Morgunblaðið - 11.06.1995, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1995 B 15
Ljósmynd/Ámi Thorsteinsson
ÞEIR sem þekktir eru á myndinni: nr. 1 Pétur Mikkel Sigurðsson, nr. 2 Aðalbjörn Bjarnason, nr. 12 Tómas Ólafsson, nr. 15 Jón Jó-
hannsson, nr. 19 Sigurður Þorsteinsson, nr. 20 Jón Kristófer Lárusson, nr. 21 Tyrfingur Magnússon.
Auk þess útskrifuðust eftirfarandi, ásamt fæðingarstað og degi, og eru þeir settir í sviga sem talið er að séu ekki á myndinni: Ebenezar
J. Guðmundsson, Hnífsdal, 23.12. 1875, Eyjólfur Jóhannsson, Selijamarnesi, 12.2. 1881, Friðrik Bjömsson, Lundarreykjadal, 7.6. 1876,
Friðrik Ólafsson, Kjalarnesi, 5.1. 1874, Guðmundur Guðmundsson, Dýrafirði, 14.9. 1876, Guðmundur Pétursson, Seltjarnarnesi, 2.3.
1881, Gunnlaugur Grímsson, Reykjavik, 24.5. 1883, Ingimundur Jónsson, Reykjavík, 24.2. 1875, (Jochum Þórðarson, Kjalarnesi, 25.1.
1875), Jóhann Jónsson, írafelli, 21. 12.1876, Jóhannes Einarsson, Rauðasandshr., 1.1. 1876, Jón Theodór Hansson, Reykjavík, 10.1. 1879,
Jón H. Sigurðsson, Hörðudalshr., 30.5. 1878, (Kolbeinn Þorsteinsson, Mel, Mýras., 18.11. 1879), Kristján Fr. Meyvant Hansson, Reykja-
vík, 16.5. 1880, Ólafur Ólafsson, Rauðasandi, Barðast., 6.10. 1875, Ólafur Ólafsson, Akranesi, 6.8. 1880, Runólfur Stefánsson, Hraunhr.,
Mýras., 24. 7.1877, Sigurður Guðmundsson.Skagaströnd, 12.8. 1878, Sirurgeir Sigurðsson, Reykjavík, 11.1. 1875, Sveinn Jónsson, Önund-
arfirði, 13.9. 1877, Valdimar Jóhannesson, Varðgjá, Eyjafj., 23.6. 1882, Veturliði O. Bjarnason, Efra-Vaðli, Barðast., 22.4. 1874, Þor-
geir Jónsson, Snæfjöllum, ísafj.sýslu., 18.3. 1876.
Prófsveinar úr Stýri-
mannaskólanum 1901
gerðust of nærgöngul. Hann hafði
til þess tækifærin og við fylgdumst
vel með hótunum hans í fréttum.
Skipið sem ég var á var hlaðið
sprengiefni og það hefði orðið
glæsilegt bál. Það má segja að karl-
inn hafi gert mistök að senda ekki
flugflota sinn eða bara nokkra vél-
byssubáta, það hefði ekki þurft
meira, á móti skipalestinni úr því
hann ætlaði í hart á annað borð.
Að hann gerði það ekki bendir þó
kannski til að hann hafi ekki trúað
því að málið færi úr böndunum með
þeim hætti sem raun varð á. En
sem kunnugt er réðst fjölþjóðaher-
inn á her hans og malaði hann
mélinu smærra."
Loksins hættur?
Hrafn lætur því í raun ósvarað
er hann er spurður hvort að ekki
megi segja að hann sé hættur
heimshornflakkinu. Hann verður
glettinn og píreygur er hann hugsar
aftur. Hann segist ekki sjá eftir
neinu, hann hafi látið „kylfu ráða
kasti“ í lífinu og það hafi hentað
sér. „Er við öðru að búast af manni
sem á ættir að rekja til Jóns Indía-
fara. Ég kaus frelsið og með þessum
hætti upplifði ég það,“ segir Hrafn.
