Morgunblaðið - 11.06.1995, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1995 B 13
Morðingjar og
aðrir vinir
Breski ríthöfundurínn John Mortimer, segir
í grein Amalds Indriðasonar, er ánægður
með að vera kallaður kampavínssósíalisti og
segist standa einhver staðar mitt á milli
Jeffreys Archers og Salmans Rushdies í
bókmenntaheiminum.
MENN hafa kannski horft
meira á verk breska rit-
höfundarins Johns
Mortimers á íslandi en
lesið þau. Hann samdi rómaða sjón-
varpsútgáfu sögunnar „Brideshead
Revisited" eftir Evelyn Waugh, sögur
hans, „Paradise Lost“ og „Titmus
Regained“, voru færðar í sjónvarps-
búning með eftirminnilegum hætti,
leikrit eins og „A Voyage Round My
Father" var sýnt hér í sjónvarpinu
og allar sögur hans um lögmanninn
Horace Rumpole eru samstundis
gerðar að sjónvarpsþáttum með Leo
McKem í titilhlutverkinu og hafa
sumir ratað hingað í sjónvarpið.
Mortimer sendi nýlega frá sér nýja
endurminningabók sem ber heitið
Morðingjar og aðrir vinir eða „Murd-
erers and Other Friends", þar sem
hann skyggnist á bak við tjöldin og
rekur raunveruleg glæpamál, sem
urðu kveikjan að sögum hans, og
kynnin af litríkum persónum.
Mortimer er sérlega fjölhæfur
penni. Eftir hann liggja skáldsögur,
sjónvarpsþættir, leikrit og endur-
minningabækur. Hann er löglærður
og stundaði lögfræðina af kappi en
þaðan er Horace Rumpole upprunn-
inn. Um leið og ný saga er kominn
í bókabúðir fer Mortimer að vinna
sjónvarpsþætti uppúr henni. Margt
af því sem hann skrifar, Rumpole
t.d. en líka leikrit eins og „A Voyage
Round My Father", á sér rætur í
föður hans sem var landsþekktur
skilnaðarlögfræðingur, Clifford
Mortimer að nafni, er lést árið 1959.
I nýju endurminningabókinn segir
Mortimer að erfítt reynist að kveða
draug hans niður. Ein ástæðan gæti
verið sú að hann býr í húsi föður
síns, ásamt eiginkonu, í Oxfordskíri.
Mortimer er sælkeri og forðast af
alhug hverskyns líkamsæfíngar því
þær gætu stefnt heilsu hans í voða
eins og hann sagði í nýlegu viðtali í
The New York Times. Hann gerir
sig ánægðan með að vera kallaður
kampavínssósíalisti í Bretlandi þótt
margir aðrir sem hafa sömu stjóm-
málaskoðanir og hann álíti það
skammaryrði. Honum finnstþað„ekki
sanngjamt að íhaldsmenn einir megi
drekka kampavín en sósíalistar verði
að gera sér að góðu múslí og drekka
öl með samlokunum".
Hann segist vera sósíalisti en jafn-
VEIT ekki hvernig glæp ég mundi drýgja; breski
rithöfundurinn John Mortimer.
framt meðmæltur refaveiðum. „Ég
hef ekki sérstaklega mikinn áhuga á
því sem fólk gerir dýmm en ég hef
miklar áhyggjur af því hvað það ger-
ir hvert öðru,“ segir hann til skýring-
ar þessari pólitísku ranghugsun.
Mortimer er vinnuhestur og vaknar
klukkan sex á hvetjum morgni hvar
sem hann er staddur. Hann hand-
skrifar fram til hádegis og hefur þá
lokið þeim 1000 orðum sem hann
einsetur sér að skrifa á hveijum degi.
Flest það sem hann semur má rekja
beint til ævi hans. í lok fyrstu endur-
minningabókarinnar, „Clinging to the
Wreckage", skrifaði hann: „Þetta eru
þeir hlutir sem lifðu með mér áður
en þeir fóru í bókin“a. Um síðir end-
ar allt í bók eða leikriti. Þegar talið
berst að hans eigin stöðu í bók-
menntaheiminum segist hann vera
einhvers staðar miðja vegu á milli
Jeffreys Archers og Salmans Rushdi-
es.
Þegar Mortimer er spurður að því
hvað hefði verið mest einkennandi
fyrir feril hans sem rithöfundar segir
hann að líklega sé best að líkja hon-
um við blindan mann er reynir að
komast leiðar sinnar hugrakkur en
gætinn. Það er enn ein tilvitnunin í
föður hans, sem stundaði áfram lög-
fræðistörf þótt hann væri orðinn
blindur. „Þessi líking gæti átt við
hvaða rithöfund sem er,“ segir hann,
„vegna þess að sem rithöfundur reyn-
irðu að.fínna leið út úr leyndardómum
sem þú skilur í rauninni ekki sjálfur."
