.
Þeir sem eru kunnugir Mitnick eru
ekki í vafa um að hann sótti í tölvu
Shimomura því þar vissi hann að
væru ómetanlegar upplýsingar um
tölvuöryggiskerfi. En Mitnick
hugsaði ekki út í að Shimomura
KEFIN Mitnick
er nákvæmlega jafn þolinmóður og
snjall og hann sjálfur. Mitnick bíð-
ur nú dóms í fangelsi í Norður-
Karólínu, þar sem hann situr tölvu-
laus. Með það í huga hve langt
hann kemst með símann einan
saman, þá eru símtöl hans vöktuð
og hann má ekki hringja í aðra en
lögmann sinn, móður og ömmu. í
þetta skiptið virðist Mitnick ekki
munu komast auðveldlega frá af-
brotum sínum.
Laugavegur- Veitingahús
Til sölu mjög þekkt veitingahús á besta staö,
við Laugaveg - þar sem fólkið er. Góð rekstrar-
eining - sæti fyrir 50 manns - vel tækjum búinn,
- besti tíminn framundan.
Gott verð - einstök kjör - laus strax.
Nafn, kennitala og símanúmer sendist til
afgreiðslu Morgunblaðsins, merkt: „C - 2304.“
Alþjoðlegt og oðruvisi
kennaranám f Danmörku
Det IMödvendige Seminarium menntar kennara framtíðar-
innar. Við tökum nú við nýjum nemendum frá allri Evópu
- byrjað 1. september 1995. - Námið er nútímalegt og fram-
sýnt bæði hvað varðar námskrá og kennsluaðferðir.
• 1. ár: Alþjóðlegt námsefrn. Innifalin er 4ra mánaða námsferð i langferðabíl um
Asíu til Indlands
• 2. ár Nám í samfélagsfræði, umhverfis- og náttúrufræði, svo og 6 mán. þátttaka
í dönsku atvinnulífi.
• 3. + 4. ár: 2 x 6 mánaða starfsnám í skólum í Danmörku eða öðrum löndum.
Námsefni m.a. í uppeldisfræði, sálfræði, söng og tónlist, handiðn og mynd-
list, leiklist, íþróttum, dönsku, reikning/stærðfræði, hagfræði, portúgölsku og
grunnfögum.
Náminu lýkur með 1 árs vinnu sem kennari í Afríku. Ef þú hefur áhuga, hringdu
þá eða sendu símbréf og fáðu bækling: Sími 00 45 43 99 55 44, símbréf 00 45 43
99 59 82.
Kynningarfundur verður í Reykjavík 29. apríl og á Akureyri 30. apríl.
Det Nodvendige Seminarium, Tvind, DK-6990 Ulfborg.
HAFNARFJARÐARBÆR
TIL SOLU - TILBOÐ
Hafnarfjarðarbær auglýsir til sölu íbúðarhúsið að Suðurgötu 11, Hafnarfirði,
járnklætt timburhús, hæð og ris á steyptum kjallara. Húsið, sem er allt ný
endurnýjað, er um 317 m2. Tilboð óskast í húsið og skal þeim skilað á skrif-
stofu bæjarverkfræðings Strandgötu 6, fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. maí n.k.
og verða þau opnuð þar að viðstödd-
um þeim bjóðendum er þess óska.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum. Til að
fá nánari upplýsingar, uppdrætti og
að skoða húsið, vinsamlegast hafið
samband við skrifstofu bæjarverk-
fræðings sími 555-3444.
Bæjarverkfræðingurinn í Hafnarfirði.
Aðalfundur
Tæknivals hf. 1994
Aðalfundur Tæknivals hf. er hér með boðaður
þriðjudaginn 9. maí 1995. Fundurinn verður haldinn
í Húnabúð Skeifunni 17, 3. hæð kl. 20.00.
Dagskrá fundarins er sem hér segir:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
2. Breytingar á samþykktum félagsins
til samræmis við ný lög um hlutafélög.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Reikningar félagsins fyrir árið 1994 liggja frammi
á skrifstofu félagsins.
H Tæknival
Skeifunni 17 - Simi 568-1665 - Fax 568-0664
Bílamarkadurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut.
Kopavogi, sími
567-1800
Löggild bílasala
Verið velkomin
við vinnum fyrir þig
Opið í dag
frá kl. 13-18
Grand Cherokee Limited V-8 ’94
Grænsans., sjálfsk., ek. aðeins 9 þ. km., leðurinnr.,
álfelgur, geislasp., einn með öllu. Sem nýr. V. 4.550 þús.
Cherokee Country 4,0L ’94
Sjálfsk., ek. 13 þ. km., viðarinnr., cruiscontrol, álfelgur o.fl.
V. 3,3 millj.
Nýja bílasalan, Bíldshöfða 8,
TOYOTA 4RUNNER. Árg.
1992. Ekinn 38 þús km.
Dökkblár. Beinskiptur, 5
gíra. álfelgur. Upphækkaður
f. 33" dekk. 31" dekk. Rafm.
í öllu. Skipti mögul. á
ódýrari. Verð stgr. 2.500
þús. Eigum árg. '90 og '91
sjálfsk. og beinsk.
NISSAN TERRANO 2,7 DÍSEL
TÚRBÓ. Árg. 1992.
Ekinn 89 þús. klm. Steingrár.
Beínskiptur, 5 gíra, álfelgur.
Rafm. f öllu. Smurbók fylgir
frá upphafí. Skipti mögul. á
ódýrari. Verð stgr. 2.400 þús.
DAIHATSU CHARADE LIM-
ITED. Árg. 1992. Ekinn
aðeins 28 þús. km. Rauður.
Beinskiptur, 5 gíra. Skipti
möguleg á ódýrari. Verð
stgr. 760 þús
NISSAN SUNNY SLX
Árg. 1993. ekinn 32 þús.
Grænsans. Beinskiptur, 5
gíra, spoiler. Skipti möugl.
á ódýrari. Verð stgr. 1.050
þús
MIKID AF CODUM BILUM A
s. 5673766
SUBARU LEGACY 1,8 GL
STATION. Árg. 1990.
Grásans. Ekinn aðeins 58.
ús km. Beinskiptur, 5 gíra.
Verð stgr. 1.190 þús. Eigum
árg. '90-'93.
MMC LANCER GLXI
Árg. 1993. Ekinn 22 þús. km.
Rauður. Sjálfskiptur, Spoiler,
topplúga, álfelgur. Skipti
mögul. á 700 þ. kr. ódýari.
Verð stgr. 1.300 þús.
CÓDUM STAD