En hvað er það sem gefur þetta
frelsi? Kærustur í hverri höfn? Fjöl-
þjóðaher slarkbræðra og ævintýra-
manna sem finna með sér sam-
kennd?
„Það er mikið drukkið á mörgum
skipum og ég hef drukkið með
mönnum af fjölmörgum þjóðernum.
Stundum eru þetta skemmtilegir
félagar og mikið fjör. Þess á milli
er algjör viðbjóður um borð. Verst
er það ef skipstjórinn er gamall
alki sem liggur í því allan túrinn.
Þá er eins og aginn fari fyrir bí.
Það er líka erfítt að drekka með
aröbum, þeir eru svo ólíkir okkur.
Það er stutt í hnífínn og ofbeldið,
tilefnið þarf ekki að vera mikið.
Indjánar eru allt annars eðlis. Þeir
drekka mikið, en mín reynsla af
þeim er góð og þeir eru góðir félag-
ar.
Þetta með kærustur í hverri höfn
er kannski heldur ofmælt. En það
eru kærustur, heldur betur, kannski
ekki í hverri höfn, en margar eru
þær,“ bætir Hrafn við og þykir
umræðuefnið gott.
Það hefur kveðið æ meira að einu
sambandinu. Þegar Hrafn var um
borð í sænsku skipi fyrir rúmum
þrjátíu árum, kynntist hann norskri
stúlku og voru þau saman um tíma.
Sambandið stóð stutt, en nógu lengi
þó til að þeim fæddist dóttir sem
býr nú harðgift í Noregi. Hrafn
heimsækir þau reglulega og dóttirin
og dótturdætumar, sem eru tvær,
hafa nokkrum sinnum komið til ís-
lands og heimsótt Hrafn og fjöl-
skyldu hans hér á landi.
Hrafn er sestur að í Noregi.
Hann hefur komið sér fyrir við fal-
legt vatn. Dóttir hans býr ekki langt
þar frá. Það er að heyra á ævintýra-
manninum að hann ætli að láta
fara vel um sig þama. Þægindi
hafa ekki verið snar þáttur í lífí
hans. Til dæmis koma vöflur á
Hrafn þegar talið berst að því hvar
hann hafi átt heima. Því er ekki
auðsvarað.
Þá hefur maðurinn lent í lífs-
háska og starað í glymur dauðans
oftar en einu sinni. Ungur þurfti
hann í uppskurð vegna berkla. Þá
var hann hætt kominn. Síðar í lífinu
lenti hann í þvílíku bílslysi, í Suður-
Afríku, að nánast kraftaverk má
telja að hann skyldi lifa af. Eftir-
hreytur þessa ber hann til dauða-
dags. Þá hefur hann oftar en einu
sinni lent í þess háttar sjávarháska
að ekkert mátti út af bera.
Því er hann hvíldinni feginn nú,
þó að hann ítreki það, og ekki í
fyrsta skipti, að vel geti verið að
hann fari aftur á sjó, „ef það skell-
ur aftur á stríð“ segir hann glott-
andi. í Noregi ætlar hann að rækta
í vatninu við bústaðinn. Það var
orðið líflítið af völdum súrs regns,
en Hrafn ætlar að bera kalk í það
og sleppa síðan silungi. Síðan má
silungurinn vara sig, því Hrafn
ætlar í veiðiskap. Hann ætlar að
hafa það náðugt á endasprettinum.
„Það eru líka elgir í skóginum,"
segir hann, „og þeir mega líka vara
sig.“
eftir Halldór Halldórsson
NÝLEGA kom í ljós í Þjóðminja-
safninu mynd af prófsveinum úr
Stýrimannaskólanum í Reykjavík
frá 1901. Hún hafði verið skráð
af ljósmyndaranum undir nafninu
Sjómannaskólinn, en Stýrimanna-
skólinn í Reykjavík hefur heitið svo
frá stofnun 1891 og aldrei annað.
Þetta sjómannaskólanafn er öllum
velunnumm skólans til mæðu þó
að í hálfa öld hafi verið til reisu-
legt hús í Reykjavík með því nafni,
enda Vélskóli íslands þar einnig til
húsa.