Mortimer hefur m.a. starfað við
blaðamennsku og er sérfræðingur í
að yfirheyra frægðarfólkið. Hann
spurði sakamálahöfundinn Ruth Ren-
dell t.d. einu sinni hvort hana hafí
nokkurn tímann langað til að drýgja
glæp. Þegar spurningunni er beint
að honum segir hann: „Ég held að
allir fremji nokkra glæpi á hveijum
degi. Ég keyri ekki lengur en þegar
cg gciui pau Lfiauu eg sannariega
hveija einustu umferðarreglu sem
þekkist." Um alvarlegri glæpi svarar
hann: „Ég er ekki viss um hverskon-
ar glæpi ég gæti drýgt. Ég er alveg
hræðileg veimiltíta og gæti því aldrei
framið blóðugan glæp. Ég held ég
mundi örugglega hjálpa öllum sem
ég þekkti að sleppa undan lögregl-
unni. Allt mitt líf hef ég verið að
koma fólki undan réttlátum örlög-
um.“
Hann segir kaldhæðnislega að
glæpamenn séu ómissandi í lífí okk-
ar. „Níutíu og fimm prósent fólks
situr í sófanum, drekkur bjór, maular
snakk og dottar fyrir framan sjón-
varpið. Það treystir á að þau fímm
prósent sem eftir eru komist í kland-
ur og haldi skemmtanaiðnaðinum
gangandi."
Sem lögmaður barðist hann m.a.
gegn ritskoðun og fræg er herferð
hans fyrir því að hleypa konum inn
í Garrick einkaklúbbinn. Einn af fé-
lögum hans í þeirri baráttu hélt ræðu
af því tilefni ogsagði: „Um aldamótin
voru flórir hópar fólks sem ekki fengU
inngöngu í Garrick klúbbinn, dæmdir
sakamenn, geðsjúklingar, hommar
og konur. Við höfum þegar tekið inh
fyrstu þijá hópana. Tökum þann
íjórða inn líka.“ Um lögmannsstörfin
segir Mortimer: „Það koma alltaif
þeir tímar að það verður að standh
upp í réttarsalnum og halda ræðu
og þá þýðir ekkert að segjast vera
haldinn lögmannastíflu. Þannig lít ég
á rithöfundarstarfíð, maður verður
að standa sig.“ Hann segist kunnh
vel við allar sínar sögupersónur, jafn-
vel erkiíhaldið Leslie Titmuss í „Para|-
dise Postponed". „Ég er haldinn þeim
hræðilega veikleika að kunna við fólk.
Ástæðan fyrir því að ég kann vel við
Titmus er sú að hann er hann sjálf-
ur; hann fellir ekki seglin.“
Að lokum spuming sem Mortimer
sjálfur hefði getað spurt viðmælanda
sinn: Hugsar hann meira um dauðann
eftir því sem hann eldist? „Ekki svo
mikið. Eitt af því sem maður finnur
með aldrinum er að hver dagur skiptf
ir meira máli en áður. Hann er lýstur
upp með endanleikanum."
Meira en steinhúðuð utanhússklæðning!
Kynntu þér
sumarverðið núna!
Komdu til okkar eða hringdu og fáðu
nýjan vörulista og góð ráð varðandi
§érljannaða íslenska múrkerfið.
ÍMXJR múrkerfið er tilvalið jafnt á ný
hús sem gömul. ÍMÚR múrkerfið er
viðurkennt af Brunamálastofnun.
70.000 fermetrar
á 10 árum.
ÍMÚR múrkerfið er semetitsbundin
útvéggjaklæðning sem er hönnuð og
þróuð ryrir íslenskar aðstæður í sam-
vinnu við Rannsóknarstofnun bygg-
ingariðnaðarins. Fjölmargar úttektir
og góð reynsla staðfestir að kerfið er
veðurþolið og sterkt. Það hentar því
mjög vel vjð í^lenskar aðstæður og
veðurfar. IMÚR múrkerfið er án
samskeyta, gjaman sléttpússað og
málað með sama útliti og múrhúðaðir
útveggir. Einnig er hægt að hafa kerfið
með nraunaðri áferð, setja á það perlu-
múr eða nota steiningu með marmara,
kvartsi, basalti og fleiri tegundum í
ýmsum litum.
í takt við tímann:
1, 2 og 3ju verdlaun
í samkeppni
Rey kj a víkurbor gar!
Cxert er ráð fyrir ÍMÚR múrkerfinu í
tillögum hönnuða sem unnu 1. og 2.
verðlaun í samkeppni Reykjavíkur-
borgar um hönnun skóla í Engja-
hverfi. Kerfið er valkostur hjá þeim
sem unnu 3. verðlaun.
Við óskum verðlaunahöfum til
hamingju með góðan árangur.
Steinað múrkerfi frá ÍMÚR.
imuR
IL
tk
&
ÍSLENSKAR MÚRVÖRUR HF.
VlDARHÖFÖI 1,112 KEYKJAVÍK. 8ÍM1: B67 35 56. MVNDSENDIK: 5Ö7 35 42