Morgunblaðið - 11.06.1995, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 11.06.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ1995 B li) FRÉTTIR Fransiskusspítali í Stykkishólmi Námskeið í greiningu og meðferð kvilla Stykkishólmi - St. Fransiskusspítali í Stykkishólmi stóð nýlega fyrir nám- skeiði þessa dagana. Það fjallar um orthopaedisk medicin og gengur út á greiningu og meðferð kvilla í hreyfikerfi líkamans. Þetta er þriðja árið sem svona námskeið er haldið á vegum Sjúkra- hússins og fjórða námskeiðið. Nám- skeiðin eru ætluð læknum og sjúkra- þjálfurum. Námsefnið sem farið er yfir spannar tvð námskeið og eru þátttakendumir nú að ljúka seinni hlutanum. Vandað er til námskeiðsins og eru fengnir erlendir sérfræðingar til að kenna. Kennslan fer fram í íþróttam- iðstöðinni í Stykkishólmi. Þetta nám- skeið sækja 14 þátttakendur og er jöfn skipting á milli lækna og sjúkra- þjálfara. Einn þátttakandinn kemur alla leið frá Noregi. Að námskeiðinu loknu hafa 50 manns lokið þessu námi. Það er Jósef Blöndal, sjúkra- húslæknir í Stykkishólmi, sem hefur verið aðal hvatamaður fyrir því að koma námskeiðunum á og hann hef- ur líka skipulagt þau. Hann hefur sérhæft sig í að lækna bakveika og hefur náð góðum árangri. Með hon- um kenna á námskeiðinu dr. Henry A. Sanford, sérfræðingur við St. Thomas-, Cromwell- og Wellington- sjúkrahúsið í London og Nigel Hanc- ard, yfírsjúkraþjálfari við sjúkrahús- ið í York á Englandi. Þátttakendur voru ánægðir með skipulagningu námskeiðsins og að- stöðuna sem boðið er upp á hér og fara mun fróðari heim á sín sjúkra- hús og eru færari að meðhöndla sína sjúklinga. Hlaut styrk úr Forshell-sjóðnum STYRKI úr minningarsjóði um Per- Olaf ForshelI,fyrrverandi sendiherra Svíþjóðar á Islandi, var úthlutað hinn 23. maí, á fæðing- ardegi Forshells, og hlaut Björg Guðmundsdóttir frá Bolungarvík styrkinn, að upphæð 3.000 sænskum krónum. Björg útskrifaðist árið 1994 úr Háskóia íslands með BA-próf með sænsku sem aðalfag. Hún starfar m.a. við sænskukennslu og hefur jafnframt verið leiðsögumaður fyrir Svía á sumrin. Björg fær styrkinn til að geta tekið þátt í námskeiði um sænska tungu og menningu í Svíþjóð í ágúst í sumar. Hlutverk sjóðsins er að styrkja stöðu sænskukennslu á íslandi og menningarsamvinnu milli Svíþjóðar og íslands. Sjóðurinn var stofnað- ur af Ríkisföraningen Sverigekon- takt, til minningar um Per-Olof Forshell, sem var sendiherra Sví- þjóðar á íslandi frá 1987 til dauða- dags 1991. Hann var mjög áhuga- samur um að auka menningarsam- band milli Svíþjóðar og íslands og lagði í þetta áhugamál sitt mikla vinnu. Fjölskylduhátíð og ferða kynning í Kringlunni FERÐAKYNNING verður nú um helgina í Kringlunni í samvinnu við Leikfélag Reykjavíkur, Olíufélagið og nokkra aðila í ferðaþjónustu. Kynntir verða ferðamöguleikar innanlands undir kjörorðinu: ísland, sækjum það heim. Olíufélagið verður með sérstaka kynningu á nýjungum fyrir safnkorthafa félagsins og á notkun debetkorta og greiðslukorta í tengslum við safnkortin. Þá verða þeir með svokallaðan posaleik þar sem góð verðlaun eru í boði. Á laug- ardaginn er sumarskemmtun Leikfé- lags Reykjavíkur sem hefst á Kringl- utorgi um kl. 13. Leikfélagið teflir fram söngatriðum úr söngleiknum Jesús Kristur Súperstjarna sem áformað er að frumsýna um miðjan júlí. Lina Langsokkur mætir á Kringlutorgið og verður með uppá- tæki eins og henni einni er lagið. Hún lítur einnig inn í Ævintýra- kringluna — leiksmiðju barnanna sem er á þriðju hæð í Kringlunni. Ef veður verður óhagstætt verða atriðin úr Jesú Kristi Súperstar og skemmtun Línu Langsokks flutt inn í Kringluna. Eftir hádegi á laugar- deginum verður, ef veður leyfir, grillað á Kringlutorginu á vegnum Hagkaups, Olíufélagsins og Kringl- unnar. Afgreiðslutími Kringlunnar á laugardögum er frá kl. 10-16 en Hard Rock Café er opið til kl. 23.30. Húsið stendur á uppfillingu við Ægisgarð (fyrir neðan Slippinn) og verður til sýnis í dag kl. 14-18. ■EP 588-1425 og 853-2121 Til sölu sérlega vandað 45 fm sumarhús (með mögul. á svefniofti). Verð kr. 1.750 þús. miðað við núverandi byggingastig þ.e.s. fullbúinn að utan, tilbúin loft og gólf að innan. MONTANA TJ ALDVAGNIN N Erum fluttir úr Lágmúlanum. Sýning sunnudag Tjaldvagnar: Landsins mesta úrval tjaldvagna. Allir vagnar koma með hörðu, læsanlegu loki með toppgrind, þýskri fjöðrun og undirvagni. Ten cate tjalddúk af bestu og þykkustu gerð (350 gr.). Vagnarnir eru níðsterkir, smekklegir og auðveldir í tjöldun. 10 sek. í tjöldun rOMANCHE —------ Umboðið ____ EVRÓ HF jtf SUÐURLANDSBRAUT 20 ! SÍMI: 5887171 Rosenthal _ þegar pú «h"' gi°f • Brúðkaupsgjafir • Tímamótagjafir Hönmm oggæði í sérflokki Laugavegi 52, sími 562 4244. MORGUN BUhSINS Sumarfrí á Islandi Laugardagsblaði Morgunblaðsins, þjóðhátíðardaginn 17. júní nk., fylgir blaðauki sem heitir Sumarfrí á íslandi. í þessum blaðauka verður sagt frá ýmsum ferða- og gistimöguleikum og athyglisverðir áningarstaðir skoðaðir. Gönguferðum, veiði, golfi og sundi o.fl. verða gerð góð skil svo og sumarbústaðadvöl og tjaldútilegum. bá verður fjallað um undirbúning fyrir fríið, s.s. viðlegubúnað, útbúnað bílsins og grillsins og birtar grilluppskriftir. Ferðalöngum til gagns og gamans verða birtar krossgátur og getraunir fyrir börn og fullorðna. Þeim, sem áhuga hafa á að auglýsa í þessum blaðauka, er bent á að tekið er við auglýsingapöntunum til kl. 12.00 mánudaginn 12. júní. Nánari upplýsingar veita Rakel Sveinsdóttir og Dóra Guðný Sigurðardóttir, söiufulltrúar í auglýsingadeild, í síma 569 1171 eða með símbréfi 569 1110. -kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.