Á 100 ára afmæli skólans kom
út vegleg bók sem m.a. hefur að
geyma allar þær myndir sem til eru
af útskriftarnemendum skólans frá
upphafi. Fram til 1913 eru þetta
hópmyndir en frá 1914 skólaspjöld
með sérmynd af hveijum nemanda
og nafni hans undir. Með þeirri
hópmynd sem hér birtist em ein-
ungis tólf myndir þekktar en níu
vantar. Það er nær útilokað að
þessar myndir hafi ekki verið tekn-
ar því ef flett er þeim bókum sem
gefnar hafa verið út um Mennta-
skólann í Reykjavík og Kvennaskól-
ann í Reykjavík kemur í ljós að þar
fellur ekki ár úr auk þess sem nær
allir eru þekktir sem eru á þeim
myndum. Á þessum ámm gerði
fólk sér vel ljóst hvaða tímamót
það voru að útskrifast og því var
þess vel gætt að taka myndir. Það
er svo önnur saga að prófsveinum
varð það á að halda ekki upp á
myndirnar en börn þeirra og barna-
börn týna þessum myndum ekki.
Eins láðist að skrá niður nöfn þeirra
sem eru á myndunum og enginn
skyldi treysta á minnið eftir að
þrítugsaldri er náð.
Að undanförnu hefur verið unnið
að þvi að leita að þeim myndum
sem vantar og fínna út hveijir eru
á myndunum. Komið hefur í ljós
að þó að það séu meira en 80 ár
frá því að þessar myndir voru tekn-
ar eiga margir þessara prófsveina
börn á lífí í dag. Menn vom ekki
að stofna fjölskyldu um leið og
þeir voru við nám á þessum árum
því á því höfðu menn einfaldlega
ekki efni.
Eins og fyrr segir era tólf mynd-
ir til af þeim sem útskrifuðust 1893
til 1913. Nokkuð skiptir í tvö horn
með hvað margir em á hverri
mynd, þ.e. hvort aðeins eru þeir
sem útskrifuðust eða allir þeir sem
vom við nám í skólanum en sumir
voru þar í allt að þijú ár. Sú mynd
sem hér fylgir er nokkuð sér á
parti þar sem á henni eru 22 menn
en 1901 útskrifuðust 31. Er því
ljóst að nokkrir á meðfylgjandi lista
eru ekki á myndinni og jafnvel fleiri
því til var að menn lykju ekki prófí
en voru samt á mynd auk þess sem
ýmsar pestir voru slæmar á þessum
árum, t.d. lungnabólgan, og menn
dóu áður en þeir luku prófí. Vegna
þessa er því nauðsynlegt að láta
vita ef menn eru ekki á myndinni
sem em taldir upp á meðfylgjandi
lista. Rétt er að taka fram að það
er oft sjóndapurt fólk sem telur sig
þekkja einhvern á myndinni og er
því mjög nauðsynlegt að fá leiðrétt-
ingar ef þeir sem telja sig vita
betur fínna villur, af þeirri einföldu
ástæðu að hætta er á að þær villur
sem hér fara af stað verði varanleg-
ar.
Þekktir útskriftarsveinar
Þær myndir sem vantar eru frá
1893, 1894, 1899, 1902, 1903,
1905, 1908,1910 og 1911. í fyrsta
árgangi skólans voru 6 menn og
er vel þekkt mynd af þeim þegar
þeir komu saman í kringum 30 ára
útskriftarafmæli sitt en ekki 50 ára
eins og sumstaðar hefur sést. Þess-
ir sex menn vora: Ámi Kristinn
Magnússon, Einar Ketilsson, Jón
G. Þórðarson, Pétur Ingjaldsson
skipstjóri, m.a. á Laxfossi, Þor-
steinn Þorsteinsson í Þórshamri og
Þorvaldur Jónsson. Árið 1894 út-
skrifuðust fjórir: Bergur Jónsson
Hafnarfírði, Björn Sveinsson, Ólaf-
ur Einarsson og Stefán Snorrason
en þrír afkomendur hans í beinan
karllegg hafa útskrifast úr skólan-
um. Alls útskrifuðust 26 árið 1899.
Meðal þeirra var Hjalti Jónsson
(Eldeyjar.Hjalti), Indriði Gott-
sveinsson á Coot, Jón Ólafsson síð-
ar bankastjóri, Kolbeinn Þorsteins-
son sem tók síðan farmannapróf
1901 og Sigurður Pétursson á
Gullfossi.
Árið 1902 útskrifuðust 25. Þar
má nefna Jón E. Bergsveinsson hjá
Slysavamarfélaginu, Jón G. Ólafs-
son lengi skipstjóri hjá Ríkisskipum
og Jömndur Bjarnason á Bíldudal.
Einnig útskrifuðust 26 árið 1903.
Meðal þeirra var Björn Jónsson í
Ánanaustum, Guðmundur Guð-
mundsson síðar bóndi á Móum á
Kjalarnesi og Guðmundur Guðna-
son togaraskipstjóri en síðast físk-
verkandi fram yfir áttrætt.
Árið 1905 útskrifuðust 27. Bald-
vin Þorsteinsson hákarlaformaður
á Akureyri var einn þeirra og einn-
ig Einar Stefánsson skipstjóri hjá
Eimskip og Jón Erlendsson lengi
verkstjóri hjá Eimskip. Líka Jón
Magnússon sem rak seglaverk-
stæði í Reykjavík síðari hluta
ævinnar. Árið 1908 útskrifuðust
16. Þar á meðal var Gísli J. Eyland
sem var einn af fyrstu skipstjómm
hjá skipadeild SÍS og Ólafur Þórð-
arson hafnargjaldkeri í Hafnarfirði
og formaður skipstjóra og stýri-
mannafélagsins Kára.
Ekki útskrifuðust nema fimm
árið 1910. Einn þeirra var Guðjón
Ágúst Guðmundsson Waage sem
strax fór til Englands og var síðast
þekktur togaraskipstjóri þar. Ann-
ar var Þorgrímur Sveinsson síðar
matsmaður í Hafnarfirði.
Að endingu er svo 1911 en þá
útskrifuðust 14, fjórir af þeim sem
farmenn. Þá útskrifaðist Guðbjart-
ur Ólafsson hafnsögumaður og for-
seti Slysavarnarfélagsins og þeir
bræður Guðmundur og Jón Otti
Jónssynir báðir landsþekktir tog-
araskipstjórar.
Tekið skal fram að búið er að
hafa samband við suma afkomend-
ur ofantaldra manna en þeir kann-
ast ekki við að hafa séð þær mynd-
ir sem hér er auglýst eftir. Rétt
er að ítreka að taka fjölda út-
skriftarnema nákvæmlega því
nokkuð er breytilegt hvort allir sem
voru við nám í skólanum em á
myndunum eða aðeins þeir sem
luku prófi.
Það sem áhugi er fyrir er að
þeir sem telja sig hafa undir hönd-
um myndir af nemendum sem ef
til vill em þær myndir sem vantar
að þeir hafi samband við Stýri-
mannaskólann. Ekkert liggur á að
gera það strax en skrifstofa skól-
ans verður lokuð frá 1. júlí til 15.
ágúst í sumar. Að sjálfsögðu er
alveg sama hvar á landinu menn
búa og er landsbyggðarfólk hvatt
til að láta ekki sitt eftir liggja.
í 100 ára afmælisbókinni era
myndir af þeim sem útskrifuðust
m.a. 1904 og 1906. Ekki voru allir
þekktir á þeim myndum en nú er
búið að bera kennsl á flesta. Það
væri samt vel þegið ef þeir sem
kannast við þá sem eru á myndun-
um hefðu samband og gæfu upplýs-
ingar. Rétt er að geta þess að Ljós-
myndasafn Reykjavíkur í Borgar-
túni hefur fílmur af þessum mynd-
um og getur hver sem er fengið
þær keyptar þar.
Höfundur er útvegsfræðingur.